Dagur - 23.06.1987, Page 3

Dagur - 23.06.1987, Page 3
23. júní 1987 - DAGUR - 3 - Og eru undirtektir góðar? „Já það er óhætt að segja það. Allir sem við höfum þurft að leita til vegna þessa hafa tekið okkur vel. Fólk virðist vera farið að líta öðrum augum á þessa keppni en áður. Hingað til hefur þetta verið litið svolitlu hornauga en nú virð- ist viðhorfið breytt og því vonum við að þetta geti orðið árviss við- burður og börnin geti einnig fengið að taka þátt í þessu eins og nú.“ - Hvernig stendur á því að JC Súlur tekur þátt í verkefni sem þessu? „Það er vegna þess að lands- verkefni JC á þessu ári er Bætt stjórnun, betra byggðarlag og okkur fannst þessi ökuleikni- keppni alveg geta gengið í þetta landsverkefni okkar. Við höfum ekki tekið þátt í þessu áður og það er stefnan hjá okkur að vera með nokkrar nýjungar í starf- seminni í ár.“ - Hver eru annars helstu verk- efnin í starfi ykkar í JC? „Það má segja að við tökum við þar sem skólinn hættir að því leytinu til að í skólanum læra menn ýmislegt en þeim er ekki kennt að tjá sig á einn eða neinn hátt. Að vísu er þetta aðeins að byrja í skólunum núna. Við erum með alls konar námskeið t.d. fundarstjóm, fundarsköp, nefnda- störf og svo náttúrlega höldum við fundi og annað slíkt. Hjá okkur fær hver maður að vera eitt ár í hverju starfi og flestir eiga að fá sitt tækifæri. Þannig eigum við að gera okkar mistök, ef svo má segja, í félaginu því að síðan taka menn kannski við störfum úti í bæ og þá hafa þeir hlotið sína reynslu og sinn skóla hjá okkur og því ætti mönnum að farnast vel.“ - Eru þetta eingöngu nám- skeið fyrir félagsmenn eða eru þetta námskeið sem allir geta sótt? „Þetta eru námskeið sem ein- göngu eru ætluð félagsmönnum í JC hreyfingunni. En í ár ætlum við að bjóða bænum og öðrum félögum þessi námskeið og þá sérstaklega námskeið í fundarrit- un. Maður sér oft fundargerðir sem eru gerðar án þess að menn kunni hreinlega nokkuð til þess. Jafnvel eru það margir sem ekki þora að taka að sér slík störf vegna þess að þeir kunna þetta ekki. Við ætlum því að fara út í það að bjóða fólki að korna á þau námskeið sem það heldur að það hafi gagn og ekki síður gaman af. Það þýðir ekkert að bjóða almenningi að fara á námskeið ef þess er krafist að menn hafi sótt einhver önnur námskeið áður. Við ætlum því að kynna starfið með þessu. Þetta er ekki bara eintómt framapot.“ - Hvað eru ntargir starfandi í JC hérna í bænum? „Hér eru starfandi tvö félög, JC Súlur og JC Akureyri. Þessi félög starfa hvort í sínu lagi en þó er séð til þess að þau séu ekki að vinna að sama verkefninu í einu. í heild eru þetta um 80 manns sem eru starfandi í JC hér á staðnum. Við ætlum þó að reyna að fara út í meiri samvinnu félag- anna því þetta eru oft svipuð verkefni sem unnið er að. Bæjar- félagið er það stórt að það á að þola tvö félög.“ Og næsta verkefni hjá JC Súl- um er því ökuleiknikeppnin og ýmsar uppákontur í því sam- bandi. Vonandi verða sem flestir sem sjá sér fært að taka þátt eða að öðrum kosti að korna og fylgj- ast með. Aldrei er um of brýnt fyrir fólki hvernig það á að haga sér í umferðinni og næsta laugar- dag gefst fólki kostur á fræðslu um þetta. Magnúsi Jónssyni, forseta JC Súlna þökkum við spjallið. JÓH „Offjárfesting helsta vandamálið - segir Guðjón B. Ólafsson forstjóri Sambandsins „Ég held að vannýtt fjárfest- ing sé eitt stærsta vandamál þessarar þjóðar í dag og kannski ein aðalástæðan fyrir því að lífskjör hér eru ekki þau sem þau ættu að geta verið,“ sagði Guðjón B. Olafsson for- stjóri Sambands íslenskra sam- vinnufélaga meðal annars á fundi á Blönduósi síðastliðið fimmtudagskvöld. Það voru samvinnufélögin í Austur-Húnavatnssýslu sem beittu sér fyrir fundinum með forstjóra S.Í.S og framkvæmda- stjóra búvörudeildar. í inngangs- orðum sínum fór Guðjón nokkr- um orðum um uppbyggingu Sam- bandsins og rakti m.a. stöðu ein- stakra deilda þess. Hann sagði að eitt stærsta vandamál verslunar- deildar Sambandsins væri offjár- festing og svo væri um margt ann- að í bjóðfélaginu. Síðan sagði hann: „Mín skoðun er sú að verið sé með offjárfestingu nánast í öll- um helstu atvinnugreinunum. Við erum með offjárfestingu í fiskiskipum, við erum með offjárfestingu í fiskvinnslustöðv- um og of mikinn fjölda af þeim. Það fer ekkert á milli mála að við erum þar með vannýtta fjárfest- ingu upp á mjög stórar upphæð- ir.“ Þá sagði Guðjón B. Ólafsson að sér fyndist sem ýmislegt væri kannski full þungt í vöfum hjá Sambandinu sem skapaðist af því að það þyrfti að fjalla um það á of mörgum fundum af of mörgu fólki. Forstjórinn sagðist óttast að stjórnvöld og almenningur gerðu sér ekki næga grein fyrir því að um leið og verið væri að éta upp eigið fé fyrirtækja þá væri verið að veikja grundvöll þeirra og ef þetta gengi of lengi endaði með því að fyrirtækin hefðu ekki bolmagn til að halda uppi sinni starfsemi. „Ég held að við séum komin með ríkisbáknið á það skrið að það þorir enginn eða getur, tekið á því. Eina svarið hjá stjórnmála- mönnum er að hækka skatla ann- að hvort á fyrirtækjum eða almenningi, þannig að við erum komin þarna í talsvert hættuleg- an vítahring." Þá sagði Guðjón B. Ólafsson að það sem O.E.C.D. væri að benda á varðandi það að íslend- ingar gætu ekki búist við sama góðærinu áfram eins og tvö síð- ustu ár, væri nákvæmlega það sama og Sambandsmenn hefðu margoft bent á. „En vonandi er þá tekið eftir þessu núna þegar það kemur frá París, vegna þess að það er eins og það sé ekkert tekið eftir því þegar það kemur hér heiman frá. Þarna er hætta á ferðum og ég Landsmót ‘87: Búist við a.m.k. 10 þús. manns - mjög fjölbreytt dagskrá Dagana 9.-12. júlí nk., verður haldið á Húsavík 19. landsmót U.M.F.Í. Félagið er 80 ára á þessu ári, en landsmót var fyrst haldið á Akureyri 1909. Undir- búningur þessa móts hófst 1985, og verður dagskráin fjölþætt. Guðni Halldórsson er fram- kvæmdastjóri landsmótsins, og sagði hann að þeir reiknuðu með minnst 10 þúsund manns á mótið. Húsavík er 2500 manna bæjarfé- lag, en þeir telja að ekki verði vandræði með að koma fólki fyrir. Keppendur og starfsfólk verða um 3000 en keppt verður í 11 hefðbundnum greinum, og 13 sýningargreinum þar fyrir utan. Þær verða m.a. Víkingakeppni, þar sem meðal annara keppa Geoff Capes og Jón Páll Sigmars- son, kassabílaspyrna og BMX rally fyrir börnin. Dans, bridge og fjárhundasýning verða á dagskrá, en það síðastnefnda er nýjung á íslandi. Svo verða að sjálfsögðu dansleikir á kvöldin, og spila fjórar hljómsveitir fyrir dansi. Fyrir utan kostnað við upp- byggingu sem á sér stað á Húsa- vík nú, mun beinn framkvæmda- kostnaður við landsmótið verða um 10 miljómr. Inni i því er mötu- neyti fyrir starfsfólk, auglýsingar og útgáfa plötu með Skriðjökl- um, en samið var sérstakt lands- mótslag af þessu tilefni. Nú leggur landsmótsnefndin áherslu á fleiri atriði en hinar hefðbundnu keppnisíþróttir, með það fyrir augum m.a. að breyta ímynd mótsins. Athygl- inni er beint í auknum mæli á skemmtun og hressleika. Næsta landsmót ungmennafé- laga verður haldið í Mosfellssveit 1990. VG Ferðaþjónusta: Starfsfólk ferðaskrif- stofa í kynningarferð Um síöustu helgi var hópur starfsfólks á ferðaskrifstofum í Reykjavík staddur á Akureyri. Hann var hér í boði Ferða- skrifstofu Akureyrar í þeim til- gangi að kynna sér það sem þeir hafa upp á að bjóða. Hópurinn kom á föstudags- kvöld, snæddi kvöldverð og fór í miðnætursólarferð til Ólafsfjarð- ar. Gist var að Þelamörk en á laugardag farið í Grímsey og Hrísey. A sunnudag fór hópurinn síðan í skoðunarferð í Mývatns- sveit. Ferð sem þessi er gagnleg starfsfólki ferðaskrifstofa, svo það geti sem best sagt viðskipta- vinum sínum hvað þeim stendur til boða. VG fullyrði að ef ekki hefði komið til tíu milljarða hækkun á útflutn- ingsverðmæti sjávarafurða þá væri hér alvarleg kreppa." Fundurinn var illa sóttur þrátt fyrir góða auglýsingu og voru menn helst að kenna veðrinu um sem vissulega var til annarra hluta heppilegra en að sitja á fundi innan dyra. Það verður þó að teljast samvinnumönnum á Norðurlandi til lítils sóma að sækja ekki betur fund sem þennan, svo oft hefur heyrst tal- að um sambandsleysi æðstu manna við hinn almenna félags- mann að það er með eindæmum að fólk skyldi ekki nota sér þetta tækifæri til að skiptast á skoðun- um við forstjórann. G.Kr. Félagar Hrossaræktarsambands Eyfirðinga og Þingeyinga Stóðhesturinn Ófeigur 882 frá Flugumýri verður í hólfi á Möðruvöllum í Hörgárdal síðara tímabil- ið í sumar. Þeir sem koma vildu hryssum til hans hafi samband við deildarformennina fyrir miðvikudagskvöldið 24. júní, í Hrossaræktarfélagi Akureyrar og nágrennis, Kristinn Hugason í síma 21479. Aöeins ættbókarfærðar hryssur koma til greina. Hrossaræktarsamband Eyfirðinga og Þingeyinga. Á vegum Ferðafélags Akureyrar verða farnar tvær ferðir um nk. helgi. Farið verður í Herðubreiðalindir og Bræðrafell, dagana 26.-28. júní. Dagana 27.-28. júní verður farin flugferð til Vestmannaeyja. Allar upplýsingar eru veittar á skrifstofu félagsins sem er á Skipagötu 13 og er opin frá kl. 17.00-19.00 mánudaga til föstudags. Sími 22720. Nýkomnar

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.