Dagur


Dagur - 23.06.1987, Qupperneq 5

Dagur - 23.06.1987, Qupperneq 5
23. júní 1987 — DAGUR - 5 Jesendahornid. Vínveitingastaðirnir og sveitaböllin: Krakkar undir jögaldri komast auðveldlega inn Móðir á Brekkunni hringdi og sagðist vilja taka undir orð kon- unnar sem skrifaði í blaðið í gær til að vekja athygli á því hversu auðvelt krakkar á fermingaraldri virtust eiga með að ná sér í áfengi og komast inn á staði þar sem aldurstakmark væri 16 ár og það- an af hærra. „Mín reynsla er sú að þessi fullyrðing eigi við rök að styðjast. Ég á tvær dætur, önnur er 14 ára og hin tvítug. Eldri dóttir mín hefur sagt mér að jafnaldrar og vinir yngri dóttur minnar séu oft í Kjallaranum og þau eigi mjög auðvelt með að komast þar inn. Sjálf hefur yngri dóttir mín mér vitanlega tvisvar gert tilraun til að komast þar inn. í annað skipt- ið tókst henni það en í hitt skiptið ekki. í H-100 er það sama uppi á teningnum, krakkar langt undir lögaldri eiga auðvelt með að komast þar inn. Mér finnst hrylli- legt til þess að hugsa að 14 ára gamlar stúlkur gangi inn á þessa vínveitingastaði án þess svo mik- ið sem depla auga. Þá vil ég einnig taka undir það sem fyrrnefnd móðir segir um Freyvang og ég veit að það sama gildir um dansleiki sem haldnir eru á fleiri stöðum utan Akureyr- ar svo sem í Hlíðarbæ og á Dalvík. Þangað flykkjast krakkar undir 16 ára aldri og komast auð- veldlega inn og geta haft áfengi um hönd án mikilla afskipta þeirra sem dansleikina halda. Ég hringdi í lögregluna fyrir u.þ.b. mánuði vegna þessa og fékk sömu svör og tíunduð voru í les- endabréfinu í gær, þ.e. að lög- reglan hefði ekki nægilegan mannafla til að fylgjast með þess- um hlutum, þeir sæju eingöngu um hefðbundna löggæslu. Það er full ástæða til að taka á þessum hlutum af einurð. Hvað sem skýrslur kunna að segja um áfengisneyslu unglinga á Akur- eyri, þá er það staðreynd að áfengisneysla unglinga er fyrir hendi. Það vita engir betur en þeir foreldrar sem eiga börn á þessum aldri.“ Skilið hækjunum Þeir sem fengið hafa hækjur að láni hjá Sjálfsbjörg á Akureyri og ekki hafa lengur þörf fyrir þær, eru vinsamlega beðnir að skila þeim hið fyrsta. Nú eru fáar hækjur inni, en alltaf getur þeirra verið þörf. Þeir sem hafa ónotað- ar hækjur frá Sjálfsbjörg inni í skáp hjá sér eru því beðnir að koma þeim til skila. Up i i r'ÁIf p w v' \ i 1 't tf « BMir \ >-}Jf( r. 11 «L . ; • Á- '• i JM«[ Gestir og heimamenn framan við Dynheima. Talið frá vinstri: Hermann Sigtryggsson æskulýðs- og íþróttafulitrúi Akureyrar, Steindór G. Steindórsson forstöðumaður æskulýðsmiðstöðvanna á Akureyri, Omar Einarsson fram- kvæmdastjóri íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, Júlíus Hafstein formaður ráðsins, Hilmar Guðlaugsson sem sæti á í ráðinu, Jóhannes Óli Garðarsson framkvæmdastjóri íþróttavallarins í Laugardal, Tóinas Gunnarsson for- maður Æskulýðsráðs Akureyrar, Gísli Arni Eggertsson æskulýðsfulltrúi Reykjavíkur, Jóhann G. Möller Æsku- lýðsráði Akureyrar, Erlingur Þ. Jóhannson íþróttafulltrúi Reykjavíkur og Bragi V. Bergmann Æskulýðsráði Akur- eyrar. Mynd: Dröfn Friðfinnsdóttir. Akureyri: íþrótta- og tómstundaráö Reykja- vflair í heimsókn á Akureyri Samskipti Akureyringa og Reykvíkinga hafa löngum ver- ið með miklum ágætum, ekki síst á vettvangi æskulýðs- og íþróttamála. Sú hefð hefur smám saman komist á, að það ráð sem sér um yfirstjórn þess- ara mála í Reykjavík, íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur, hefur heimsótt Akureyri með nokkurra ára millibili til að kynnast því af eigin raun hvernig að þessum málum er staðið norðanlands. Akureyr- ingar hafa síðan endurgoldið þessar heimsóknir og þannig hafa tengslin eflst og báðir aðilar notið góðs af í starfi sínu. íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur var einmitt í slíkri heimsókn á Akureyri um helg- ina. Á föstudaginn skoðuðu gest- irnir félagsmiðstöðina í Lundar- skóla og Dynheimum og þá aðstöðu sem verið er að byggja upp að Hamraborgum fyrir reið- skóla Æskulýðsráðs og Hesta- mannafélagsins Léttis. Þá komu menn við hjá Nökkva, félagi sigl- ingamanna. Seinni hluti föstudagsins fór í að fylgjast með kappleikjum. Fyrst var fylgst með íslendingum tapa landsleik í handknattleik gegn Dönum í íþróttahöllinni og síðan með leik KA og Völsungs í 1. deild íslandsmótsins í knatt- spyrnu á Akureyrarvelli. Á eftir þáðu nefndarmenn svo og allir leikinenn fyrrnefndra liða, íslenskra og danskra, kvöldverð í boði Bæjarstjórnar Akureyrar í golfskálanum að Jaðri. Laugardagur og fyrri hluti sunnudags fór í að skoða hin ýmsu íþróttasvæði og mannvirki bæjarins en heimsóknin endaði á óformlegri bæjarkeppni í „mini- golfi" á Sundlaugarlóðinni og er skemmst frá því að segja að Reykvíkingar fóru með sigur af hólmi, naumlega þó. Laust eftir hádegi á sunnudag hélt íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur heim á leið, og var á gestunum að heyra að þeir væru hinir ánægðustu með ferðina, enda veðurguðirnir í sæmilegasta skapi, eins og vera ber á þessum árstíma. Foreldrar, foreldrar Voruð þið að hugsa um að senda börnin/barnið í sumarbúðir? Ef svo er getum við leyst málið. Hafið samband við Hönnu í síma 23939, Björgvin eða Þóreyju í síma 31271. Sumarbúðirnar Hólavatni. Verslunin Knoss Vor- og sumarlitir í úrvali. Saumum sjálf fötin á okkur. Burda-sniðin eru komin aftur. Over Lock saumavélin er til hjá mér núna. Sendi í póstkröfu. Opið á laugardögum frá kl. 10-12. Verslunin Enoss Hafnarstræti 88, sími 25914. Vinningstölur 20. júní Heildarvinningsupphæð kr. 4.150.764.- 1. vinningur var kr. 2.078.415.- og skiptist á milli 5 vinningshafa, kr. 415.683.- á mann. 2. vinningur var kr. 622.134,- og skiptist á milli 246 vinningshafa, kr. 2.529.- á mann. 3. vinningur var kr. 1.450.215.- og skiptist á milli 7437 vinningshafa, sem fá kr. 195.- hver. Upplýsingasími 91-685111. Til sölu MMC L-200 Pick up árgerð 1982. Bíllinn sem lítur mjög vel út er með veltigrind, spili og í honum eru góð hljómflutningstæki. Einnig fylgja bílnum stór og mikil vetrardekk á hvítum felgum. Verð 430 þúsund. Nánari upplýsingar gefur Kristján Kristjánsson í síma 24222 á daginn og í síma 26367 á kvöldin. Frá menntamálaráðuneytinu: Lausar stöður við framhaldsskóla Við Menntaskólann á Egilsstöðum eru lausar kennarastöö- ur í dönsku, félagsfræði, sálarfræði og viðskiptagreinum. Við Kvennaskólann í Reykjavík % hluta kennarastaða í frönsku og framlengdur er umsóknarfrestur um kennarastöð- ur í stærðfræði og efnafræði. Við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi kennarastaða í þýsku. Við Iðnskólann í Hafnarfirði kennarastaða í rafeinda- greinum. Við Iðnskólann í Reykjavík staða yfirkennara í rafmagns- og rafeindagreinum. Við Fósturskóla íslands staða verknámskennara og stundakennsla í félags- og móðurmálsgreinum, sem skóla- stjóri veitir upplýsingar um. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 10. júlí næstkomandi. Menntamálaráöuneytiö.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.