Dagur - 12.08.1987, Síða 6
6 - DAGUR - 12. ágúst 1987
Eftir erfið ár í sælgætisiðnaði:
Súkkulaðiverksmiðjan Linda er eitt
þeirra fyrirtækja sem allir þekkja.
Eina sælgætisverksmiðjan á Akur-
eyri og raunar sú eina á lands-
byggðinni nálgast nú 40 ára aldur-
inn. Verksmiðjunni hefur tekist að
standa af sér mikla erfiðleikatíma
fyrir íslenskan sælgætisiðnað og er
nú á uppleið á ný. Blaðamenn Dags
brugðu sér í heimsókn í verksmiðj-
una sjálfum sér og lesendum blaðs-
ins til fróðleiks.
„Það var tilviljun að ég fór út í
framleiðslu á súkkulaði. Þannig
var að ég átti og rak verslunina
London í Skipagötu 6. Þegar
skömmtunartímabilið kom var
okkur skammtað súkkulaði eins
og annað, 10 kíló af suðusúkku-
laði frá Síríus. Eg hef víst aldrei
þolað að láta segja mér fyrir
verkum og þess vegna datt mér í
hug að best væri að framleiða
súkkulaðið sjálfur og hófst handa
við það af fullum krafti,“ segir
Eyþór Tómasson stofnandi og
eigandi súkkulaðiverksmiðjunnar
Lindu um upphafið að starfsem-
inni.
Stofnsetningin gekk þó ekki
átakalaust fyrir sig því það tók
ein þrjú ár að fá eina og eina vél
„í gegnum þessar klíkur sem þá
voru í Reykjavík,“segir Eyþór og
á þar við fjárhagsráðið sem þá
starfaði.
Vélarnar voru flestar keyptar
frá Þýskalandi og Hollandi og ein
þeirra er enn notuð við fram-
Íeiðsluna. Eyþór keypti ásamt
Björgvin Schram sem síðar varð
stórkaupmaður í Reykjavík, efri
hæð hússins að Hólabraut 16 þar
sem nú er til húsa Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins. Eftir
tveggja ára samstarf þeirra keypti
Eyþór hlut Björgvins og síðan
neðri hæðina af Guðmundi bróð-
ur sínum sem þar hafði rekið
trésmíðaverkstæði og síðan kex-
verksmiðjuna Lórilei.
Þarna hófst starfsemi Lindu
árið 1948 þannig að verksmiðjan
á 40 ára afmæli næsta haust. Árið
1961 flutti verksmiðjan svo í nýtt
og glæsilegt húsnæði þar sem hún
er nú. Á sínum tíma þótti það óðs
manns æði að byggja svo gífur-
lega stórt húsnæði á þessum
tíma, og Linda er enn stærsta
sælgætisverksmiðja Iandsins mið-
að við húspláss. „Ég á Jóni heitn-
um Sólnes og Jakobi Frímanns-
syni fyrrverandi kaupfélagsstjóra
það að þakka að ég gat byggt
svona stórt. Þessir menn treystu
mér,“ segir Eyþór, en Jón var á
sínum tíma bankastjóri Lands-
bankans.
Verksmiðjan var skipulögð frá
grunni af þýskum verkfræðingum
því ekki var sama hvar vélarnar
voru ef ná átti sem mestri hag-
ræðingu.
„Þetta hefur alla tíð gengið
ágætlega og ég er ánægður með
þetta,“ segir Eyþór þegar hann
lítur yfir farinn veg. Eyþór fylgist
ennþá með rekstrinum og situr
alltaf á skrifstofu sinni síðdegis,
þó svo að nýr maður hafi tekið
við stjórnartaumunum.
Undir þessu fræga þaki
Það hefur margt breyst frá því að
Eyþór hóf rekstur verksmiðjunn-
ar í Hólabraut. í upphafi unnu
hjá honum sjö starfsstúlkur en nú
eru starfsmenn um 40 talsins og
voru á bilinu 70-80 þegar best lét.
Núverandi framkvæmdastjóri
Lindu er Sigurður Arnórsson.
Eftir að hafa starfað í um 10 ár
hjá ullariðnaði Sambandsins á
Akureyri og síðan í eitt ár hjá
Plasteinangrun réðst hann til
Lindu í mars á síðasta ári. eða á
25. afmælisári núverandi verk-
smiðjuhúss.
Húsið er alls um 3000 fermetr-
ar að stærð, á þremur hæðum. Á
efstu hæðinni er hráefnislager og
þar eru einnig geymdar vélar frá
gömlu verksmiðjunni. Á hinum
tveimur hæðunum eru svo stórir
framleiðslusalir þar sem lofthæð-
in er um 4 metrar og rúmt á alla
kanta þannig að enn er húspláss
fyrir töluverða aukningu í
umsvifum og þar með fleiri og
stærri vélar. Undir þessu fræga
þaki sem fauk í Linduveðrinu
veturinn 1969 eru alls um 11 þús-
und rúmmetrar.
A uppleið eftir hnignun
Eftir töluverða velgengni í inn-
lendri sælgætisframleiðslu á árun-
um fyrir 1980 var tollum aflétt á
innflutt sælgæti og í kjölfar þeirran
Hið glæsilega húsnæði sælgætisverksmiðjunnar Lindu.
„Ég reyni að fylgjast vel með þessu öllu.“ Eyþór Tómasson eigandi og fyrr-
um framkvæmdastjóri Lindu á skrifstofu sinni.
breytingaf komu mjög erfið ár
fyrir Lindu eins og aðrar
sælgætisverksmiðjur í landinu.
íslensk sælgætisframleiðsla hafði
til þessa tíma verið vernduð
atvinnugrein en þurfti nú skyndi-
lega að fara að keppa við erlend-
ar stórverksmiðjur sem gátu í
krafti stærðar sinnar boðið hag-
stætt verð á vörum sínum.
„Það varð hnignum í allri
íslenskri sælgætisgerð fyrstu árin
eftir þetta og þau voru mjög
erfið. Sumir urðu undir og aðrir
eiga enn í erfiðleikum. Enn aðrir
hafa síðan náð sér aftur á strik.
Staðan hjá Lindu var mjög góð
þegar þetta dundi yfir og þess
vegna reyndist ekki þörf á að
draga verulega saman seglin eða
ganga á eignir. Ég held að menn
hafi almennt trúað því að þessum
tollum yrði ekki aflétt og þess
vegna kom þetta eins og köld
gusa. Ef fyrirtækin hefðu haft
meiri aðlögunartíma áður en
svona nokkuð skall á þá hefði
þetta ekki verið eins stór
skellur,“ segir Sjgurður.
Á síðasta ári \ar Linda rekin
„á núlli“ og í ár stefnir í að fyrir-
tækið verði rekið með nokkrum
hagnaði. Framleiðslan jókst
verulega á síðasta ári og veltu-
aukning var um 70% eða langt
umfram hækkun verðlags í land-
inu. „Þetta var auðvitað mjög
ánægjulegt og ég á von á að þetta
aukist enn á þessu ári,“ segir
Sigurður.
Tekið á markaðsmálunum
„Við höfum reynt að koma með
nýjungar án þess að fjárfesta og
þannig náð umsetningunni upp.
Það má segja að við höfum náð
að vinna upp það sem fór for-
görðum á þessum erfiðleikatím-
ii i iirinm i jrnnnnirrwi
um. Við höfum tekið á markaðs-
málunum og rekum harðari við-
skipti gagnvart okkar umboðs-
mönnum víða um land. Við höf-
um reynt að heimsækja umboðs-
mennina reglulega og séð til þess
að vörur okkar séu á boðstólum
miklu víðar en áður var. Okkar
umboðsmenn eiga að þrýsta á
það að okkar vörur séu alltaf á
boðstólum.
Við höfðum nóg húspláss og
vélakost sem gat annað meiru en
hann gerði og þess vegna var
þetta spurningin um að finna þær
vörutegundir sem mestan arð
gáfu og þrýsta þeim út þannig að
söluaukningin yrði fyrst og
fremst í þeim vörutegundum sem
gáfu mest. Margar af þessum
vörutegundum eru þær tegundir
sem við vinnum hvort sem er
vikulega til að hafa þær alltaf nýj-
ar og ferskar, þar á meðal Lindu-
buffin sem eru lang-vinsælasta
varan okkar.
Sigurður Arnórsson framkvæmdastjóri
„Borða mikið af Lindusúkkulaði og fínnst það alltaf jafn gott.“ Anna Friðrik
hefur unnið lengst allra í vinnslusal sælgætisverksmiðjunnar Lindu eða í 21 ár