Dagur - 23.09.1987, Blaðsíða 4

Dagur - 23.09.1987, Blaðsíða 4
rr 987 Sæplast hf.: Mikill kraftur í starfseminni - segir Pétur Reimarsson framkvæmdastjóri Sæplasts hf. á Dalvík Fyrirtækið Sæplast var upphaf- lega starfrækt í Garðabæ en árið 1984 keyptu nokkrir ein- staklingar á Dalvík fyrirtækið með aðstoð Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar. Pétur Reimars- son er framkvæmdastjóri fyrir- tækisins og ræddi blaðamaður Dags við hann og Jón Gunn- arsson á Sjávarútvegssýning- unni. Þeir félagarnir voru nokkuð hressir með fyrsta dag sýningar- innar og sögðu að þó nokkuð af fyrirspurnum hefði borist til þeirra bæði frá innlendum og er- lendum aðilum. Sæplast er nú nýverið komið í nýtt húsnæði á Dalvík en það gamla var löngu orðið of lítið. En vöxturinn hjá fyrirtækinu hefur verið svo ör að þetta nýja húsnæði er þegar orðið of lítið. Sæplastsmenn hyggjast því bæta við húsnæðið og vonast þeir til að það verði komið í notkun um áramótin. Jafnframt hafa verið keyptar nýjar vélar sem ætlað er að þrefalda fram- leiðsluna frá því sem nú er. Sæplast hefur frá upphafi sér- hæft sig í framleiðslu á vörum fyrir sjávarútveg og fiskvinnslu, aðallega plastkerum og pöllum. Notkun plastkera til geymslu og tlutnings á fiski hefur aukist mjög mikið síðastliðin tvö ár og kemur það ekki síst til vegna aukins út- flutnings ferskfisks í gámum. í kerum geymist ísaður fiskur mun betur og lengur en fiskur sem er hafður laus í stíum eða fiskmóttökum vinnsluhúsanna. Að undanförnu hefur Sæplast flutt út um þriðjung framleiðsl- unnar, einkum til Bandaríkj- anna, Grænlands og Færeyja. Að sögn Péturs var Sæplast með á síðustu sjávarútvegssýn- ingu og hefðu viðbrögðin verið mjög jákvæð. Þeir hefðu því ákveðið að vera með aftur og þeim sýndist þetta ætla að verða mun betra núna. AP Jón Gunnarsson og Pétur Reimarsson framkvæmdastjóri. „Höfum varla undan aö framleiöa“ - segir Elliði Hreinsson hjá Hafspili á Akureyri, en fyrirtækið framleiðir vökvadrifin tæki fyrir sjávarútveg Hafspil hf. er fyrirtæki sem sérhæfír sig í framleiðslu vökvadrifínna tækja í báta og skip. „Á þessari sýningu leggj- um við aðaláhersluna á partek- spil, splittvindur og bakstroffu- spil með innbyggðum vökva- bremsum,“ sagði Elliöi Hreinsson sem varð fyrir svör- um í bás Hafspils hf. frá Akur- eyri er blaðamaður Dags kom þar við á ferð um sjávarútvegs- sýninguna. Hafspil hf. var stofnað á Akur- eyri um áramótin 1985-6, en faðir Elliða, Hreinn EUiðason á um helming í fyrirtækinu. Samherji og Iðnþróunarfélagið eiga 20% hvort og Elliði sagðist sjálfur eiga um 5% hlutabréfa. Um 10 manns vinna hjá fyrir- tækinu, en Elliði sagði að starfs- mannafjöldinn væri nokkuð misjafn. Hafspil framleiðir eins og áður sagði vökvadrifin tæki fyrir sjávarútveg. Má þar nefna neta- og línuspil af ýmsum stærðum, netaskífur og dragara, kraftblakkir, tog- og bakstroffu- spil. Línuspilin eru notuð í um 40-50 bátum og hafa reynst vel. „Það hefur gengið vel hjá okkur. Við framleiðum aðallega á innlendan markað og höfum varla undan. Eftirspurnin er Elliði hjá Hafspili. mikil," sagði Elliði. Mikil fram- leiðsluaukning hefur orðið hjá fyrirtækinu miðað við síðasta ár. „Þetta er fyrsta stóra sýningin sem við tökum þátt í. Það má segja að við höfum tekið eina æfingu, sem var Iðnsýningin á Akureyri, en þetta er allt annað. Hér er svo mikið af fólki, bæði íslendingum og einnig útlending- um. Það hafa margir komið við hjá okkur og sýnt áhuga á okkar framleiðslu," sagði Elliði að lokum. mþþ Marel hf.: Leiðandi fyrirtæki í heiminum í iramleiðslu á skipavogum - Þórólfur Ámason markaðsstjóri hjá Fyrirtækið Marel hf. er eitt af leiðandi fyrirtækjum í heimin- um í hönnun og framleiðslu á tölvuvogum í skip og báta. Þeir eru að sjálfsögðu með á þessari sjávarútvegssýningu og blaðamaður ræddi við Þórólf Árnason markaðsstjóra þeirra um sýninguna og starfsemi Marels almennt. „Það sem við leggjum aðal- áherslu á að kynna á þessari sýn- Marel hf. í spjalli svona skipavoga í N.-Evrópu og þar af leiðandi í heiminum." Skipavog sett í flokkara Þórólfur sýndi blaðamanni hvernig nýjasta afkvæmi þeirra Marelsmanna virkaði en það er mjög fullkominn flokkari. Þeir hafa sett þessar fullkomnu skipa- vogir í flokkarann og er hægt að setja hann í togara. Þetta þýðir mikla verðmætaaukningu því y ► . . ;--------------------------------------------------- Þóróll'ur Árnuson markaðsstjóri Marels hf. sýnir hvernig nýja flokkunarvél- in virkar. ingu eru hinar hefðbundnu vörur Marels þ.e. vogir og skráningar- kerfi í frvstihús. Rafeindavogir Marels hafa náð umtalsverðum hluta af markaðinum hér innan- lands og í nágrannalöndum okkar. Þessar vogir eru mjög full- komnar og hjálpa til við að ná hámarksgæðum úr hráefninu. En við kynnum líka nýjungar hér á sýningunni, það eru skipavogir og flokkunarvélar í togara. Við kynntum þessar skipavogir fyrst fyrir tveimur árum og nú hafa selst yfir 200 slíkar. Við erum t.d. á leið til Astralíu að setja upp svona vogir í næsta mánuði. Það er mjög spennandi verkefni enda er það markaður sem íslensk fyrirtæki hafa ekki áður farið inn á. Það er mikil viðurkenning að þessir áströlsku aðilar vilja versla við okkur enda sýnir það hve framarlega við stöndum í þessari tækni. Það má segja að við séum leiðandi aðilar í framleiðslu hingað til hefur flokkunin farið fram í höndunum. í frystitogur- unum myndi þetta þýða mikinn sparnað í vinnu og miklu nákvæmari flokkun. Gott dæmi um þetta er hinn svokallaði Jap- anskarfi. Ef hann er frystur í rétt- um þyngdarflokkum þýðir það miklu hærra verð." - Hvað þýðir svona sýning fyr- ir fyrirtæki sem Marel? „Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að sýna framleiðslu okkar. Hingað koma forstjórar og yfir- mcnn flestra fiskvinnslufyrir- tækja, bæði innlendra og er- lendra. Við þurfum að stefna að útflutningi því íslenski mark- aðurinn er takmarkaður. Hér komumst við í kynni við erlenda kaupendur sem eru nauðsynlegir til þess að við getum haldið áfram aö vaxa sem fyrirtæki, þótt við gerum okkur grein fyrir að íslenski markaðurinn er einnig mjög mikilvægur." AP

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.