Dagur - 28.09.1987, Page 11
28. september 1987 - DAGUR - 11
Helgi Hallgrímsson:
Hlaut styrk
Helgi Hallgrímsson, náttúru-
fræðingur, hefur hlotið fyrstu
viðurkenningu til rithöfundar
sem Hagþenkir - félag höfunda
fræðirita og kennslugagna - veit-
ir. Hún var aflient í Gistihúsinu á
Egilsstöðum sl. laugardag við
athöfn, sem ýmsum sem tengjast
söfnum og fræðastörfum á Aust-
urlandi, var boðið til.
Það kom fram í greinargerð
Harðar Bergmann, formanns
Hagþenkis, að ákvörðun um að
veita 100 þúsund krónur í viður-
kenningu til fræðiritahöfundar
hefði verið tekin á félagsfundi í
mars sl. og þar var stjórn félags-
ins falið að leita eftir ábendingum
um höfunda sem kæmu til greina
og taka ákvörðun um veitinguna.
Tilgangur félagsins með slíkri
viðurkenningu væri sá að vekja
athygli á því starfi sem höfundar
fræðirita og kennslugagna vinna.
Með því væri m.a. lagður grund-
völlur að því að við yrðum fær
um að ræða ný fræði og viðfangs-
efni á íslensku og þróa íslenska
menningu. Fé það sem veitt var
til þessarar sérstöku viðurkenn-
ingar kæmi úr styrktarsjóði Hag-
þenkis, en í hann rennur fé sem
greitt er til félagsins vegna samn-
inga sem það á aðild að um
heimild skóla til að ljósrita útgef-
in verk að vissu marki.
Helstu rök stjórnar Hagþenkis
fyrir að veita Helga Hallgríms-
syni viðurkenningu félagsins
kvað Hörður þessi:
Helgi hefur stundað vönduð
rannsókna- og fræðastörf af
áhuga og gerhygli í meira en
aldarfjórðung. Jafnframt hefur
hann leitast við að miðla árangri
starfs síns til almennings með
ývenju fjölbreyttum hætti: Semja
og gefa út bækur, ritstýra tímarit-
um og birta fjölda greina í þeim
og efla Náttúrugripasafnið á
Akureyri. Einnig ber að geta
þess að Helgi stofnaði fyrstu
almannasamtök um náttúru-
vernd hér á landi. Viðfangsefni
Helga hafa einkum tengst nátt-
úrufræði en eru afar víðfeðm. Þá
telur stjórn Hagþenkis einnig
lofsvert hvernig Helgi Hallgríms-
son hefur látið landsbyggðina
njóta verka sinna sérstaklega
enda þótt þjóðin öll hafi aðgang
að þeim. Hann hefur aldrei látið
þægindi eða launavon ráða stefnu
sinni.
í lok ræðu sinnar óskaði Hörð-
ur Austfirðingum til hamingju
með að hafa endurheimt Helga
til starfa á æskuslóðum hans.
Ágúst H. Bjarnason, varafor-
maður Hagþenkis, gerði ítarlega
grein fyrir störfum og ritverkum
Helga Hallgrímssonar á sam-
komunni. Helgi þakkaði óvænta
viðurkenningu og sagði í ræðu
sem hann flutti frá hugrenningum
sem hefðu vaknað er hann fékk
tilkynningu um hana og drap á
ýmislegt sem tengist þeim við-
fangsefnum sem hann fæst við
um þessar mundir, svepparann-
sóknum og þjóðfræði.
Passa-
myndir
Gott úrval
mynda-
ramma
mynd
LJÓSMYN DAfTOFA
Slmi 96-22807 • Pósthólf 464
Glerárgötu 20 602 Akureyri
& Skotveiðifélag
J!r Eyjafjarðar
Fundur verður haldinn í kvöld mánudag 28.
september kl. 20.00 í Norðurgötu 2a (gamla
útvarpshúsinu).
Video o.fl.
Nýir félagar velkomnir.
Felagar fjölmennið.
Stjórn.
Félag verslunar-
og skrifstofufólks, Akureyri
Slmi 21635 - Skipagötu 14
Fundarboð!
Almennur félagsfundur verður haldinn að
Hótel KEA í kvöld 28. sept. kl. 21.00.
Fundarefni:
Kosning 9 fulltrúa á þing A.N. 10. og 11. okt.
Kosning 9 fulltrúa á þing L.Í.V. 13.-15. nóv.
Önnur mál. p^jag yerslunar- og skrifstofufólks
á Akureyri og nágrenni.
Hafið þið komið og skoðað
vöruverðið hjá okkur,
það mun koma á óvart
Blússur frá kr. 1.705.
Peysur frá kr. 1.295.
Joggingpeysur frá kr. 1.395.
Sokkamir enn á sama góða verðinu.
Úrval af eymalokkum og -^Versliinin
öðmm skartgripum. Jm r
Nýkomnir hettutreflar "^UTlog
inn
Sunnuhlíð 12, sími 22484.
verð kr. 895.
Starf í bókabúð
Óskum að ráða starfsfólk í bókaverslun eftir hádegi.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um aldur og
fyrri störf leggist inn á afgreiðslu Dags merkt
„TOB 1711“.
básamotta
I fjósið
og hesthúsið. 1 600 - si>,kkið
Verð aðeins kr.
Gúmmívinnslan hf.
Rettarhvammi 1 Akureyri Sími 96-26776
Kjötvinnsla
Óskum eftir að ráða fólk til starfa við kjötvinnslu.
Upplýsingar á staðnum.
Hvannavöllum gegnt Lindu.
Óskum að ráða verkamenn
til starfa strax,
við einingaframleiðslu.
MOL&SANDUR HF.
v/SÚLUVEG - PÓSTHÓLF 618 - 602 AKUREYRI - SÍMI (96)21255
Lokaútsala í 6 daga
á leður- og mokkafatnaði
Útsalan er í verslun Iðnaðardeildar
frá 28. sept. til 3. okt.
Opið er á mánudag, þriðjudag og
miðvikudag frá kl. 12.00-18.00
en á fimmtudag og föstudag frá kl.
12.00-19.00.
Á laugardegi, lokadegi útsölunnar,
er opið frá kl. 10.00-16.00.
Þú þarft að sjá
verð og gseði tU
að sannfærast.
Hú er einstakt tæki-
færítíl að skinna sig
upp fyrír veturínn
Iðnaðardeild Sambandsins
Akureyri