Dagur - 10.02.1988, Page 9
8 - DAGUR - 10. febrúar 1988
10. febrúar 1988 - DAGUR - 9
Golfíþróttin er gulli betri
kom fyrir ekki. Á öllum brautun-
um lagði tölvan illkvittnar gildrur
fyrir Einar og það dugði ekkert
þótt Kalli mótstjóri reyndi að
skamma tölvuna. Hvað eftir ann-
að koma á skerminn: „Kúla í
sandi“, „kúla út af vellinum“ eða
„kúla í vatni“.
Á sjöttu braut ætlaði tölvan að
fara að hrekkja blaðamanninn og
hlaupa yfir hann. Hún sá nú fljótt
að sér þegar blaðamaðurinn hót-
aði að skrifa illa um umboðs-
mann hennar í útbreiddasta
dagblað norðan Holtavörðuheið-
ar. Blaðamaðurinn kom inn í
kerfið með 136 metra upphafs-
högg og var hann hæstánægður
með það. Segið svo að blaða-
menn hafi ekki áhrif í þjóðfélag-
inu!
Síðustu þrjár brautirnar voru
annars tíðindalitlar, Einari gekk
hræðilega á þeim öllum og var
með þetta 14 upp í 20 högg á
hverri þeirra. Guðmundur lék af
öryggi atvinnumannsins og sigr-
aði á öllum brautunum sem eftir
voru. Árangur blaðamannsins
var ekki til að tíunda í fjölmiðl-
um, en hann náði þó öðru sæti
vegna slaks árangurs „Rennings-
ins“.
Þegar upp var staðið hafði
Guðmundur B. Ólafsson farið
þessar níu holur á 68 höggum,
blaðamaðurinn fór á 82 höggum
en Einar „Renningur" Ásbjörn
Ólafsson fór á svo mörgum högg-
um að hann bað þess að þær tölur
yrðu aldrei gerðar opinberar. Af
tillitssemi við foreldra og fjöl-
skyldu hans verður Dagur við
þeim tilmælum að birta ekki
lokaskor Einars í þessari keppni.
í þessari grein hefur verið í
léttum dúr sagt frá golfkeppni í
golfherminum í Öskjuhlíð. Ekki
hefur verið reynt að skýra í smá-
atriðum frá því hvernig golf-
hermirinn virkar en á þessu sést
að það er vel þess virði fyrir golf-
áhugamenn að reyna hæfni sína,
ef þeir eiga erindi til Reykjavík-
ur. AP
Myndir: AP
Það kom víst ekki á óvart að
hinn góðkunni golfari Sigurður
Pétursson sigraði í þessari
keppni D-vaktarinnar í
Reykjavík. Hann hefur leikið
golf síðan 1971 og er einn af
betri golfleikurum landsins.
Sigurður setti nýtt met í golf-
herminum þegar hann þeytti
kúlunni 309 metra á einni
brautinni, en hann átti líka
eldra met 284 metra. Við
ræddum við hann um keppn-
ina og golfherminn almennt.
- Fyrsta spurningin sem við
lögðum fyrir hann var hvort van-
ur golfleikari fengi eitthvað út úr
því að leika í svona hermi?
„Já, það er óhætt að segja að
þessi golfhermir sé mjög raun-
hæfur. Hann gefur bæði upp
vegalengdina og skekkjuna í
höggunum hjá manni. Eini gall-
Sigurður Pétursson sigurvegari Lokaða D-vaktarmótsins.
inn sem hægt er að tala um er að
maður skýtur í gegnum skóg án
fyrirstöðu, en það gengur víst
ekki á alvöru golfvelli!
Ég prófaði fyrst að spila á þess-
um hermi fyrir 2 árum með GR
liðinu þegar við vorum á leið í
Evrópukeppni félagsliða og það
kom okkur mjög vel í keppninni.
Þetta æfir bæði högg og spil,
þannig að maður getur haft mikið
gagn af þessu þegar ekki er hægt
að leika utan dyra. Hugsunin er
mikilvægur þáttur í golfinu og
þarna fær maður gott tækifæri til
að þjálfa hugsunina og einbeit-
inguna í þessari íþrótt.“
- Kom það þér á óvart að sigra
í þessari keppni D-vaktarinnar?
„Nei, það er ekki hægt að segja
það. Ég er með langlægstu for-
gjöfina af öllum á vaktinni, 1,
þannig að miðað við það átti ég
að vinna þessa keppni. Hins vegar
eru margir sterkir golfarar á vakt-
inni og ég þurfti virkilega að hafa
fyrir þessum sigri.
Það er mjög mikill golfáhugi
innan lögreglunnar og þá sérstak-
lega þessarar vaktar. Það er
stefnan að gera þetta golfmót að
árlegum viðburði og það voru
ótrúlega margir sem tóku þátt í
því í ár. Það er trú mín að á næsta
ári verði enn fleiri með á mót-
inu.“ Við þökkum Sigurði Pét-
urssyni fyrir spjallið og óskum
honum til hamingju með sigur-
inn. AP
Fríður hópur lögreglumanna af D-vaktinni, sem tók þátt í mótinu.
„GoUhermirinn er
mjög raunhæfur“
- segir Sigurður Pétursson
sigurvegari Lokaða D-vaktarmótsins
„Hvaöa kylta er
best á 4. braut?“
Fylgst með golfmóti í golfherminum í Öskjuhlíð
Einar snaraði kylfunum úr
skottinu á bflnum og sagði
glettnislega: „Jæja, strákar
mínir, nú er það að duga eða
drepast. Club de Bonmont
brautin er ekki fyrir neina
byrjendur.“ Guðmundur og
Karl mótstjóri litu á hann,
sveifluðu kylfupokunum sínum
á öxlina kæruleysislega og
sögðu að þeir væru ósmeykir.
Það lá við að blaðamanninum
snérist hugur, Bonmont golf-
völlurinn er erfiður 9 holu
völlur og blaðamaðurinn er
algjör áhugamaður í íþróttinni.
En hann herti upp hugann,
ekki gat hann runnið af hólmi
fyrir framan hina strákana, og
arkaði hann því með þeim inn
á keppnissvæðið.
Þetta er ekki, lesandi góður,
lýsing á golfmóti í Frakklandi,
Skotlandi eða Sviss. Þetta er ekki
einu sinni mót á Jaðarsvellinum,
sem er verið að tala um. Mótið er
lokuð keppni D-vaktar lögregl-
unnar í Reykjavík í golfhermin-
um í Keilusalnum í Öskjuhlíð.
Það er einungis í gegnum klíku
sem blaðamanninum var boðin
þátttaka og hann sá strax eftir því
að hafa sagt já, eftir að hann
frétti að lögregluþjónar eru með
golfóðustu starfsstéttum á land-
inu. En það er eins og gamla
máltækið segir: „Tvennt verður
ekki aftur tekið, töluð orð og tap-
aður meydómur.“
Flestir meðlimir D-vaktarinnar
tóku þátt í mótinu og var þeim
raðað niður í þriggja manna
hópa. Blaðamaðurinn lenti með
þeim Einari Ásbirni Ólafssyni og
Guðmundi B. Ólafssyni í hópi,
en þeir eru báðir nokkuð öflugir
kylfingar. Einar, eða „Renning-
urinn“ eins og hann er oftast
nefndur af vinnufélögunum sök-
um sérstakrar líkamsbyggingar
sinnar, hefur margoft gert harða
hríð að Einherjaklúbbnum, en
alltaf mistekist. Guðmundur, eða
Tolli eins og hann er oftast
nefndur, er ungur kylfingur með
litríka fortíð að baki sem knatt-
spyrnumaður með Fram og
Glímufélaginu Víkverja. Þetta
eru því engin smá nöfn sem
blaðamaðurinn var að etja kappi
við á þessu móti.
Erfíðar golfbrautir
Karl Valsson var mótstjóri og
sérfræðingur á golfherminn.
Hann vakti herminn til lífsins og
skráði inn persónulegar upplýs-
ingar um keppendurna. Einar og
Tolli voru farnir að munda kylf-
urnar og greinilegt að þeir voru
farnir að iða í skinninu að eiga
við Bonmont brautina. Blaða-
maðurinn var hins vegar farinn
að svitna og leið frekar illa, sér-
staklega er Einar fór að hand-
leika trékylfuna, eða „drævið"
eins og golfmennimir segja víst.
En það var ekki hægt að bakka
núna, nöfnin voru komin inn á
tölvuna og keppnin byrjuð.
Fyrsta brautin er 380 m og er
hún par 4, eins og golfmenn
segja, en það þýðir að góður golf-
leikari á að geta farið brautina á
fjórum höggum. Kalli mótstjóri
kallaði upp nafn „Renningsins“
og Einar gekk styrkum skrefum
með járn nr. 5 upp á pallinn.
Hann tók eitt æfingahögg, en var
svo óheppinn að tölvuskynjarinn
í loftinu nam það sem alvöruhögg
og þar með var hann búinn með
sitt fyrsta högg. Greinilegt var að
þetta sló Einar dálítið út af laginu
og vandaði hann tölvunni ekki
kveðjurnar.
Þar gekk næstur Guðmundur á
pall með kylfu nr. 6 og leit út fyr-
ir að hann hefði náð nokkuð
góðu skoti. En tölvan var á öðru
máli, kúlan hafði lent í sand-
gryfju og það þýðir ekki að deila
við dómaratölvu.
Blaðamaðurinn steig næstur á
stokk með járn 7 og náði bara
Einar Ásbjöm tekur góða sveiflu á 3. braut.
þokkalegu upphafsskoti sem
tölvan mældi tæplega 90 metra.
Til að orðlengja þetta ekki nánar
þá kláraði blaðamaðurinn þessa
braut í 9 höggum og munaði þar
mestu að í „púttið“ fóru 3 högg.
Renningurinn og Tolli voru jafnir
eftir þessa fyrstu braut á 6
höggum.
Tölvan skipaði Einari að byrja
og hann þakkaði pent fyrir sig
með því að taka fallegt 109 metra
upphafsskot á 2. brautinni. Hún
er frekar erfið, 310 metrar og er
par 4. Guðmundur náði sér ekki
á strik í fyrsta höggi og skaut
þrisvar sinnum út af brautinni.
Ekki tókst blaðamanninum betur
upp í upphafshöggi sínu. Hann
hafði fikrað sig örlítið upp á
skaftið og notaði nú járn nr. 5.
Það dugði ekki heldur og skaut
hann tvisvar sinnum út af braut-
inni.
Tölvan fer aö
hrekkja Einar
Einari tókst listilega að sveigja
fram hjá beygju á brautinni og
lauk hann þessari braut á sex
höggum. Guðmundur og blaða-
maðurinn lentu í hinu mesta basli
á þessari braut - Guðmundur
lenti í sandi og blaðamaðurinn
barði beint ofan í tjörn. Renning-
urinn tók því forystu en Guð-
mundur og blaðamaðurinn fóru á
13 og 15 höggum.
„Jæja, nú má LJIfar fara að passa sig,“ varð Guðmundi B. að orði þegar
þessi mynd var tekin.
Blaðamaðurinn var nú farinn
að losna við minnimáttarkennd-
ina, sem hafði hrjáð hann gagn-
vart hinum tveim keppendunum
og náði sér vel á strik á 3. braut.
Þetta var 150 metra braut, par 3,
og blaðamaðurinn kórónaði
árangurinn þar með glæsilegum
pútti og lauk henni á fjórum
höggum. Einar náði glæsilegu
upphafshöggi, en hafði áður lent
upp á kant við tölvuna, og hún
hefndi sín á honum með því að
dæma hann ofan í tjörn. Ánnars
var við þessu að búast frá „Renn-
ingnum" því hann hefur einstakt
lag á því að hrekja allt kvenkyns
frá sér. En, kæri lesandi, þetta
segi ég nú í algjörum trúnaði við
þig og þú lætur það ekkert fara
lengra, því þetta er viðkvæmt
mál fyrir piltinn. Bæði Guð-
mundur og hann náðu hins vegar
að bjarga sér með góðu pútti og
„GoHhermirinn hefiir svo sannar-
lega sannað nota- og skemmíigildi sitt“
- segir Guðný Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Keilusalarins
Guðný Guðjónsdóttir er fram-
kvæmdastjóri Keilusalarins í
Öskjuhlíð, en þar er golfherm-
irinn til húsa. Við hittum hana
að máli og spurðum hana um
starfsemi golfhermisins.
„í fyrstu ætluðum við að setja
upp veitingastað í horninu þar
sem golfhermirinn er nú. En eftir
að hafa íhugað málið féllum við
frá þeirri hugmynd, því við töld-
um ekki að sá staður mundi
standa undir sér.
Þá kom Pétur Björnsson að
máli við okkur og bauð okkur
þennan golfhermi til sölu, en Pét-
ur er umboðsmaður fyrir fram-
leiðandann hér á landi. Eftir
nokkra umhugsun ákváðum við
að slá til og það hefur svo sannar-
lega borgað sig. Það var í októ-
ber 1986 sem golfhermirinn var
tilbúinn til notkunar og síðan þá
hefur aðsóknin verið mjög góð.“
- Eru þetta helst áhugamenn
eða mjög góðir golfleikarar sem
mæta hér í golfherminn?
„Það er alls konar fólk sem
mætir hér til að spila. Við getum
ekki leyft byrjendum að spila
hér, því þetta eru viðkvæm tæki
og t.d teppið, þar sem slegið er,
má ekki við mjög miklu hnjaski.
Flestir eru áhugamenn en lands-
liðsmennirnir hafa oft æft hér
inni. Þar má t.d. nefna að þeir
æfðu hér vel fyrir Evrópukeppn-
ina í fyrra og þeir sögðu að það
hefði hjálpað þeim mikið í mót-
inu.
Nýtingin er ótrúlega góð á
herminum. Það er eiginlega alltaf
fullt á kvöldin, en það eru einnig
mjög margir sem spila á daginn,
enda er ódýrara að spila þá. Tím-
inn á daginn kostar 970 krónur til
klukkan 17.00, en 1240 krónur
eftir það.“
- Ér von á einhverjum breyt-
ingum á starfsemi hermisins?
„Það er nýbúið að bæta tölvu-
kerfið á öðrum golfvellinum en
þeir eru tveir. Þessi nýjung er
þannig að maður sér kúluna á
tjaldinu og hvert hún stefnir.
Þetta gerir spilið raunverulegra
og við eigum von á því að það
verði einnig hægt að sjá kúluna á
hinum vellinum fljótlega.
Við höfum átt í erfiðleikum
með að teppið, þar sem slegið er,
hefur eyðilagst mjög fljótt en við
erum að bíða eftir nýju frá fram-
leiðandanum. Ég tel að þennan
tíma sem hermirinn hefur verið í
notkun hafi hann svo sannarlega
sannað nota- og skemmtigildi
sitt. Þess vegna er ég þess fullviss
að svona tæki eigi fullan rétt á
sér, sérstaklega í landi eins og ís-
landi, þar sem ekki er hægt að
treysta á veðráttuna í sambandi
við golfið,“ sagði Guðný Guð-
jónsdóttir framkvæmdastjóri
Keilusalarins í Öskjuhh'ð að
lokum. AP
enduðu á 5 og 6 höggum. Sem
sagt, fyrsta brautin sem blaða-
maðurinn sigraði á en því miður
einnig sú síðasta, eins og síðar
kom í ljós.
Borubrattur gekk blaðamaður-
inn upp á pallinn og nú átti að
taka 4. holu með trompi. Það var
trékylfa, eða „dræv“ eins og við
kylfingar köllum það, í hendi
hans og höggið var nógu langt
111 metrar. En því miður beint
ofan í einn andapollinn og stútaði
þar stokkandarpari sem var þar í
rólegheitum í sunnudagssundtúr.
Ekki tókst Guðmundi betur upp
með 110 metra upphafsskoti, en
þá voru allar endurnar farnar.
Brautin er 320 metrar, par 4, og
Einar lenti líka í vatni í öðru
höggi sínu.
Þegar upp var staðið var árang-
urinn hræðilegur hjá blaða-
manninum, 18 högg, og lækkaði
þetta heldur betur gorgeirinn í
honum. Árangurinn hjá hinum
tveimur var ekki heldur til að
hrópa neitt húrra fyrir, Tolli fór á
sjö höggum og Einar á átta.
Einar hafði nú forystu eftir
þessar fjórar brautir, en heldur
betur dró til tíðinda á 5. braut-
inni. Hún er 385 metrar, par 4,
og nokkuð erfið. Heldur köldu
hafði andað milli tölvunnar og
Einars fram að þessu, en á þess-
ari braut snérist það upp í algjört
hatur. Tölvan fór að senda
„Renningnum“ miður skemmti-
legar athugasemdir og það var
meira en hann þoldi. Spenning-
urinn var mikill og Einar greyið
fór alveg á taugum. Einföldustu
upphafshögg mistókust, tveggja
metra pútt misstu marks og oftar
en einu sinni týndust kúlurnar
hreinlega. Það mátti heyra
hæðnislegan hlátur frá tölvunni
og á ljósaskjánum birtist skýrum
blikkandi stöfum: „Kúla týnd!“
Vel þess virði
að reyna hæfni sína
Tolli og blaðamaðurinn reyndu
að telja kjarkinn í Einar, en allt