Dagur - 10.02.1988, Qupperneq 15
o tO. febrúar 1988 rr.DAGUR - 15
Bautamótið í innanhússknattspyrnu um helgina:
Leikið með markvörð
og fjóra útileikmenn
Hið árlega Bautamót meistara-
flokks karla í innanhússknatt-
spyrnu verður haldið í Iþrótta-
höllinni á Akureyri um næstu
helgi. Áætlað er að 16 til 20 lið
taki þátt í mótinu og að leikið
verði í fjögurra eða fímm liða
riðlum. Tvö efstu liðin í hverj-
KA-mcnn hömpuðu Bautabikarnum í fyrra, hvað gera þeir í ár?
um riðli komist síðan áfram í
úrslitakeppni.
Að þessu sinni verður leikið
eftir nýjum reglum, á velli sem er
25x40 m og án batta. Mörkin
verða einnig stærri, eða 2x5 m,
(eins og í mini-knattspyrnu). I
hvoru liði eru 5 leikmenn inn á í
einu og þar af auðkenndur mark-
maður. Að öðru leyti verður tek-
ið mið af regiugerð KSÍ um
innanhússknattspyrnumót sem
nýlega hefur verið send til aðild-
arfélaga KSÍ.
Flest bendir til þess að í fram-
tíðinni verði leikið eftir reglum
svipuðum þeim og verða viðhafð-
ar í Bautamótinu og þá jafnt á
íslandsmóti sem öðrum mótum.
Búast má við skemmtilegri
keppni og er reiknað með að öll
sterkustu liðin hér fyrir norðan
mæti til leiks og einnig hafa lið
fyrir sunnan sýnt mótinu áhuga.
Þátttökugjald er 6500 kr. fyrir
eitt lið en 11000 kr. fyrir tvö lið.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast í síðasta lagi í dag, mið-
vikudag til Örlygs ívarssonar í
síma 22173, Magnúsar Magnús-
sonar í síma 26260 heima og
22543 í vinnu, eða til Sveins R.
Brynjólfssonar í síma 25885
heima og 25606 í vinnu og þeir
gefa einnig frekari upplýsingar
um mótið.
Knattspyrna:
Nýir menn til Leifturs
Leiftur heldur áfram að styrkja
knattspyrnulið sitt fyrir kom-
andi keppnistímabil. Þeir Þor-
steinn Geirsson miðvallar-
leikmaður úr Breiðabliki og
Lúðvík Bergvinsson miðvallar-
leikmaður úr ÍBV, hafa gengið
til liðs við félagið og munu
leika með því í 1. deildinni í
sumar.
Áður höfðu þeir Árni Stefáns-
son varnarmaður úr Þór og
Hörður Benónýsson framherji úr
1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2
Sölvi skorar
á Samúel
Siguróli Kristjánsson var Sölva Ingólfssyni auðveld bráð í get-
raunaleiknum um helgina enda hefur hann frekar lítið vit á
ensku knattspyrnunni, sem kannski sést best á því að hann held-
ur með Liverpool. Sölvi heldur því áfram enn einu sinni og hann
hefur skorað á mág sinn, Samúel Jóhannsson listmálara og
húsvörð í íþróttahúsi Glerárskóla. Samúel er eins og Þorleifur
Ananíasson sérfræðingur okkar í ensku knattspyrnunni, dyggur
aðdáandi Leeds United sem leikur í 2. deild. Þeir reikna þó báð-
ir með því að liðið leiki í þeirri 1. að ári. Samúel sagðist alls
óhræddur við að mæta Sölva í þessu sem öðru og við skulum sjá
hvernig þeim félögum tekst upp um helgina.
Sölvi:
Samúel:
Arsenal-Luton 1
Charlton-Wimbledon 1
Chelsea-Man.United x
Coventry-Sheff.Wed. 1
Newcastle-Norwich 1
Oxford-Tottenham x
Southampton-Nott.Forest 1
Watford-Liverpool 2
West Ham-Portsmouth 1
Barnsley-Blackburn x
Leicester-Leeds 2
W.B.A.-C.Palace 2
Arsenal-Luton 1
Charlton-Wimblcdon 2
Chelsea-Man.United x
Coventry-Sheff.Wed. x
Newcastle-Norwich 1
Oxford-Tottenham x
Southampton-Nott.Forest 2
Watford-Liverpool 2
West Ham-Portsmouth 1
Barnsley-Blackburn x
Leicester-Leeds 2
W.B.A.-C.Palace x
Tipparar munið að skila seðlunum inn fyrir hádegi á fimmtudög-
um svo enginn verði nú af vinningi.
1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2
Völsungi einnig gengið til liðs við
Leiftur. Þorsteinn og Lúðvík eiga
báðir rnarga leiki í 1. deild að
baki, Þorsteinn með Breiðabliki
en Lúðvík með ÍBV og ÍA.
Þeir koma örugglega til með að
styrkja lið Leifturs í sumar og
ljóst er að liðið verður ekki
árennilegt í komandi baráttu.
Kristinn Hreinsson handarbrotnaði í leiknum gegn ÍR og er að öllum líkind-
um úr leik í vetur. Mynd: kga
Handbolti:
Krístinn handar-
brotnaði gegn ÍR
- leikur varla meira með Þór í vetur
Kristinn Hreinsson handknatt-
leiksmaður úr Þór meiddist illa
í leiknum gegn ÍR á laugardag-
inn og leikur varla meira með
liðinu á þessu keppnistímabili.
Kristinn var að skjóta að
markinu, sló hendinni í varn-
armann IR og við höggið
brotnaði út úr beini á þumal-
putta hægri handar.
Kristinn skoraði fyrstu tvö
mörk Þórsliðisins í leiknum og
slysið varð einmitt er hann sendi
boltann öðru sinni í markið.
Hann hefur verið mjög óheppinn
með meiðsli í vetur en þetta er í
þriðja sinn sem hann meiðist. í
haust meiddist hann á öxl og gat
því ekki leikið með Þórsliðinu
fyrr en í 6. umferð íslandsmóts-
ins. Þá meiddist hann á ökkla í
afmælismóti KA fyrir skömmu og
missti af fyrri leiknum við KA í
Akureyrarmótinu.
Það er mjög bagalegt fyrir
Þórsara að missa Kristin en
hann hefur verið einn besti
leikmaður liðsins í þeim fáu leikj-
um sem hann hefur getað tekið
þátt í.
Liðið sem sigraði í firmakeppninni afhendir Skarphéðni Jónassyni framkvæmdastjóra Bifreiðastöðvar Ilúsavíkur
bikarinn. Mynd: im
Firmakeppni handknattleiksráðs Völsungs:
Bífreiðastöð Húsavíkur bikarhati
Um síðustu helgi stóð hand-
knattleiksráð Völsungs fyrir
firmakeppni í handbolta. Um
100 þátttakendur voru á mót-
inu og kepptu þeir fyrir fyrir-
tæki sem styrktu handknatt-
leiksráð með auglýsingum í
vetur.
í liðinu sem vann voru 11 og 12
ára börn og á mánudag hélt allur
hópurinn á Bifreiðastöð Húsa-
víkur en það var fyrirtækið sem
þau kepptu fyrir. Skarphéðni
Jónassyni framicvæmdastjóra var
afhentur farandbikar. Bikarinn
gaf HSÞ á 60 ára afmæli Völsungs
í fyrra og stjórn Völsungs afhenti
síðan handknattleiksdeild bikar-
inn. IM