Dagur - 22.03.1988, Síða 2

Dagur - 22.03.1988, Síða 2
2 - DAGUR - 22. mars 1988 H ún vetni n gar — Húnvetningar Almennur fundur um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga verður haldinn að Hótel Blönduós fimmtudaginn 24. mars nk. kl. 20.30. Frummælendur: Guðni Ágústsson alþingismaður og Valgarður Hilm- arsson oddviti. Allt áhugafólk um framtíð landsbyggðarínnar er hvatt til að mæta. Aðalfundur Sjómannafélags Eyjafjarðar verður haldinn í Alþýðuhúsinu fimmtudaginn 24. mars 1988 kl. 20.00. Fundarefni: 1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár. 2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til afgreiðslu. 3. Uppsögn samninga. 4. Önnur mál. Akureyri 18/3 1988. Stjórnin. r Klukku- fjöltefli Tíundi stigahæsti skákmaður heims Mikhail Gur- evich (2625) stórmeistari frá Sovétríkjunum, teflir klukkufjöltefli við tíu af bestu bestu skákmönnum Akureyrar í dag kl. 15.00 í Alþýðuhúsinu 4. hæð og lýkur kl. 19.00. Spennan hefst kl. 17.30 er tímahrak keppenda fer að byrja. Fylgjumst með spennandi keppni. Skákfélag Akureyrar. v_________________________________________________y Styrkir til háskóla- 'WSf: náms í Portúgal Portúgölsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram í löndum sem eiga aðild að Evrópuráðinu átta styrki til háskólanáms í Portúgal háskólaárið 1988-’89. Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni koma í hlut fslendinga. Styrkir þessir eru eingöngu ætlaðir til framhaldsnáms í háskóla. Umsóknareyðublöð fást í sendiráði Portúgala í Ósló, utan- áskrift: Ambassade du Portugal, Josefines Gate 37, Oslo-2, Norge, og þangað ber að senda umsóknir fyrir 1. júní nk. Menntamálaráðuneytið, 11. mars 1988. Lyfsöluleyfi er forseti íslands veitir Lyfsöluleyfi Vesturbæjar Apóteks í Reykjavík er auglýst laust til umsóknar. Fráfarandi lyfsala er heimilað að neyta ákvæða 11. gr. laga um lyfjadreifingu nr. 76/1982, varðandi húsnæði lyfjabúðarinnar og íbúðar lyfsala (húseign- in Melhagi 20-22). Verðandi lyfsali skal hefja rekstur lyfjabúðarinnar 1. janúar 1989. Umsóknir um ofangreint lyfsöluleyfi sendist heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu fyrir 18. apríl 1988. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. 17. mars 1988. Klakabrynjaðir klárar. Mynd: gb Grásleppuveiðar aftur háðar leyfum: Sjómenn varaðir við að byrja fyrr en sala er tryggð I fyrradag máttu sjómenn á Norðaustur- og Austurlandi hefja grásleppuveiðar. Veið- arnar eru nú að nýju háðar leyfum frá sjávarútvegsráðu- neyti en undanfarin tvö ár hef- ur ekki þurft nein leyfi. Á þessum svæðum hafa um 110 leyfi verið gefín út en alls eru komnar um 290 umsóknir um leyfí. Eins og áður er miðunum skipt í fimm svæði. Svæðin sem máttu byrja 20. mars eru svæðið frá Skagatá í vestri að Fonti í austri og frá Fonti að Hvítingum. Fyrsta apríl mega hefjast veiðar á Húnaflóasvæðinu en fyrir Suður- landi, Vesturlandi og Vestfjörð- um mega veiðar hefjast 20. apríl. Veiðitímabilið er 3 mánuðir á hverju tímabili. í reglugerðinni eru einnig ákvæði um fjölda og stærð neta. Leyfisveitingin er háð því að menn hafi skilað inn skýrslum fyrir síðustu vertíð og gert að fullu upp við greiðslumiðlunar- sjóð. Að sögn Arnar Pálssonar framkvæmdastjóra Landssam- bands smábátaeigenda er helsti Hótel- ráðstefnu frestað Eins og skýrt hefur verið frá í Degi, er fyrirhugað að halda ráðstefnu um fjárhagsvanda landsby ggðarhótela. Nú hefur verið ákveðið að fresta ráðstefnunni, sem haldin verður á ísafirði, til miðvikudags- ins 27. apríl. Er það gert vegna nálægðar páskanna og fermingar- tímans sem í hönd fer. Á ráðstefnunni verður fjallað um hinn mikla fjármagnskostnað sem er að sliga landsbyggðar- hótel og hvað til ráða er í þeim efnum. VG kostur þess að veiðarnar eru nú háðar leyfum, sá að þannig er hægt að fylgjast betur með veið- unum og auðveldara er að koma upplýsingum til þeirra sem þær stunda. Landssambandið hefur varað veiðimenn við að leggja út í grásleppuveiðar nema þeir hafi tryggt sér kaupanda að hrognun- um. „Horfurnar eru alls ekki bjartar,“ sagði Örn í samtali við „Líklega eru lárétt skil á fárra metra dýpi undir eyjunni og að þessi skil séu veikleiki, sem valdi því að smám saman grafíst undan eyjunni, blokkir losni og hverfí í sjóinn. Sé þessi til- gáta rétt, er ekki nægjaniegt til að hefta niðurbrot eyjunnar, að styrkja yfírborð hennar með steinsteypu.“ Þetta kom fram í svari Matthí- asar Mathiesen samgönguráð- herra við fyrirspurn Stefáns Guðmundssonar um framtíð Kolbeinseyjar. í svari ráðherra kom fram að ef niðurbrot eyjar- innar haldi áfram, verði hún að mestu horfin um miðja næstu öld. Árið 1982 var samþykkt þings- ályktunartillaga frá Stefáni Guðmundssyni um rannsóknir á Kolbeinsey. Vitastofnun íslands sendi því leiðangur til Kolbeins- eyjar árið 1985 og gerði þar ýms- ar rannsóknir. Teiknuð voru kort af eynni á grundvelli þessara mælinga og loftmynda frá Land- mælingum íslands teknum árin 1958 og 1985. Þar kom fram að eyjan er nú um 40 m frá austri til vesturs, 42 metrar frá norðri til suðurs og um 5 metrar á hæð. Til samanburðar má geta þess að árið 1933 var eyj- Dag. Ástæðuna sagði hann fyrst og fremst vera gífurlega mikla veiði á síðustu vertíð, en þá veiddust í heiminum um 57 þús- und tunnur af hrognum. Heims- markaðurinn tekur hins vegar aðeins við um 40 þúsundum. Aflahorfur eru að sögn Arnar ekki góðar og svo virðist sem rauðmaginn og grásleppan séu um mánuði seinna á ferðinni en í fyrra. ET 1 an 48 metrar frá austri til vesturs, 71 metrar frá norðri til suðurs og um 8 metrar á hæð. í ræðu Stef- áns Guðmundssonar kom fram að fyrstu mælingar á eyjunni eru frá árinu 1580 og mældist eyjan þá um 753 metrar frá n-s, 113 metrar frá a-v og um 113 metra há. Ef heldur sem horfir verður því eyjan horfin um miðja næstu öld. Eins og fram kom fyrst í þess- ari frétt segir Vitastofnun að ekki sé nóg að steypa yfir eyjuna til að bjarga henni. Það yrði að reka niður teina í gegnum veiku lögin og þannig styrkja eyjuna. Stofn- unin telur einnig að rannsóknum varðandi heftingu niðurbrots verði að halda áfram, því ekki sé unnt að gera raunhæfar tillögur um úrbætur á grundvelli fyrir- liggjandi gagna. Leggur hún til að næsta skrefið sé dýptarmæling umhverfis eyjuna og að samhliða uppsetningu sjómerkis verði bor- að svo kanna megi jarðlögin und- ir eyjunni. í svari samgönguráðherra kom- fram að óskum Vitastofnunar um 3 milljóna króna framlags til þess- ara rannsókna hafi verið hafnað á þessum fjárlögum en hann kvaðst vilja berjast fyrir því að fjármagn fengist á næsta ári til að hefja þessar rannsóknir. AP Kolbeinsey: Verður horfin um miðja næstu öld - Samgönguráðherra svarar fyrirspurn Stefáns Guðmundssonar

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.