Dagur - 22.03.1988, Page 3

Dagur - 22.03.1988, Page 3
22. mars 1988 - DAGUR - 3 Frétt Stjörnunnar frá Sauðárkróki: „Viðkvæm einkamál dregin fram á særandi hátt“ - segir siðanefnd Blaðamannafélags fslands Siðanefnd BÍ hefur úrskurðað að frétt Stjörnunnar frá 28. desember sl. um hagi á heimili einu á Sauðárkróki sé alvarlegt brot á siðareglum Blaða- mannafélagsins. Með fréttinni hafi fréttamaður Stjörnunnar brotið þau ákvæði reglnanna sem fjalla um mannleg sam- skipti, vöndun upplýsinga- öflunar og tillitssemi sem blaðamanni ber að sýna í vandasömum málum. Að hann forðist að valda saklausu fólki, eða fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sársauka og van- virðu. Fréttin fjallaði um hagi manns sem þá nýlega hafði unnið 9 milljónir í HHÍ. Sagði að hann hefði nú keypt bíl sem þætti einn sá glæsilegasti á staðnum, enda kostað tæpar 2 milljónir. En það væri fleira gott en bíllinn sem vinningurinn hefði fært mannin- um, því nú væri konan komin heim. Pau höfðu verið skilin í 2 ár og konan búið á Suðurlandi. Sagði að þegar konan hefði heyrt af vinningnum hafi hún sam- stundis haldið norður og dvelji nú á sínu gamla heimili. í lokin var haft eftir vinningshafanum; að hann eigi ekki von á að konan sé alkomin, en vel hafi farið á með þeim um jólin og yngri son- ur þeirra verið hjá þeim. Konan sé frá Sauðárkróki og eigi þar heima, en um frekari sambúð hafi ekki verið rætt. Nefndin segir að fréttin greini ekki frá því að erindi konunnar norður í land um hátíðarnar hafi verið að dvelja hjá sonum sínum, systkinum og öðrum skyldmenn- um sem búsett séu á Sauðár- króki. Né því að konan vakti um nokkurn tíma yfir veikum syni sínum á heimili eiginmannsins fyrrverandi. Konan segir siðanefnd að ferð hennar norður hafi ekki verið í neinum tengslum við happdrætt- isvinninginn og hafi hún aldrei farið fram á hlutdeild í honum. Staðfesti vinningshafinn það. Ummæli þau sem höfð voru eftir honum í fréttinni eru að hans sögn og konunnar, sem heyrði samtalið við fréttamanninn, til- hæfulaus og hvort konan væri alkomin hefði aldrei komið til tals. í fréttinni voru þau bæði nafngreind svo og maður sem í fréttinni var sagður sambýlismað- í sumar verður hafin bygging á einu einbýlishúsi í Grímsey. Framkvæmdir við annað hús eru á lokastigi og verður flutt í. það með vorinu. í báðum þessum tilfellum er um að ræða ung hjón sem ætla sér að setjast að í eynni. Húsið sem byggt verður í sumar verður um 170 fermetrar að stærð, með kjallara og bílskúr, sem líklega verður þó aðallega notaður sem geymsla. Af öðrum byggingafram- kvæmdum er það að frétta að einn útgerðaraðili ætlar að byggja um 130 fermetra veiðar- færageymslu í sumar. Framkvæmdum við sundlaug- arbygginguna miðar vel og sagð- ist Þorlákur Sigurðsson oddviti vonast til að hún yrði tekin í notkun á árinu, í sumar er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist við endurbyggingu á fiskverkun- arhúsi KEA sem brann í haust. Endurbætur á höfninni í Grímsey, eru nú orðnar mjög aðkallandi. „Þetta stendur orðið öllu öðru fyrir þrifum,“ sagði einn viðmælenda blaðsins þar ytra. Þorlákur sagðist vonast til að hægt væri að bjóða út í sumar ur konunnar. Siðanefnd segir slfkt hafi ekki tíðkast í íslenskum fjölmiðlum um persónulega hagi fólks. Viðkvæm einkamál séu á særandi hátt dregin fram í frétt- inni. Fréttastjóra Stjörnunnar var afhentur úrskurðurinn þar sem viðkomandi fréttamaður er ekki félagi í Biaðamannafélaginu. -þá steypu á „kerum“ til lengingar á viðlegukanti hafnarinnar. „Þörf- in er mikil,“ sagði Þorlákur. ET Múlagöngin: Rafmagns- lína lögð að fyrir- huguðu opi Undirbúningur fyrir jarö- gangagerð í Ólafsfjaröarmúla er nú kominn í gang þótt ekki fari eiginlcgar framkvæmdir í gang fyrr en síðar á árinu. Raf- magnsveitur ríkisins hafa nú lagt rafmagnslínu að fyrirhug- uðu gangaopi Ólafsjarðarmeg- in en þaðan verða göngin öll unnin. Að sögn Ingólfs Árnasonar, rafveitustjóra Rafmagnsveitna ríkisins á Akureyri er um að ræða þriggja fasa línu en síðar í vor verður einnig lagður jarðstrengur að gangaopinu og verður raf- magn því til staðar þegar verk- takinn við jarðgöngin vill hefjast handa. Ingólfur sagði að línan væri tengd inn á bæjarlínuna í Ólafs- firði norðanlega í kaupstaðnum. Áætlað er að mikið rafmagn verði notað við jarðgangagerðina því talið er að rafmagnsaflþörf við framkvæmdirnar verði jafn mikil og fyrir Ólafsfjarðarkaup- stað. Vegna þessa þarf að styrkja línuna frá aðveitustöð rafmagns- veitnanna til kaupstaðarins svo ekki verði truflun á rafmagni í bænum þegar framkvæmdir í jarðgöngunum standa yfir. JÓH Borgarbíó Þriðjud. 22. mars. Kl. 9.00 Full metal jacket Kl. 11.00 Full metal jacket Kl. 9.10 Ishtar Kl. 11.10 The gate Grímsey: Eitt einbýlishús byggt í sumar ... ...........— Gefið nytsamar og skemmtilegar fermingargjafir Svefnpokar. verð uá kr. 2.518, Bakpokar. Verð Uá kr. 1.885, Tjöld. Verð frá kr. 6.079, Einnig veiðistangir, veiðihjól, veiðivesti og sitthvað fleira. Fermingar- tilboð Kodak EF í gjafakassa, gullfilma og rafhlöður fylgja á aðeins kr. 3.300, Kodak MD í gjafakassa, gullfilma, rafhlöður og taska á aðeins kr. 4.950, Einnig úrval af öðrum myndavélum. Verð frá kr. 2.200, Sjónaukar frá kr. 3.100, Myndaaibúm í úrvali. Myndarammar nýkomnir t.d. 5 gerðir gylltir í stærðinni 18x24. Við framköllum páskamyndirnar fyrir ykkur í venjulegri stærð eða super - Ykkar er valið. ^PediðSrnyncfir* Hafnarstræti 98 ■ Sími 23520. eiólun jSíi uinunnaz. Hafnarstræti 98 - Akureyri - Sími (96) 22214 ' er nýtt: Stakir jakkar, hvítir, svartir, bláir og gráir. Kjólar, dress og dragtir. Stutt pils og blússur í tugatali. Kappklæddir í kuldanum. Mynd: TLV

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.