Dagur - 22.03.1988, Síða 5

Dagur - 22.03.1988, Síða 5
22. mars 1988 - DAGUR - 5 tónlist i „Silesian duo“: Skemmtilegir tónleikar Fimmtu tónleikar Tónlistarfé- lags Akureyrar voru haldnir á Sal Menntaskólans á Akureyri sl. laugardag. „Silesian duo“ lék, en dúettinn skipa þau Waclaw Lazarz flautuleikari og Dorota Manczyk píanóleik- ari og var hann stofnaður árið 1980 í þeim tilgangi að flytja pólska tónlist frá 19. og 20. öld. Þróunin hefur síðan verið sú að „Silesian duo“ flytur nú fjölbreytta tónlist frá ýmsum löndum. Kristinn Örn Kristinsson, for- maður Tönlistarfélags Akureyr- ar, sagði að tónleikarnir hefðu verið mjög skemmtilegir og efnis- Dorota Maneczyk píanóleikari. Waclaw Lazarz flautuleikari. lesendahornið skráin fjölbreytt, t.d. verk eftir Johannes Sebastian Bach, John Denver, ragtime lög, pólsk tón- list og fleira. Bæði var um að ræða samleik á píanó og flautu og einleik á píanó. Dorota og Waclaw völdu sjálf húsnæði fyrir tónleikana og varð Salur Menntaskólans fyrir valinu því þau sögðu hljómburð þar góðan, t.a.m. betri en í Borgar- bíói sem gjarnan hefur verið not- að til tónleikahalds. Kristinn sagði að það hefði verið mikil lyftistöng fyrir tónlist- arlífið að fá þetta frábæra tónlist- arfólk til bæjarins, en Dorota kennir píanóleik við Tónlistar- skólann á Akureyri og Waclaw starfar við tónlistarkennslu á Dalvík og Akureyri. SS „Krafbniklir tónleikar“ - takk fyrir mig Helgin 5.-6. mars var góð helgi. Pótt frostið færi í tæp tuttugu stig, yljuðu norðlenskir tónlistar- menn okkur allrækilega með lofs- verðu framtaki sínu. í Borgarbíói léku þrjár sveitir framsækið rokk. Sérstaklega leist mér vel á sveitina „Lost“ og verða þeir betri og betri með hverjum tónleikum. Kraftmikil tónlist þeirra fékk ólíklegustu menn til að dilla höfði og slá sam- an lófum og mega þeir vera stolt- ir af einu afkvæmi sínu; „Nýju fötin keisarans“. Þennan laugardag skreyttu sviðið einnig „Rock Brothers". Eru þetta bræður eins og nafnið gefur til kynna og fluttu þeir óraf- magnaða tónlist við góðar undir- tektir. í lokin flutti svo hljóm- sveitin „N.Ánýrómantík“ nokk- ur lög. Frumsamin tónsmíð þeirra hefði mátt vera betri. Söngurinn var af ráðnum hug gerður full-brothættur, kannski fyrirgefanlegt því söngvarinn er einlægur Cure aðdáandi, en það er önnur saga. Það besta við tón- leikana var að þeir voru yfir höf- uð haldnir. Til hamingju!! Og takk fyrir mig, segi ég nú bara. Það er gott að vita til þess að maður þarf ekki lengur að leita suður til að geta hlýtt á lifandi tónlist, vitandi að Akureyringar eiga nóg af tónlistarmönnum sem fela sig í leikvallarskúrum og bíl- skúrum. Þegar þetta er ritað er ég rétt komin af veitingastaðnum Upp- anum, þar sem fjórir stórgóðir jazzleikarar léku af innlifun og heilluðu áheyrendur upp úr kuldaskónum. Það er mín von að þeir endur- taki þetta sem fyrst og verði hvatning til annarra „jazz- geggjara“. Kaffið var gott á Uppanum þetta kvöld. Trausti. Þankar eftir sjúkrahúsvist Nýlega þurfti ég inn á sjúkrahús til skurðaðgerðar og eðlilega lenti ég inn á gjörgæsludeild. Það var mér ný reynsla, þangað hafði ég ekki komið áður. Þarna voru allir mjög elskulegir og vildu allt fyrir mig gera, samt fannst mér ekki allt sem skyldi. Ég man ekki vel hvernig fyrsti sólarhringurinn leið, en það man ég að allan tímann sem ég var þarna þótti mér ótrúlegur hávaði á nóttunni. Ég er kvöldsvæf og þykir gott að geta sofið 1 til 2 tíma fyrir lágnætti, en það brást ekki að þegar ég var nýsofnuð hrökk ég upp við skraf og hlátra- sköll. Öll kvöld stóð sá hávaði meira og minna fram yfir mið- nætti og eina nóttina þagnaði fólkið lítið fyrr en um fimmleytið. Alltaf stóðu dyrnar á sjúkrastof- unni galopnar, það var líkast því sem einhver mundi kalla duttl að blessað fólkið héldi að við, sjúklingarnir, værum heyrnar- lausir. Mér gekk því afar illa að sofa, hrökk upp ef ég náði blundi og var svo orðin andvaka þegar þögn komst á. Mikið hlakkaði ég til að komast aftur inn á hand- lækningadeild þar var oftast nær hljótt á nóttunni. Ég kvartaði yfir hávaðanum en því var ekki ansað og það sárnaði mér. Ég heyrði - því ég var ekki heyrnarlaus þótt þau virtust álíta það - að ein stúlkan sagði að ég væri hysterísk, það samþykki ég ekki. Én í sambandi við jjau orð vil ég bara segja að ég held, að það ætti alltaf að vera nr. 1 hjá öllum sem annast sjúka að reyna að sjá til þess að þeir séu ánægð- ir, hvort sem óskir þeirra eru það unga, eða ekki. Eg álít að sálræn og líkamleg líðan okkar sé svo nátengd að e.t.v. veikist yfirleitt enginn án þess að sálin hans hafi áður átt í erfiðleikum og þess vegna þarf að taka tillit til andlegra þjáninga ekki síður en líkamlegra. Að endingu þetta: Ég veit að fólkið þ.e. læknar og starfsstúlk- ur, er ekki með hávaða af nein- um illvilja, heldur af hugsunar- leysi. Ég óska þess að þetta starfs- fólk leiði hugann að því, að þegar sjúklingur er þjáður eftir skurðaðgerð og taugaslappur eft- ir svæfingu þarf svo lítinn hávaða til þess að koma honum úr jafn- vægi og/eða raska svefnró hans. Fyrrverandi sjúklingur. Náttúrulækningafélag Akureyrar Aðalfundur félagsins verður haldinn í Laxdalshúsi þriðjudaginn 22. mars 1988 kl. 20.00. Félagar fjölmennið. Takið með nýja félaga. Stjórn N.L.F.A. Ilflf Konur á Akureyri og nágrenni! Fundur verður haldinn í Hafnarstræti 90, þriðjudag- inn 22. mars kl. 20.30. Fundarefni: Norræna kvennaráðstefnan í Ósló. Önnur mál. Nefndin. Útsölunni lýkur á föstudag Ný munstur í ódýrum sængurveraefnum. Lakaefni 140 og 220 á breidd. ÓDÝRIMARKAÐURENN Strandgötu 23, gengið inn frá Lundargötu. JHHI&F /ÉraWCT állllll Vinningstölur 19. mars Heildarvinningsupphæð kr. 11.200.412.- 1. vinningur kr. 6.795.288.- Skiptist á milli 12 vinningshafa sem fá 566.274,- 2. vinningur kr. 1.326.820.- Skiptist á milli 814 vinningshafa kr. 1.630.- 3. vinningur kr. 3.078.304.- Skiptist á milli 18.544 vinningshafa sem fá 166 kr. hver. WS5/32 Upplýsingasími 91-685111

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.