Dagur - 22.03.1988, Qupperneq 12
Noack rafgeymar í bílinn,
bátinn og vinnuvélina.
Noack er viðhaldsfrír.
þÓRSHAMAR HF.
Varahlutaverslun
Vid Tryggvabraut • Akureyri • Sími 22700
Tveir með
sama
númerið
á Króknum
Þeir eru ófáir sem eru fast-
heldnir á bílnúmer sín, enda
eiga menn að vera öruggir með
að halda því númeri sem þeir
hafa fengið afhent. Það var því
ekki nema von að mönnum
sem hittust fyrir utan sýslu-
skrifstofuna á Sauðárkróki á
dögunum brygði í brún þegar
þeir sáu að bílar þeirra voru
með sama númerinu, K-
3005.
Eigandi annars bílsins er Sól-
berg Steindórsson bóndi í Birki-
hlíð í Staðarhreppi. Númerið
fékk hann fyrir einu og hálfu ári
þegar hann keypti bílinn nýjan.
Þessar myndir tók GB um hádegis-
bilið í gær. Þarna var á ferðinni ein
af AWACS ratsjárvélum varnarliðs-
ins. Hvort ætlun flugmannanna var
að mynda Ólympíumerkið á himni
hátt skal ósagt látið en vélin hring-
sólaði í nokkurn tíma ■ 29 þúsund
feta hæð yfir svæðinu norðan við
Akureyri. Þetta svæði er einmitt eitt
af þremur sem vélar þessar halda sig
á þegar þær fylgjast með flugumferð
fyrir norðan og austan land. ET
Þorsteinn Birgisson fékk svo
þetta sama númer afhent fyrir
mánuði og var því búinn að
aka í mánuð með númerið þegar
mistakanna varð vart. Var hon-
unr umsvifalaust gert að skipta
um númer. „Þetta er alveg
djöfullegt og á auðvitað ekki að
geta gerst. Og ég sem var farinn
að kunna svo virkilega vel við
þetta núrner," sagði Þorsteinn
rétt áður en hann skilaði númer-
inu.
„Þetta á ekki að vera hægt og
það er fremur sjaldgæft að þetta
gerist. En raunar er þetta ekki í
fyrsta skipti sem þetta gerist hér á
Sauðárkróki. Mér þykir trúlegt
að þessi mistök eigi sér stað
vegna þess að hér fara skráning-
arnar um hendur fleiri en eins
aðila og því verði ruglingur í
kerfinu," sagði Björn Mikaelsson
yfirlögregluþjónn þegar blaðið
kannaði vitneskju hans varðandi
þessa hluti.
andi þrifin í Höllinni sem ég get
talið óeðlilegt,“ sagði Valdimar.
Heilbrigðiseftirlitið fram-
kvæmir öðru hverju skoðanir á
hreinlæti í Höllinni. Þá eru sér-
staklega skoðuð búnings- og bað-
herbergi hússins, snyrtingar og
salur.
Valdimar sagðist ekki telja
mögulegt að starfsfólk hefði get-
að þrifið sérstaklega fyrir komu
hans. Hann hefði auk þess skoð-
að staðinn fyrir skömmu og væri
þar að auki tíður gestur á kapp-
leikjum. Um þrif á áhorfenda-
svæðum sagði Valdimar að ekk-
ert væri við það að athuga að þau
væru látin bíða næsta dags eftir
að leikir hefðu farið fram. Þar
væri eingöngu um vinnuhagræð-
ingu að ræða.
„Mergurinn málsins er að það
vantar peninga til að geta lokið
við húsið og jafnvel til þess að
geta sinnt viðhaldi sem skyidi,“
sagði Valdimar. Hann mun skila
skýrslu um skoðun sína til íþrótta-
ráðs. ET
Þrifnaður í íþróttahöllinni:
- segir heilbrigðisfulltrúi
Vegna fréttar um vanhöld á
þrifum í íþróttahöllinni á
Akureyri fór Valdimar Brynj-
óifsson heilbrigðisfulltrúi á
staðinn að beiðni Hermanns
Sigtryggssonar íþrótta- og
æskulýðsfulltrúa, og fram-
kvæmdi ítarlega könnun á þrif-
um í húsinu.
„Ég á þetta númer,“ sagði Þorsteinn Birgisson, en hann þurfti samt að láta sig hafa það, að fara á stöðina og fá nýtt
númer. Mynd: -þá
„Ég gat ekki séð að þarna væri
neitt út á þrifnað að setja. Það er
hins vegar hverjum manni ljóst
að húsið er ekki fullklárað og alls
staðar þar sem slíkt er þá líta vel
þrifin svæði jafnvel út eins og þau
séu óþrifin," sagði Valdimar í
samtali við Dag. Valdimar nefndi
sérstaklega í þessu sambandi for-
stofu, þar sem vantar hillur undir
skó, og anddyri að áhorfenda-
svæði sem væri auðvitað allt ann-
að en aðlaðandi.
„Það er alltaf þannig að við
nákvæma skoðun að það er hægt
að finna að einhverjum hlutum.
Það getur maður hins vegar hvar
sem er. Það er því ekkert varð-
„Högg fyrir neðan beltisstað“
- segir Sigbjörn Gunnarsson formaður íþróttaráðs um ummæli Sigríðar Stefánsdóttur
„Ég er sár fyrir hönd starfs-
fólksins. Mér finnst við ekki
eiga þetta skilið,“ sagði Aðal-
steinn Sigurgeirsson forstöðu-
maður Iþróttahallarinnar á
Akureyri, þegar frétt um
slæma umgengni þar var borin
undir hann. í fréttinni var m.a.
haft eftir Sigríði Stefánsdóttur
bæjarfulltrúa að mörg dæmi
væru um slæma umgengni, og
vanhöld á þrifum.
Aðalsteinn sagðist geta fullyrt
að þrif á húsinu væru algjörlega í
samræmi við kröfur. Um skort á
tækjum sagðist hann ekki geta
sagt enda væru þau mál ekki í
höndum starfsfólks. Aðalsteinn
sagði að það kæmi sér mjög á
óvart að Gísli Bragi Hjartarson,
sem sæti á í íþróttaráði, hefði
tekið undir ummæli Sigríðar. Sig-
björn Gunnarsson formaður
íþróttaráðs tók í sama streng og
sagðist vera ósáttur við þátt Gísla
í þessari umræðu.
„Ég fagna því að málefni
íþróttahallarinnar skuli vera til
umræðu í bæjarstjórn. Það
hryggir mig hins vegar að bæjar-
fulltrúar skuli nota þennan vett-
vang til þess að ráðast að heiðri
starfsmanna og saka þá um að
sinna ekki sínu starfi. Þetta finnst
mér vera högg fyrir neðan belt-
isstað," sagði Sigbjörn.
Hann sagði að þegar um væri
að ræða hús sem 1000-1500
manns sæktu daglega, og væri
opið í nær 100 klukkustundir á
viku, þá væri auðvitað ekki við
því að búast að umgengnin væri
eins og í stássstofu. Þarna væri
ekkert út á þrifnað að setja og
raunar væri til þess tekið af gest-
um Hallarinnar að þessi mál væru
í góðu horfi.
Um síðustu helgi var í Höllinni
úrslitakeppni í 4. flokki karla í
handknattleik. Janus Guðlaugs-
son, námsstjóri í íþróttum, var
einn þeirra sem þar voru með lið
til keppni. „Maður tekur fljótt
eftir því ef þrifnaði í íþróttahús-
um er ábótavant og eftir að hafa
farið um Höllina get ég ekki ann-
að sagt en að þar sé þrifnaður til
fyrirmyndar. Þetta er með því
besta, sem ég hef séð,“ sagði Jan-
us í samtali við Dag. I sama
streng tók Reynir Karlsson
íþróttafulltrúi ríkisins og sagðist
harma þessa umræðu. ET
Þrif í [þróttahöllinni:
í góðu lagi