Dagur - 12.04.1988, Side 7

Dagur - 12.04.1988, Side 7
Húsavík: Reyklaus dagur - Fræðslufundur um skaðsemi reykinga í tilefni af reyklausum degi 7. apríl sl. efndi Heilsugæslustöð- in á Húsavík og Krabbameins- félag Suður-Þingeyinga til fræðslufundar um skaðsemi reykinga. Sigríður Birna Ólafs- dóttir, ritari stjórnar krabba- meinsfélagsins, setti fundinn og las ávarp Guðmundar Bjarnasonar heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra í tilefni dagsins. Gísli G. Auðunsson heilsugæslulæknir flutti fróð- legt erindi. Fjallaði hann um áhrif hvers einstaklings á eigin heilsu, skaðsemi reykinga og síðan kynnti hann námskeið fyrir þá sem vilja hætta að reykja. Slíkt námskeið verður haldið á Húsavík á næstunni og létu 16 fundarmenn skrá sig á námskeiðið en alls sóttu um 30 manns fundinn. Upplýsing- ar um námskeiðið er hægt að fá á Heilsugæslustöðinni á Húsavík. Sýndar voru tvær fræðslu- myndir af myndböndum og síðan voru málin rædd yfir kaffibolla. í lok fundarins söng Ósk Þorkels- dóttir nokkrar gamanvísur um reykingar og fleira við gítarundir- leik Line Werner. Lilja Guðlaugsdóttir. Lilja Guðlaugsdóttir Dagur ræddi við fjóra fundar- menn, fyrst Lilju Guðlaugs- dóttur sem ásamt dóttursyni sínum, Asmundi Gíslasyni, var að skoða ýmsa bæklinga og plaköt sem lágu frammi. „Ég reyki ekki og hef áhuga á að fólk hætti þessu. Mér finnst hræðilegt að vita til þess að nokk- ur maður sé að gera sjálfum sér svo illt að vera að reykja. Mér finnst verst hvað margir reykja og taka ekkert tillit til hinna." — Hefur þú orðið fyrir .óþæg- indum vegna reykinga annarra? ^ „Maður hefur auðvita'ð óþæg-j indi af þessu, t.d. áð vetaþar sem margir reykja og ég hef unniö á vinnustað þar sem maðúr þurfti að sitja í reykjarkófi í kaffitím- unum.“ - Hvernig líkar þér þessi fræðslufundur? „Mjög vel og mér finnst alveg synd að ekki skuli fleiri koma. Vérst að hér skuli ekki vera fleira ungt fólk, það sem er nýbyrj- að að reykja. Eg/hef lengi fylgst með fræðsluefni um þessi mál og verið á móti reykingum og ég hef mjög gaman af því hvað yngsta dótt- ir mín sýnir þessum málum mik- inn áhuga og það hefur hún gert síðan hún fór að hafa vit á. Hún er í skólanum í Lundi í Öxarfirði, þar reykja börnin ekki og það er talið mjög óvenjulegt að skólinn skuli vera alveg reyklaus. Ég vildi óska þess að sem flest- ir sæki námskeiðið sem á að lialda hér og nái góðum árangri því það er öllum fyrir bestu að hætta þessum ósóma og sóðaskap sem reykingarnar eru.“ Björn Guðmundsson „Ég reyki ekki lengur, hætti fyrir 16 mánuðum en þá var ég búinn að reykja í 41 ár,“ sagði Björn Guðmundsson. „Ég reykti alltaf mjög svipað, svona um pakka á dag.“ - Voru reykingarnar farnar að há þér? „Trúlega hefur það verið, ég var tímunum saman með viðvar- andi hósta sem ég hef losnað við, aftur á móti hef ég bætt illilega utan á mig síðan ég hætti að reykja.“ - Hvernig gekk þér að hætta? „Það var í rauninni ekkert mál fyrir mig. Ég fann ákaflega lítið fyrir þessu en býst við að það sé mjög einstaklingsbundið hvernig þetta gengur. Fyrir mína mann- gerð er ábyggilega mjög mikil- vægt að ekki sé um neinn utanað- komandi þrýsting að ræða en það kann að vera að aðrir þurfi slíkt. Það er kannski bara meðfædd þrjóska að bregðast alltaf önd- verður gegn þrýstingi.“ - Hvað ráðleggur þú fólki sem reykir og langar til að hætta núna? „Ég veit ekki hvort ég get ráð- lagt nokkuð, eins og ég sagði áðan held ég að þetta sé einstakl- ingsbundið. Eitt held ég þó að sé mjög mikilvægt og það er að Björn Guðmundsson. reyna ekki að hætta nema menn séu í raun tilbúnir til þess.“ - Hvernig hefur þér líkað þessi fundur? „Fundurinn er góður, ég kom nú svona af forvitni. Ég er samt ekki ánægður með myndböndin sem voru sýnd, mér fannst vera mikill munur á málflutningi Gísla annars vegar og myndböndunum hins vegar. Málflutningur Gísla var mjög góður og raunhæfur en myndböndin fundust mér of áróðurskennd á vissum sviðum." Angela Sveinbjömsdóttir og Jakobína Krístjánsdóttir Angela Sveinbjörnsdóttir og Jak- obína Kristjánsdóttir mættu á fræðslufundinn. í spjalli við Dag sagðist Angela reykja um einn og hálfan pakka á dag og hafa reykt um það bil í 15 ár eða síðan hún var fimmtán ára gömul. - Langar þig til að hætta? „Já, ég hef áhuga á því, hef ekki hætt nema þá örfáa daga í einu." - Finnst þér reykingarnar vera farnar að há þér? „Það fylgir þessu alltaf mæði og rnaður getur ekkert reynt á sig án þess að mæðast. Svo fylgir þessu sóðaskapur í kring um mann. Sonur minn sem er tíu ára er mikið á móti reykingunum." - Hvernig hefur þér líkað þessi fundur? „Mér finnst alveg sjálfsagt að koma og kynna sér málin og prófa að hætta ef maður getur. Ég lét skrá mig á námskeið fyrir þá sem vilja hætta." „Ég reyki pakka á dag og er búin að reykja í sautján ár og mér finnst ég mæðast ef ég reyni á mig,“ sagði Jakobína. - Langar þig að hætta? „Ég er svona að skoða það en mér finnst gott að reykja. Auð- vitað vil ég vera laus við þetta, börnin eru á móti þessu. mér finnst mjög rnikill söðaskapur af þéssu og íhér leiðist íyktin sem angar af manni en samt er gott að reykja." - Hvernig líkar þér þessi fræðslufundur? „Alveg ljómandi vel og ég lét skrifa mig á námskeiðið en ég hef þó umhugsunarfrest." IM Angela Sveinbjörnsdóttir og Jakobína Kristjánsdóttir. 12. apríl 1988 - DAGUR - 7 Amstrad - Epson tölvur & búnaður ■Bókabúðin EddaH — Hafnarstræti 100 - Akureyri ■ Sími 24334 ■■■ vðr'j;! Ferðastyrkur til rithöfundar Ráðgert er að af fjárveitingu til norræns samstarfs í fjárlögum 1987 verði varið 60 þús. kr. til að styrkja rithöfund til dvalar á Norðurlöndum. Umsóknir um styrk þennan skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykja- vík, fyrir 1. maí n.k. Umsóknum skal fylgja greinargerð um hvernig umsækjandi hyggst verja styrknum. Menntamálaráðuneytið. 5. apríl 1988. Vísindastyrkír Atlantshafsbandalagsins 1988. Atlantshafsbandalagið leggur árlega fé af mörkum til að styrkja unga vísindamenn til rannsókna eða framhaldsnáms erlendis. Fjárhæð sú er á þessu ári hefur komið í hlut íslend- inga í framangreindu skyni nemur um 2,4 millj. ísl. kr. og mun henni varið til að styrkja menn er lokið hafa kandídatsprófi í einhverri grein raunvísinda til rannsókna eða námsdvalar við erlendar vísindastofnanir, einkum í aðildarríkjum Atlants- hafsbandalagsins. Umsóknum um styrki af fé þessu - „Nato Science Fellows- hips“ - skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 20. maí n.k. Fylgja skulu staðfest afrit prófskírteina og meðmæla, svo og upplýsingar um starfsferil og ritverkaskrá. Þá skal tekið fram hvers konar rannsóknir eða framhaldsnám umsækjandi ætli að stunda, viö hvaða stofnanir hann hyggst dvelja, svo og skal greina ráðgerðan dvalartíma. Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytiö. 7. apríl 1988. Blómabúðin Laufás auglýsir Nú er búðín fúD af nýjum pottaplöntum Nýtt frá Danmörku, kaktusar, þykkblöðungar og ágræddir kaktusar. „Nýtt“ burknarætur sem bíða eftir góðum fóstrum í heimahúsum. Þess virði að prófa. ★ ★ ★★ ★★ Pottamold! Sáðmold - kaktusmold - vikur, 3 tegundir Fræ í hundraðavís, matjurtafræ og fleira. ★ ★ ★★ Vorum að fá nýja sendingu af vorlaukum. Dalíur - Liljur - íris - Animoníur - Begoníur - Glosseníur - Amarillis . og fleira. ★ ★ ★★ Blómapottar í úrvali. Keramikpottahlífar og margt fleira. Blómabúðin Laufás Hafnarstræti 96, sími 24250 Sunnuhlíð 12, sími 26250

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.