Dagur


Dagur - 12.04.1988, Qupperneq 8

Dagur - 12.04.1988, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 12. apríl 1988 „Samkvæmt útreikningum Hag- stofu íslands hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um 5,2% síðustu þrjá mán- uði.“ Flest okkar hafa heyrt þessa setningu eða einhverja svipaða henni. Þegar hún heyrðist enn einu sinni í fjöl- miðlum fyrir skömmu vakti hún forvitni blaðamanns og ákvað hann því að heimsækja Hagstofuna og kynnast starf- semi þessarar stofnunar. Hagstofunni má skipta í tvær stofnanir; annars vegar aðalskrif- stofuna sem sér um hagskýrslur en þar er safnað saman öllum mögulegum upplýsingum um t.d. inn- og útflutning, mannfjölda, atvinnu, verðlag, framleiðslu, fiskveiðar, menntamál o.fl. Hins vegar er svo það þjóðskráin sem skráir upplýsingar um alla íbúa hér á landi; hvar þeir búa, aldur, kyn, heimilisfang og trúfélag. Hagstofan stundar öfluga út- gáfustarfsemi en þó ekki í sam- keppni við bókaútgáfur eða aðrar útgáfustofnanir. Starafsfólk stofnunarinnar er mjög duglegt að safna ýmsum upplýsingum um menn og málefni en þær upplýs- ingar eru fáum til gagns ef þær koma aldrei fyrir sjónir almenn- ings. Hagstofan gefur því út Hagtíðindi sem er stórmerkilegt plagg fyrir grúskara og aðra sem hafa gaman af tölulegum upplýs- ingum. í Hagtíðindum má m.a. lesa um farþegaflutninga til landsins, heildartölur inn- og út- flutnings, mannfjöldatölur, verð- lagsþróun, fjölda íslendinga er- lendis, verslun við einstök lönd o.fl. Síöan gefur Hagstofan út skýrslur í ritröðinni Hagskýrslur íslands, en það eru yfirleitt þykk- ir doðrantar sem fæstir nenna að lesa nema sérfræðingar og opin- berir embættismenn sem þurfa þess starfs síns vegna. Hagstofan er til húsa í Alþýðu- húsinu að Hverfisgötu í Reykja- vík og tókum við þar hús á Hall- grími Snorrasyni hagstofustjóra, Vilhjálmi Ólafssyni skrifstofu- stjóra og einnig spjölluðum við þar við nokkra hressa starfsmenn stofnunarinnar. Allir voru boðnir og búnir að veita upplýsingar um starfsemina og var greinilegt að þar ríkir góður vinnuandi. AP „Hér er engu safiiað að íilefnisliULSii* - segir Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri Hallgrímur Snorrason er hag- stofustjóri. Hann tók vel í þá bón Dags að sitja fyrir svörum í sambandi við starfsemi Hag- stofunnar. Fyrsta spurningin sem við lögðum fyrir Hallgrím var hvort allar þær upp upplýs- ingar sem Hagstofan safnaði væru nauðsynlegar. „Þaö er rétt að við fáum gít'ur- legt magn upplýsinga í okkar hendur, en ég held að ég geti full- yrt að hér er reynt að safna ekki upplýsingum að tilefnislausu. Talandi um talnaflóð þá má geta þess að við fáum í okkar hendur um 250 þúsund tollskýrslur á ári og verður að fara yfir hverja ein- ustu og koma þeim inn í kerfið hjá okkur. Petta er nauðsynlegt til þess að hafa nákvæmar tölur um inn- og útflutning hér á landi. Petta er nú bara eitt dæmi um hve mikla vinnu þarf að leggja í það að koma út nákvæmum hag- tölum. Hér á Hagstofunni starfa hins vegar ekki nema 50 manns og til gamans má geta þess að á dönsku hagstofunni starfa milli 700 og 800 manns, á þeirri sænsku um 1800, og á þeirri frönsku starfa um 7000 manns. Auðvitað er allt mikið minna í sniðum hjá okkur en það er samt gaman að bera þessar tölur saman. Pá má ekki gleyma því að stofnanir eins og Pjóðhagsstofnun og Seðlabank- inn sjá um vissa hluti sem þessar erlendu hagstofur sjá um." - Nú koma stundum upp efa- semdaraddir um rétt opinberra aðila til að safna upplýsingum um einstaklinga. Pað urðu t.d. mikl- ar umræður um þessi mál í Þýskalandi fyrir nokkrum árum. Hvað viltu segja um það? „Umræðan kom upp í Pýska- landi í sambandi við manntal sem sambandsstjórnin stóð fyrir og mörgum fannst spurningarnar full nærgöngular. Það er alltaf álitamál hve langt eigi að ganga. Besta svarið við þeirri spurningu er að safna ekki meiri upplýsing- um en nauðsynlegt er. Eg tel að Hagstofan fylgi þessu í dag. Þjóðskráin skráir t.d. aðeins þær lágmarksupplýsingar um einstakl- inga sem stjórnvöld, þ.e. trygg- inga- og skattayfirvöld, þurfa á að halda. Pessar upplýsingar eru nafn einstaklinga, fæðingardagur og ár, fæðingarstaður, heimilis- fang, kyn, hjúskaparstétt og trú- félag. Það síðastnefnda er ein- göngu vegna laga um sóknar- gjöld, annars myndum við ekki skrá það. Pær upplýsingar sem við höf- um á skrá her eru lágmarksupp- lýsingar fyrir stjórnkerfið og nauðsynlegar til þess að núver- andi velferðarþjóðfélag gangi snurðulaust fyrir sig. Margir aðil- ar styðjast mikið við þjóðskrá og raunar fyrirtækjaskrá einnig og þannig má nefna að það verður æ algengara að stofnanir hafi bein- an tölvuaðgang að þessum upp- lýsingum t.d. Tryggingastofnun ríkisins, ríkisskattstjóri, mennta- málaráðuneytið og bankarnir í landinu. Svo getur að sjálfsögðu allur almenningur í landinu fengið þessar upplýsingar með því að koma hingað í Hagstofuna, eða hringja ef fólk býr úti á landi.“ - Nú er allt kerfið tölvuvætt hjá ykkur. Bandaríkjamenn hafa nú miklar áhyggjur af því hve auðvelt er að komast inn í opin- ber tölvukerfi í landinu. Hvernig verjið þið ykkur gegn slíkum „innbrotum“? „Þau kerfi sem við rekum eiga að vera þannig úr garði gerð að utanaðkomandi aðilar komist ekki inn í þau. Hins vegar eru þær upplýsingar sem við geymum þar engin leyndarmál í sjálfu sér og við heimilum aðgang að þeim upplýsingum í gegnum skrifstofu okkar. Pess vegna er engum akk- ur í því að brjótast inn í kerfið hjá okkur. Pað eru miklu frekar stofnanir eins og bankar, ríkisskattstjóri og Tryggingastofnun ríkisins, sem Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri. þurfa að verja sig gegn tölvuinn- brotum. Því er hins vegar ekki að leyna að við höfum hugleitt þessi mál, en ekki talið nauðsynlegt að eyða frekari fjármunum en þegar hefur verið gert til að verja okkui gegn tölvuinnbrotum, því við teljum það öruggt að engin utan- aðkomandi komist inn í kerfið hjá okkur.‘l 12. apríl 1988 - DAGUR — 9 Minna og íninna af ráðstöfiinar- tekjunum er eytt í matvöru - Rætt við Vilhjálm Ólafsson skrifstofustjóra Hagstofunnar Vilhjálmur Ólafsson skrifstofustjóri Hagstofunnar. Vilhjálmur Ólafsson er skrif- stofustjóri Hagstofunnar og hefur starfað þar í 12 ár. Hann er yfirmaöur „vísitöludeildar“ Hagstofunnar og sér um að koma frá stofnuninni hinni frægu vísitölu framfærslu- kostnaðar. - Vilhjálmur, nú virðist vísi- tala framfærslukostnaðar oft vekja upp deilur í sambandi við kaup og kjör. Hvað viltu segja um það? „Tilgangur vísitölu framfærslu- kostnaðar er að fylgjast með almennum verðlagsbreytingum í þjóðfélaginu en ekki að meta hvað meðalfjölskylda þarf til að lifa. Pað er almennur misskiln- ingur, meira að segja stundum hjá alþingismöiinum, að þessi tala sem nú er 117 þúsund á mán- uði, sé eitthvað sem fólk verði að hafa til að „komast af“ á sóma- samlegan hátt. Útgjöld vísitölu- fjölskyldunnar eru einungis not- uð sem mælikvarði til að reikna út almennar verðlagsbreytingar á þeim vöru- og þjónustuliðum, sem í framfærsluvísitölunni eru, en útgjöld innan framfærsluvísi- tölunnar eru byggð á almennri neyslukönnun, sem framkvæmd er á 5-6 ára fresti. Núgildandi vísitölugrunnur er byggður að neyslukönnun, sem fram fór á höfuðborgarsvæðinu 1979-1980 hjá hjónum með eða án barna og var meðalfjölskyldu- stærðin 3,6 þ.e.a.s. hjón með 1,66 barn. Hér er um að ræða öll útgjöld til neyslu, burtséð frá því hvort þau geta talist „nauðsyn- leg" eða ekki enda leggur Hag- stofan ekki mat á það. Þessi útgjöld eru síðan framreiknuð eftir verðlagi hvers tíma og sam- kvæmt því breytist framfærslu- vísitalan frá mánuði til mánaðar. Fyrirhugað er að nýr vísitölu- grundvöllur, sem byggður er á neyslukönnun 1985-1986 taki gildi 1. maí 1988. Sú neyslukönn- un er byggð á útgjöldum einstakl- inga og/eða fjölskyldna í landinu í heild, en ekki einungis í Reykjavík eða á höfuðborgar- svæðinu eins og í fyrri könnun- um." Ónógar upplýsingar skapa misskilning - Fyrst þessi vísitala er misskilin jafn oft og raun ber vitni er þá ekki hægt að finna eitthverja aöra viðmiðun? „Þetta er sú aðferð sem notuð er á hinum Norðurlöndunum og hefur verið notuö hér á landi síð- an 1939. Við höfum ekki fundið betri aðferð til að reikna almenn- ar verðlagsbreytingar, enda er umræddur misskilningur byggður á því að sumir sem hafa fjallað opinberlega um þessi mál hafa ekki kynnt sér þau ítarlega. Vísitala framfærslukostnaðar gefur góða mynd af hvernig verð- lagið hefur breyst á þessum tíma. Athyglisvert er að sjá hvernig hinir ýmsu útgjaldaliðir breytast með tímanum. Nú eru t.d. mat- arútgjöld vísitölufjölskyldunnar aðeins um 25% af heildarupp- hæðinni en þetta hlutfall hefur farið lækkandi með árunum. Hins vegar hafa útgjöld til „rekst- urs eigin bíls", utanlandsferða og ýmissa tómstundaiðkana o.fl. aukist að sama skapi." AP Skuldinni oft skellt á Hagstofima - rætt við þær Svanhildi Jónsdóttur og Guðnýju Stefánsdóttur Svanhildur Jónsdóttir og Guðný Stefánsdóttir eru yfír- menn yfir þeim deildum Hag- stofunnar sem mest snúa að almenningi í landinu. Svan- hildur er yfir afgreiðslunni en Guðný er yfir þjóðskránni. Þær tóku vel í þá bón blaða- mannsins að spjalla um starfið. Þær sögðu að mjög mikið hefði verið að gera hjá Hagstofunni síðan um áramótin vegna breyt- inga frá gamla nafnnúmerakerf- inu yfir í kennitölukerfið. Janúar og febrúar hefðu verið mjög annasamir, en í mars hefði erill- inn farið að minnka. Sögðu þær að fólk þyrfti oft að leita til Hagstofunnar með hin ýmsu málefni t.d að tilkynna aðsetursskipti, fá fæðingarvott- orð eða aðrar upplýsingar. Mikið væri um að fólk utan af landi hringdi inn til að fá þessa þjón- ustu og væri alltaf reynt að aðstoða fólk eftir megni. Pegar blaðamaðurinn spurði hvort fólk kæmi oft til að kvarta við þær brostu þær og sögðu að það væri næstum daglegur við- burður. Oftast væri það vegna þess að fólk er ekki skráð á rétt heimilisfang og vildu menn skella skuldinni á Hagstofuna. Viður- kenndu þær báðar að auðvitað kæmi fyrir að starfsfólkið þar gerði mistök en oftast væri þetta fólkinu sjálfu að kenna því það fyllti tilkynningarnar um aðset- ursskipti vitlaust út. Sögðu þær Svanhildur og Guðný að oftast væri málinu kippt í liðinn á staðn- um og allir skildu sáttir að lokum. Svona í lokin bað blaðamaður- inn þær að rifja upp einhverjar kátlegar sögur úr í starfinu en bæði Svanhildur og Guðný báð- ust undan því. Sögðust þær vera undir „þagnareið" í starfinu og best fyrir alla aðila að vera ekki að fara í blööin með slík mál. Það var sama hvað blaðamaður- inn nauðaði í þeim, ekki var hægt að hagga þeim í þessu máli. Þær voru þó til í að láta blaðamannin- um í té vísur sem starfsfólk Þjóð- skrárinnar hefði fengið frá ónefndum „aðdáanda" þess: Pjóðskrárbiðin þykir löng þangað margir leita ráða adressan er oft svo röng að enginn getur fundið snáða. Kært er mér það kvennaval, klárar leysa sérhvern vanda. Einhvemtíma inn ég skal með eðla gjöf á milli handa. Eftir þennan Ijóðatíma kvödd- um við með virktum og yfirgáfum Hagstofuna eftir að hafa rætt við hinar hressu stúlkur Svanhildi og Guðnýju. AP i I 1 B j ( 1 1 I w | f ' ■ L 1 ff i 1 HHi 1 : 1 1 1 f 1 s 1 '1 1 1 1 Svanhildur Júnsdóttir. Guðný Stefánsdóttir.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.