Dagur


Dagur - 12.04.1988, Qupperneq 16

Dagur - 12.04.1988, Qupperneq 16
Skíðamót íslands: Keppni hefst á fimmtudag - fjórir erlendir kepp- endur á mótinu Skíðamót íslands, hið 50. í röðinni, verður sett í Akureyr- arkirkju n.k. fimmtudags- kvöld. Mótið sjálft hefst þenn- an dag með skíðagöngukeppni en mótinu lýkur á sunnudags- kvöld með lokahófi og verð- launaafhendingu í Sjallanum. Fjórir erlendir gestir verða á Skíðamóti íslands að þessu sinni, tveir frá Júgóslavíu og tveir frá Svíþjóð. Frá Júgóslavíu koma Mojca Dezman og Cujes Matej en þau keppa í alpagreinum. Dezman keppir í kvennafiokki en hún er númer 33 á lista alþjóða skíða- sambandsins í svigi og númer 98 á sama lista í stórsvigi. Dezman varð í 9. sæti í svigi kvenna á Olympíuleikunum í Calgary og í 18. sæti í stórsvigi. Cujes Matej mun keppa í karlaflokki á Skíðamóti Islands en hann vann í vetur í Euro Cup keppninni í svigi og stórsvigi. Þessi keppni er svæðakeppni Evrópu, næsta stig fyrir neðan heimsbikarmótin. í skíðagöngu munu keppa tveir Svíar, þeir Lars Holand og Andr- es Larsson sem eru báðir lands- liðsmenn í göngu. Keppni mun hefjast kl. 10 alla keppnisdagana og vonast aðstand- endur mótsins til að sjá sem flesta áhorfendur. Skíðaráð Akureyrar sér um framkvæmd mótsins en Skíðaráðið er einmitt 50 ára á þessu ári. JÓH Kristján gerir samning við Scala Kristján Jóhannsson óperu- söngvari hefur gert samning við Scala óperuna í Mílanó um að syngja hjá henni á næsta leikári. Kristján mun gefa út plötu á árinu en segist ekki ætla að syngja á Islandi í bráð. Kristján mun syngja aðalhlut- verkið í óperu sem æfð verður um jólin og frumsýnd í lok janú- ar. „Þar er ég númer eitt,“ sagði Kristján í samtali við Rás 2 í gær. Hann mun síðan vera varamaður Pavarottis í að minnsta kosti fjór- um sýningum á óperunni Tosca sem sýnd verður um miðjan febrúar. ET Þursteinn EA var færður í slipp síðdegis í gær til þess að kanna skemmdir og Ijúka við að ná trollinu úr skrúfunni. Myndiii sýnir gatið á skuthorninu stjórnborðsmegin og dældirnar á síðunni. Á innfelldu myndinni eru þeir félagar Stefán Stefánsson og Helgi Jónsson sem fluttir voru ásamt tveimur félögum sínum með þyrlu Landhelgisgæsl- unnar til Isafjarðar. Myndir: tlv Jakar á stærð við einbýlishús lömdu Þorstein EA: „Sjáum nú hvað okkur bráðvantar stærri þyrlu“ - segja þeir Stefán og Helgi sem voru teknir um borð í TF SIF - Sjópróf fara fram í dag Togarinn Arnar HU kom til hafnar á Akureyri um klukkan 7 í gærmorgun með togarann Þorstein EA í togi. Skipin höfðu þá verið rúman sólar- hring á leiðinni úr Reykja- fjarðarál þar sem Þorsteinn lenti í verulegum háska vegna hafíss. Fram yfir hádegi var unnið að því að reyna að ná trollinu úr skrúfu skipsins en síðan var farið að undirbúa töku þess í slipp. Það var um klukkan hálfeitt aðfaranótt sunnudagsins sem Þorsteinn lenti í vandræðunum. Verið var að láta trollið út þegar skipstjórinn kallaði skyndilega „taka trollið." Það var hins vegar um seinan því fyrr en varði var ísinn farinn að lemja skipið. Isinn var á mikilli t'erð og ýtti skipinu til með þeim afleiðingum að troll- ið festist í skrúfunni. Skipið rak stjórnlaust innan um ísjaka sem sumir hverjir voru á stærð við einbýlishús og var strax leitað aðstoðar nærstaddra togara. Þyngstu höggin dundu á skip- inu aftanverðu stjórnborðsmeg- in. og fljótlega kom gat á hornið þeim megin. Togarinn Arnar var fyrstur á staðinn og í fjórðu tilraun tókst að koma taug á milli skipanna. Fyrsta skotið geigaði en í tveimur næstu tilraunum slitnaði tauginn þar sem hún festist í ísnum. Áhöfnin var öll komin upp á dekk í flotgalla og björgunarbát- ar voru gerðir klárir. „Það mátti ekki miklu muna og værum við ekki hér. Nú fyrst ger- ir maður sér grein fyrir því hvað það er mikilvægt að Gæslan eign- ist stærri þyrlu,“ sögðu þeir Stefán Stefánsson háseti og Helgi Jónsson kokkur í samtali við Dag. Þeir voru meðal þeirra fjögurra skipverja sem teknir voru um borð í þyrlu Landhelgis- gæslunnar þegar hún kom á staðinn. Veður var slæmt á þessum slóðum og skyggni lítið. Skipið sneri upp í veðrið og því sökk afturendinn og sjór flæddi inn. Eftir að útúr ísnum var komið og skipinu hafði verið snúið, var mesta hættan afstaðin. Dælurnar höfðu þá undan lekanunt og heimferðin gekk vel. Vegna þess hve djúpt Þor- steinn risti gekk erfiðlega að koma skipinu fyrir í sleðanum í slippnum. Það var ekki fyrr en um klukkan 19.00 að flætt hafði nóg að og skipinu var kornið í slipp. Fulltrúi frá tryggingafélag- inu var kominn á staðinn og eftir að skemmdirnar hafa verið metn- ar verður líklega leitað tilboðs Slippstöðvarinnar í viðgerðina. Auk gatsins á afturendanum er stjórnborðshlið skipsins öll mjög dælduð. Skipið verður sett á flot aftur síðdegis í dag og landað þeim 20 tonnum sem veiðst höfðu þegar ósköpin dundu yfir. Fulltrúi frá rannsóknanefnd sjóslysa kom til Akureyrar í gær og kynnti sér málsatvik. Sjópróf verða haldin í dag hjá embætti bæjarfógeta. ET ef ekki hefðu verið skip nálæg þá Einn þcirra „Samherjafrænda“, Kristján Vilhelmsson, vann að því í gær að losa trollið úr skrúfu Þorsteins.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.