Dagur - 21.04.1988, Blaðsíða 19
Tómstundakönnun æskulýðsráðs:
Helmingur pilta tekur þátt
í starfsemi íþróttafélaga
í tómstundakönnun æskulýðs-
ráðs voru nemendur 7.-9.
bekkjar spurðir um þátttöku í
starfi hinna ýmsu félaga. Þátt-
takan er mjög misjöfn eftir
félögum en flestir starfa með
íþróttafélögum og eru piltar
þar öllu fleiri en stúlkur því
51% þeirra starfa með íþrótta-
félögum um þessar mundir en
34% stúlknanna. Fleiri stúlkur
en piltar, 41% á móti 33, hafa
hætt í íþróttum og einnig hafa
fleiri stúlkur, 25% á móti 16,
aldrei tekið þátt í starfí íþrótta-
félaga.
Nær helmingur stúlkna eyðir
engum tíma í starf með íþrótta-
félagi en tæpur þriðjungur pilt-
anna. Þriðjungur piltanna eyðir
meira en 5 klst. á viku í þetta
starf en 16% stúlknanna. Þátt-
takan í íþróttafélögum minnkar
með aldrinum, þ.e. hún er mest í
7. bekk.
Þátttakan er nokkuð jöfn í
hverfunum, 42-48% í Glerárskóla-
hverfi, Síðuskólahverfi, Barna-
skólahverfi og Lundarskóla-
hverfi, en hún er langminnst í
Nokkuð oft kviknar i eldhus-
um, þegar djúpsteiking fer
fram, einkum í opnum pottum
á rafmagnshellu. Djúpsteik-
ingarpottar með sjálfvirkum
hitastilli eru hættuminni, en
sjálfvirkur rofí getur bilað.
Besta vörnin gegn hættu er að
hafa gát á pottinum meðan steik-
ing fer fram. Þar að auki er
hyggilegt að hafa við höndina
tæki til að slökkva feitis- og olíu-
elda, ef illa fer.
Eldvarnaeftirlit Reykjavíkur-
borgar ráðleggur að hafa eld-
varnateppi í hverri íbúð. Teppin
eru lögð yfir eldinn og kæfa
hann. Þessi teppi fást í handhæg-
um umbúðum, ásamt notkunar-
leiðbeiningum. Auk teppisins er
sjálfsagt að hafa a.m.k. eitt
handslökkvitæki nærtækt. Það
sem best hentar við feitis- og
olíuelda er kolsýru-handslökkvi-
tæki. Reynið aldrei að slökkva
feitis- og olíueld með vatni. Það
örvar eldinn.
Á markaðnum eru einnig
HALON handslökkvitæki og
duft-tæki.
HALON er mjög öflugt til að
slökkva alla elda, en síður er
mælt með notkun þess, vegna
eiturefna, sem slökkvitækin inni-
Oddeyrarskólahverfi eða aðeins
8%! Þar hafa líka hlutfallslega
flestir hætt að taka þátt í starfi
íþróttafélaga eða 58% á móti 29-
42% í hinum hverfunum.
Sama hlutfall (11%) pilta og
stúlkna taka þátt í skátastarfi en
fleiri stúlkur hafa hætt og fleiri
piltar hafa aldrei tekið þátt í slíku
starfi. Flestir þeirra sem starfa
með skátum eru í 9. bekk.
31% stúlkna segist taka þátt í
starf á vegum æskulýðsráðs en
21% pilta. Mjög lítil þátttaka er í
starfi KFUM og K, aðeins 3%,
en 44% stúlkna og 32% pilta
segjast hafa tekið þátt í starfinu
áður. 7% þátttakenda kváðust
hafa tekið þátt í félagsstarfi á
vegum kirkjunnar, 11% stúlkna
og 4% pilta.
18% pilta og 14% stúlkna
starfa með öðrum félögum. Með-
al félaga og klúbba sem nemend-
ur höfðu tekið eða taka þátt í má
nefna Skákfélag Akureyrar,
Dansstúdíó Alice, Ijósmynda-
klúbb í GA, Golfklúbb Akureyr-
ar, Leikklúbbinn Sögu, Siglinga-
klúbbinn Nökkva, stúkurnar,
Hestamannafélagið Létti, Passíu-
halda. Um þetta efni eru skiptar
skoðanir.
Duft er einnig mjög öflugt
slökkviefni, en það vill setjast í
kekki í tækjunum og við notkun
dreifist það mjög um og sest í
hverja smugu í húsinu. Hentar
því betur t.d. á verkstæðum.
kórinn, Tónlistarskólann, Mynd-
listaskólann, hljómsveitir, penna-
vinaklúbba, briddsklúbba auk
saumaklúbba og njósnaklúbbs
sem tekið var fram að starfaði á
kvöldin! SS
Lifanéi orð
„Fel Drottni vegu þína og
treyst honum, hann mun vel
fyrir sjá. “ Sálm. 37.5.
Hér er okkur bent á þann
veg sem leiðir til blessunar.
Að vera Guði falinn er að vera
í öruggri umsjá hans. Við
megum fela honum öll okkar
málefni og biðja hann að ann-
ast okkur bæði í nútið og
framtíð. Hann mun ekki bregð-
ast okkur. Við höfum okkar
eigin fyrirætlanir, en er okkar
ráðahagur Guði falinn? Við vilj-
um helst ráða göngu okkar
sjálf. Okkut reynist ekki auð-
velt að fela honum vegu
okkar. Það ætti þó aö liggja
beinast við, þegar við hugsum
um Guð sem skapara og
Drottin. Sannleikurinn er oft
sá, að maðurinn er hræddur
við að láta hann fá að ráða
ferðinni og ganga á undan.
Við erum treg til þess að leyfa
honum að vera okkar leið-
sögumaður á vegferðinni. Við
treystum sjálfum okkur jafnvel
betur til þess að ráða fram úr
okkar málum en honum sem
þó hefur allan mátt og alla
visku.
Þegar við felum einhverjum
sérstakt verkefni í hendur, þá
vaknar sú spurning hvort við
treystum viðkomandi. En
Drottni megum við fela allt, og
ekki síst okkar innstu og hjart-
fólgnustu málefni. Að gefa sig
Guði á vald og fela líf sitt
Kristi, það er hjálpræðisleiðin
sem Biblían talar um. „Hann
mun vel fyrir sjá.“ Hann mun
sjá til þess að veita þeim
úrlausn sem hans leita af heil-
um hug. „Hjá Drottni er
miskunn, og hjá honum er
gnægð lausnar." Sálm 130.7.
En traustið til hans er skil-
yrði og trúin er forsendan. Við
verðum að leyfa honum að
komast að í okkar málum. „Án
trúar er ógerlegt að þóknast
honum, því að sá, sem geng-
ur fram fyrir Guð, verður að
trúa því, að hann sé til og að
hann umbuni þeim, er hans
leita.“ Heb. 11.6.
Á hendur fel þú honum,
sem himna stýrir borg,
það allt, er áttu'í vonum,
og allt, er veldur sorg.
Hann bylgjur getur bundið
og bugað storma her;
hann fótstig getur fundið,
sem fær sé handa þér.
Skoðanakönnun Æskulýðsráðs Akureyrar á áhugamálum akureyrskra ungl-
inga hefur vakið nokkra athygli. Þessi mynd ai' fulltrúum í ráðinu var tekin
á blaðamannafundinum, þegar niðurstöður könnunarinnar voru kynntar.
Talið frá vinstri: Hermann Sigtryggsson æskulýðsfulltrúi, Gunnar Jónsson
formaður æskulýðsráðs, Sigríður Valdimarsdóttir æskulýðsráði, Jóhann
Möller æskulýðsráði, Gunnar Frímannsson menntaskólakennari og Bragi V.
Bergmann æskulýðsráði. Á myndina vantar Hlyn Hallsson æskulýðsráði.
Mynd: GB
Eldur í djúpsteikingarpotti
- Hvað á að gera?
21. apríl 1988 - DAGUR - 19
„Ný bííosaía“
Vorwm oð oprui bíCosöCu oð
Stmtukjötu 53, (gamía BSA
verkstœðið, oustur endi).
Ökkur vantar oííar gerðir tribi d sýningarsvceði
og í bjartan og riungóðan sýningarsat.
Líttu inn oi] skrnðu bídnn pinn.
Pað er heitt d könnunni.
Með ýriifram f>ökk fynir viílsítiptin.
BíCcwaC — BííosaícL
StraiuLjölu 53, 600 AkurevrL
Símor 21705 og 21706.
/-------------------------------\
>■■■■■ —f- LLL tnrl n
r~- mí ■ ) r v r —
ít K-E III a = e III JjríU-lJL
I
ALLL ■ ■ JIL H44-H+
S ■ ■ s imiii
I QLLL t. i — nf] öTTT
* 1 => Dj, | „X IQffil
Alþýðuhúsið
5kipagötul4, Akureyri
Óskum félagsmönnum okkar
gledilegs sumars
með þökk fyrir veturinn.
Alþýðusamband Norðurlands
Sími 26333
Félag málmiðnaðarmanna,
Akureyri - Sími 26800
Félag verslunar- og
skrifstof ufól ks
Akureyri og nágrenni
Sími 21635
Iðja - félag verksmiðjufólks,
Akureyri - Sími 23621
Sjómannafélag Eyjafjarðar
Sími 25088
Skipstiórafélag Norðlendinga
Simi 21870
Trésmiðafélag Akureyrar
Simi 22890
Verkalýðsfélagið Eining
Símar 23503 og 21794