Dagur


Dagur - 21.04.1988, Qupperneq 28

Dagur - 21.04.1988, Qupperneq 28
Akureyri, fimmtudagur 21. apríl 1988 Allt fyrir bílimi Látið yfirfara bílinn fyrir sumarið. Vandið valið. Við vöndum verkin. Gleðilegt sumar. Þórswmarhf. Við Tryggvabraut • Akureyri • Sími 22700 Birgt upp fyrir verkfall: Sumir með mánaðar- birgðir af sykri „Þetta hefur verið eins og gerist mest á Þorláksmessu,“ sagði Björg Þórsdóttir versl- unarstjóri hjá KEA í Hrísa- lundi í samtali við Dag í gær, en snemma í gærmorgun fór fólk af stað í meiriháttar mat- arinnkaup vegna fyrirhugaðs verkfalls. Það virtist alls stað- ar vera það sama uppi á ten- ingnum og var t.a.m. farið að bera á skorti á ýmsum teg- undum matvöru þegar líða tók á daginn. „Það er mest keypt af brauði, mjólk og mjólkurafurðum, og smjör og smjörlíki rýkur út. Þá finnst mér óeðlilega mikið keypt af hveiti og sérstaklega sykri. Sumir fara hér út með á að giska mánaðarbirgðir af sykri," sagði Björg. Hún sagði hafa verið meira að gera en hún bjóst við og hefði þetta sömu- leiðis byrjað fyrr. „Fólk var greinilega komið af stað á mánudaginn var,“ sagði hún að lokum. I Hagkaup var sömu sögu að segja, því um kl. 10.00 voru raðir á öllum kössum fram í miðja verslun. Þórhalla Þór- hallsdóttir verslunarstjóri sagði að í fyrradag hafi farið viku- birgðir af sumum vörutegund- um. „Það fer mest af hreinum ávaxtasafa og djúsi, kexi og kjöti og svo fer mjög mikið af barnamat og bleium.“ Hún sagði að ösin væri líkt og gerðist fyrir páska. Beiðnir um undanþágu vegna verkfallsins voru afgreiddar hjá Félagi verslunar- og skrifstofu- fólks í gær, en nokkuð hafði borist af þeim til félagsins. Lík- legt var talið að t.d. Dagur fengi undanþágu eins og fjölmiðlar á Reykjavíkursvæðinu hafa fengið. í dag verður sáttafundur með deiluaðilum hjá sáttasemjara ríkisins en það ríkir ekki mikil bjartsýni um að sá fundur verði árangursríkur. Þá er nokkuð mikið talað um að lög verði sett til höfuðs verkfallinu, en eins og Jóna Steinbergsdóttir sagði: „Ég get ekki ímyndað mér að það gerist og vil ekki trúa því fyrr en í lengstu lög." VG Ófáir notuðu tækifærið til að hamstra í Kjörmarkaði KEA í Hrísalundi í gær. Mynd: TLV Hafnar Húsnæðisstofnun umsóknum um framkvæmdalán? Yrði dauöadómur yfir mörgum veridakafyriitælqum á landsbyggðinni Loksins raðhús á einni hæð - verða fyrstu húsin við Ekrusíðu Á fundi bygginganefndar síð- astliðinn þriðjudag var sam- þykkt að heimila byggingu fimm raðhúsaíbúða á einni hæð við Ekrusíðu. Lóðirnar sem um ræðir töldust áður til Stapasíðu en eftir að skipulags- nefnd og íbúar nærliggjandi húsa höfðu lýst sig fylgjandi breytingunni var hún ákveðin. Byggingarsvæðið er á milli Bugðusíðu og Stapasíðu. Gert var ráð fyrir að hús númer 21 við Stapasíðu myndi lengjast til vesturs, en vestan húss númer 17 yrði byggt hús númer 19. Nýja fyrirkomulagið gerir hins vegar ráð fyrir einu raðhúsi með fimm íbúðum og verður það fyrsta og eina húsið sem telst til Ekrusíðu. Það er Trésmíðaverkstæði Sveins H. Jónssonar sem fær leyfi til að byggja á lóðinni. Fyrirtækið hafði ítrekað sótt um lóðir fyrir einnar hæðar raðhús, en án árang- urs. „Ég er auðvitað mjög ánægður með þessa úthlutun. Það er mikil eftirspurn eftir þess- um húsum," sagði Sveinn í sam- tali við Dag. Vinna við jarðvegs- skipti hefst á næstu dögum og lokið við húsin í sumar. ET Eins og skýrt var frá í blaöinu 19. þ.m. fól stjóm veitustofnana Akureyrarbæjar bæjarlög- manni að svara bréfi lögmanns Þorkels St. Ellertssonar þar sem farið var fram á skaðabæt- ur vegna skömmtunar á heitu vatni til jarðarinnar Bjarkar í Öngulsstaðahreppi. Hreinn Pálsson, bæjarlögmaður á Akureyri segir að ekki sé um það deilt lengur að jörðin eigi að fá ókeypis vatnsmagn þ.e.a.s. ef sýnt sé fram á þörf fyrir vatnið. Stjórn Húsnæðisstofnunar hef- ur að undanförnu rætt hvaða leiðir séu færar til að leysa fjár- hagsvanda stofnunarinnar. „Þorkell St. Ellertsson bjó mjög stuttan tíma á jörðinni og kom ylrækt sinni aldrei af stað svo við vitum til. Þess vegna telj- um við að hann hafi alls ekki sýnt fram á þörf fyrir allt þetta vatn. Við teljum ekki að Þorkell hafi sýnt fram á að hann eigi eftir að fá neitt í sinn hlut frekar en orðið er,“ segir Hreinn Pálsson bæjar- lögmaður. Eftir að dómur féll í Hæstarétti var núverandi eiganda Bjarkar endurgreidd sú upphæð sem hann var búinn að greiða fyrir heitt vatn og vexti að auki. í máli Meðal þess sem rætt hefur ver- ið er að fella niður öll svoköll- uð framkvæmdalán, en þau hafa verið veitt byggingar- Hreins kom fram að sú skoðun sé hjá stjórn veitustofnana bæjarins að fyrrverandi eigandi Bjarkar hljóti að þurfa að sýna fram á tjón áður en hægt sé að fara fram á skaðabætur. „Við teljum að þegar búið er að bæta jörðinni með þessum hætti þá hafi í sjálfu sér verið bætt fyrir það tjón sem hugsanlegt var,“ segir Hreinn. Þegar er búið að senda lög- fræðingi Þorkels Ellertssonar bókun stjórnar veitustofnana og ekkert gerist í málinu nema Þorkell vísi því til dómstóla. JÓH verktökum á landsbyggðinni. Niðurfelling þessara lána gæti haft mjög alvarlegar afleiðing- ar fyrir verktaka og sveitarfélög á landsbyggðinni. Framkvæmdalánunum er ætl- að að brúa það gífurlega bil sem er á milli fjölda umsókna um húsnæðislán frá suðvesturhorni landsins annars vegar og lands- byggðinni hins vegar. Vegna þess forskots sem íbúar í Reykjavík og nágrenni féngu þegar kerfið var opnað að nýju árið 1986, hafa lánsloforð nær eingöngu farið til þeirra. Þeir verktakar sem fengið hafa framkvæmdalán, hafa með því móti getað hafið byggingu íbúða þó svo að lánsloforð til kaupenda lægju ekki fyrir. Þannig hafa íbúðirnar komist í gagnið fyrr en annars hefði verið. Víða úti á landi stendur húsnæðisskortur annarri uppbyggingu verulega fyrir þrifum og því gæti það haft mjög alvarlegar afleiðingar ef þessi lán verða ekki veitt. Á fundi stjórnarinnar í síðustu viku var lagt til að verktökum yrði sent bréf og umsóknum þeirra um lánin hafnað. Fulltrú- um Framsóknarflokksins í stjórn- inni, tókst þó að afstýra þessu og var ákvörðun um málið frestað fram á vor. „Þetta er spurning um forgangs- röð verkefna hjá stofnuninni. Valið stendur á milli þess að seinka öllum umsóknum um ein- hverja daga og geta þannig veitt þessi lán, eða bókstaflega að ganga af þessum verktökum dauðum næstu tvö árin. Ég mun aldrei gefa mig í þessu máli og hætti ekki fyrr en þessi lán verða afgreidd," sagði Hákon Hákon- arson, annar fulltrúanna í samtali við Dag. Hákon sagðist telja að þessi lán þyrfti að veita á þessu ári og því næsta, en þá ætti áðurnefndur aðstöðumunur að hafa jafnast. ET Drengur fyrir bíl Um klukkan 11 í gærmorgun varð 10 ára gamall drengur fyr- ir bíl í Kaupvangsstræti, á móts við Billiardstofuna. Drengurinn meiddist lítillega og var fluttur á slysadeild en fékk að fara heim að lokinni skoðun. Drengurinn var á leið yfir götuna og hljóp þá í veg fyrir bíl á leið niður gilið. Lúmsk hálka var þeg- ar óhappið varð. ET Heitavatnsmál á Björk: „Sýndi aldrei fram á þörf fyrir meira vatn“ - segir Hreinn Pálsson bæjarlögmaður

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.