Dagur - 18.05.1988, Síða 7
18. maí 1988 - DAGUR -7'
Gagnfræðingar ’63
Hittumst í KA-heimilinu
fimmtudaginn 19. maí kl. 20.30.
Mætum öll.
Bœndur
Boða-
rafgirðingar
Allt efni til rafgirðinga
Kynnið ykkur nýjungar
Boði hf. Hafnarfirði * Díselverk Draupnisgötu 3
Kristján Jónsson afhendir Jónasi Franklín ávísunina, en með þeim á myndinni eru fulltrúar verkstjóra og Krabba-
meinsfélagsins. Mynd: GB
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis:
Fékk hálfa milljón frá verkstjómm
- brjóstmyndatökutækið komið til landsins
Krabbameinsfélag Akureyrar
og nágrennis hefur fengið veg-
lega peningagjöf frá Verk-
stjórasambandi íslands, vegna
kaupa félagsins á brjóstmynda-
tökutæki til krabbameinsleit-
ar. Á fundi fulltrúa Krabba-
meinsfélagsins og verkstjóra-
sambandsins á dögunum var
peningunum veitt viðtaka.
Það var Kristján Jónsson forseti
verkstjórasambandsins sem
afhenti Jónasi Franklín, for-
manni félagsins ávísun að upp-
hæð 500.000 krónur. Kristján
hélt tölu við þetta tækifæri og
sagði tilefni gjafarinnar vera 50
ára afmæli Verkstjórasambands
íslands þann 10. apríl sl. Ákveð-
ið var að gefa 1,5 milljónir króna
til líknarmála og skiptist gjöfin á
þrjá aðila. Þeir eru Hjartavernd í
Reykjavík, Sjúkrahús Francisku-
systra í Stykkishólmi og Krabba-
meinsfélag Akureyrar og nágrenn-
is. Eins og fleiri verkalýðs-
samtök, fær Verkstjórasamband
íslands 1% launa í sjúkrasjóð
félaga, en þeir hafa rétt til 18
mánaða leyfis á launum vegna
veikinda. í þennan sjóð er ekki
safnað endalaust, heldur er hann
nýttur og eru gjafapeningarnir
fengnir úr þessum sjóði.
Verkstjórasamband íslands er
samband 13 verkstjórafélaga um
land allt. Meðlimir þess eru alls
1700 og þegar tilkynnt var, að
tvær af peningagjöfunum færu út
á land, mæltist það vel fyrir
meðal félaga. Kristján sagði það
fulltrúum Akureyringa í stjórn
sambandsins að þakka, að
Krabbameinsfélagið hlyti þessa
gjöf, þar sem þeir hefðu verið
dyggir málsvarar þess.
Jónas Franklín tók til máls á
eftir Kristjáni og þakkaði fulltrú-
unum fyrir hönd Krabbameins-
félags Akureyrar og nágrennis.
Hann sagði þá afar þakkláta og
að þessi gjöf gerði að verkum, að
nú sæist fyrir endann á verkefni
sem hafist hafi um áramótin. Par
átti hann við söfnunina fyrir
brjóstmyndatökutækinu, en það
Passíukórinn á Akureyri:
Tónleikar annan í hvítasunnu
16. starfsári Passíukórsins á
Akureyri lýkur með tónleikum
í Akureyrarkirkju 23. maí á
annan í hvítasunnu kl. 17. Á
efnisskránni eru tvö verk.
Requiem (sálumessa) eftir
Gabriel Fauré og kantatan
„Jauchzet ihr Himmel“ (Fagn-
ið þér himnar) eftir Georg P.
Telemann. Flytjendur auk
Passíukórsins eru einsöngvar-
arnir Margrét Bóasdóttir,
Michael J. Clarke og Þuríður
Baldursdóttir. Björn St. Sól-
bergsson orgelleikari, Monika
Abendroth hörpuleikari ásamt
nokkrum fleiri hljóðfæra-
leikurum.
Tónverkin tvö sem flutt verða
eru mjög ólík, enda skilja nærri
tvær aldir þau að.
G. P. Telemann var Pjóðverji.
Hann var samtímamaður J. S.
Bach og því fulltrúi barokk tón-
listarinnar. Hann var mjög af-
kastamikið tónskáld. Eftir hann
liggja nokkrir tugir af óperum,
óratoríum og passíum, fjöldinn
allur af kantötum auk verka fyrir
ýmis hljóðfæri og hljómsveitar-
verk.
Frakkinn Gabriel Fauré (1845-
1924) samdi sín verk í anda síð-
rómantísku stefnunnar. Hann
hóf að semja Requiem árið 1887,
og að hans eigin sögn gerði hann
það sér til ánægju. Verkið var svo
frunrflutt í janúar 1888 og á það
því aldarafmæli í ár.
Passíukórinn hefur starfað af
krafti í vetur sem endranær.
Aðalnrarkmiðið með stofnun
kórsins var „að flytja meiriháttar
verk tónbókmenntanna“ svo
vitnað sé í lög kórsins. Kórinn
hefur þegar flutt mörg stærstu og
þekktustu verk tónbókmennt-
anna en af nógu er að taka.
Oft hefur reynst erfitt að fá
fjárhagslega dæmið til þess að
ganga upp við flutning stórra
verka. Stofnandi kórsins og
stjórnandi, Roar Kvam, hel'ur þó
ekki látið deigan síga og á hverju
starfsári eru tekin fyrir ný og
spennandi viðfangsefni.
Segja má að kórinn hafi núna
seinni árin starfað sem kammer-
kór. Hafa verkefni verið valin í
samræmi við það og hvergi verið
slakað á listrænum kröfum.
Fólk er hvatt til að láta tónleik-
■ ana á annan í hvítasunnu ekki
fram hjá sér fara. Þeir eru sem
fyrr segir í Akureyrarkirkju og
hefjast kl. 17. Stjórnandi er Roar
Kvam.
er nú komið til landsins og á
aðeins eftir að fá tollafgreiðslu.
Jónas tók það sömuleiðis fram,
að það væri ekki algengt að
landssamtök tækju sig til og gæfu
félögum sem þessum stórar gjafir
en í þetta sinn hafi það svo sann-
arlega runnið til góðs málefnis.
VG
Núeriektartími...
Við framleiðum
ruslapokana...
Fást í öllum helstu
verslunum bœjarins.
PIAST
ÓSEYRI 4 602 AKUREYRI
P.O. BOX 610 SÍMI96-22211
VÖRUKYNNING í VÉLADEILD
K.Þ. HÚSAVÍK FIMMTUDAGINN
19. MAÍ.
!^rlj flf f ' ri
\ ■i .•••- * rSSÍr*
!§§ %
r \ 1
Kynnum öryggis- & hlífðarvörur,
Gerni hreinsitæki, rafsuðuvélar,
rafstöðvar, dælur o.fl.
Skeifan 3h - Sími 82670