Dagur - 18.05.1988, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - 18. maí 1988
Hús til sölu
Óska eftir kaupanda að íbúðarhúsinu Ásvegi 14,
sem er einnar íbúðar hús á tveimur hæðum með
innbyggðri bílageymslu. Húsið er byggt ’59-’60.
Upplýsingar í síma 23780 kl. 17-19.
Ofiiæmi og
aukaefiii í matvæhim
Fræðslu- og kynningarfundur í Alþýðuhúsinu 23.
maí (annan í hvítasunnu) kl. 14-18.
Frummælendur:
Davíð Gíslason ofnæmissjúkdómalæknir, talar um
ofnæmi og aukaefni í matvælum.
Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur og forseti NLFI,
talar um almenna hollustu matvæla.
Fundargestum boðið að bragða á margs konar
heilsufæði.
Náttúrulækningafélag Akureyrar,
Náttúrulækningafélag Islands.
Lögtaksúrskurður
eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs á Akureyri,
Dalvík og í Eyjafjarðarsýslu úrskurðast hér með að
lögtök geti farið fram fyrir eftirtöldum gjöldum, gjald-
föllnum, en ógreiddum:
Söluskattur fyrir janúar, febrúar og mars 1988 svo
og viðbótar- og aukaálagning söluskatts vegna fyrri
tímabila.
Ennfremur fyrir þinggjaldahækkunum vegna fyrri ára
og skipulagsgjaldi af nýbyggingum.
Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum ásamt
dráttarvöxtum og kostnaði geta farið fram að liðnum
8 dögum frá birtingu úrskurðar þessa.
Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík,
sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
16. maí 1988.
Vöruþróun - Markaðssókn
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hf. gengst fyrir
námskeiði í vöruþróun - markaðssókn. Námskeið þetta er einkum ætlað stjórnendum er
bera ábyrgð á: Framkvæmdastjórn. Hönnun og þróun. Framleiðslustjórn. Markaðsmálum.
Staður: Verkmenntaskólinn á Akureyri.
Stund: 3. og 4. júní 1988 kl. 9.00 til 17.00 báða daga.
Markmið: Kynna kerfisbundin vinnubrögð við vöruþróun frá hugmynd til markaðar.
Efnisatriði: Aðferðir til að leiða fram
hugmyndir. Aðferðirtil að bera saman og
meta hugmyndir. Aðferðirtil að meta markaðs-
aðstæður. Aðferðir við gerð framkvæmda- áætlunar. Leið til fjármögnunar vöruþróunar.
Leiðbeinendur: Haukur Alfreðsson, rekstrarverk-
fræðingur ITÍ, Ásgeir Páll Júlíusson, viðskipta-
fræðingur ITÍ.
Upplýsingar/ Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hf.,
innritun: sími 96-26200, fyrir 27. maí.
Bfllinn í lagi
— beltin spennt
bömin í aftursæti.
GÓÐA FERÐ!
yujKKOW
Minning:
T Einar Einarsson
Egilsstöðum
Fæddur 10. desember 1896 - Dáinn 8. maí 1988
Við lát Einars Einarssonar á
Egilsstöðum féll frá síðasta barn
af níu börnum Einars Sölvasonar
frá Víkingsstöðum í Vallahreppi
í Suður-Múlasýslu.
Pað fyrsta þeirra, Ingibjörg
Ragnheiður, var barn fyrri konu
hans, sem bar sama nafn. Hún
lést 3. september 1952.
Einar Sölvason hóf sinn fyrsta
sjálfstæða búskap með síðari
konu sinni, Bergljótu Guðlaugu
Einarsdóttur, að Ósi í Hjalta-
staðaþinghá árið 1893. Þau eign-
uðust átta börn. Þau voru: Sig-
ríður, fædd 24. nóvember 1889,
Margrét, fædd 25. nóvember
1891, Sölvi, fæddur 26. júlí 1894,
dáinn 29. mars 1901, Einar,
fæddur 10. desember 1896,
Vigfús, fæddur 24. september
1900, Halldóra Margrét, fædd 22.
nóvember 1901, Sólveig, fædd
22. nóvember 1901, dáin 12. des-
ember 1902 og Sólveig, fædd 29.
ágúst 1905. Sú yngsta, móðir
þess, er þetta ritar, lést í Reykja-
vík í maí 1976.
Eins og fram kemur, létust tvö
barnanna í æsku, en hin sjö
öðluðust það hlutskipti að fá að
lifa og starfa í blóma lífs síns,
hvert á sínum vettvangi og þar
með mestu þjóðfélagsbyltingu í
sögu landsins.
Systkinin öll, að móður okkar
undantekinni, lifðu lífi sínu að
mestu og kvöddu það í austfirsk-
um átthögum, ýmist á Héraði eða
niður á fjörðum og eiga þar sína
hvílu.
Við lát Einars móðurbróður
okkar rifjast upp margar minn-
ingar. Þær fyrstu eru frá æsku-
heimilinu á Akureyrarbrekku.
Það gleymist okkur seint, þegar
eitthvert frændsystkinanna að
austan, Einar, Vigfús og systurn-
ar Margrét og Halldóra, komu í
heimsókn. Sigríður fluttist norð-
ur síðar og varð búföst á Akur-
eyri eftir langa dvöl á Seyðisfirði.
Öll báru þau sama viðmótið og
lýstu sömu skaphöfninni, gjaf-
mildi, fórnfýsi og hjartagæsku,
með þeirri einlægni andans, sem
stækkar þá, sem slíkt bera. Ætíð
síðan þá fengu austfirsku heitin
gæskur og gæska sérstakan sess í
huga lítt mótaðra akureyrskra
barna og unglinga og eru þar enn
í fullu gildi. Verða þau ef til vill
enn hlýrri með árunum og um
leið hluti af ljúfri sögu æskuár-
anna.
Borgarbíó
Miðvikud. 18. maí
Kl. 9.00 og 11.00
Wall Street
Úrvalsmyndin Wall Street er komin.
David Denby hjá NY Magazine segir um
Wall Street: „Frábær skemmtun, skemmti-
legasta mynd ársins".
Aðalhlutverk: Michael Douglas, Charlie
Sheen, Daryl Hannah og Martin Sheen.
Leikstjóri: Oliver Stone.
Kl. 9.10 og 11.10
Allt á fullu í Beverly Hills
Splunkuný og mjög mögnuð mynd um lifn-
aðarhætti unglinga í Beverly Hills og
hvernig hægt er að lenda í miður góðum
fólagsskap þar.
Margar breytingar hafa orðið
með þjóð og í heimi síðan Einar
Einarsson fæddist austur í
Hjaltastaðaþinghá árið 1896. Ég
hygg þó, að þau skapgerðarein-
kenni, sem áreiðanlega mótuðu
hann í æsku eftir síðari kynnum
og frásögnum að dæma, hafi lítið
breyst á löngum ferli. Þeirra gætti
skýrt á fyrstu Akureyrarárunum,
við endurnýjuð kynni á átthögum
hans og þegar leiðir lágu suður til
Reykjavíkur á síðara æviskeiði.
Éinar var maður, sem beinlínis
geislaði af góðleika og í öllum
skiptum við samferðamennina
var hann miklu fremur veitandi
en þiggjandi. Sú skaphöfn, sem
mótaðist að Ósi, var hlý og
gjöful, hvort sem var í heimsókn-
unum austur eða nýjum kynnum
í öðru umhverfi hér syðra. Einar
var aldrei allra, en vinum sínum
var hann trölltryggur uns yfir
lauk. Margt af því er persónu-
bundið og verður ekki rakið hér,
en ég veit, að þeir sem báru gæfu
til að eignast vináttu hans,
þekkja þá tryggð af eigin raun.
Hún var byggð bjargi jafn sterku
og hin fögru Dyrfjöll, sem gnæfa
til himins skammt frá æskuheim-
ili hans að Ósi. í dag, þegar Einar
er borinn til jarðneskrar hvílu
sinnar við Egilsstaðaásinn, andar
hlýju frá þeim mörgu, sem nutu
þessara kynna við hann á langri
og farsælli ævi.
Þegar hugurinn reikar til Ak-
ureyraráranna er ofarlega í huga,
að Einar og frændur hans nutu
þess að ferðast vítt um íslenska
náttúru. Það glampaði oft á stolt
og opin augu okkar norðan-
krakkanna, þegar okkur veittist
sú ánægja að kynnast austfirskum
sveitum og sjá með eigin augum
lönd forfeðranna í fylgd með
frændliði. Undantekningarlítið
var Einar þar fremstur í flokki.
Það var ógleymanlegt, þegar U-
bílarnir komu óvænt af Möðru-
dalsöræfum og áttu dvöl að
sumarlagi á Norðurlandi. Ef til
vill sköpuðu þessi tengsl ein-
hverja óviðráðanlega hvöt til
þess að kynnast íslenskri náttúru
og til þess að nema það óþekkta á
þeim árum, þegar landamærin að
vestan voru á Vatnsskarði og að
austan við Lagarfljót. Allt á upp-
runa sinn einhvers staðar og
áreiðanlega er ein rótin þarna.
Einar heitinn var ætíð bundinn
átthögunum órofaböndum þó að
lífssýn hans næði langt út fyrir
þá. Það var algengt, að hann
legði land undir fót oft fyrirvara-
og orðalaust. Þá var haldið á vit
náttúru, upp á öræfi Austurlands
á hreindýra- og veiðislóðir. Eitt
sinn var farið á Grænlandsgrund í
hópi glaðra Austfirðinga og var
margs að minnast úr þeirri för.
Eins og títt mun vera um ýmsa
sterka stofna af Vefarakyni var
engu Iíkara en allt færi vel í
höndum Einars, enda var mikið
til hans leitað. Þrátt fyrir hand-
snilld völundarins á Egilsstöðum
voru það þó aðrir eiginleikar,
sem enn frekar settu mark sitt á
þennan gæskuríka mann. Rík-
ustu þættirnir voru hógværð,
góðvild, fórnfýsi og umhyggja
fyrir öðrum. Þessum eiginleikum
deildi hann ekki sist með yngri
kynslóðinni, sem hann fylgdist
vel með, þó að úr fjarlægð væri
og átti hann hug hennar allan þó
að samskiptin væru takmörkuð
vegna annarrar búsetu. Þau
frændsystkini, er bjuggu syðra og
nyrðra, dáðu mjög hinn síglaða,
bjarta frænda sinn að austan.
Þetta fágæta andlega og líkam-
lega atgervi, er hér hefur verið
reynt að lýsa, hefur áreiðanlega
reynst vel, þegar stór hluti hinna
austfirsku niðja Einars Sölvason-
ar gerðust eins konar landnáms-
menn í Egilsstaðalandi og mynd-
uðu vísinn að þeirri myndarlegu
byggð, sem nú er risin.
En lífið var ekki alltaf þrauta-
laust hjá hinum austfirska frænd-
garði. Á þrettándanum 1963
barst sú harmafregn, að alvarlegt
bifreiðaslys hefði orðið á Fagradal.
Þar létu lífið systkinin Halldóra og
Vigfús, en Einar komst af í hinni
miklu raun. Er vafasamt, að Ein-
ar hafi nokkru sinni raunverulega
náð fyrri styrk eftir þennan
válega atburð. Hann bar harm
sinn í hljóði og fleiri sorgarat-
burði sem síðar urðu.
Þegar saga Egilsstaða verður
skráð, verður rakinn þáttur af-
komenda bóndans frá Víkings-
stöðum. Ætt hans hefur verið
myndarlega rakin í nýlegri ættar-
skrá ritaðri af Bjarna Vilhjálms-
syni fyrir forgöngu nýlátinnar
náfrænku, Rögnu Jónsdóttur,
kennara. Það hlýtur að hafa þurft
mikinn kjark á þessum árum til
að bregða búi og efna til land-
náms á nýjum slóðum. Þeir
höfðu þann kjark, er til þurfti, og
þess er minnst í dag, þegar einn
frumbýlinganna er lagður til
hinstu hvílu. Bjarni Vilhjálmsson
lýkur ættarskrá sinni með þessum
orðum: „Ég held, að það verði
ekki talið ofmælt eftir samantekt
þessa, að það séu traustir ætt-
stofnar, sem standa að Einari
Sölvasyni frá Víkingsstöðum og
báðum konum hans.“
Minnisstætt er eitt atvik frá
síðari árum, sem þakka skal
fyrir. Vorið 1985 var alvörustund
í lífi fjölskyldunnar. Frændur og
vinir komu saman til að kveðja,
þakka og styðja. Án þess að gera
boð á undan sér var Einar Ein-
arsson, rétt við nírætt, kominn í
Bústaðakirkju til að eiga hlut-
deild í þessari stundu. Þessu
gleymum við aldrei sem nutum
og erum eilíflega þakklát fyrir.
Nú, þegar birtir af vori í
Skriðdal og við Ós, er síðasti
meiðurinn af sterkum stofni
kvaddur með virðingu og þökk.
Lífi, sem mótað var af fágætri
hógværð og lítillæti, er lokið.
Sterkast lýsir þó hugarþelið og
innri mildi, sem svo ríkulega
miðlaði þeim, er fengu að njóta.
Þegar enn birtir yfir austfirskum
byggðum á þessu vori, lýsir þetta
þel og verður þeim ógleyman-
legt, sem nutu.
Blessuð sé minning systkin-
anna níu, sem nú eru öll horfin
yfir það fljót, er skilur.
Blessuð sé minning Einars Ein-
arssonar, sem í dag sameinast
þeirri mold er ól hann.
Heimir Hannessun.