Dagur - 20.05.1988, Blaðsíða 17
20. maí 1988 - DAGUR - 17
Frá opnun verslunarinnar á Akureyri. Frá vinstri: Birgir Skaptason annar
eigenda, Arni Þorvaldsson verslunarstjóri og Vignir Jón Jónasson deildar-
stjóri verslananna. Mynd: KK
Japis Akureyri:
„Erum á besta
stað í bænum"
- segir Árni Þorvaldsson verslunarstjóri
Laugardaginn 15. maí sl. var
opnuð ný verslun á Akureyri
með pompi og prakt. Hér er
um að ræða verslunina Japis
Akureyri, en verslanir Japis
eru vel þekktar í Reykjavík og
Keflavík. I tilefni dagsins
stukku þrír fallhlífarstökkvarar
úr flugvél og lentu þeir í mið-
bænum. Einn þeirra var með
videomyndavél frá Japis og
myndaði hann stökkið, sem
tókst mjög vel.
Verslunarstjóri Japis Akureyri
er Árni Þorvaldsson og sagði
hann í samtali við Dag að versl-
uninni hefði verið tekið mjög vel.
„Það hefur verið hér stöðugur
straumur fólks og mikil verslun.
f*á erum við mjög vel staðsettir
hér við Skipagötuna og tel ég
jafnvel að við séum á besta stað í
bænum. Það er nefnilega hægt að
aka framhjá versluninni og tel ég
það mjög mikilvægt atriði.“
Japis Akureyri er í 150 fer-
metra húsnæði að Skipagötu 1,
þar af er verslunin sjálf um 90
fermetrar. Á boðstólum eru aðal-
lega hljómflutningstæki, sjón-
vörp og myndbandstæki auk
heimilistækja. Þeir eru umboðs-
aðilar fyrir Sony, Tecnics, Pana-
sonic og Samsung.
Aðspurður sagði Árni þá
verða með viðgerðarþjónustuna
sem til staðar er í Reykjavík. Þá
verða þeir aðilar sem fyrir seldu
vörur á Akureyri fyrir Japis,
áfram með sín umboð, nýja
verslunin væri hrein viðbót á
þjónustuna. „Það eru mjög góð
greiðslukjör á viðskiptum hjá
okkur og ætlum við að veita eins
góða þjónustu hér og völ er á,“
sagði Árni að lokum. VG
Dalvík:
Sveins-mótið í skák 1988
Bæjarfélög, verktakar, vinnuskólar
Minnkið fjámiagnskostnaðinn
Bjóðum til leigu í styttri eða lengri tíma, sterka
og góða Land Rover jeppa, 7 og 10 manna, sendi-
bíla og 9 sæta (mini bus). Einnig aftaníkerrur af
mörgum stærðum.
Upplýsingar hjá næsta umboðsmanni.
ÍR Bílaleiga Akureyrar
Tryggvabraut 12 • Símar: 21715 og 23515.
HOTEL KEA
Föstudagur 20. maí
Dansleikur
Hin frábæra stuðhljómsveit
Geirmundar Valtýssonar
leikur fyrir dansi til kl. 03.00
Hið árlega Sveins-mót í skák til
minningar um Svein Jóhannsson,
fyrrverandi sparisjóðsstjóra,
verður haldið í Víkurröst á Dal-
vík dagana 28. og 29. maí nk.
Tefldar verða í opnum flokki,
9 umferðir eftir Monradkerfi.
Umhugsunartími er 30 mínútur á
keppanda til að ljúka skákinni.
Fyrsta umferð hefst kl. 13.30
laugardaginn 28. maí.
Heildarupphæð verðlauna er
kr. 45.000 sem skiptist þannig:
1. verðlaun kr. 10.000
2. verðlaun kr. 8.000
3. verðlaun kr. 7.000
4. verðlaun kr. 6.000
5. verðlaun kr. 5.000
6. verðlaun kr. 4.000
7. verðlaun kr. 3.000
8. verðlaun kr. 2.000
Þeir unglingar (fæddir 1972
eða síðar) sem bestum árangri
ná á mótinu hljóta bókaverðlaun.
Keppendum er boðin ókeypis
gisting í heimavist Dalvíkur-
skóla. Þátttöku ber að tilkynna
sem fyrst til Ingimars Jónssonar í
síma 61370.
Á mótinu fer fram sérstakt
hraðskákmót laugardaginn 28.
maí og hefst það kl. 21.00. Tefld-
ar verða 9 umferðir eftir Monrad-
kerfi.
Heildarupphæð verðlauna er
kr. 5.000 sem skiptist þannig:
1. verðlaun kr. 2.000
2. verðlaun kr. 1.500
3. verðlaun kr. 1.000
4. verðlaun kr. 500
★ ★
ATH! Enginn dansleikur
laugardagskvöld
Símar 24119 og 24170,
Mazda 323 GLX 1500 sedan, sjálfsk.,
árg. '88.Ek. 6 þús. Verð 600.000,-
Subaru Statinn Turbo, sjálfsk. m/öllu,
árg. ’87. Ek. 50 þús. Verð 1.050.000,-
Mercury Topas LS, sjálfsk. m/rafm.,
árg. ’87. Ek. 2 þús. Verft 800.000,-
MMC Galant GL1600,5 glra m/vökvast.,
árg. ’87. Ek. 4 þús. Verð 670.000,-
Audi 100 CC, 5 gíra, árg. ’86. Ek. 120
þús. Verft 850.000,-
BMW 520i, sjálfskiptur,
árg. ’86. Ek. 13 þús.
Verð 950.000.
Range Rover, sjálfsk., 2ja dyra, árg.
'85. Ek. 15 þús. Verft 1.280.000,-
Erum með kaupendur aft Subaru stat-
ion 4X4 árg. ’85 fyrir mjög góðar
greiislur og Subaru Justy J-10 eia
J-12 árg. ’88 fyrir staigreiðslu.
Einnig vantar allar tegundir nýlegra
bíla á skrá og sýningarsvæði.
Athugið: Greiðslukjör
við allra hæfi
|fiÍSAUH|l
SímatTAi_