Dagur - 21.06.1988, Blaðsíða 3
21. júní 1988 - DAGUR - 3
íbúar við Brúnagcrði hafa farið þess á leit við bæjaryfirvöld að gatnagerðarfrainkvæmdum verði frcstað um eitt
til tvö ár.
Húsavík:
Vilja ekki malbik í sumar!
Bæjarráð Húsavíkur hefur samþykkt að
fresta gatnagerðarframkvæmdum sem fyrir-
hugaðar voru við Brúnagerði og er það gert
vegna beiðni íbúðareigenda við götuna.
Við Brúnagerði eru 13 hús og til stóð aö leggja
bundið slitlag á götuna í sumar. Áætlaður kostn-
aður vegna framkvæmdanna hefði orðið um 200
þúsund krónttr fyrir hvern húsciganda. Átta
íbúðareigendur við götuna fóru þess á leit við
bæjaryfirvöld að framkvæmdunum yrði frestað
um eitt til tvö ár. vegna erfiðra fjárhagsástæðna
flestra þeirra og þar sem um meirihluta fasteigna-
eigenda var að ræöa samþykkti bæjarráð erindið.
IM
Afnám forkaupsréttar hluthafa í Slippstöðinni:
Úrslitin ráðast í dag
á fundi bæjarstjómar
Bæjarstjórn Akureyrar mun í
dag fjalla um tillögu fjármála-
ráðherra varðandi breytingu á
samþykktum Slippstöðvarinn-
ar hf. þess efnis að niður falli
ákvæði um að hluthafar eigi
forkaupsrétt að hlutabréfum
sem til sölu eru.
Bæjarráð Akureyrar ræddi
fundarboð frá stjórn Slippstöðv-
arinnar á fundi sínum 14. júní, en
fyrirhugað er að halda hluthafa-
fund í Slippstöðinni hf. 29. júní.
Þá var tekin fyrir tillaga sem fram
kom á bæjarstjórnarfundi 7. júní
um að bæjarstjórn mótaði
afstöðu til ofangreindrar tillögu
fjármálaráðherra, en bæjarstjóri
fer með atkvæði Akureyrarbæjar
á hluthafafundinum.
Meirihluti bæjarráðs, þ.e. þau
Freyr Ófeigsson, Bergljót Rafnar
og Sigurður J. Sigurðsson, leggur
til að bæjarstjóra Akureyrar
veröi falið að styðja lillöguna um
afnám forkaupsréttarins. Minni-
hluti bæjarráð, þau Sigurður
Jóhannesson og Sigríður Stefáns-
dóttir, leggja til að bæjarstjóri
greiði atkvæði gegn tillögunni.
Sigurður J. Sigurðsson tók sæti
Gunnars Ragnars á meðan
bæjarráð fjallaði um málið þar
Aukaefni í matvælum:
Skaðlaus í
réttum skömmtum
- segir Valdimar Brynjólfsson
heilbrigðisfulltrúi
Ný reglugerð um merkingu
neytendaumbúða fyrir matvæli
og aðrar neysluvörur hefur
verið lögð fram og mun hún
ganga í gildi 1. júlí 1988. Á
sama tíma tekur gildi ný reglu-
gerð um aukaefni í matvælum
og öðrum neysluvörum, en
framleiðendur og inntlytjend-
ur fá 6 mánaða frest til að laga
sig að breyttum regluin.
Ekki er hægt að greina frá því í
stuttu máli hvaða breytingar hér
er um aö ræða því þær eru mjög
víðtækar, m.a. er lagður fram nýr
aukaefnalisti. Nokkrar umræður
hafa verið unt áhrif aukaefna en
að sögn Valdimars Brynjólfsson-
ar heilbrigðisfulltrúa eru leyfileg
aukaefni algjörlega skaðlaus í
réttum skömmtum.
Valdimar upplýsti að einhvern
veginn hefði franskur aukaet'na-
listi komist í umferð hér á landi
en hann bað fólk um að taka ekki
mark á honum, enda ætti hann
sem Gunnar er framkvæmda-
stjóri Slippstöðvarinnar hf.
Ríkissjóður á 54% hlutafjár í
Slippstööinni en Akureyrarbær
um 36%. Fulltrúi Akureyrarbæj-
ar á hluthafafundinum, Sigfús
Jónsson bæjarstjóri, verður því
að samþykkja tillögu fjármála-
ráðherra til að hún nái fram að
gatiga. Mjög skiptar skoðanir eru
í bæjarstjórn milli meiri- og
minnihluta vegna þessa ntáls en
úrslit þess ráðast á fundi bæjar-
stjórnar í dag, eins og fyrr sagði.
EHB
Vinningstölur 18. júní 1988.
Heildarvinningsupphæð kr. 4.216.943.-
1. vinningur kr. 2.109.276.-
Skiptist á milli 2ja vinningshafa kr. 1.054.838.-
2. vinningur kr. 632.367.-
Skiptist á milli 211 vinningshafa kr. 2.997,-
3. vinningur kr. 1.474.900.-
Skiptist á milli 6.020 vinningshafa sem fá 245 kr. hver.
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111
ekki við um ísland. Á nýja listan-
um er aukaefnum fækkað nokk-
uð, t.a.m. eru ýmis litarefni tekin
út.
Hann sagði jafnframt að því
miður væri ákveðinn hópur fólks
á þcirri skoðun að aukaefni væru
öll af hinu illa og að þau söfnuð-
ust bara fyrir í líkamanum. Þetta
væri ekki rétt því t.d. væru sunt
rotvarnarefni eðlilegur þáttur í
líkamsstarfseminni.
„Það er síðan hlutverk okkar
eftirlitsaðilanna að fylgjast með
því að framleiðendur noti aðeins
leyfileg aukaefni og í réttu
magni, en því miður vantar okk-
ur rannsóknaraðstöðu. í lögum
um hollustuhætti og heilbrigðis-
eftirlit sem samþykkt voru á
Alþingi er kveöið á urn að það
verði komið upp slíkri rannsókn-
araðstöðu en fjárveitingavaldið
verður þá að leggja fram fé til
hennar svo við getum framfylgt
lögunum," sagði Valdimar. SS
Þessar vinsælu, vönduðu, ódým
finnsku hillusamstæður em komnar aftur
Verð aðeins í\jSI t1
Ur GR 7/FI ctnr HÚSGAGNAVERSLUN
Af ■ UOm / UUa " ölyla TRYGGVABRAUT 24 PÓSTHÓLF 266 602 AKUREYRI SlMI (96)21410