Dagur - 26.07.1988, Page 9
8 - DAGUR - 26. júlí 1988
26. júlí 1988-DAGUR-9
Knattspyrna
4. deild:
Stórsigur
Æskuimar
áEfflngu
Æskan sigraði Eflingu þegar liðin mætt-
ust í 9. umferð D-riðils 4. deildar íslands-
mótsins í knattspyrnu um helgina. Loka-
tölurnar urðu 5:1 eftir að staðan í leikhléi
hafði verið 2:1.
Hálfleikstölurnar gefa ekki rétta mynd af
gangi leiksins því Efling var mun sterkari
aðilinn í fyrri hálfleiknum. Peir voru meira
með boltann en áttu erfitt með að skapa sér
færi og það var Æskan sem náði forystunni
gegn gangi leiksins á 20. mínútu með marki
Bjarna Áskelssonar. Elvar Grétarsson jafn-
aði fyrir Eflingu úr vítaspyrnu 10 mínútum
síðar og Bjarni náði aftur forystunni fyrir
Æskuna skömmu fyrir leikhlé.
{ síðari hálfleik áttu leikmenn Eflingar sér
ekki viðreisnar von og Æskan náði að bæta
við þremur mörkum. Þar voru á ferðinni þeir
Bjarni Áskelsson með sitt þriðja mark,
Baldvin Hallgrímsson og Arnar Kristinsson.
JHB
Jafnt hjá
UMSE-b
UMSE-b og Vaskur skíldu jöfn þegar lið-
in mættust á Laugalandsvelli á laugardag.
Leikurinn fór fram í töluverðum vindí og
urðu lokatölumar 1:1.
UMSE-b lék undan vindi í fyrri hálfleikn-
um og átti þá öllu meira í leiknum þrátt fyrir
að leikmenn Vasks fengju ágæt tækifæri.
UMSE-b skoraði eina mark hálfleiksins og
þar var að verki Þröstur Guðmundsson.
I síðari hálfleiknum snérist dæmið við.
Vaskur lék undan vindinum og átti meira í
leiknum, Gunnar Berg náði að jafna leikinn
og úrslitin því sanngjarnt jafntefli þegar á
heildina er litið. JHB
Þrjú mörk
/ /X •
í siðan
hálfleik
- tryggðu HSÞ-b
sigur á Neista
HSÞ-b sigraði Neista með þremur mörk-
um gegn einu þegar liðin mættust á
Krossmúlavelli á laugardag. Staðan í leik-
hléi var 1:0 fyrir Neista.
Neisti náði forystunni fljótlega í leiknum
með marki Jóns Halls Ingólfssonar. Síðan
var nokkurt jafnræði með liðunum og fleiri
urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik.
HSÞ-b náði að jafna fljótlega í síðari hálf-
leik með marki Einars Jónssonar. HSÞ-b var
sterkari aðilinn meiri hlutann af síðari hálf-
leik en Neistamenn náðu þó ágætum sprett-
um og fengu sín færi. Þeir náðu þó ekki að
skora en HSÞ-b bætti við tveimur mörkum
fyrir leikslok. Það voru þeir Halldór Áma-
son og Jóhann Pálsson sem skoruðu þau
mörk. JHB
SL-deildin:
Fram sigraði Þór 1:0 á Laugar-
dalsvellinum á sunnudaginn.
Mark Framara gerði Guð-
mundur Steinsson með gullfal-
legu skoti í fyrri hálfleik. Þrátt
fyrir að Þórsarar léku einum
fleiri næstum allan síðari hálf-
leik tókst þeim ekki að koma
boltanum í mark þeirra blá-
klæddu.
Þótt aðeins eitt mark hefði ver-
ið skorað í þessum leik var þetta
hin besta skemmtun fyrir áhorf-
endur, enda allar aðstæður til
knattspyrnuiðkunar hinar bestu.
Leikurinn byrjaði frekar rólega
og virtust bæði liðin vera að
þreifa fyrir sér. Fyrsta færið fékk
Þórsarinn Kristján Kristjánsson,
en hann missti boltann of langt
frá sér og Birkir markvörður hirti
tuðruna af honum.
Framarar skoruðu mark sitt á
23. mín. og var það stórglæsilegt.
Steinn Guðjónsson gaf þá háa
sendingu inn að vítateig Þórsara,
þar framlengdi Arnljótur
Davíðsson boltann með góðum
skalla og Guðmundur Steinsson
þrumaði honum síðan viðstöðu-
laust í markið, algjörlega óverj-
andi fyrir Baldvin markvörð
norðanmanna.
Þórsarar gáfust ekki upp og
skömmu síðar voru þeir ekki
langt frá því að jafna leikinn.
Kristján Kristjánsson renndi sér
þá upp kantinn og gaf góða send-
ingu á fjærhornið. Þar kom Hall-
dór Áskelsson og fallegur skalli
hans straukst yfir Frammarkið.
Skömmu eftir leikhlé voru
Þórsarar heppnir að fá ekki ann-
að mark á sig. Pétur Ormslev átti
háa sendingu fyrir markið og þar
kom Guðmundur Steinsson og
skallaði að marki. Nói Bjömsson
var þá rétt staðsettur og bjargaði
á marklínu og var þetta ekki í
seinasta skipti sem hann bjargaði
liði sínu í leiknum.
Skömmu síðar fékk Ómar
Torfason sitt annað gula spjald
fyrir þann klaufalega verknað að
sparka boltanum í burt eftir að
dómarinn hafði flautað. Þetta
þýddi að Ómar varð að fara af
leikvelli og missir því af næsta
leik liðsins gegn sínum gömlu
félögum í Víkingi.
Áhorfendur töldu nú víst að
þetta myndi hleypa fersku blóði í
þá rauðklæddu því sóknarleikur-
inn var farinn að daprast til
muna. En það reyndist eitthvað
annað - Framararnir tvíefldust
og voru mun nær því að bæta við
öðru marki en Þórsarar að skora.
Einkum var það „gamli“ Þórsar-
inn Arnljótur Davíðsson sem var
sínum gömlu félögum erfiður.
Með hraða sínum og leikni setti
hann vörnina oft í mikinn bobba.
Eftir eina slíka rispu var hanr
felldur rétt fyrir utan vítateiginn
og aukaspyrna Péturs Ormslevs
fór rétt yfir. Skömmu síðar átti
Viðar Þorkelsson fastan skalla en
rétt yfir markið.
Undir lok leiksins þyngdist
sókn Þórsara og tvisvar varð
Birkir að taka á stóra sínum.
Annað skiptið eftir skot Kristjáns
Kristjánssonar og í hitt skiptið
sýndi hann markvörslu á heims-
mælikvarða er hann varði þrumu-
skot Nóa Björnsson. En besta
færið átti þó Arnljótur Davíðs-
son hinumegin eftir að allir leík-
menn Þórs voru farnir í sóknina.
Þá fékk Pétur Ormslev boltann á
miðju vallarins og renndi honum
síðan á Arnljót. Hann var hins
vegar of seinn og Nói komst fyrir
skot hans.
Bestur Þórsara í þessum leik
var Nói Bjömsson og kom hann í
veg fyrir stærri sigur Framara.
Sóknarleikur Þórsara var fálm-
kenndur í þessum leik og verða
þeir að bæta um betur ef þeir ætla
sér í toppsæti í deildinni. Hjá
Fram var Viðar Þorkelsson best-
ur í vörninni og í sókninni var
Arnljótur Davíðsson ætíð ógn-
andi.
Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson, Birgir
Skúlason, Siguróli Kristjánsson, Nói Björnsson,
Kristján Kristjánsson, Einar Arason (Axel
Vatnsdal 75. mín.), Halldór Áskelsson, Júlíus
Tryggvason, Jónas Róbertsson, Valdimar
Pálsson, Guðmundur Valur Sigurðsson.
Lið Fram: Birkir Kristinsson, Jón Sveinsson
(Kristján Jónsson 35. mín.), Pétur Ormslev,
Viðar Þorkelsson, Kristinn Jónsson, Pétur Am-
þórsson, Guðmundur Steinsson (Helgi Bjarna-
son 75. mín.), Steinn Guðjónsson, Arnljótur
Davíðsson, Ormarr örlygsson, Ómar Torfason.
Dómari: Eyjólfur Ólafsson og átti hann ágæt-
an leik. AP
Valdimar Pálsson sést hér í einvígi við Pétur Arnþórsson. Pétur hafði betur
að þessu sinni og það höfðu Framarar líka í leiknum.
Ekkert bítur á Fram
SL-deildin:
Enn eitt tap Völsungs
- óheppnin elti liðið á röndum er það tapaði 2:1 á Akranesi
Heppnin var ekki með Völs-
ungum þegar þeir léku gegn
ÍA á Akranesi á sunnudags-
kvöldið. Eftir að hafa náð að
jafna Ieikinn í síðari hálfleik
tóku Húsvíkingarnir leikinn
nánast alveg í sínar hendur og
fengu ágæt tækifæri til gera út
um leikinn en færin nýttust
ekki. Þess í stað náðu Skaga-
menn að skora annað mark og
Húsvíkingarnir máttu enn einu
sinni horfa á eftir þremur stig-
um út í buskann.
Jafnræði var með liðunum
fyrstu mínúturnar á meðan þau
þreifuðu fyrir sér. Minnstu mun-
aði að Völsungar næðu foryst-
unni eftir u.þ.b. stundarfjórðung
er Guðmundur Guðmundsson
átti gott skot að marki ÍA en
boltinn fór í stöngina og rann
þaðan fyrir markið án þess að
nokkur Völsungur næði að reka í
hann tána.
Eftir þetta hresstust Skaga-
menn nokkuð og náðu nú undir-
tökunum. Þeir náðu svo foryst-
unni um miðjan hálfleikinn. Tek-
in var stutt hornspyrna og Karl
Þórðarson skaut föstu skoti úr
utanverðum vítateig, Þorfinnur
hálfvarði boltann en missti hann
aftur fyrir sig, á milli fóta Unnars
og í netið.
Skagamenn sóttu áfram mun
meira og skömmu eftir markið
áttu þeir hörkuskot í stöng
Völsungsmarksins utan af velli.
Skömmu fyrir leikhlé fengu
Völsungar þó dauðafæri þegar
Grétar Jónasson skaut frá mark-
teig og yfir opið markið eftir
langt innkast. Staðan í leikhléi
var 1:0.
Jónas Hallgrímsson og félagar voru
óheppnir á Akranesi.
Völsungar náðu fljótlega upp
pressu í síðari hálfleik og hún bar
árangur um miðjan hálfleik þegar
Jónas Hallgrímsson skoraði af
stuttu færi eftir sendingu frá
Helga Helgasyni.
Eftir markið tóku Völsungar
nánast öll völd í sínar hendur og
héldu þeim nær alveg til loka.
Stefán Viðarsson fékk tvívegis
gullin marktækifæri en Ólafur
Gottskálksson varði mjög vel í
bæði skiptin. Völsungar sóttu
áfram stíft en þegar tvær mínútur
voru til leiksloka komust Skaga-
menn í eina sókn og skoruðu.
Það var varnarmaðurinn Sigurð-
ur B. Jónsson sem brá sér í sókn-
ina, fékk boltann við fjærstöng
og skoraði af öryggi. Úrslitin 2:1,
sárgrætilegt fyrir Völsunga sem
höfðu alla möguleika á sigri í
þessum leik.
„Við áttum að gera út um
þetta. Við höfðum leikinn alger-
lega í okkar höndum eftir að við
skoruðum en það nægði því mið-
ur ekki,“ sagði Helgi Helgason,
leikmaður Völsungs eftir leikinn.
Völsungsliðið barðist vel í
þessum leik og hefði átt skilið
a.m.k. eitt stig. Liðið verður þó
að nýta færin til þess að fá stig en
það hefur gengið illa til þessa.
Erfitt er að taka nokkurn út úr
sem besta mann.
Skagaliðið var heppið að hirða
öll stigin en það nýtti færin betur
en Húsvíkingarnir. Ólafur Gott-
skálksson og Guðbjörn Tryggva-
son voru bestu menn liðsins í
þessum leik. JHB
1. deild
Úrslit í 4 fyrstu leikjum 11.
umferðar:
ÍA - Völsungur 2:1
KA - Víkingur 2:1
Fram - Þór 1:0
Valur - Leiftur 1:0
Fram U 10-1-0 23: 2 31
ÍA 11 6-3-2 18:12 21
Valur 11 6-2-316:10 20
KR 10 5-1-4 13:12 16
KA 11 5-1-5 17:20 16
Þór 11 3-5-3 13:13 14
ÍBK 10 2-4-4 13:17 10
Víkingur 11 2-3-6 9:17 9
Leiftur 11 1-4-6 7:14 7
Völsungur 11 1-2-8 6:18 5
Markahæstir:
Guðmundur Steinsson Fram 10
Pétur Ormslev Fram 6
Gunnar Jónsson í A 4
Haildór Áskelsson Þór 4
Trausti Ómarsson Víkingi 4
fþróttir
Axel Stefánsson, Sigurður Sigurðsson og Sigurpáll Árni Aðalsteinsson.
Mynd: ET
Blóðtaka hjá Þórsurum:
Axel og Sigurpáll í KA
- fimm fastamenn farnir frá liðinu
Handknattleiksmennirnir Sigur-
páll Árni Aðalsteinsson og
Axel Stefánsson úr Þór hafa
gengið frá félagaskiptum yfir í
KA. Frá þessu var gengið á
laugardaginn.
Þeir Sigurpáll og Axel voru
bestu menn Þórsliðsins síðasta
vetur. Báðir eiga þeir að baki
leiki með unglingalandsliði
íslands og því er ljóst að hér er
um gífurlega blóðtöku að ræða
fyrir Þórsliðið.
Fimm fastamenn úr Þórsliðinu
hafa nú farið frá félaginu frá þvf í
fyrra. Sigurður Pálsson er geng-
inn til liðs við Hauka, Jóhann
Samúelsson er farinn til Víkings
og á undan þeim Axel og Sigur-
páli hafði Ólafur Hilmarsson
gengið í raðir KA-manna.
Það er því Ijóst að framundan
er þungur róður hjá handknatt-
leiksliði Þórs. Liðið féll sem
kunnugt er í aðra deild síðastlið-
inn vetur með aðeins eitt stig.
Birgir Björnsson hefur verið ráð-
inn þjálfari fyrir næsta vetur og
verður fróðlegt að sjá hvað hann
nær að gera með þann mannskap
sem eftir er. ET
Nú héldu Dalvíkingar haus
Dalvíkingar fóru vel af stað á
nýjum og glæsilegum grasvelli
sínum þegar þeir mættu
Magna frá Grenivík á föstu-
dagskvöldið. Dalvíkingamir
sigraðu með tveimur mörkum
gegn einu eftir að staðan í leik-
hléi hafði verið 1:0 fyrir
Dalvík.
Magnamenn áttu öllu meira í
leiknum framan af en það voru
þó Dalvíkingar sem náðu foryst-
unni á 15. mínútu. Örvar Eiríks-
son átti þá gott skot að marki
Magna, markvörðurinn varði en
hélt ekki boltanum og Ingólfur
Kristjánsson fylgdi vel á eftir og
skoraði.
Magnamenn sóttu öllu meira
næstu mínúturnar eftir markið en
Dalvíkingar komu síðan meira
inn í leikinn og áttu sinn besta
kafla síðasta hlutann af fyrri hálf-
leik.
Magnamenn hófu síðari hálf-
leikinn af krafti og áttu fljótlega
skalla rétt framhjá Dalvíkur-
markinu. Þeir voru síðan mun
meira með boltann og áttu mikið
af skotum en gekk illa að skapa
- sigruðu Magna 2:1
sér opin færi fyrr en 12 mínútur
voru til leiksloka. Reimar Helga-
son fékk þá góða sendingu inn í
vítateig Dalvíkinga og skoraði af
öryggi með föstu skoti. Staðan
2. deild:
Þór
burstaði
Selfoss
Þórsstúlkuraar áttu ekki í
vandræðum með Selfoss þegar
liðin mættust í 2. deild kvenna
á laugardag. Leikurinn fór
fram á Þórsvellinum á Akur-
eyri og lauk honum með stór-
sigri Þórs, 7:0 Staðan í leikhléi
var 2:0.
Kolbrún Jónsdóttir, Ingigerður
Júlíusdóttir og Anna Hermína
Gunnarsdóttir skoruðu allar tvö
mörk fyrir Þór og Steinunn Jóns-
dóttir skoraði eitt mark. JHB
orðinn 1:1.
Dalvíkingar náðu forystunni
aðeins tveimur mínútum síðar.
Einn varnarmaður Magna braut
þá mjög klaufalega af sér rétt
utan vítateigs og dæmd var auka-
spyrna auk þess sem hann fékk
að sjá gula spjaldið. Sendur var
góður bolti inn í teig þar sem
Albert Ágústsson skutlaði sér
fram og skallaði glæsilega í netið.
Magnamenn sóttu síðan það
sem eftir var en Dalvíkingar
vörðust vel og stóðu uppi sem
sigurvegarar. Þegar skammt var
til leiksloka fékk Albert Ágústs-
son mikið högg í andlitið og varð
að yfirgefa leikvöllinn. í gær var
ekki orðið ljóst hver meiðsli hans
voru en óttast var að hann væri
nefbrotinn.
Markvörður Dalvíkinga,
Sigurvin Jónsson, átti góðan leik
og var valinn maður leiksins af
áhorfendum. Magnaliðið átti
ágætan leik og var óheppið að fá
ekki stig úr þessari viðureign. Jón
Illugason átti góðan leik fyrir
Magna og þá var Hringur Hreins-
son hættulegur frammi. JHB
i
Knattspyrna 3. deild:
Reynir sigraði Þrótt
Reynir sigraði Þrótt frá Nes-
kaupstað þegar liðin mættust í
9. umferð B-riðils 3. deildar
íslandsmótsins í knattspyrnu.
Eins og kunnugt er átti þessi
leikur að vera heimaleikur
Reynis en var dæmdur af þeim
og færður á Laugavöll. Honum
lauk með sigri Reynis, 1:0.
Staðan í leikhléi var 0:0.
Reynismenn mættu ákveðnir
til leiks og náðu strax undir-
tökunum í leiknum. Þeir fengu
nokkur ágætis tækifæri sem ekki
tókst að nýta. Besta færið fengu
þeir um miðjan hálfleikinn þegar
dæmd var vítaspyrna á Þrótt en
markvörður Þróttar varði slaka
spymu Valþórs Brynjarssonar.
Reynismenn vom mun ákveðn-
ari framan af síðari hálfleik en
tókst ekki að skapa sér nein
afgerandi færi og Þróttarar komu
smám saman meira inn í leikinn.
Þeir vora betri aðilinn um miðbik
síðari hálfleiks en Reynismenn
náðu aftur undirtökunum undir
lokin og pressuðu þá stíft.
Það bar árangur þegar tvær
mínútur voru til leiksloka. Grét-
ar Karlsson fékk þá sendingu inn
í vítateig Þróttar, snéri af sér
einn varnarmann og skaut á
markið. Markvörður Þróttar hálf-
varði skotið en það dugði ekki til,
boltinn fór inn fyrir línuna og
Reynismenn fögnuðu sigri.
Sigur Reynismanna var sann-
gjarn enda var liðið betri aðilinn
lengst af. Flestir leikmanna liðs-
ins áttu ágætan dag en Þróttarar
hafa oft leikið betur. Dómari var
Magnús Jónatansson og var hann
mjög góður. JHB
Knattspyrna 2. deild:
Sanngjam sigur
Tindastóls á KS
- 2:0 sigur hefði getað orðið stærri
Erkifjendurnir Tindastóll og
KS áttust við á Sauðárkróks-
velli sl. föstudagskvöld í 2.
deildinni í knattspyrnu. Fjöl-
margir áhorfendur í kalsaveðri
sáu Tindastól vinna Siglfírð-
inga með tveim mörkum gegn
engu. Sigur Tindastóls má telj-
ast fyllilega sanngjarn miðað
við gang leiksins, og hefði
hæglega getað orðið stærri. í
hálfleik var staðan 1:0.
Leikurinn byrjaði rólega og
jafnræði var með liðunum.
Tindastóll átti þó fyrstu mark-
tækifærin þegar Ólafur Adolfs-
son átti skot rétt framhjá marki
KS á 6. mínútu, og stuttu seinna
átti hann skalla rétt yfir markið.
Næstu 20 mínútur voru tíðinda-
litlar, en hart var barist. Á 26.
mínútu komst Eyjólfur Sverris-
son í gegnum vörn KS og átti
skot í stöng, sem barst út í hend-
ur Magnúsar Jónssonar mark-
manns KS. Sex mínútum síðar
skoruðu Siglfirðingar mark, sem
var dæmt af vegna þess að dóm-
arinn var búinn að dæma auka-
spyrnu.
Á 39. mínútu kom fyrra mark
Tindastóls. Eysteinn Kristinsson
óð upp hægri kantinn frá eigin
vallarhelmingi upp að endamörk-
um, gaf fyrir markið og þar kom
Guðbrandur Guðbrandsson
aðvífandi og sendi knöttinn í
marknet KS-inga. Guðbrandur
var aftur á ferðinni rétt fyrir
leikhlé þegar hann vippaði bolt-
anum yfir markvörð KS, en hann
fór rétt framhjá.
Seinni hálfleikur byrjaði með
látum og vora Siglfirðingar
ákveðnari fyrstu mínúturnar. Á
54. mínútu átti Róbert Haralds-
son gott skot sem fór rétt yfir
markslá Tindastóls. En eftir
þetta má segja að Tindastóli hafi
tekið leikinn f sínar hendur.
Hvert dauðafærið rak á eftir öðra
og var Guðbrandur sérlega
óheppinn að skora ekki mörk.
Einnig átti Eyjólfur gott færi þeg-
ar hann skallaði rétt yfir. Fimm
mínútum fyrir leikslok kom
seinna mark Tindastóls. Ólafur
Adolfsson skallaði knöttinn firna
fast í netið hjá Magnúsi mark-
verði KS, eftir fyrirgjöf frá Árna
Ólasyni úr aukaspyrnu. Staðan
orðin 2:0 og hélst þannig til leiks-
loka. Fyllilega sanngjörn úrslit.
Bestu menn Tindastóls í þess-
um leik voru Guðbrandur, Ólaf-
ur, Eysteinn og Guðbjartur
Haraldsson, en lið Tindastóls var
í heild gott. Siglfirðingar áttu
ekki góðan leik að þessu sinni.
Þeir léku án Paul Friar, sem var í
leikbanni, en landi hans Steve
Rutter var bestur KS-inga í þess-
um leik, auk þess sem Róbert
Haraldsson var góður.
Dómari leiksins var Guðmund-
ur Sigurðsson og átti hann ágæt-
an leik. -bjb
Knattspyrna 3. deild:
Jafntefli hiá
Hvöt og Hugin
Hvöt og Huginn skildu jöfn
þegar liðin mættust á Blöndu-
ósi á laugardag. Lokatölurnar
urðu 0:0 í frekar döprum leik.
Leikurinn var kaflaskiptur og
2. deild kvenna:
KSburst-
aöiFH
KS vann stórsigur á FH þegar
liðin mættust I 2. deild kvenna
um síðustu helgi. Leikurinn fór
fram í Hafnarfirði og þegar
upp var staðið höfðu KS-stúlk-
urnar skorað átta mörk en FH-
stúlkurnar ekkert. Daginn eftir
lék KS við UBK og lauk þeim
leik með jafntefli, 2:2.
Eins og tölurnar gefa til kynna
voru yfirburðir KS miklir í leikn-
um gegn FH. Linda Gylfadóttir
skoraði fjögur mörk fyrir KS í
leiknum, Ásta Katrín Helgadótt-
ir tvö og Sigurbjörg Elíasdóttir
og Margrét Sigurðardóttir eitt
hvor.
Leikurinn gegn UBK var mjög
spennandi og mikil barátta var í
honum. Það var Ásta Katrín
Helgadóttir sem skoraði bæði
mörk KS í þeim leik. JHB
Iiðin skiptust á að hafa undirtök-
in. Hvatarmenn byrjuðu betur og
áttu nokkur góð færi sem ekki
tókst að nýta. Eftir um 20 mínút-
ur snérist leikurinn við og Hug-
inn náði undirtökunum en tókst
ekki betur að nýta færin sín.
Hvatarmenn voru sprækari
fyrstu 10 mínútumar af síðari
hálfleik en leikmenn Hugins
komu síðan meira inn í leikinn og
voru betri aðilinn það sem eftir
var.
Eins og fyrr segir var leikur
þessi í daufara lagi. Bæði liðin
fengu þó talsvert af færum en þau
fóru öll forgörðum og úrslitin því
0:0.________________JHB
Mjólkurbikarinn:
Leiftm*
mætir ÍBK
Á Iaugardag var dregið um það
hvaða lið mætast í undanúrslit-
um Mjólkurbikarkeppninnar.
Segja má að lið Leifturs frá
Ólafsfírði hafí dottið í lukku-
pottinn því það fær heimaleik
gegn ÍBK.
I hinum leiknum mætast Vík-
ingur og Valur í Fossvoginum.
Leikirnir fara fram miðvikudag-
inn 10. ágúst.