Dagur - 05.08.1988, Blaðsíða 3
5. ágúst 1988 - DAGUR - 3
----------------------\
Myndlistarsýnine
í Ólafsfirði
- Þorvaldur Porsteinsson sýnir
vatnslitamyndir í Gagnfræðaskólanum
Þorvaldur Þorsteinsson,
myndlistarmaður, opnar sýn-
ingu í Gagnfræðaskólanum í
Álagning á Austurlandi:
Kaupfélag
Austur-
Skaftfellinga
greiðir mest
- um 9500 einstaklingar
greiða 103 milljónir
Kaupfélag Austur-Skaftfell-
inga á Höfn í Hornafirði er
hæsti gjaldandi opinberra
gjalda á Austurlandi og nema
gjöld félagsins tæpum 22 millj-
ónum króna. Alagningarskráin
var lögð fram fyrir helgi og er
heildarálagningin upp á tæpar
336 milljónir króna.
Rúmlega 500 félögum er gert
að greiða um 233 milljónir og 240
þúsund krónur í gjöld á árinu.
Næst á eftir Kaupfélagi Austur-
Skaftfellinga kemur Síldarvinnsl-
an í Neskaupstað sem greiðir
tæpar 19 milljónir króna í skatta
og í þriðja sætinu yfir hæstu
greiðendur á Austurlandi er
Kaupfélag Héraðsbúa á Egils-
stöðum sem greiðir tæplega 15
milljónir króna. Hraðfrystihús
Fáskrúðsfjarðar greiðir rúmlega
13 milljónir og Hraðfrystihús
Eskifjarðar rúmar 11 milljónir
króna.
Um 9500 einstaklingar greiða
tæplega 103 milljónir króna í
gjöld á árinu, en ef ekki hefði
komið til niðurfelling vegna
skattlausa ársins hefðu gjöld ein-
staklinga á Austurlandi hijóðað
upp á rétt rúmlega einn milljarð.
mþþ
Ólafsfirði á sunnudaginn. Á
sýningunni verða allmargar
vatnslitamyndir, allar málaðar
á þessu ári.
Málverkasýningar í Ólafsfirði
eru ekki hversdagslegur viðburð-
ur en ástæða þess að Þorvaldur
heldur sýningu á verkum sínum á
þessum stað er að hann á föður-
ætt sína að rekja til Ólafsfjarðar.
Þorvaldur Þorsteinsson er
fæddur á Akureyri árið 1960.
Hann útskrifaðist úr nýlistadeild
Myndlista- og handíðaskóla
íslands fyrra og hélt sl. haust til
Hollands í framhaldsnám í
myndlist. Hann stundar nú nám í
Jan van Eyck listaakademíunni í
borginni Maastricht.
Þorvaldur sýnir að þessu sinni
eingöngu vatnslitamyndir en
hann hefur áður haldið þrjár
einkasýningar, síðast í Nýlista-
safninu í Reykjavík, auk þess
sem hann hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga. Þorvaldur sýndi
Þorvaldur Þorsteinsson, myndlistar-
maður.
m.a. á sýningunni UM 83, þ.e.
Ungir myndlistarmenn á Kjar-
valsstöðum 1983, og á IBM sýn-
ingunni á Kjarvalsstöðum, sem
haldin var í fyrra. Sýning Þor-
valdar í Ólafsfirði nú er athygl-
isvert frantlag og nota Ólafsfirð-
ingar eflaust tækifærið til að sjá
verk hans.
Sýningin verður opin frá kl.
14.00 til 20.00 á sunnudag, frá
mánudegi til föstudags milli kl.
20.00 og 22.00. Laugardaginn 6.
og sunnudaginn 7. ágúst verður
sýningin opin milli kl. 14.00 og
17.00, en þá lýkur henni. EHB
Þessi vatnslitamynd er meðal verka á sýningunni.
Fiskeldisstöðvar fá lán
r
Sumarnámskeið í fimleikum verður
dagana 8.-17. ágúst í íþróttahúsi
Glerárskóla.
Upplýsingar og innritun er í síma 23021
mánudaginn 8. ágúst og í íþróttahúsi Glerárskola
frá kl. 6-6.30.
Verð kr. 1.200,-
Fimleikaráð.
V____________________________________________/
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfar-
andi:
RARIK 88010 MVA aflspennir.
Opnunardagur: Þriðjudagur 20. september 1988 kl.
14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyriropnun-
artíma og verða þau opnuð á sama stað að við-
stöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
fimmtudegi 4. ágúst 1988 og kosta kr. 300 hvert ein-
tak.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118
105 Reykjavík.
HOTEL KEA
Laugardagurinn 6. ágúst
Kristján Guðmundsson
leikur fyrir matargesti
Dansleikur
- enginn peningur í nýjar stöðvar
Ríkisstjórnin ákvað á fundi
sínum 16. júní sl. að veita á
þessu ári allt að 300 milljóna
króna lántökuheimildir til fisk-
eldisfyrirtækja eða lánastofn-
ana þeirra. Sérstök nefnd var
Hólahátíð
ekld í
sumar
Vegna viðgerða á Hóladóm-
kirkju fellur Hólahátíð niður í
sumar. Að venju er Hólahátíð í
17. sumarviku og ætti því að vera
14. ágúst. Áætlað er að viðgerð
kirkjunnar ljúki í október í
haust, verður þá hátíðarguðs-
þjónusta.
Prestafélag Hólastiftis verður
90 ára á þessu ári. Það er elsta
prestafélag landsins. Ákveðið er
að minnast afmælisins 24. og 25.
september í haust. Félagið var
stofnað á Sauðárkróki og þar
mun afmælisfundur og fagnaður
verða. (Fréttatilkynning).
skipuð til að gera tillögur um
nánari framkvæmd þessa mál.
Þessi nefnd hefur nú skilað áliti
og eru helstu tillögur hennar þær
að lánsheimildum ársins í ár
verði varið til að stækka stöðvar
sem þegar hafa hafið rekstur. Sé
þannig á málum haldið má gera
ráð fyrir, að þekking og reynsla
sem og búnaður sem þegar eru
fyrir hendi í fiskeldisstöðvum
nýtist best. Jafnframt bendir
nefndin á að brýnt sé að stöðvar
nái sem fyrst hagkvæmri stærð til
að samkeppnisstaða þeirra á
alþjóðlegum markaði sé sem
styrkust.
Framkvæmdasjóður og Byggða-
stofnun hafa með sér samkomu-
lag um skiptingu lánveitinga til
fiskeldisfyrirtækja eftir landshlut-
um. Framkvæmdasjóður lánar
fyrst og fremst til stöðva sunnan-
lands og vestan, en á því svæði
eru stærstu fiskeldisstöðvarnar.
Byggðastofnun lánar til stöðva í
öðrum landshlutum, en þar er
fiskeldi yfirleitt smærra í sniðum.
Nefndin leggur til að Fram-
kvæmdasjóður fái 125 milljóna
króna lánsheimild, Byggðastofn-
un 75 milljóna, Fiskveiðisjóður
50 miljóna og Iðnþróunarsjóður
einnig 50 milljóna króna láns-
heimild.
Nefndin leggur megináherslu
á, að ákvarðanir um lánveitingar
til fjárfestinga í fiskeldi séu tekn-
ar á grundvelli arðsemis- og við-
skiptasjónarmiða. í því felst m.a.
að gera verður kröfur um eigin-
fjármögnun framkvæmda a.m.k.
að þriðjungi framkvæmdakostn-
aðar eins og sjóðir hafa krafist að
undanförnu, fullnægjandi veð og
tryggingar fyrir lánum, og að
eldisstöð hafi tryggt sér viðun-
andi rekstrarlánafyrirgreiðslu í
viðskiptabanka.
Á þessu stigi telur nefndin tæp-
ast ráðlegt að njörva lánsheimild-
ir niður um of enda kynnu síðar
að koma fram mál sem væru fýsi-
legri en þau sem nú liggja fyrir.
Nefndin telur ekki í sínum verka-
hring að fjalla um málefni ein-
stakra fiskeldisstöðva, enda á slík
umfjöllun með réttu heima á
vettvangi stjórna fjárfestinga-
lánasjóða og annarra fjármála-
stofnana sem leggja stöðvunum
til stofnfé. AP
Hljómsveitin
Helena fagra
leikur fyrir dansi
Matseðill 6/8 1988
Humarspjót á kryddhrísgrjónum kr. 940
Piparlegið hangikjöt kr. 560
Laxasúpa að hætti veiðimannsins kr. 240
Sherrylöguð villisveppasúpa kr. 380
Smjörsteikt stórlúða m/vínþrúgusósu kr. 920
Heilsteiktur nautahryggvöðvi m/eggjasósu kr. 1740
Sumarlamb m/túnfíflasósu kr. 1490
Döðlufylltur grísavöðvi kr. 1650
Smjördeigskoddi fylltur m/hindberjum kr. 540
Rabarbaramarengs með vanilluís kr. 490
Borðapantanir hjá veitingastjóra í síma 22200
Hótel KEA
Bordapantanir í síma 22200