Dagur - 12.08.1988, Blaðsíða 1

Dagur - 12.08.1988, Blaðsíða 1
71. árgangur Akureyri, föstudagur 12. ágúst 1988 150. tölublað Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMKNR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI SigluQörður: Afinælisvika að heflast Afmælisvika verður haldin á Siglufirði dagana 13.-20. ágúst. Tilefnið er að 20. maí sl. átti Siglufjarðarkaupstaður 70 ára kaupstaðarafmæli og 170 ára verslunarafmæli. Ýmislegt verður um að vera og hefur undirbúningur verið mjög mikill og margir lagt hönd á plóginn. ísak Ólafsson bæjarstjóri á Siglufirði og formaður hátíðar- nefndar sagði að margir góðir gestir væru væntanlegir. Þeirra á meðal eru frú Vigdís Finnboga- dóttir forseti íslands, félagsmála- ráðherra og menntamálaráð- herra. Einnig munu allir þing- menn Norðurlands vestra koma svo og sérstakir gestir bæjar- stjórnar: Fyrrverandi bæjarstjór- ar og forsetar bæjarstjórna auk fulltrúa úr nágrannabyggðar- lögunum. „Við höfum reynt að virkja öll félög og félagasamtök til að taka þátt í undirbúningi og allir sem við höfum þurft að leita til hafa tekið okkur virkilega vel,“ sagði Isak. „Það ættu því allir að verða ánægðir með afmælisvikuna og það er bara óskandi að veðurguð- irnir verði okkur hliðhollir." Sjá dagskrá afmælisvikunnar bls. 5. KR Álafoss: Reiknað með rok- sölu til Japans Markaðssókn Álafoss hf. er ekki bundin við Sovétríkin því ekkert lát virðist á áhuga Jap- ana á íslenskum ullarvörum og miklar vonir eru bundnar við sölu þangað á næsta ári. Talað er um 2Vi millj. dollara í þessu sambandi. í fréttabréfi Álafoss, Á prjón- unum, kemur fram að menn reikna með að sala á vörum fyrir- tækisins til Japans á næsta ári geti numið allt að tveimur og hálfri milljón dollara, ef allt gengur eft- ir sem nú er áformað. / Japanskir forstjórar heimsóttu Álafoss nýverið og var erindið að ganga frá hönnun á fatnaði fyrir næsta ár og í fréttabréfinu kemur fram að það verk hafi gengið ljómandi vel. Á prjónunum hefur það eftir Ármanni Sverrissyni, forstöðu- manni fatadeildar, að Japanir áforma að hefja sölu og kynningu á vörunum strax í desember, sem tveimur mánuðum fyrr er en venjulega. Þetta þýðir jafnari framleiðslu og afgreiðslu fyrir verksmiðjuna á Akureyri. SS Leiftursmenn féllu úr leik í Mjólkurbikarkeppninni í knattspyrnii er þeir töpuðu fyrir ÍBK í Ólafsfirði í gærkvöld. Keflvíkingar skoruðu eina mark leiksins strax á 8. mínútu og þrátt fyrir mikla pressu náðu heimamenn ekki að svara fyrir sig. Keflvíkingar munu mæta Valsmönnum í úrslitaleik en þeir sigruðu Víking 1:0 í gærkvöld. Mynd: tlv Efnahagsástandið: Gengisfelling í kjölfar gjaldeyrisútstreymis? Vaxtalækkun og gengisfelling eru meðal þeirra efnahagsráð- stafana sem búist er við að ríkisstjórnin grípi til um næstu mánaðamót. Landsmenn virð- ast fullvissir um að gengisfell- ing sé á næstu grösum því undanfari hennar, aukið gjald- eyrisútstreymi, er þegar nokk- uð áberandi. í gjaldeyrisdeild Búnaðar- banka Islands á Akureyri fengust þær upplýsingar að gjaldeyris- kaup almennings hefðu aukist verulega upp úr 5. þessa mánað- ar. Fólk hefði komið með far- Veðrið á Norðurlandi: Rysjóttur júlímánuður norðanátt með regni og kulda Júlímánuður var ákaflega rysj- óttur á Akureyri hvað veðurfar snertir og reyndar víðast hvar á Norðurlandi. Norðlægar áttir réðu ríkjum með úrkomu og kulda þannig að veðurfarslega var engu Iíkara en komið væri fram á haust. Meðalhiti á Akureyri í júlí var 9,8 stig, sem er hálfu stigi undir meðallagi. Gríðarleg úrkoma hrelldi Akureyringa í mánuðinum og mældist hún 51 millimetri, sem er hvorki meira né minna en 60% yfir meðallagi, samkvæmt upp- lýsingum frá Veðurstofu íslands. Hins vegar fengust engar upplýs- ingar um sólskinsstundur en geta má nærri að þær hafi verið mun færri en í meðalári. Adda Bára Sigfúsdóttir veður- fræðingur sagði að norðlægar átt- ir hefðu verið æði tíðar og veru- lega hvasst var 25. og 26. júlí. Mikil úrkoma fylgdi í kjölfarið; 10 mm 26.-27. júlí og 7 mm 27.- 28. júlí, eða alls 17 millimetrar og hafa þessir dagar því mikil áhrif á heildarúrkomuna í mánuðinum. Afskaplegur kuldi fylgdi þessu norðanáhlaupi því þann 28. júlf reyndist hámarkshiti dagsins 6,5 stig. Þegar litið er á björtu hlið- arnar þá kemur í ljós að hæst komst hitinn í 21,6 stig þann 16. júlí. „Miðað við árstíma var þetta verulega rysjótt fyrir norðan, víða mjög mikil úrkoma og skriðuföll í kjölfarið,“ sagði Adda Bára að lokum. SS seðla og einnig kvittanir frá ferðaskrifstofum fyrir innborgun á utanlandsferð sem það ætlaði að taka sér á hendur, jafnvel í september eða október. í gjaldeyrisdeild bankans feng- ust einnig þær upplýsingar að nú hefðu verið settar reglur þess efn- is að fólk fengi ekki gjaldeyri nema það framvísaði fullgildum farseðlum og brottför væri innan fjögurra vikna. Strangt er farið eftir þessum reglum sem munu hafa verið settar þann 9. þessa mánaðar. Að sögn starfsmanns gjaldeyr- isdeildarinnar á þessi aukning á gjaldeyriskaupum aðallega við um einstaklinga sem hyggja á utanlandsferð, en minna ber á gjaldeyriskaupum fyrirtækja enn sem komið er. Þegar leitað var upplýsinga í gjaldeyrisdeild Landsbanka Islands á Akureyri kvað við ann- an tón því þar höfðu menn ekki orðið varir við óvenju mikla ásókn í gjaldeyri. Þar töldu menn hins vegar að aukið gjaldeyris- útstreymi væri meira áberandi í Reykjavík, hvað svo sem síðar yrði uppi á teningnum. SS Akureyri: Fékk golfkúlu í höfuðið Hann hefur líklcga ekki farið holu í höggi, golfleikarinn sem var að leika á 18. braut golf- vallarins að Jaðri við Akureyri í fyrradag. Golfkúla hans lenti í höfði pilts sem starfar á golf- vellinum. Pilturinn var að vinna við slátt á vellinum þegar atburður þessi gerðist. Var hann fluttur á sjúkrahús, en meiðsli hans voru lítilsháttar, kúla á höfði. Árni Jónsson framkvæmdastjóri Golf- klúbbs Akureyrar sagði atburð sem þennan vera næsta fátíðan. mþþ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.