Dagur


Dagur - 13.08.1988, Qupperneq 9

Dagur - 13.08.1988, Qupperneq 9
8 - DAGUR - 13. ágúst 1988 13. ágúst 1988 - DAGUR - 9 Við Eyjafjörð vestanverðan stendur Hjalteyri u.þ.b. 20 km norðan við Akureyri. Undir lok síðustu aldar hafði þar risið lítið þorp undir brekkunni fyrir ofan eyrina og varð það lögskipaður verslunarstaður um aldamótin. Skömmu seinna hófu Svíar og Norðmenn útgerð frá Hjalteyri, aðallega síldveiðar. Þorpið tók stakkaskiptum á fáeinum árum, fátækt og umkomuleysi sem þarna hafði ríkt hvarf eins og dögg fyrir sólu. Vegna heims- styrjaldarinnar fyrri lagðist athafnalíf niður í plássinu, en nokkrum árum seinna tók fyrirtæki Thors Jensen, Kveldúlfur hf., Hjalteyri á leigu og hóf útgerð, einkum síldveiðar og söltun. Þessi starfsemi hélst óslitin fram á þriðja tug aldarinnar, en þá skall heimskreppan á og við tók ördeyða og atvinnuleysi á Hjalteyri. Á Hjalteyri reis síðan síldar- bræðsla árið 1937 og þá hófst nýtt tímabil í sögu staðarins. íbúum fjölgaði og margt aðkomufólk leitaði þar atvinnu á sumrum, þegar síldarvertíð stóð sem hæst. Síldarverksmiðjan á Hjalteyri var síðan starfrækt óslitið til árs- ins 1966, er dró úr síldarafla við ísland. Þegar síldarstofninn hrundi lagðist verksmiðjan niður. Fólk fluttist í burtu og dauft hef- ur verið yfir athafnalífi þar síðan. Mannvirki hafa staðið þar lengi auð og í lítilli umhirðu og beðið þess að eitthvað kæmi til sem gæti hleypt nýju blóði í athafnalíf staðarins. Nú eru hins vegar teikn á lofti sem benda til þess að hjólin geti aftur farið að snúast á Hjalteyri og er það með talsvert öðrum hætti en áður, en þó tengt sjávar- útvegi. Nýstárlegar tilraunir fara þar nú fram og það er Fiskeldi Eyjafjarðar hf. sem var stofnað í fyrra sem stendur fyrir tilraunum á lúðueldi. Tilraunirnar lofa góðu og nú er ákveðið að hefja upp- byggingu á hinum gömlu mann- virkjum síldarverksmiðjunnar sem þá fengju nýtt hlutverk, að hýsa þessa merku starfsemi. Ef til vill eru nýir uppgangstímar í vændum á Hjalteyri. Ólafur Halldórsson fiski- fræðingur er verkefnisstjóri Fiskeldis Eyjafjarðar hf. og frumkvöðull að þessum tilraun- um. Ólafur er í helgarviðtali Dags að þessu sinni, en hann er Akureyringur og lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1974. Hafði lengi haft áhuga á fiskifræði Við byrjuðum á að inna Ólaf eftir, af hverju fiskifræðin hafi orðið fyrir valinu hjá honum á tímum þegar fólk sótti frekar í húmanísk fög, eða þá að menn stúderuðu heimspeki og jafnvel félagsvísindi. „Að loknu stúdentsprófi hafði ég svo gott sem ákveðið að fara í fiskifræði, ég hafði fengið áhuga á þessari grein nokkrum árum áður, hafði verið til sjós á togur- um í sumarfríum á menntaskóla- árunum. Ég hafði fyrst í huga að læra í Þýskalandi en það breytt- ist, Jakob Jakobsson núverandi forstjóri Hafrannsóknastofnunar ráðlagði mér að fara til Bergen í Noregi. Ég hóf þó nám í Háskóla íslands, en entist ekki nema einn Fiskeldi Eyjafjarðar hf. á Hjalteyri: ÞAÐSTONDAR ENGINN RANNSÓKNIR FYRIR OKKUR - Ólafur Halldórsson fiskifræðingur í helgarviðtali Ólafur Halldórsson fískifræðingur. Hjalteyri. mánuð, leiddist skólinn og fór á sjó. Ég fékk síðan pláss á rann- sóknaskipi Hafrannsóknastofn- unar, Árna Friðrikssyni og var þar veturinn ’74 til ’75. Síðan lá leiðin til Bergen haustið 1975 þar sem ég hóf nám við háskólann og byrjaði þá í almennri líffræði. Ég nefndi að Jakob Jakobsson hefði ráðlagt mér að fara til Bergen. Áður en ég lauk Menntaskólanum fór ég suður og ræddi við Jakob um nám í fiski- fræði. Hann ráðlagði mér að fara til Noregs því hann þekkti til námsins þar. Jakob hafði og hef- ur enn mikinn áhuga á bergmáls- mælingum, en það er ein áreið- anlegasta aðferðin sem til er við beinar stofnstærðarmælingar á fiskistofnum, og þá sérstaklega á uppsjávarfiskum. Jakob byrjaði að nota þessa aðferð á síldar- stofninn hér við land upp úr 1970 og líklega er íslenski síldarstofn- inn með fyrstu fiskistofnum sem þessi aðferð er reynd á. Jakob er því frumkvöðull að því leyti, þótt sjálf aðferðin hafi að langmestu leyti verið þróuð í Noregi. Um 1975 var stofnuð fiskifræðideild við háskólann í Bergen og Olav Dragesund varð þá prófessor þar, en hann vann við síldarrann- sóknir á síldarárunum. Þarna var mikill áhugi á bergmálsmæling- um sem ekki var í Kiel í Þýska- landi, en þangað hafði ég upphaf- lega hugsað mér að fara. Ég tók allt námið í Noregi, fyrstu fjögur árin voru almenns eðlis, grunnfög s.s. líffræði, stærðfræði og þ.u.l. Framhalds- nám í fiskifræði hóf ég síðan haustið 1979. Aðalverkefni mitt þar fjallaði um bergmálsmæling- ar og möguleika á mælingum á smásíld hér við ísland, þ.e. mæl- ingum á ungviði sumargotssíldar- innar. Það verkefni tók um tvö ár. Það var gott að dvelja í Noregi Árin í Bergen voru lærdómsrík og mér líkaði mjög vel í Noregi. Mikil tengsl eru á milli háskólans og hafrannsóknastofnunar í Bergen, þannig að stúdentar kynntust starfsemi hafrannsókna- stofnunar vel. Öll þessi reynsla var góður undirbúningur fyrir að hefja störf á Hafrannsóknastofn- un hér heima. Náminu lauk ég síðan vorið 1982 og byrjaði að vinna á Haf- rannsóknastofnun um haustið og þá aðallega við síldarrannsókn- ir.“ - Hvers vegna tókstu síld fyrir sem sérsvið? Hafði síldarstofninn ekki hrunið allnokkru áður vegna rányrkju? „Það er rétt að stofnarnir voru æði litlir, en íslenska sumargots- síldin var þá í örum vexti sem rekja má beint til skynsamlegrar veiðistjórnunar á þessum tíma. Tillögum Hafrannsóknastofnun- ar hafði þá verið fylgt um stund og stofninn var í örum vexti á þessum árum. Jakob Jakobsson hafði notað bergmálsmælingar til að fylgjast með vexti stofnsins og fullorðnu síldinni. Litlar athug- anir höfðu verið gerðar á smá- síldinni, dreifingu hennar og árgangastærð. Það var mjög aðkallandi að gera athuganir á þessu og eðlilegast var að reyna að nota bergmálsmælingar við þetta verkefni. Vinna við bergmálsmælingar er fyrst og fremst vinna til sjós og krefst þekkingar á göngum fiski- stofnanna og þeirra hegðunar- mynstri, það er afar mikilvægt að þekkja það og vita hvar fiski- stofninn er á hverjum tíma. Á síldajárunum aflaðist óhemju mikil vitneskja um göngur og hegðun síldarinnar, en skipulögð síldarleit hafði verið stunduð í mörg ár. Bergmálsmælingar nú á dögum njóta góðs af þeirri þekk- ingu sem þá var aflað. Það sama gildir um mælingar á loðnustofn- inum þar sem skipulögð loðnuleit hafði verið stunduð í mörg ár áður en það var farið að mæla stofnstærð hans með bergmáls- mælingum.“ Hafrannsóknastofnun á gott samstarf við sjómenn - Er samvinna á milli fiskifræð- inga og sjómanna á fiskiskipa- flotanum við þessar rannsóknir? „Já, áður en farið er í leiðang- ur, leita menn sér upplýsinga um dreifinguna og hvar fiskurinn er, eftir því sem kostur er, ef það eru skip á sjó. Á meðan á mæl- ingum stendur er alltaf haft sam- band við fiskiskipin og eftir því sem ég þekki til hefur verið mjög gott samband þar á rnilli." - Hvernig var að hefja störf hjá Hafrannsóknastofnun á þess- um tíma? „Það var mjög gott. Ég kunni mjög vel við mig á Hafrannsókna- stofnun, það er góður mannskap- ur sem þar vinnur og mér fannst mjög áhugavert að vinna þarna. Ég hef áhuga á sjávarútvegi og öllum samskiptum við sjómenn og þau samskipti hafa að mínu mati aukist verulega á síðustu árum á Hafrannsóknastofnun. Ýmis samstarfsverkefni hafa ver- ið sett á fót, þar má nefna togara- rallið sem sjómenn tóku þátt í að skipuleggja. Eins má nefna leiðangur sem var farinn á Bjarna Sæmundssyni þar sem togara- skipstjórar fyrir vestan voru skipstjórar á skipinu og tóku þátt í því að skipuleggja leiðangur- inn.“ - Hér áður var mikill ágrein- ingur um fiskveiðistjórnunina og sjómenn og stjórnmálamenn gagnrýndu stofnunina. Svarta skýrslan svonefnda var t.d. mjög umdeild á sínum tíma. Þessar gagnrýnisraddir virðast hafa hljóðnað. Telur þú að viðhorf til stofnunarinnar hafi breyst? „Menn eru sjálfsagt aldrei ánægðir þegar á að fara að draga saman veiðar, þetta er okkar lifi- brauð og eðlilegt að viðbrögð verði mikil við samdrætti. Það hefur nú komið í ljós að svarta skýrslan var rétt í megin- atriðum. Ég held að ástæðan fyrir gagnrýni sjómanna og útgerð- armanna hafi verið fyrst og fremst sú að það var byggður hér upp stór fiskiskipafloti sem afkastar meiru en ráðlegt er að veiða. Menn vildu halda því fram að meira væri af fiski í sjónum en Hafrannsóknastofnun taldi. Reynslan af síldinni sýnir okkur að það er hægt að byggja upp fiskistofna með skynsamlegri stjórnun og þar hefur tillögum Hafrannsóknastofnunar verið fylgt eftir. Okkur hefur tekist nokkuð vel til með loðnuna, að vísu varð mikil sveifla í eitt til tvö ár, en stofninn náðist upp aftur með veiðibanni og ég held nú að menn séu að átta sig á því að það þarf stjórnun við veiðar. Við sjá- um aldurssamsetninguna í þorsk- stofninum um þessar mundir, við erum að veiða allt of smáan fisk. Þetta sjá sjómenn og útgerðar- menn, við getum ekki gengið um þessa fiskistofna eins og okkur sýnist og veitt eins mikið og við getum. Menn verða að átta sig á að afkastageta flotans hefur aukist gríðarlega síðustu árin.“ Sóknin í fiskistofnana er vanmetin - Dró þá ekkert úr sókninni eftir 1975, eftir útfærsluna í 200 mílur? „Jú, væntanlega hefur það gerst, en ég tel að okkar nýtísku skip vegi það fyllilega upp og kannski höfum við vanmetið sóknina, þetta er nokkuð sem afar erfitt er að meta, en ég hef verið á þeirri skoðun að sóknin nú sé mikil og hafi aukist veru- lega samhliða tækninýjungum og endurnýjun veiðiflotans. Það má kannski orða það þannig að við séum farnir að geta haldið uppi hættulega miklum afla úr litlum stofni, vegna þess hve skipin eru orðin öflug.“ - Hvaða áhrif getur þetta haft til lengri tíma? „Það hlýtur að hafa þau áhrif - að stofninn fer minnkandi ef nýliðunin verður ekki þeim mun betri. Ég tel að það sé búið að sýna fram á að það er hægt að geyma fiskinn í sjónum, og ég tel að hægt sé að byggja upp fiski- stofna með skynsamlegri stjórn- un og ég get ekki séð hvaða aðrar meginreglur gilda fyrir þorsk- stofninn en t.d. síldarstofninn. Það sem var gert með sumargots- síldina, var að það var algjört veiðibann í nokkur ár og það var bannað að veiða smásíld og eftir að veiðar voru leyfðar á ný hefur verið kvóti á veiðunum. Frá 1970 hefur stofninn vaxið og þetta er með fyrstu síldarstofnum í N.- Atlantshafi sem nær fyrri stærð fyrst og fremst vegna þessarar veiðistjórnunar. Nú erum við með stofn sem er byggður upp af mörgum árgöngum, við getum þolað einn til tvo lélega árganga án þess að þurfa að draga veru- lega úr veiðum. Veiðin er þá ekki háð þeim árgöngum sem eru að koma inn í stofninn. Þannig þurfa fiskistofnar að vera byggðir upp, þ.e. að við getum haft marga árganga í veiðinni. Ef vel á að vera, þarf að byggja þorsk- stofninn upp á svipaðan hátt.“ - Hvernig er ástand nú á Haf- rannsóknastofnun, þ.e. hvað með endurnýjun á skipum og mannafla? „Ég held því miður að það séu mjög fáir að læra fiskifræði um þessar mundir Það eru miklar framfarir sem eiga sér stað í fiski- fræði sem öðrum fræðigreinum. Það er nauðsynlegt fyrir stofnun sem Hafrannsóknastofnun að fá inn menn, fá inn nýtt blóð, en einhverra hluta vegna hefur áhugi fyrir þessari grein líf- fræðinnar þ.e.a.s. fiskifræðinni ekki verið mjög mikill undan- farin ár. Ég veit ekki gjörla um ástæðuna en á sama tíma hefur verið mikill áhugi á háskólanum í Tromsö í Noregi, á sjávarútvegs- fræðum þar. Það er bráðnauð- synlegt fyrir okkur að fá þannig menntun inn í landið en að mínu mati er jafn nauðsynlegt að fá inn vel menntaða fiskifræðinga og það þyrfti að gera eitthvað í því til að það fari fleiri núna og læri fiskifræði. Það segir sig sjálft að við verðum að búa í haginn fyrir fólk sem vill stunda rannsóknir á þessu sviði, við verðum að hugsa um fiskistofnana og að þeir verði nýttir á sem skynsamlegastan hátt í framtíðinni, það er ekkert sem kemur í staðinn fyrir þá. Við verðum að reka mjög öfluga Haf- rannsóknastofnun hér í þessu landi og kannski mun öflugn en aðrar þjóðir einfaldlega vegna þess að fiskveiðar skipta okkur öllu.“ Við verðum að líta til nýrra tegunda í fiskeldi - En hvað kemur þá til að fiski- fræðingurinn hættir hjá stofnun- inni og fer að hætta sér út í til- raunastarfsemi í rústum gamallar síldarverksmiðju norður í Eyja- firði? „Það er nú fyrst og fremst vegna áhuga á fiskeldi og sérstak- lega sjávarfiskum. Laxeldi hefur gjarnan verið eins og samnefnari fyrir fiskeldi. Hér höfum við lagt áherslu á seiðaeldi og sölu á seið- um og uppbyggingin hefur verið það hröð að matfiskeldið fylgir því engan veginn eftir. Nú er svo kornið að við erum í vandræðum með okkar seiði og það er verið að redda hlutunum fyrir horn með að fara út í mjög öra upp- byggingu í matfiskeldi til þess að þurfa ekki hreinlega að henda seiðum. Á sama tíma hefur fram- leiðsla aukist gífurlega í Noregi og öðrum löndum og menn farnir að sjá fram á að það geti orðið verðfall á eldislaxi. Vegna þess- arar aukningar hefur áhugi á öðr- um tegundum vaxið mikið og þá fyrst og fremst á sjávarfiskum og alls kyns krabbadýrum, dýrum tegundum sem hafa hátt mark- aðsverð. Ég fékk mikinn áhuga á lúðu- eldi fyrir nokkrum árum og var etta mikið rætt í kunningjahópi. árslok 1986 fór Hafrannsókna- stofnun ásamt íslandslaxi í Grindavík út í lúðueldistilraunir. Smálúða var veidd í Faxaflóa og er verið að gera tilraunir varð- andi fóðrun, vöxt o.fl. Ég kynnti mér þetta mál í Noregi og hef fylgst með því sem þar er að gerast. Þar er fyrst og fremst lögð áhersla á klak og Norðmenn veita í þetta miklu fjármagni, því klakið er flöskuhálsinn í lúðueld- inu í dag. Ég vissi af Hjalteyri hérna fyrir norðan og síldarmjölsverksmiðj- unni og þeim mannvirkjum sem henni tengjast. Það varð síðan úr, að seint á árinu 1986 hafði ég samband við Inga Björnsson þá- verandi framkvæmdastjóra Iðn- þróunarfélags Eyjafjarðar hf. og kannaði hvaða möguleikar væru á að fara út í rannsóknaverkefni hér fyrir norðan með lúðueldi að markmiði. Hann tók þessu mjög vel og leist vel á að fara út í þess- ar athuganir. Það gerðist síðan að í lok maí 1987 var Fiskeldi Eyjafjarðar hf. stofnað með um þrjátíu hluthöfum.“ - Er það þá fyrir þitt frum- kvæði og áhuga að þetta verður að veruleika? „Já, og þegar það var ljóst að áhugi var fyrir hendi að hefja þessar athuganir, ræddi ég við Erlend Jónsson líffræðing hjá Hafrannsóknastofnun. Hann var til í að koma norður og höfum við unnið tveir að þessum rann- sóknum. Okkar athuganir urðu síðan einkum þríþættar; umhverfis- rannsóknir í Eyjafirði, ásamt til- raunaeldi á lúðu og úttekt á mannvirkjum og staðháttum á Hjalteyri og hvernig þau megi nýtast í fiskeldi. Fiskeldi Eyja- fjarðar hefur eingöngu verið fjá.- magnað af hlutafé og mér er ekki kunnugt um annað fyrirtæki hér á landi sem hefur sett eins mikið eigið fé í hreinar grunnrannsókn- ir og þetta. Varðandi fiskeldi og uppbygg- inguna hér á landi, þá er staðan sú að við erum talsvert á eftir nágrannalöndunum í laxeldi. Miklum fjármunum hefur verið veitt í fiskeldi og ég tel ntjög mikilvægt að líta nú til nýrra teg- unda. Við verðum að ganga út frá íslenskum aðstæðum Við verðum að reyna að vera þar með frá byrjun og þróa aðferðir hér sem henta íslenskum aðstæðum, því það er mjög vafa- samt að bíða eftir að Norðmenn nái tökum á lúðueldinu og ætla sér þá að fara að yfirfæra aðferðir frá Noregi hingað til lands, þar sem aðstæður hér eru aðrar. Ef við ætlum að verða a.m.k. sam- stíga Norðmönnum í lúðueldinu, verðum við að hefjast handa strax og setja fjárntagn í grunn- rannsóknir. Ég vil undirstrika það að undirtektir Eyfirðinga voru mjög góðar, að vilja fara út í svona verkefni finnst rnér sýna mikla framsýni." - En af hverju varð Hjalteyri fyrir valinu? „Það eru nú ýmsar ástæður fyr- ir því t.d. þessi miklu mannvirki sem þarna eru, gamla síldar- bræðslan og stórir steyptir tankar, eins er þarna tjörn, sjáv- arlón sem mætti breyta og nýta í fiskeldi en tjarnir svipaðar þess- ari hafa verið notaðar í Noregi við framleiðslu þorskseiða. Síðan er mjög aðdjúpt þarna og staður- inn mjög vel í sveit settur hvað varðar samgöngur og almenna þjónustu sem er nauðsynleg fyrir- tæki sem þessu. Hjalteyri hefur ákaflega margt sér til ágætis þeg- ar um er að ræða eldi á sjávar- fiskuni. Við höfum kannað lífríki sjáv- ’arins hér í kring, við fórum í fyrrahaust og veiddum lúðu í Breiðafirði sent við fluttum hing- að til Hjalteyrar og höfum síðan fylgst með vexti hennar og því hvernig lúðan dafnar við þau skil- yrði sem hér eru. Við erum ánægðir með útkomuna og nú höfum við gert úttekt á mann- virkjum hér með það fyrir augum að nýta þau við áframhaldandi uppbyggingu fyrir fiskeldi á Hjalteyri. Það er ekkert sem okkur finnst mæla gegn því að það sé haldið áfram við að byggja upp aðstöðu fyrir lúðueldi hér. Þá höfum við fyrst og fremst klak í huga, því það er mikilvægt að átta sig á því að lúðueldi sem atvinnuvegur verður aldrei stundað hér á landi nema við náum tökum á klakinu.Við verð- um að leggja alla áherslu á það nú. Fyrstu tilraunirnar með það hefjum við væntanlega næsta vor, síðan stéfnum við á að hafa nægj- anlega marga fiska tilbúna til hrygningar árið 1990. Þá ætlum við að klakstarfsemin geti hafist fyrir alvöru.“ - Ert þú bjartsýnn á framhald- ið? „Já, ég er það. Ég efast ekki um að lúðueldi verður veruleiki innan fárra ára. En ég tel að það sé mikilvægt að átta sig á að það þýðir ekki að bíða eftir niður- stöðum annarra. Norðmenn eru t.d. ekki að stunda rannsóknir fyrir okkur, þeir eru að gera þetta sjálfra sín vegna og miða að sjálfsögðu uppbyggingu þar í landi við aðstæður þar. Þær eru aðrar en hér og ef við ætlum okk- ur einhvern hlut í þessu fiskeldi í framtíðinni þá verðum við að vinna þróunarstarfið sjálfir. Það er því alveg ástæðulaust að bíða með hendur í skauti og láta síðan söguna með laxeldið endurtaka sig.“ kjó

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.