Dagur - 13.10.1988, Qupperneq 2
r- . nont
2 - DAGUR - 13. október
Frá stofnfundi Héraðsnefndar Skagfírðinga í Safnahúsinu sl. mánudagskvöid.
Heimshlaupið ’88:
Fjórar milljónir
króna söfnuðust
- 15 þúsund íslendingar tóku þátt
Alls tóku 130 þjóðir þátt í
Heimshlaupinu ’88 þann 11.
september sl. og voru þátttak-
endur allt að 50 milljónum.
Hér á landi gengu, skokkuðu
eða hlupu um 15.000 manns á
36 stöðum um allt land. Veður
var mjög óhagstætt víða norð-
an og austan lands en fólk lét
það ekki á sig fá og var þátt-
taka mjög góð og framar öllum
vonum. Best var þátttakan á
Fáskrúðsfirði þar sem meira en
helmingur íbúanna var með í
hlaupinu. Alls söfnuðust um 4
milljónir króna með sölu þátt-
tökunúmera og gjafafé.
80% af því fé sem safnaðist hér
á landi, eða um 3,2 milljónir
króna, renna til „Child alive“
sem er verkefni Alþjóða Rauða
krossins. Þetta verkefni miðar að
Stofnfundur Héraðsnefndar Skagfirðinga:
Nefndin tekur við af sýslu
nefiid um næstu áramót
Stofnfundur Héraðsncfndar
Skagtirðinga var haldinn sl.
mánudagskvöld í Safnahúsinu
á Sauðárkróki. Þar var sam-
þykkt samhljóða frumvarp til
samþykkta héraðsnefndar, eft-
ir að breytingartillögur höfðu
verið samþykktar. Aðild að
héraðsnefndinni eiga öll sveit-
arfélög Skagafjarðarsýslu og
Sauðárkrókskaupstaður, og
kemur hún í stað sýslunefndar,
sem mun láta af störfum um
næstu áramót. Mun þá héraðs-
nefndin formlega taka við.
Stofnfundi héraðsnefndarinnar
verður framhaldið föstudaginn
21. októbernk. í Safnahúsinu. Þá
verður kosið í héraðsráð og emb-
ætti oddvita nefndarinnar og
varaoddvita. Á fundinum á
mánudagskvöld voru fulltrúar
sveitarfélaganna sem kosnir hafa
verið í héraðsnefndina, nema
hvað ekki er búið að kjósa full-
trúa fyrir Sauðárkrók, en bæjar-
stjórn Sauðárkróks mætti á
fundinn. Á framhaldsfundinum í
næstu viku verður héraðsnefndin
fullskipuð.
Miklar breytingar munu eiga
sér stað í ýmsum málaflokkum
þegar héraðsnefndin tekur við af
gömlu sýslunefndinni. Að sögn
Atvinnutryggingasjóðurútflutningsgreina:
Tveir stjómarmenn
frá Norðurlandi
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra hefur skipað
nýstofnuðum Atvinnutrygg-
ingasjóði útflutningsgreina
stjórn eftir ákvæði bráða-
birgðalaga. Stjórnin er skipuð
flmm mönnum og tilnefnir
forsætisráðherra formann en
aðrir stjórnarmenn eru skipað-
ir af iðnaðar-, fjármála-, sjáv-
arútvegs- og viðskiptaráð-
herra.
Sem kunnugt er verður Gunn-
ar Hilmarsson, sveitarstjóri á
Raufarhöfn formaður stjórnar-
innar. Kristján Skarphéðinsson,
deildarstjóri í sjávarútvegsráðu-
neytinu, er skipaður af Halldóri
Ásgrímssyni í nefndina, Pétur
Sigurðsson, forseti Alþýðusam-
bands Vestfjarða, er tilnefndur af
Jóni Sigurðssyni viðskiptaráð-
herra og Jóhann Antonsson við-
skiptafræðingur á Dalvík er
skipaður af Olafi Ragnari Gríms-
syni fjármálaráðherra. Fimmti
stjórnarmaðurinn er Björn
Björnsson, bankastjóri Alþýðu-
bankans, tilnefndur af iðnaðar-
ráðherra. JÓH
Gunnar Hilmarsson formaður
atvinnutryggingasjóös.
Halldórs Þ. Jónssonar sýslu-
manns Skagafjarðarsýslu hefur
undirbúningur ^jjyrir stofnun
héraðsnefndar staðið yfir í hálft
annað ár og kostað mikla vinnu.
Samkvæmt nýju sveitarstjórnar-
lögunum eiga héraðsnefndir að
koma í öllum sýslum landsins, í
staðinn fyrir sýslunefndir sem
fyrir eru. Einungis í tveim sýslum
hefur héraðsnefndum verið kom-
ið á, en búast má við því að þær
verði komnar víðast hvar fyrir
áramót. „Það eru í rauninni eng-
in lög um hvernig þessar héraðs-
nefndir eiga að vera, þær verða
að skipuleggja sig sjálfar. Verk-
efnin eru að sjálfsögðu ákaflega
mismunandi, og verkefni Hér-
aðsnefndar Skagfirðinga verða
mörg og stór,“ sagði Halldór.
Verkefni héraðsnefndar er
skipt upp í 13 málaflokka og eru
þeir eftirtaldir: 1. Verkefni þau
sem sýslunefnd eru nú falin með
lögum. 2. Verkefni þau sem
sýslunefnd eru falin í skipulags-
skrám og samþykktum sjóða og
stofnana, þ.á m. yfirstjórn
Menningarseturs Skagfirðinga í
Varmahlíð. 3. Uppbygging og
rekstur sjúkrastofnana og heilsu-
gæslustöðva. 4. Heilbrigðiseftir-
lit. 5. Uppbygging og rekstur
hjúkrunar- og dvalarheimila fyrir
aldraða og íbúða fyrir aldraða. 6.
Almannavarnir og öryggismál. 7.
Eldvarnir og eldvarnaeftirlit. 8.
Framhaldsskólar í Skagafirði. 9.
Skipulags- og byggingamál,
þ.á m. framkvæmd byggingalaga
og byggingaeftirlit. 10. Rekstur
héraðsbókasafns, héraðsskjala-
safns, listasafns, náttúrugripa-
safns, Byggðasafnsins í Glaum-
bæ, muna- og minjasafns og ann-
arra safna, sem ákveðið kann að
verða að koma upp. 11. Sveitar-
stjórnarmál sem varða héraðið
sem heild, svo og tillögur um
hvað eina sem verða má héraðinu
til gagns eða til að afstýra
atvinnuleysi og bjargarskorti. 12.
Verkefni sem varða héraðið sem
heild eða hluta þess og sveitar-
stjórnir, sem aðild eiga að hér-
aðsnefnd samþykkja að fela hér-
aðsnefndinni. 13. Verkefni sem
héraðsnefndum kunna að verða
falin með lögum.
Framhaldsstofnfundi héraðs-
nefndarinnar verða gerð skil í
blaðinu að honum loknum, og þá
ætti að koma mynd af nýrri Hér-
aðsnefnd Skagfirðinga. -bjb
því að útrýma barnasjúkdómum
og barnadauða í heiminum. Að
þessu sinni mun fénu verða varið
til kaupa á sérstökum A vítamín
töflum og er þeim ætlað að koma
í veg fyrir niðurgang sem orsakar
blindu hjá börnum. Töflu-
skammtarnir verða sendir til
Bangladesh þar sem mikil þörf er
á slíkri aðstoð eftir flóðin þar í
síðasta mánuði. Sérstakur hópur
lækna og hjúkrunarfólks sem þar
vinnur á vegum Alþjóða Rauða
krossins mun fylgja okkar fram-
lagi eftir og koma vítamíninu til
þurfandi barna.
20% af söfnunarfénu, eða um
800.000 krónur, renna til
Rauða kross hússins í Tjarnar-
götu 35 í Reykjavík. Fénu verður
varið til framleiðslu á fræðsluefni
um einstaka þætti er varða börn
og unglinga sem eiga við erfið-
leika að etja s.s. stríðni, einelti,
aðlögunarvanda, skilnað for-
eldra, börn alkóhólista o.fl.
Þannig er ætlunin að þetta fjár-
magn fari ekki í rekstur hússins
heldur til sérstakra fyrirbyggj-
andi verkefna.
Rauði kross íslands og Frjáls-
íþróttasamband íslands vilja
þakka öllum þeim sem aðstoð-
uðu við undirbúning og fram-
kvæmd Heimshlaupsins ’88.
Margir lögðu hönd á plóginn, en
mestu munaði þó um framlag
Reykjavíkurborgar og einstakra
skemmtikráfta sem gáfu vinnu
sína, en alls unnu um 250 manns
að undirbúningi hlaupsins með
einum eða öðrum hætti.
Ferðamála-
ráðsteftian
1988
Ferðamálaráðstefna, sú 19. í
röðinni, verður haldin á Hótel
KEA á Akureyri dagana 3. og
4. nóvember nk.
Á ráðstefnunni verða flutt
framsöguerindi um skattlagningu
ferðaþjónustunnar, gengismál,
verðlagningu íslandsferða, verð-
lagsþróun og stöðu ferðaþjónust-
unnar í þjóðarbúskap íslendinga.
í stað hefðbundinna nefndar-
starfa verður rúmur tími til
almennra umræðna um þessa
málaflokka.
Steingrímur J. Sigfússon, sam-
gönguráðherra mun ávarpa ráð-
stefnuna.
Húsavík:
Endurskoðun fjárhags-
áætlunar í biðstöðu
Endurskoðun fjárhagsáætlun-
ar bæjarsjóðs Húsavíkur og
bæjarfyrirtækja var lögð fram
til kynningar í bæjarstjórn sl.
þriðjudag. En afgreiðslu máls-
ins var frestað þar til nánari
upplýsingar liggja fyrir um hlut
útsvars í staðgreiðslu skatta,
reiknað er með þessum upplýs-
ingar um miðjan mánuðinn.
„Meðan við höfum ekki þessar
forsendur getum við ekki lokið
endurskoðun fjárhagsáætlunar-
innar. Við verðum að standa fast
á bremsunni og eyða sem
minnstu fé,“ sagði Bjarni Þór
Einarsson, bæjarstjóri er Dagur
spurðist fyrir um málið. Bjarni
sagði að ljóst væri að miðað við
gefnar forsendur héldi rekstrar-
áætlun hvað varðaði laun og láns-
kjaravísitölu. Tekjuáætlun héldi
nokkurn veginn, aftur á móti
væru veruleg vanhöld á að það fé
fengist sem reiknað var með
vegna íþróttamannvirkja.
Sagði Bjarni að einstaka liður
færi fram úr áætlun eins og oft
vildi verða, sumir af óviðráðan-
legum utanaðkomandi ástæðum
en fyrir kæmi að ekki væri fylgst
nógu vel með hlutunum á fram-
kvæmdastigi og erfitt að hætta
við hálfklárað verk. IM