Dagur - 13.10.1988, Blaðsíða 4
4' - DAGUR - 13. óktöber 1988
ÚTGEFANDI: ÚTGAFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 70 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR.
RITSTJÓRI:
BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON
(Sauðárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON,
FRlMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON
(Reykjavik vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Vandi atvimrn-
fyrirtækja
Það fer ekkert á milli mála að mikill vandi
steðjar að atvinnufyrirtækjum um land allt,
og þá sérstaklega á landsbyggðinni. Þessir
erfiðleikar koma ljóslega fram í mikilli aukn-
ingu gjaldþrotamála og uppsögnum starfs-
fólks í framhaldi af þeim. Samkvæmt upplýs-
ingum Vinnumálastofnunar félagsmálaráðu-
neytisins voru tilkynntar uppsagnir til þeirra
533 talsins á þriggja mánaða tímabili, í júlí,
ágúst og september á þessu ári. Á sama
tímabili í fyrra voru uppsagnir sex sinnum
færri, eða 74 talsins. Þessar tölur segja þó
ekki alla söguna, því samkvæmt lögum er
fyrirtækjum einungis skylt að tilkynna upp-
sagnir til Vinnumálastofnunar félagsmálaráð-
uneytisins, ef fjórum eða fleiri er sagt upp
störfum samtímis. Fjöldi þeirra sem misst
hafa atvinnuna á þessu ári vegna rekstrarörð-
ugleika fyrirtækja er því örugglega mun meiri
en ofangreindar tölur gefa til kynna.
Hvað fjölda gjaldþrotamála varðar, segir
það sína sögu að ríkisábyrgðir vegna gjald-
þrota fyrirtækja og einstaklinga á þessu ári
nema þegar 600-700 milljónum króna. Allt
árið í fyrra þurfti ríkissjóður að greiða um 74
milljónir króna vegna ríkisábyrgða af þessum
sökum. Aukningin milli ára er þegar orðin
tíföld, þótt enn sé tæpur fjórðungur eftir af
árinu.
Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumála-
stofnun félagsmálaráðuneytisins halda til-
kynningar um uppsagnir áfram að streyma
inn og á hverjum degi flytja dagblöðin okkur
fréttir af fyrirtækjum sem tekin eru til gjald-
þrotaskipta ellegar óska eftir greiðslustöðvun
til að freista þess að endurskipuleggja rekst-
urinn. Af þessu má ljóst vera að frásagnir af
slæmri stöðu atvinnufyrirtækja eru ekki ýktar.
Stjórnvöld hafa þegar hafist handa við að
búa fyrirtækjum í landinu vænlegri rekstr-
arskilyrði. Ljóst er að sumum fyrirtækjum
verður ekki bjargað. Til þess eru þau of langt
leidd. Öðrum má bjarga með því að bregðast
skjótt við. í því sambandi er mjög mikilvægt
að fjármagnskostnaður verði lækkaður en
hann er nú hærri en dæmi eru um áður. Fyrir
fáum árum hefði það flokkast undir okur að
lána peninga með þeim kjörum sem nú
tíðkast. Þessu þarf að breyta án tafar ef tak-
ast á að koma fyrirtækjarekstri í landinu á
réttan kjöl. BB.
viðtal dagsins
Krakkamir eru duglegir og
góðir unglingar í aíla staði
- segir Hörður Ríkharðsson
nýráðinn æskulýðsfulltrúi á Blönduósi
-tftf*?'**** *•>■ -i
*>.<■> >v->'t’».<yí.« y '
>*j * * v*', <?**%*&*
« » »v,,<w ’ *"»«'> * * »
■
.* * Í * ♦> '<><>>«>><# * 2 * «
♦< • ,5 »—' ....
*'*'**•*«*«**«* >****«**** >(WHÍ'
Át ?~**vw**** * Zlz* ' - 'f*f * * * **********
3S8SSSSP* IIM »•*•««<«<
♦ * « * * *■»«•♦<«»»„:♦
Hörður Ríkharðsson.
Hörður Ríkharðsson hefur
verið ráðinn æskulýðsfulltrúi á
Blönduósi og mun hann annast
skipulagningu og umsjón
unglingastarfsins í Skjólinu í
vetur. Hann er 25 ára gamall,
fæddur í Reykjavík og er í
námi í þjóðfélagsfræði við
Háskóla Islands með stjórn-
málafræði sem aðalgrein. Dag-
ur tók Hörð tali og spjallaði
við hann um vetrarstarfið með
krökkunum í Skjólinu.
Æskulýðsstarfið
- Hvernig verður starfið í Skjól-
inu í vetur?
„I>að sem er búið að fastsetja
núna er þannig ef ég lýsi nú bara
hvernig vikan gengur fyrir sig í
Skjólinu, sem er félagsmiðstöðin
hérna, þá er skólinn með mánu-
dagana fyrir bekkjarkvöld og
bekkjardaga. Yngri bekkirnir eru
þá þar síðdegis og eldri bekkirnir
á kvöldin ásamt kennurum
sínum.
Síðdegis á þriðjudögum eru
skákæfingar og -kennsla. Yngstu
krakkarnir og byrjendur mæta
klukkan fjögur en þeir eldri og
lengra komnir mæta klukkan hálf
sex og eru alveg til hálf átta. Á
þriðjudagskvöldum er opið hús
frá klukkan átta og fram um
ellefu. Þá erum við með borð-
tennisborðið uppi og spil, bobb,
og sjónvarp. Það er á dagskrá hjá
framkvæmdanefnd staðarins að
cignast sjónvarp. Fyrst ég minn-
ist á framkvæmdanefndina er rétt
að geta þess að það var eitt af
mínum fyrstu verkum að láta
unglinga í 7., 8. og 9. bekk kjósa
sér fjögurra manna framkvæmda-
nefnd til að starfa með mér við að
koma því í framkvæmd sem ég
ákveð og eins að taka við hug-
myndum frá krökkunum sjálfum.
Réttara sagt þá er þetta þannig
að nefndin fær hugmyndir hjá
krökkunum og vinnur sjálf úr
þeim.
Það eru fjórir krakkar í nefnd-
inni og ég sá fimmti sem odda-
maður og ég hef verið svolítið
ráðríkur og ræð því sem ég vil,
svona í upphafi. Hugsunin á bak
við þetta er sú að það færist með
tímanum meira yfir á krakkana
að móta starfið og koma því í
framkvæmd. Ég treysti mér ekki
út í að vinna þetta svona á meðan
ég er að kynnast krökkunum betur
og þau eru kannski ekki vön því
að hafa húsnæði, tíma og peninga
til ráðstöfunar fyrir sig sjálf. í
framtíðinni væri auðvitað æski-
legast að þau gætu sem mest unn-
ið þetta sjálf.
Heilbrigð dægrastytting
Svo ég haldi nú áfram með
dagskrá vikunnar þá er þarna
opið hús á þriðjudögum og það
er ekki ætlast til þess að þar verði
tónlist og dans allsráðandi. Held-
ur að það verði róleg tónlist
svona í bakgrunninum en afþrey-
ingin verði spil og annað þess
háttar. Heilbrigð dægrastytting,
ef svo má að orði komast, ekki
spilakassar eða neitt þess háttar.
Það er skákin, borðtennis, bobb,
sjónvarpsgláp og svo bara að sitja
og spjalla saman.
Seinnipartinn á miðvikudögum
er hugmyndin að ljósmynda-
klúbbur verði þarna með starf-
semi þegar ég er búinn að fá þann
hluta hússins sem ég ætla undir
þá starfsemi og er vonast til að
það verði á næstu dögum. Það er
reiknað með að ljósmyndaklúbb-
ur og dansklúbbur verði í Skjól-
inu seinni partinn á miðvikudög-
um.
Miðvikudagskvöldunum verð-
ur ráðstafað til annarra félaga.
Vantar ekki hugmyndir
hjá krökkunum
Það er ekki búið að ráðstafa
seinni hluta fimmtudaganna enda
er ég tiltölulega nýbyrjaður í
starfinu, er búinn að vinna við
þetta í hálfan mánuð og þar af
leiðandi ýmsir endar lausir ennþá
en það verður ekkert vandamál
því ekki vantar hugmyndirnar
hjá krökkunum.
Á fimmtudagskvöldum hef ég
gert ráð fyrir að borðtennis-
klúbbarnir verði í Skjólinu en
það er ekki vitað hvað þeir verða
margir eða hvað þeir þurfa þá
mikinn tíma.
Það er skólahljómsveit í gangi
og henni er ætlaður tími síðdegis
á föstudögum og á föstudags-
kvöldum verður til skiptis opið
hús með svipuðu sniði og er á
þriðjudögum og framkvæmda-
nefndin verður þá með fundar-
tíma. Annað hvert föstudags-
kvöld verður diskótek og dans og
hljómlist allsráðandi. Þá verður
reynt eftir megni að hafa ein-
hverjar uppákomur eða eitthvað
svona sérstakt.
Það verður t.d. furðufataball á
föstudaginn og svo er verið að
reyna að fastsetja dagskrá sem er
að fara af stað og er enn í mótun.
Við erum nú að vinna að því
að skipuleggja þetta lengra fram í
tímann með tilliti til þess sem er
að gerast í skólanum á hverjum
tíma. Það verður ræðukeppni í
skólanum sem JC Húnabyggð
stendur væntanlega fyrir og Jiað
er verið að athuga með tímasetn-
ingu á því. Það þarf að þjálfa lið-
ið og finna tíma sem ekki rekst á
eitthvað annað.
Borgnesingar eru væntanlegir
til að keppa í íþróttum við skól-
ann hérna og við erum að skipu-
leggja þetta í sameiningu til að
öruggt sé að ekkert verði um að
vera í Skjólinu þegar eitthvað
sérstakt er að gerast í skólanum.
Það er auðvelt að skipuleggja
þetta því allt eru það sömu
krakkarnir sem skipuleggja þetta
á vegum skólans.“
- En hvað með helgarnar er
ekki mikið um að vera þá?
„Það verður að líkindum ekk-
ert fyrir krakkana á laugardags-
kvöldum í Skjólinu. Á sunnudög-
um verða skátarnir sennilega og
laugardagskvöldunum er óráð-
stafað enda eru þá oft böll í Fé-
lagsheimilinu og allt er þetta nú í
sama húsinu. Þetta er líka bara
hálf staða hjá mér og það hefur
ekki reynst mikill vandi að fylla
inn í þann tíma með því sem
komið er og alltaf er talsvert
snatt í kringum þetta, sérstaklega
á meðan það er að fara í gang.“
- Eru krakkarnir sem starfa
með þér í nefndinni úr efstu
bekkjunum?
„Þau eru 2 úr 9. bekk, eitt úr 8.
og eitt úr 7. bekk. Svo er í deigl-
unni að stækka nefndina og fá
þar inn tengiliði úr nemendaráði
skólans til að tryggja að við verð-
um örugglega samstiga því sem
er að gerast í skólanum.“
- Finnst þér krakkarnir hafa
mikið hugmyndaflug?
„Já töluvert og þá fyrst og
fremst áhuga á því að eitthvað
verði gert þarna og þau hafa
áhuga á því að gera eitthvað
sjálf. Það verður a.m.k. ekki
hægt að kenna þeim um ef illa
tekst til. Mér sýnist þau vera dug-
leg og áhugasöm og reglulega
góðir unglingar í alla staði.“ fh