Dagur - 13.10.1988, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 13. október 1988
ri
spuming vikunnar
Hefur þú tekið slátur í haust?
Margrét Skúladóttir:
Nei ekki ennþá, en ég tek mikið
af slátri á næstu dögum.
Dísa Þórðardóttir:
Nei ég hef ekki nennt því, en
mér finnst slátur gott og borða
það heima hjá mömmu.
Herdís Eliertsdóttir:
Já mikið af slátri, öllum sortum.
Ég á eftir að fá mér hrútspunga
til að súrsa, þeir eru nauðsyn-
legir á kvöldmatarborðið.
Bessi Þorsteinsson:
Nei en það er verið að velta
þessu fyrir sér og verður senni-
lega gert.
Hlynur Tryggvason:
Nei ekki ég. En konan er búin
að taka slátur og ég nýt góðs af
því.
Flugbjörgunarsveitin á Akur-
eyri er að hefja vetrarstarf sitt
þessa dagana. Sveitin ieggur
áherslu á að fá nýliða til starfa
á hverju hausti og er þjálfun
þeirra skipulögð í upphali
starfsársins. Blaðamaður
ræddi við Tryggva Svein-
björnsson, formann Flugbjörg-
unarsveitarinnar, um starfsem-
ina, og við þá Baldur Sigurðs-
son og Rúnar Jónsson um
þjálfun nýliða. Auk þeirra sjá
þeir Jón Gudmund Knutsen og
Aðalsteinn Arnason um þjálf-
unina.
- Hvað fer fram á kynningar-
fundum ykkar?
„Við leggjum fram dagskrá
vetrarins og kynnum starf sveit-
arinnar. Þar er rætt um æfingar á
vegum björgunarsveitarinnar,
mönnum er sýnt húsnæðið og
tæki. Síðan fara fram æfingar og
námskeið allan veturinn á hverju
fimmtudagskvöldi. Auk þess
verður farið í ferðir utanhúss
einu sinni í mánuði, um helgar."
- Baldur, þú sérð einnig um
nýliðaþjálfun?
„Já, ég sé um hiuta hennar en
við erum reyndar þrír sem vinn-
um mest við hana, auk skyndi-
hjálparkennarans. Af þeim nýlið-
um sem byrja hérna heldur um
það bil helmingurinn áfram störf-
um í sveitinni og lýkur þjálfun.“
*
Ahuginn skiptir mestu máli
- Er þetta starf eingöngu fyrir
karlmenn?
„Nei, þetta er öllum opið.
Áhuginn skiptir öllu máli. Við
setjum ekki önnur skilyrði en þau
að viðkomandi verður að vera
orðinn 16 ára að aldri og hann
eða hún verður líka að hafa
óskiptan áhuga á þessu starfi.“
- Að hvaða gagni kemur þjálf-
unin hérna, burtséð frá starfi
sveitarinnar?
„Ef maður lítur á það sem
kemur fólki almennt að gagni í
þjóðfélaginu þá er t.d. farið mjög
ítarlega í skyndihjálp. Við kenn-
um fólki að nota áttavita og kort,
hvernig það eigi að búa sig á
ferðalögum og hvað beri að
varast. Við kennum grundvallar-
atriði í meðferð búnaðar og
hvernig beri að bregðast við ef
eitthvað óvænt kemur fyrir.“
- Þurfa umsækjendur að vera í
toppformi til að ná árangri hér?
Baldur: „Nei, það held ég
ekki. Fólk fær þá þjálfun sem það
þarf og við gerum ekki meiri
kröfur um líkamshreysti en eðli-
legt getur talist.“
- Ég sé að þið kennið leitar-
tækni. Hvað er það?
„Leitartækni er skipulag leita,
hvernig beri að haga leit og
undirbúningi hennar og hvernig
eigi að bregðast við útkalli. Við
kennum undirbúning leitar, en
það er mismunandi eftir því
hvernig leit við erum að tala um.
Framkvæmdin er misjöfn eftir
aðstæðum. Stundum er leitað á
bílum og eftir leitarlínum, þá eru
til s.n. breiðleitir o.fl.“
Kennsla í leit
og björgunaraðgerðum
- Þessi sveit er flugbjörgunar-
sveit en þið undirbúið fólk undir
fleiri greinar björgunar en björg-
un úr flugslysum?
„Jú, við sinnum öllum þeim
beiðnum sem til okkar koma um
aðstoð, hvort sem það er flugslys
eða eitthvað annað. Ég hef ekki
orðið var við að fólk misskilji til-
gang sveitarinnar og það veit oft
talsvert um hana þegar það byrj-
ar þjálfun á vegum hennar. Við
reynum þó að sérhæfa okkur í
flugslysum, því þau eru uppruna-
legur tilgangur okkar."
- Ég sé að þið kennið nýliðum
um snjóflóð. í hverju felst sú
kennsla?
„Bóklegi hlutinn er eitt kvöld
þar sem farið er í grundvallar-
hugtök um snjóflóð. Þá fer fram
sýnikennsla innivið. Síðan er far-
ið út og leitað bæði með ýlum og
snjóflóðaleitarstöngum. Við
finnum okkur snjóskafl og gröf-
um eitthvað í hann sem síðan er
leitað að með stöngunum."
- Hvað er ýla?
„Ýla er lítið tæki sem er bæði
sendi- og móttökutæki. Það fæst í
flestum útilífsverslunum og er
mjög mikið öryggistæki fyrir þá
sem fara til fjalla á vetrum. Það
er þeim eiginleikum búið að það
er stillt á ákveðna senditíðni.
Þegar maður lendir í snjóflóði
sendir tækið frá sér ákveðið
merki. Ef nokkrir menn eru með
slík tæki á sér og einn þeirra
lendir í snjóflóði geta hinir
mennirnir stillt tæki sín á mót-
töku og fundið þann sem týndur
er. Nýlega vorum við að fá send-
ar svonefndar Reccodíóður til að
nota við leit að fólki í snjóflóð-
um.“
- Hvaða búnaður er það?
„Nýlega komu á markaðinn ný
tæki til snjóflóðaleitar og Flug-
björgunarsveit Reykjavíkur
keypt móttökutæki af þeirri gerð.
Það tæki er hið eina sinnar teg-