Dagur - 13.10.1988, Síða 15
íþróttir
13. október 1988 - DAGUR - 15
í
—
f
Knattspyrnuþj álfaramál:
Þórsarar ræða við Júgóslava
- virtur og reyndur þjálfari í sigtinu
Halldór kom inn á fyrir Pétur og átti tvö ágæt marktækifæri.
Handknattleiksdeild KA gerir
samning við NIKE og Sportbúðina
Handknattleiksdeild KA, Sportbúðin Sunnuhlíð og Austurbakki hf. hafa gert með sér samning um að leikmenn
KA leika í NIKE-skóm í handboltanum í vetur. Hér sjást Garðar Einarsson frá Austurbakka hf., umboðsaðila
NIKE á íslandi, Gunnar Eiríksson frá Sportbúðinni og Jóhann Karl Sigurðsson frá handknattleiksdeild KA
undirrita samninginn.
Knattspyrnudeild Þórs er um
þessar mundir að leita að þjálf-
ara fyrir meistaraflokk félags-
ins fyrir næsta keppnistímabil,
í stað Jóhannesar Atlasonar
sem hefur tekið við liði Stjörn-
unnar í Garðabæ.
Sigurður Arnórsson formaður
deildarinnar var erlendis fyrir
skömmu, þar sem hann athugaði
með möguleika á að fá erlendan
þjálfara til félagsins. Hann fór
m.a. til Júgóslavíu þar sem hann
ræddi við þjálfara sem hugsanlegt
væri að fá til Akureyrar.
Á meðal þeirra var Milan
Djuricic sem í dag þjálfar 2.
deildarlið í Júgóslavíu í bæ sem
heitir Osijek í austurhluta
landsins. Djuricic sem er 35 ára
gamall hefur stundað þjálfun í
rúm 10 ár með góðum árangri.
Hann mun væntanlegar til Akur-
eyrar í þessum mánuði, að skoða
aðstæður hjá Pór og í framhaldi
að því kemur í ljós hvort af ráðn-
Landsleikur:
íslendingar geta verið
ánægðir með jafnteflið
- Friðrik varði vítaspyrnu
Islendingar og Tyrkir skildu
jafnir 1:1 í landsleik í Tyrk-
landi í gær. Guðmundur
Torfason skoraði mark íslend-
inga á 18. mínútu síðari hálf-
leiks eftir góðan undirbúning
Olafs Þórðarsonar. Tyrkir
jöfnuðu fimmtán mínútum síð-
ar og geta Islendingar verið
ánægðir að hafa náð jafntefli á
útivelli.
íslenska liðið virkaði hálf-
taugaóstyrkt í byrjun leiksins.
Liðið lék aftarlega á vellinum og
gaf Tyrkjum frið til að spila vel
yfir miðju vallarins. Þegar okkar
menn fengu boltann var honum í
mesta lagi spilað til eins samherja
eða þá að kýlt var langt fram á
völlinn.
Til allrar lukku spiluðu heima-
menn mjög heimskulegan bolta
gegn stórum og stæðilegum varn-
armönnum íslands. Þegar Tyrk-
irnir komust yfir miðju kýldu þeir
yfirleitt háum boltum inn að víta-
teig þar sem Atli, Sævar og
Guðni ríktu sem kóngar í ríki
sínu.
Eftir rúmt kortér höfðu íslend-
ingar varla ógnað marki Tyrkja,
en á sama tíma höfðu þeir ekki
heldur átt neitt sérstakt mark-
tækifæri. Hins vegar var sókn
Tyrkja þung og fór um margan
landann, sem var að stelast úr
vinnunni að horfa á leikinn í
beinni útsendingu.
íslendingar fóru nú að koma
meira inn í leikinn og áttu þeir
tvö ágæt marktækifæri fyrir
leikhlé; það fyrra kom eftir að
Ólafur Þórðarson sendi góðan
bolta á Pétur Arnþórsson sem
skaut að marki, en tyrkneski
markvörðurinn varði vel. Síðan
átti Ómar Torfason góðan skalla
að marki eftir sendingu Arnórs,
en aftur varði sá tyrkneski vel.
Þegar sjónvarpsgláparar voru
farnir að tygja sig til salernisferð-
ar var dæmd réttilega vítaspyrna
á íslenska liðið eftir að besti
leikmaður Tyrkja, Savaz, var
felldur inni í vítateig. En Friðrik
Friðriksson gerði sér lítið fyrir og
varði vítaspyrnuna.
Þetta virkaði vel á íslensku
leikmennina og í síðari hálfleik
léku þeir af mun meira öryggi og
héldu boltanum lengur. Tyrkirnir
féllu hins vegar í sömu gryfju og í
fyrri hálfleik og sendu háa bolta
að vítateignum sem Guðni og
Atli hirtu af öryggi.
Úr einni af skyndisóknum íslend-
inga kom síðan markið og átti
Ólafur Þórðarson allan heiður af
því marki. Hann fékk stungu-
sendingu inn í hornið og í kapp-
hlaupi um boltann féllu tyrkneski
varnarmaðurinn og Ólafur kylli-
flatir. Þegar síðan annar varnar-
maður kom aðvífandi, spratt
Skagamaðurinn upp sem fjöður
og skildi báða Tyrkina eftir, en
tók tuðruna með sér. Þegar að
vítateigslínu kom sendi hann
fastan boltann fyrir þar sem Guð-
mundur Torfason þrumaði síðan
knettinum í netið. Að vísu kom
markmaðurinn við knöttinn en
skotið var fast og markið var
staðreynd.
Eftir markið þyngdist sókn
Tyrkja til muna og sluppum við oft
með skrekkinn. En þar kom að
því að heimamenn jöfnuðu og
átti Friðrik ekki möguleika að
koma í veg fyrir það mark.
Eitthvað sljákkaði í Tyrkjum
við markið, en þeir reyndu þó
ítrekað að knýja fram sigur.
íslendingar fengu þó tvö ágæt
marktækifæri áður en yfir lauk.
Þar var á ferðinni Halldór
Áskelsson, sem kom inn á sem
varamaður fyrir Pétur Arnþórs-
son. En knötturinn vildi ekki inn,
hvorugum megin, og jafntefli var
staðreynd. Á heildina litið geta
íslendingar verið ánægðir með
þau úrslit.
Ekki verður það af Tyrkjunum
skafið að þeir spila léttan og leik-
andi bolta, en sú aðferð gekk
ekki upp gegn íslendingum. Þeir
treysta of mikið á sinn besta
leikmann, Savaz, því þótt hann
sé góður er hann enginn Mara-
dona.
Vörnin var aðall íslenska liðs-
ins að þessu sinni. Sævar, Atli og
Guðni mynduðu brynju sem
Tyrkjunum tókst ekki að brjóta
og átti t.d. Guðni varla feilspor í
þessum leik. Ólafur Þórðarson
barðist vel í leiknum og dreif
félaga sína áfram. Ekki bar mikið
á Gunnari Gíslasyni eða Arnóri
Guðjohnsen í leiknum, en þeir
skiluðu þó hlutverki sínu ágæt-
lega. Halldór Áskelsson lék síð-
ustu tíu mínúturnar og með smá
heppni hefði hann getað skorað
eitt mark.
íslendingarnir halda nú til
Berlínar þar sem þeir mæta A.-
Þjóðverjum eftir viku í næsta leik
í heimsmeistarakeppninni.
ingu hans verður.
Sem fyrr sagði ræddi Sigurður
við fleiri snjalla þjálfara og ef fer
sem horfir munu Þórsarar mæta
til leiks að vori með erlendan
þjálfara við stjórnvölinn. -KK
Einar Arason hefur lýst því yfir aö hann sé hættur. E.t.v. skiptir hunn um
skoðun ef Þórsarar fá júgóslavneskan þjálfara.
Ætíum að hefna
l'yrir tapið
66
- segir Gunnar Gíslason
Gunnar Gíslason landsliðs-
maður var ánægður með jafn-
teflið gegn Tyrkjum þegar
Dagur sló á þráðinn til hans til
Tyrklands í gær. „Þeir hafa
unnið Grikki og A.-Þjóðverja
3:1 í síðustu leikjum, þannig
að við getum verið sáttir við
þessi úrslit,“ sagði Gunnar
þreyttur en ánægður eftir leik-
inn.
Gunnar sagði að góð stemmning
væri í liðinu fyrir leikinn gegn
A.-Þjóðverjum. „Við ætlunr að
hefna fyrir 6:0 tapið í seinasta
leik gegn þeim. Við ætlum að
spila varnarleik og treysta á
skyndisóknir, enda sýndi það sig
í þessum leik gegn Tyrkjum að
það er okkar sterkasta hlið,“
sagði Gunnar í samtali við
blaðið.
í blaðinu á morgun verður
viðtal við Gunnar þar sem hann
segir frá samningi sínum við 1.
deildarliðið Heken í Svíþjóð, en
hann mun spila með þeim á næsta
ári.