Dagur - 13.10.1988, Qupperneq 16
TEKJUBREF• KJARABREF
®L
FJARMAL ÞIN - SERGREIN OKKAR
rFjÁRFESnNGARFÉLAGID
Ráðhústorgi 3, Akureyri
Sláturhús KS:
Sauðfjárslátrun
lýkur í dag
- fallþungi dilka svipaður og í fyrra
Sauðfjárslátrun hjá Sláturhúsi
Kaupfélags Skagfirðinga lykur
í dag, fimmtudag. Sláturtíð
gekk mjög vel og var um 33
þúsund dilkum slátrað, full-
orðið í kringum 2 þúsund
Norðurland vestra:
Kennarar
þinga á
Siglufirði
Haustþing og aðalfundur
KSNV, Kennarasambands
Norðurlands vestra, hefst á
Siglufirði í dag, fimmtudag, og
lýkur á morgun. Auk aðal-
fundarstarfa, verður meginmál
þingsins kynning á nýju aðal-
námsskránni sem námsstjórar
menntamálaráöuneytisins
munu sjá um. Búist er við
mjög góðri þátttöku á þingið
og hafa rúmlega 200 kennarar
skráð sig. Frí verður gefíð í öll-
um grunnskólum kjördæmisins
þá tvo daga sem þingið stendur
yfír.
Kynning á nýju aðalnáms-
skránni verður meginefni fyrri
daginn og seinni daginn munu
námsstjórar vera með umfjöllun,
hver í sínu fagi. Geta kennarar
valið á milli hópa, eftir því hvaða
aðal fag þeir kenna, og verður úr
nógu að velja. Árshátíð KSNV
verður svo haldin að kvöldi
fimmtudagsins.
Haustþingið er árviss viðburð-
ur og er haldið í samvinnu KSNV
og Fræðsluskrifstofu Norður-
lands vestra á Blönduósi. -bjb
rollur. Meðalfallþungi dilka
var um 14,4 kg, sem er svipað
og í fyrra. I úrvalsflokk, sem er
nýr flokkur, fóru rúmlega 9%
dilkanna.
Nýjung Sláturhúss KS í tækni-
búnaði, vélmennið fræga frá Nor-
egi, sem fengið var í fláninguna
reyndist víst ekki eins og best var
á kosið. „Við vitum ekki ennþá
hvað við gerum við það, hvort
við sendum það til baka eða not-
um það aftur næsta ár. Menn
vissu ekkert út í hvað þeir voru
að fara þegar vélmennið var
fengið. Ég held að sé allt í lagi
með það, en það kom það seint
inn í sláturtíðina að við gátum
farið að nota það að fullu. Við
vorum líka það vel mannaðir,
það var hörku starfsfólk hérna,“
sagði Árni.
Slátursala hjá Sláturhúsi KS
gekk mjög vel, eins og víðast
hvar annars staðar. „F>að var
topp slátursala, og við höfum
ekkert þurft að hlaupa í önnur
sláturhús til fá slátur, við höfum
getað framleitt ofan í okkur
sjálf,“ sagði Árni ennfremur.
Slátrun hjá Slátursamlagi
Skagfirðinga lýkur að öllum lík-
indum nk. þriðjudag, en þar hef-
ur sláturtíð gengið vel að sögn
Smára Borgarssonar sláturhús-
stjóra. -bjb
Uppistöður handriðsins austan við sundlaugarbygginguna eru að tærast í sundur og á innfclldu myndinni má sjá
að það er komið í sundur og er svo á a.m.k. þremur stöðum. Myndir: gb
Slysagildra við Andapollinn
- handrið að niðurlotum komið
Gestir sundlaugarinnar á
Akureyri og velunnarar
AndapoIIsins hafa vafalítið
tekið eftir því, að handrið
meðfram gangstétt austan við
sundlaugarbygginguna er í
bagalegu ástandi. Uppistöður
eru tærðar í sundur á a.m.k.
þremur stöðum auk þess sem
þær eru ilia farnar víðar.
Kunnugir segja að þarna sé
komin hin versta slysagildra,
þar sem það gæti hæglega látið
undan fólki sem hallar sér upp
að því t.d. þegar öndunum er
gefið. Nú sé svo komið að tveir
menn gætu hæglega hrist hand-
riðið niður.
Dagur hafði samband við
Stefán Stefánsson bæjarverk-
fræðing og sagði hann það liggja
fyrir að gera þarf við handriðið.
í skoðun væri hvort ekki sé til-
tækt að gera það og hvernig það
verði gert. „Væntanlega verður
það lagfært á þessu stigi en ekki
sett nýtt strax. Það er alveg ljóst
að bæta þarf úr þessu sem allra
fyrst, a.m.k. til bráðabirgða.“
Áðspurður um hvort vænta
mætti viðgerða fljótlega, sagðist
hann vona að svo yrði. VG
Akureyri:
Vesælt atvinnuástand í iðnaði
„vona að botninum sé náð,“ segir formaður Iðju
Ef fram fer sem horfír, mun
iðnaðarbærinn Akureyri ekki
lengi rísa undir nafni. Atvinnu-
ástand er víða slæmt og horfur
ekki góðar. Hjá Iðju félagi
verksmiðjufólks eru nú rúm-
lega 20 manns á atvinnuleysis-
skrá og félagsmönnum hefur
, Lítur Listaháskóli
Islands dagsins ljós?
- vinnuhópur skipaður er samræma skal frumvörp
um háskóla í listgreinum í eitt
Um nokkurt skeið hafa frum-
vörp um háskóla í myndlist,
tónlist og leiklist verið að
velkjast um í kerfínu. Eitt
þeirra, frumvarp um Tónlistar-
háskóla íslands, var lagt fram á
Alþingi síðastliðið vor. Nú hef-
ur verið ákveðið í mennta-
málaráðuneytinu að vinna
þessi frumvörp saman með
hliðsjón af því að stofnaður
verði Listaháskóii Islands og
verði áðurnefndar greinar þar
meginstoðirnar í upphafí.
„Að mínu áliti getur verið já-
kvætt að hafa vissa samræmingu
þarna á miili greina þannig að
réttur nemenda í þessum list-
greinum sé tryggður og viss sam-
ræming sé á milli viðurkenningar
á þeim prófum sem slíkur skóli
mundi veita. Þess vegna er ég alls
ekki frá því að slíkur skóli geti átt
rétt á sér, sérstaklega þegar við
horfum til smæðar okkar þjóðfé-
lags. Skólar sem þessir eru algeng-
ir erlendis og margir mjög virtar
stofnanir,“ segir Jón Hlöðver
Áskelsson, skólastjóri Tónlistar-
skólans á Akureyri, um hug-
myndina að Listaháskóla íslands.
Skipaður hefur verið vinnu-
hópur sem fjalla á um málið og
eiga sæti í honum þrír fyrrver-
andi menntamálaráðherrar. Þeir
eru Gylfi Þ. Gíslason, Ingvar
Gíslason og Ragnar Arnalds sem
jafnframt er formaður nefndar-
JÓH
mnar.
fækkað þar um rúmlega 150
frá því þegar best lét.
„Ég myndi segja að ástandið
væri vesælt þessa stundina en er
þó að halda í þá von að botninum
sé náð,“ sagði Kristín Hjálmars-
dóttir formaður Iðju í samtali við
blaðið.
Hún sagði að starfsfólki hafi
fækkað mikið í skinnaiðnaðin-
um, en þar hafði verið fjölgað
mikið um tíma. í ullariðnaðinum
hefur sömuleiðis orðið mikil
fækkun starfsfólks. „Ég vona að
ný stjórnvöld skoði þessi mál því
iðnaðurinn hefur oftast setið á
hakanum. Svo er það eitt sem lít-
ið hefur verið rætt um en er
alvarlegt mál og það er staðan á
Bjargi. Þar er mjög lítið um verk-
efni fyrir fatlaða fólkið og þó
nokkrir aðilar hafa misst vinnu.
Þetta fólk gengur ekki í hvaða
vinnu sem er.“ Hún sagði mál
Bjargs spurningu um stjórnvalds-
aðgerðir varðandi tollamál og
annað, til þess að iðnin verði á ný
samkeppnishæf. Mál iðnaðarins
verði að skoða, ekki bara á
Akureyri heldur um land allt.
Saumastofur hafi verið lagðar
niður um allt land og væri það
stór blóðtaka fyrir sveitarfélög.
„Ef við stöndum frammi fyrir því
innan tíðar að geta ekki framleitt
eina einustu flík og þurfum að
flytja allt inn, er ástandið slæmt.“
VG
Núpur ÞH seldur frá Grenivík
Línubáturinn Núpur ÞH 3 hef-
ur verið seldur frá Grenivík.
Báturinn var seldur vegna erf-
iðrar lausafjárstöðu Kaldbaks
hf. á Grenivík, en að sögn
framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins hefur mestallt eigið fé fyrir-
tækisins étist upp frá áramót-
um.
Kaupandi Núpsins er Ingvar
Gunnarsson, útgerðarmaður á
Eskifirði, en hann átti áður bát-
inn Vött SU. Vöttur var seldur
Eldey hf. fyrr á þessu ári.
Jóhann Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri Kaldbaks hf., sagði
að forsvarsmenn fyrirtækisins
væru nú að svipast um eftir öðru
skipi í stað Núpsins, en með
Núpnum fór 630 tonna kvóti.
Ekki er hægt að greina frá sölu-
verði skipsins að svo stöddu.
Jóhann sagði að hráefnis til
frystihússins á staðnum yrði aflað
með heimabátunum á Grenivík.
„Við förum að skoða ódýrara
dæmi, við erum með ákveðið
skip í sigtinu en skýrum ekki nán-
ar frá því í bili,“ sagði hann.
Núpur ÞH 3 er um 30 metra
langur og 182 brúttólestir, smíð-
aður í Póllandi árið 1976. Hann
var fyrstur íslenskra skipa útbú-
inn með línubeitningarsamstæðu
að færeyskri fyrirmynd. EHB