Dagur - 28.10.1988, Síða 4

Dagur - 28.10.1988, Síða 4
4 - HKSÓH = MPól<tölíer ?9ͧ ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 70 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, FRlMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRjMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Hámark hræsninnar Með sameiginlegu átaki tókst stórveldunum tveimur, Bandaríkjunum og Sovétríkjunum að bjarga tveimur hvölum, sem innlyksa höfðu orðið í ís við strendur Alaska. Ef marka má fréttir, fylgdist bandaríska þjóðin spennt með framvindu mála og hvalirnir áttu óskerta samúð hennar. Sama var uppi á teningnum í fleiri menningarlöndum, fréttir af hvölunum tveimur skipuðu veglegan sess í öllum helstu fréttamiðlum. Svo langt gekk þessi enda- leysa, að Reagan Bandaríkjaforseti fann hjá sér þörf til að hafa bein afskipti af þessu afkáralega hvalamáh, - ekki einu sinni, heldur tvisvar. Allt umstangið vegna björgunar hvalanna tveggja leiðir hugann að því hvernig komið er fyrir mörgum þessara svokölluðu menningar- þjóða. Með markvissri áróðurstækni virðist hægt að svipta fólk rökhugsun og telja því trú um nánast hvað sem er. Þannig virðast er- lendir sjónvarpsáhorfendur trúa því statt og stöðugt að stórveldin tvö séu svo umhverf- isverndarsinnuð að þau séu tilbúin til að leggja í stórfelldan kostnað til að bjarga tveimur hvölum frá dauða. Kostnaðurinn við fyrrnefndar björgunaraðgerðir nemur nú þeg- ar a.m.k. 47 milljónum íslenskra króna. Hvaða umhverfisverndarsinni sem er hlýtur að viðurkenna að þarna er um að ræða óafsakan- lega sóun á almannafé. Þessi sameiginlega björgunaraðgerð stórveldanna er svívirðilegt dæmi um hræsni og sýndarmennsku. Erlend- ar sjónvarpsstöðvar hafa væntanlega ekki getið þess að sandlægjurnar tvær - en það er tegundaheiti hvalanna - eru einungis einn hundraðshluti þess magns sandlægja, sem Sovétmenn veiða á ári hverju. Væntanlega hefur ekki heldur verið vakin athygli á því að stórveldin tvö losa stórkostlegt magn geisla- virkra úrgangsefna í sjó á ári hverju, og eru beinlínis ábyrg fyrir ýmsum öðrum athöfnum, sem beinlínis gagna í berhögg við stefnumið umhverfisverndarsinna. Væntanlega hafa fáir séð samhengið milli beinna afskipta Ronalds Reagans af þessu máli og þeirri staðreynd að forsetakosningar í Bandaríkjunum eru á næsta leyti. Með framferði sínu hefur Reagan eflaust útvegað Rebúblikönum ódýra og áhrifaríka auglýsingu á bandarískan mæli- kvarða - með umhverfisvernd að yfirskini. Hvernig sem á mál þetta er litið er það dæmi um hversu langt er hægt að ganga í hræsni og tvískinnungshætti. BB. á góðum degi Fréttamenn nútímans njóta mikillar hylli almennings, ekki síður en fyrirrennarar þeirra. Fjölmiðlar fyrr og nú Undanfarnir dagar hafa ein- kennst af þvílíkri veðurblíðu hér á Akureyri, að ætla mætti að um vorkomu en ekki vetur væri að ræða. Þessi fallegi bær hér úti við hið nyrsta haf skartar fallegum haustlitunum í logni og geislum sólar. Á sama tíma heyrum við af enn einum fellibylnum sem æðir yfir höf og lönd úti í hinum stóra heimi. Jóhanna, en það hafa menn nefnt þennan ógnvald, sem æðir áfram með allt að 200 km hraða á klst., skilur eftir sig eyði- leggingu og jafnvel dauða á þeim svæðum sem hann nær að fara yfir með fullum krafti. Áður hétu þessir fellibylir alltaf kven- mannsnöfnum, en nú hefur jafn- réttisbaráttan náð til þeirra líka svo að þeir bera nú einnig karla- nöfn. Á þessum haustmánuðum er mikið rætt um að farið sé að harðna á dalnum, atvinnutæki- færum fækki og sumir tala jafnvel um kreppuástand. Frá Reykjavík berast einnig þær fréttir að eftir- spurn eftir íbúðarhúsnæði hafi minnkað verulega og að í kjölfar þess gæti verð á íbúðum þar e.t.v. lækkað. Ég gerði mér það til gamans eitt kvöldið að hlusta nokkuð gaumgæfilega á þrjá fréttatíma sem koma hver á eftir öðrum. Hinn fyrsti var Ríkis- útvarpið kl. 19 með 16 frétta- atriði, síðan Stöð 2 með 12 atriði + fréttaskýringar í 19.19 og að lokum Sjónvarpið með 15 atriði. Það merkilegasta við þessa litlu könnun mína fannst mér vera, hve frábrugðnar fréttirnar voru og misjafnlega tilreiddar á þess- um stöðum. Eina máiið sem allar stöðvarnar lögðu mikla áherslu á, og var reyndar númer eitt á þeim öllum, var hvalamálið svokall- aða: Hvort láta eigi undan þrýst- ingi að utan og hætta hvalveiðum eða ekki. Svo ég taki dæmi um áherslur á hinar ýmsu fréttir, þá kom í ljós að Ríkisútvarpið var með tap íslendinga gegn A.- Þjóðverjum í knattspyrnu sem sína 13. frétt, en Sjónvarpið með þessa sömu frétt númer 4. Að öðru leyti voru fréttirnar mjög ólíkar á þessum stöðvum og hvergi nærri þær sömu á þeim öllum. Þetta sannar það hve ólíkt gildismat okkar er á því hvað okkur þykir fréttnæmt. Það sem einkennir hinar erlendu fréttir mest í dag, er hve fljótt þær ber- ast okkur, stundum það fljótt að fréttamönnum vinnst ekki tími til Auðunn Blöndal skrifar að setja íslenskan texta við þær áður en þær eru sendar út á öld- um ljósvakans. Hér áður fyrr fékk fólk ekki fréttir af stórviðburðum fyrr en kannski vikum eða jafnvel mán- uðum eftir að tíðindin gerðust. Oft var þá eini fréttamiðillinn gestur eða jafnvel einhver umrenningurinn sem flæktist um landið. Margir þeirra voru hinir mestu aufúsugestir, sérstaklega ef þeir gátu kveðið rímur, spilað á langspil eða höfðu frá einhverju fréttnæmu að segja. Þetta fólk var þá bæði skemmtikraftar og fréttamenn þessa tíma. Ekki þótti amalegt ef slíkan gest bar að garði á kvöldvökunum, þá var oft setið í gömlu baðstofunum við grútarlampa og meðan ull var kembd og spunnin, hlustuðu allir á aðkomumann ef hann hafði frá einhverju að segja, ekki ósvipuð stemmning og þegar við í dag sitjum stjörf framan við sjón- varpstækin og njótum þess sem þar fer fram. Sumar þær sögur sem sagðar voru á kvöldum þessum lifa enn í dag, svo sem sögur af „Mórum og Skottum" og alls kyns kynja- kvikindum. A öndverðri 18. öld var þessi frásögn höfð eftir Þor- láki Markússyni sýslumanni: „í því fljóti, Lagarfljóti, segja menn vera skuli þrjú vatnsskrímsli, sem er einn ormur, tveggja og hálfrar mílu langur, og hafa sannorðir menn á þessum dögum sagt sig hafa séð hann grannt, þó í bugtum, en ekki höfuð né sporð. Hann skal sig ekki láta sjá, nema fyrir stórum fyrirburðum, mikl- um sjúkdómum, landplágum, stórherradauða eður þvílíku. Annað er ein skata með níu hölum. Hún lætur sig ekki oft sjá, heldur liggur við grunnið, utan það merki nokkuð sérlegt. Það þriðja er einn hræðilega stór selur, sem heldur sig undir einum fossi og sést sjaldan sem skatan. Hann skal hafa millum sinna augna einn búsk, sem er einn skógar- búskur eða lyng. Hvaða slags svoddan skepnur eru, vita menn ekki, en geta þó til, að eigi for- giftug séu.“ Sumir þessara áðurnefndu gesta fluttu stundum fréttir sem heyrðu undir „nýjustu tækni og vísindi“ þessa tíma. Um líkt leyti og yfirlýsing sýslumannsins um Lagarfljótsskrímslin barst um sveitir kom frétt héðan úr Eyja- firði um nýstárlegt farartæki sem maður nokkur héðan úr sýslunni hafði hannað og smíðað. Sumir nefndu þetta skip, sem var þó frábrugðið öðrum skipum að því leyti, að því var siglt á þurru landi, þetta var því í rauninni seglsleði með sætum fyrir þrjá til fjóra menn. Misjafnir voru fréttamenn þessir, bæði hvað skemmtilegheit og áreiðanleika fréttaflutningsins varðaði, líkt og er hjá hinum ýmsu fjölmiðlum í dag. Oft spunnu þeir upp sögur sjálfir eða höfðu eftir öðrum sem fóru óvar- lega með sannleikann. Eftirfarandi frásögn er höfð eftir Luðvík Holberg: „Menn, er koma af löngum ferðum, fyrirverða sig ekki fyrir að segja hinar ótrúlegustu skrök- sögur, og ef menn andæfa þeim, segjast þeir geta svarið, að þetta sé dagsatt. Einu sinni sagði mér kaupmaður, sem verslaði á ís- landi, að hann hefði séð íslending taka af sér skóna og stýfa þá úr hnefa eins og pönnuköku. Ég hristi höfuðið til merkis um, að ég tryði þessu ekki, en hann lagði eið út á það, að sagan væri sönn. Þá varð ég að þagna.“ Margar þessar sagnir sem gengu manna á milli á þessum árum eru þó sannar og eru varð- veittar í annálum. Sumar fjalla um fádæma karlmennsku og mannraunir. Rétt eftir árið 1700, fór fátækur maður héðan úr Eyjafirði og ætlaði heiðar, suður í Borgarfjörð. Maðurinn villtist á leiðinni og lá úti í tuttugu og fjög- ur dægur. Komst að lyktum til byggða austur í Skaftártungu, kalinn og máttfarinn af hungri og vosbúð, en lifði af þvílíka ferð. Já margt var skrafað á kvöld- vökunum í gamla daga og fólk þyrst í fréttir og tilbreytingu. Við sjáum á skoðanakönnunum í dag að eðlið í okkur er hið sama, fréttatímar útvarps og sjónvarps eru vinsælasta dagskrárefnið ásamt íslensku skemmtiefni.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.