Dagur - 28.10.1988, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - 28. október 1988
Minning:
'Y Jóhanna Guðmundsdóttir
kennari frá Lómatjörn
Fædd 25. febrúar 1902 - Dáin 11. október 1988
Þegar aldamótakynslóðin var að
stíga sín fyrstu spor í þessum heimi
var flest með öðrum hætti en nú.
Fæstir sem nú lifa munu gera sér þess
fulla grein. Harðindi fyrri alda voru
fyrir skömmu um liðin, og landið og
lífskjörin mörkuð djúpum sporum
þeirra. En það var ein þjóð í landinu,
ein rótgróin menning. Prátt fyrir
fátækt og harða lífsbaráttu voru
þetta tímar hugsjóna og bjartsýni,
því að landið var „í dögun af annarri
öld“. Unga fólkið á þessum árum ólst
upp við hugsjónir frelsis og framfara,
ásamt því lífsviðhorfi að manngildi
væri ofar öðrum gildum. Strax á unga
aldri hlaut þetta fólk að taka þátt í
harðri lífsbaráttu á landi og sjó. Þótt
margir hefðu brennandi löngun til að
afla sér menntunar, voru leiðir til
þess flestum lokaðar og ærið torsótt-
ar þeim sem engan stuðning áttu
vísan. Ekki síst hlaut þetta að eiga
við um konur, því að almennt við-
horf til menntunar þeirra var mjög á
aðra lund en nú á tímum.
Við eldhúsborðið í fallegu íbúð-
inni hennar Jóhönnu við Reynimel-
inn sagði hún mér stundum, öldruð
kona, eitt og annað frá bernsku sinni
og æsku. Hún ólst upp í stórum,
glaðværum systkinahópi þar sem
sönglist var í hávegum höfð, og for-
eldrar hennar, hjónin Valgerður Jó-
hannesdóttir og Guðmundur Sæ-
mundsson á Lómatjörn, réðust í að
eignast orgel til þess að börnin gætu
lært á hljóðfæri. Það lærði Jóhanna
svo vel að hún var um skeið organisti
í Laufás- Og Grenivíkurkirkju. í hug-
anum bregður fyrir svipmyndum af
daglegu lífi fyrri tíma. Lítil stúlka er
um tíma barnfóstra á næsta bæ, þar
sem er skrautleg stássstofa, og vinnu-
fólkið situr ekki til borðs með hús-
bændum. Barnfóstran er hins vegar
þeirrar náðar aðnjótandi, og ekki gat
hún annars en allir hefðu verið sér
góðir. Húsmóðirin, dökk yfirlitum
og dularfull eins og álfkona, gengur
með henni bæjarleiðina heim á
kvöldin. Um fermingu er hún send
með báti yfir Eyjafjörð til aðstoðar á
heimili þar sem húsmóðirin, frænka
hennar, er veik. Hún kemur þarna
ókunn að ströndinni, kvíðir því að
fara að heiman, og að sér muni ekki
takast að rata ein til bæjar. Það tekst
þó, og allt fer þetta henni vel úr
hendi. Síðar er hún, ung stúlka,
kaupakona á stórbýli inni í Eyjafirði.
Þá var aldarandinn sá að konurnar,
þreyttar eftir langan vinnudag, urðu
að hirða sokka og plögg karlmann-
anna, sem þá máttu hvíla sig að
loknu dagsverki. Samt fengu þær
helmingi lægra kaup. Þetta var
sumarið þegar amma hennar dó.
Ekki þarf að leiða að því getum að
ungu rakstrarkonunni hafi verið
þungt um hjartarætur þegar henni
var neitað um leyfi til að vera við
útför ömmu sinnar. Svona var
bændamenningin stundum.
Allt frá bernsku hafði Jóhanna
óslökkvandi löngun til náms, en ekki
stóðu margar leiðir opnar fátæku
æskufólki í þá daga. Engu að síður
fer norðanstúlkan suður, eins og
önnur norðanstúlka síðar, og sagt er
frá í frægri bók. Og þær áttu fleira
sameiginlegt en að fara suður. Báðar
vissu þær án alls efa að þær voru líka
fólk. Að fara suður á þessum árum
var tæpast minna fyrirtæki en það er
nú að fara í aðrar heimsálfur, því
ferðin tók eina þrjá daga.
Veturinn 1921-72 dvelur hún hjá
systur sinni sem búsett var í Reykja-
vík, og stundar nám í Kvennaskólan-
um. Áður hafði hún verið í unglinga-
skóla á Grenivík. Það urðu mörgum
ungmennum úr sveitum landsins
snögg umskipti að koma úr hreina
loftinu og ómenguðu umhverfi
heimabyggðanna til Reykjavíkur í þá
daga. Kaldur norðangjósturinn, sem
þyrlaði upp rykinu á götunum, var
ekki jafn heilnæmur og vindarnir
sem blésu inn Eyjafjörð. Áður en
Jóhanna gat lokið námi um vorið,
veiktist hún illa af brjósthimnubólgu,
sem hún átti lengi í, og varð að snúa
heim aftur. Þegar hún hefur náð sér,
tekur hún til við að vinna fyrir sér.
Hún vinnur um tíma á veitingahúsi, í
matvörubúð, á tannlæknastofu, og
um eins árs skeið í bókaverslun á
Akureyri. Hún er milli tvítugs og
þrítugs, ágætum gáfum gædd og fríð
sýnum, með gullinbjart hár um herð-
ar og sveipi yfir enni. Þetta er hið
gullna vor æskunnar, þegar öriög
vitja margra. Margur ungur sveinn
mun hafa horft til hinnar glæsilegu
stúlku. Samt vitja örlögin hennar í
fari þess, sem svíkur í tryggðum. Það
er þungt áfall og erfitt að bera. En í
upplagi Jóhönnu og allri gerð er
heilli kjarni en svo, að hún láti bug-
ast af andstreyminu eða leiðast af-
vega. Hún snýr sér aftur að náminu,
kemst í Kennaraskólann og lýkur
þaðan prófi vorið 1935. Hún kennir
við Miðbæjarskólann 1935-1936, og
síðan við Vogaskóla eftir að hann
tók til starfa. Það var gæfa hennar,
að starfið var henni ekki aðeins
brauðstrit, eða leið til þess að komast
af. Það var á hennar áhugasviði. Hún
hafði næman skilning á því, að hjá
þessum ungu nemendum náðist best-
ur árangur í skólastofunni ef námið
tengdist leik. Hún varði einnig
ómældum tíma og fyrirhöfn í að setja
með börnunum upp leiksýningar
með söngvum og dönsum.
Á þessum árum voru miklu færri
konur en karlar í kennslustörfum, en
launin voru jöfn, og þóttu allgóð eftir
því sem þá gerðist. Margir létu því
staðar numið er þessum áfanga var
náð. En ekki Jóhanna. Hún fór á
kennaranámskeið í Askov 1938, og
enn, rúmum hálfum öðrum áratug
síðar, árið 1954-’55, stundar hún
nám við Kennaraháskólann í Kaup-
mannahöfn. Að loknu námi þar fýsir
hana að skoða sig betur um í heimin-
um, og bregður sér til Parísar áður
en hún heldur heimleiðis. Á hverju
sumri er hún fékk því við komið öll
þessi ár eftir að hún fór að heiman,
vitjaði hún átthaganna fyrir norðan,
sem henni voru mjög kærir, og
dvaldist þar meðal skyldmenna.
Eins og flestir þeir sem á námsár-
um og fyrstu starfsárum þurftu að
sæta því að leigja sér húsnæði, réðst
Jóhanna eins fljótt og henni var unnt
í að eignast eigin íbúð. Það tókst
henni með hagsýni og ráðdeild. Ekki
tók hún þann kostinn að velja það
sem ódýrast var. Þær íbúðir sem hún
eignaðist voru í nýjum húsum, stórar
og glæsilegar, því hún hafði yndi af
að safna saman vinum og vanda-
mönnum á afmælum og tyllidögum.
Eins var það með húsgögnin og aðra
muni. Af meðfæddri smekkvísi valdi
hún aðeins það vandaðasta. Heimili
sitt prýddi hún með fallegri, fíngerðri
handavinnu.
Ekki mjög löngu eftir að Jóhanna
lét af kennslu við Vogaskóla, seldi
hún fallegu íbúðina sína í Álfheim-
um, og flutti í vesturbæinn. Þar var
hún nær skyldfólki sínu, og þaðan
var styttra að sækja tónleikana í
Háskólabíói, sem voru hennar líf og
yndi. Skömmu áður en hún flutti úr
Álfheimum brá hún sér í langt ferða-
lag, alla leið til Kaliforníu að heim-
sækja systurson sinn sem þar býr og
bauð henni til sín. Sú ferð varð henni
til mikillar ánægju og gleði, og lengi
minntist hún framandi, ævintýralegra
staða sem hún fékk að skoða.
Eftir að Jóhanna lét af störfum
sem kennari, sat hún ekki auðum
höndum. Áhugamálin voru mörg, en
mesta ánægju hafði hún af því að
skrifa. Fjörugt hugmyndaflugið leit-
aði þangað sem birtu brá yfir lönd
bernskunnar, og myndir stigu fram,
ein af annarri, eins og ósjálfrátt. Hún
skrifaði á stuttum tíma nokkrar
barna- og unglingasögur sem lesnar
voru í útvarp, og ein þeirra, Systurn-
ar í Sunnuhlíð, var gefin út hjá
Skjaldborg árið 1981. Einnig þýddi
hún unglingabók, ágæta sögu, sem
gerist í Afríku. Hún kom út hjá sama
forlagi 1982. Það var því þungbært
fyrir Jóhönnu er sjónin tók að dvína
svo að hún átti örðugt með að skrifa
og lesa. Hún var með margar sögur í
huganum. Þá var gott að áhugaefnin
voru fleiri. Hún sótti leikhús og tón-
leika eins og hún hafði alltaf gert, og
fram til hins síðasta, í fjötrum þung-
bærra veikinda, mátti sjá að góð
tónlist úr útvarpi náði eyrum hennar.
Hinir miklu meistarar klassískrar
tónlistar, svo sem Mozart, og þó
einkum sjálfur Bach, stóðu huga
hennar næst. Sálirnar dragast að
þeim hljómaheimi sem þær eru
skyldastar. Ef einhverjar leiðir liggja
frá þeirri ókunnu strönd sem hana
hefur nú borið að, mun hún eflaust
einnig þar finna þá réttu.
Ragnheiður H. Vigfúsdóttir.
„Fölnuð er liljan og fölnuð er rós.“
Þessi ljóðlína kom í hug mér, er ég
leit Jóhönnu systur mína, í hinsta
sinn. í huga minn koma myndir, frá
bernskudögum, myndir af henni í
blóma lífsins, af fallegri stúlku, með
glóbjart hár, sem tók í mittisstað.
Myndir af henni, við orgelið, í kirkj-
unni okkar í sveitinni heima, og
margar margar fleiri.
Jóhanna systir var fædd á Hlöðum
á Grenivík 25. febrúar 1902. Foreldr-
ar okkar voru Valgerður Jóhannes-
dóttir, Jónssonar prests Reykjalíns á
Þönglabakka í Fjörðum og Guð-
mundur Sæmundsson, frá Gröf í
Eyjafirði, sem þá var útvegsbóndi á
Hlöðum, býli, sem hann hafði byggt
upp frá grunni.
1903 fluttist hún með fjölskyldunni
að Lómatjörn í Höfðahverfi og þar
ólst hún upp í okkar glaðværa syst-
kinahópi, sem varð allfjölmennur, 11
urðum við og komumst öll til fullorð-
insára, þótt stundum þætti okkur
nokkuð þröngt í baðstofunni heima.
Jóhanna var snemma mjög námfús
og barnaskólinn, sem staðsettur var á
heimili okkar, hluta úr vetri, ár
hvert, var kærkominn og nýttist vel.
Síðar sótti hún unglingaskóla og
lærði á hljóðfæri, svo hún varð org-
anisti í kirkjunum í sveitinni. Hún
var söngelsk, með afbrigðum, eins og
hún átti kyn til, söng í kórum, bæði
heima í sveitinni og í Reykjavík og
fram á elliár sótti hún tónleika og
leikhús, í höfuðborginni, sér til gleði
og ánægju.
Hún útskrifaðist úr Kennaraskól-
anum 1935, var síðan barnakennari
við þrjá skóla í Reykjavík, þar til
hún lét af störfum 1968, var þá búin
að gangast undir stóran uppskurð og
heilsunni farið að hraka. Hún þótti
góður kennari, lagði sig mjög fram
um að veita nemendum sínum hið
besta veganesti, í náminu. Á
kennaraferli sínum hélt hún tvívegis
í Danmerkur, til framhaldsnáms,
bæði í Askov og einnig í Kennara-
háskólanum í Kaupmannahöfn, svo
af því má marka áhuga hennar og
skyldurækni við starf sitt. Hún lést á
Landakotsspítala ellefta október sl.
og var jarðsungin frá Neskirkju í
Reykjavík 20. s.m.
Áð síðustu þakka ég henni, fyrir
það, sem hún var mér, góð og trúföst
systir og bið henni blessunar á nýjurn
tilverustigum.
„Fölnuð er liljan og fölnuð er rós.“
Blessuð sé þín minning, kæra systir.
Sigríður Guðmundsdóttir Schiöth.
Viö seljum
norska
ullargarniö
frá
Poorí|i|iit n
HELE LAIMDETS SPORTSGARIM n*ll ll\ tlll
Úrval lita
og uppskrifta!
SlMI
(96)21400
AKUREYRARB/ER
Fóstrur - Fóstrur!
Nú er tækifærið
Dagvistardeild Félagsmálastofnunar Akureýr-
ar auglýsir eftir hverfisfóstru fyrir Innbæ, Eyri
og Brekkuna.
Starfiö veitist frá 15. nóvember n.k.
Skriflegar umsóknir er greina frá nafni, menntun
og starfsreynslu sendist dagvistardeild Eiðsvalla-
götu 18, fyrir 10. nóvember.
Allar nánari upplýsingar veittar í síma 24600 alla
virka daga frá kl. 10-12.
Dagvistarfulltrúi.
FRAMSÓKN ARMEN N
AKUREYRl
Framsóknarfélag Akureyrar
Fundur í Hafnarstræti 90 mánudaginn 31. október kl.
20.30.
Fundarefni:
Bæjarmál og væntanlegt kjördæmisþing.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.