Dagur - 28.10.1988, Page 14

Dagur - 28.10.1988, Page 14
14 - DAGUR - 28. október 1988 Minning: 'Y Jóhanna Guðmundsdóttir kennari frá Lómatjörn Fædd 25. febrúar 1902 - Dáin 11. október 1988 Þegar aldamótakynslóðin var að stíga sín fyrstu spor í þessum heimi var flest með öðrum hætti en nú. Fæstir sem nú lifa munu gera sér þess fulla grein. Harðindi fyrri alda voru fyrir skömmu um liðin, og landið og lífskjörin mörkuð djúpum sporum þeirra. En það var ein þjóð í landinu, ein rótgróin menning. Prátt fyrir fátækt og harða lífsbaráttu voru þetta tímar hugsjóna og bjartsýni, því að landið var „í dögun af annarri öld“. Unga fólkið á þessum árum ólst upp við hugsjónir frelsis og framfara, ásamt því lífsviðhorfi að manngildi væri ofar öðrum gildum. Strax á unga aldri hlaut þetta fólk að taka þátt í harðri lífsbaráttu á landi og sjó. Þótt margir hefðu brennandi löngun til að afla sér menntunar, voru leiðir til þess flestum lokaðar og ærið torsótt- ar þeim sem engan stuðning áttu vísan. Ekki síst hlaut þetta að eiga við um konur, því að almennt við- horf til menntunar þeirra var mjög á aðra lund en nú á tímum. Við eldhúsborðið í fallegu íbúð- inni hennar Jóhönnu við Reynimel- inn sagði hún mér stundum, öldruð kona, eitt og annað frá bernsku sinni og æsku. Hún ólst upp í stórum, glaðværum systkinahópi þar sem sönglist var í hávegum höfð, og for- eldrar hennar, hjónin Valgerður Jó- hannesdóttir og Guðmundur Sæ- mundsson á Lómatjörn, réðust í að eignast orgel til þess að börnin gætu lært á hljóðfæri. Það lærði Jóhanna svo vel að hún var um skeið organisti í Laufás- Og Grenivíkurkirkju. í hug- anum bregður fyrir svipmyndum af daglegu lífi fyrri tíma. Lítil stúlka er um tíma barnfóstra á næsta bæ, þar sem er skrautleg stássstofa, og vinnu- fólkið situr ekki til borðs með hús- bændum. Barnfóstran er hins vegar þeirrar náðar aðnjótandi, og ekki gat hún annars en allir hefðu verið sér góðir. Húsmóðirin, dökk yfirlitum og dularfull eins og álfkona, gengur með henni bæjarleiðina heim á kvöldin. Um fermingu er hún send með báti yfir Eyjafjörð til aðstoðar á heimili þar sem húsmóðirin, frænka hennar, er veik. Hún kemur þarna ókunn að ströndinni, kvíðir því að fara að heiman, og að sér muni ekki takast að rata ein til bæjar. Það tekst þó, og allt fer þetta henni vel úr hendi. Síðar er hún, ung stúlka, kaupakona á stórbýli inni í Eyjafirði. Þá var aldarandinn sá að konurnar, þreyttar eftir langan vinnudag, urðu að hirða sokka og plögg karlmann- anna, sem þá máttu hvíla sig að loknu dagsverki. Samt fengu þær helmingi lægra kaup. Þetta var sumarið þegar amma hennar dó. Ekki þarf að leiða að því getum að ungu rakstrarkonunni hafi verið þungt um hjartarætur þegar henni var neitað um leyfi til að vera við útför ömmu sinnar. Svona var bændamenningin stundum. Allt frá bernsku hafði Jóhanna óslökkvandi löngun til náms, en ekki stóðu margar leiðir opnar fátæku æskufólki í þá daga. Engu að síður fer norðanstúlkan suður, eins og önnur norðanstúlka síðar, og sagt er frá í frægri bók. Og þær áttu fleira sameiginlegt en að fara suður. Báðar vissu þær án alls efa að þær voru líka fólk. Að fara suður á þessum árum var tæpast minna fyrirtæki en það er nú að fara í aðrar heimsálfur, því ferðin tók eina þrjá daga. Veturinn 1921-72 dvelur hún hjá systur sinni sem búsett var í Reykja- vík, og stundar nám í Kvennaskólan- um. Áður hafði hún verið í unglinga- skóla á Grenivík. Það urðu mörgum ungmennum úr sveitum landsins snögg umskipti að koma úr hreina loftinu og ómenguðu umhverfi heimabyggðanna til Reykjavíkur í þá daga. Kaldur norðangjósturinn, sem þyrlaði upp rykinu á götunum, var ekki jafn heilnæmur og vindarnir sem blésu inn Eyjafjörð. Áður en Jóhanna gat lokið námi um vorið, veiktist hún illa af brjósthimnubólgu, sem hún átti lengi í, og varð að snúa heim aftur. Þegar hún hefur náð sér, tekur hún til við að vinna fyrir sér. Hún vinnur um tíma á veitingahúsi, í matvörubúð, á tannlæknastofu, og um eins árs skeið í bókaverslun á Akureyri. Hún er milli tvítugs og þrítugs, ágætum gáfum gædd og fríð sýnum, með gullinbjart hár um herð- ar og sveipi yfir enni. Þetta er hið gullna vor æskunnar, þegar öriög vitja margra. Margur ungur sveinn mun hafa horft til hinnar glæsilegu stúlku. Samt vitja örlögin hennar í fari þess, sem svíkur í tryggðum. Það er þungt áfall og erfitt að bera. En í upplagi Jóhönnu og allri gerð er heilli kjarni en svo, að hún láti bug- ast af andstreyminu eða leiðast af- vega. Hún snýr sér aftur að náminu, kemst í Kennaraskólann og lýkur þaðan prófi vorið 1935. Hún kennir við Miðbæjarskólann 1935-1936, og síðan við Vogaskóla eftir að hann tók til starfa. Það var gæfa hennar, að starfið var henni ekki aðeins brauðstrit, eða leið til þess að komast af. Það var á hennar áhugasviði. Hún hafði næman skilning á því, að hjá þessum ungu nemendum náðist best- ur árangur í skólastofunni ef námið tengdist leik. Hún varði einnig ómældum tíma og fyrirhöfn í að setja með börnunum upp leiksýningar með söngvum og dönsum. Á þessum árum voru miklu færri konur en karlar í kennslustörfum, en launin voru jöfn, og þóttu allgóð eftir því sem þá gerðist. Margir létu því staðar numið er þessum áfanga var náð. En ekki Jóhanna. Hún fór á kennaranámskeið í Askov 1938, og enn, rúmum hálfum öðrum áratug síðar, árið 1954-’55, stundar hún nám við Kennaraháskólann í Kaup- mannahöfn. Að loknu námi þar fýsir hana að skoða sig betur um í heimin- um, og bregður sér til Parísar áður en hún heldur heimleiðis. Á hverju sumri er hún fékk því við komið öll þessi ár eftir að hún fór að heiman, vitjaði hún átthaganna fyrir norðan, sem henni voru mjög kærir, og dvaldist þar meðal skyldmenna. Eins og flestir þeir sem á námsár- um og fyrstu starfsárum þurftu að sæta því að leigja sér húsnæði, réðst Jóhanna eins fljótt og henni var unnt í að eignast eigin íbúð. Það tókst henni með hagsýni og ráðdeild. Ekki tók hún þann kostinn að velja það sem ódýrast var. Þær íbúðir sem hún eignaðist voru í nýjum húsum, stórar og glæsilegar, því hún hafði yndi af að safna saman vinum og vanda- mönnum á afmælum og tyllidögum. Eins var það með húsgögnin og aðra muni. Af meðfæddri smekkvísi valdi hún aðeins það vandaðasta. Heimili sitt prýddi hún með fallegri, fíngerðri handavinnu. Ekki mjög löngu eftir að Jóhanna lét af kennslu við Vogaskóla, seldi hún fallegu íbúðina sína í Álfheim- um, og flutti í vesturbæinn. Þar var hún nær skyldfólki sínu, og þaðan var styttra að sækja tónleikana í Háskólabíói, sem voru hennar líf og yndi. Skömmu áður en hún flutti úr Álfheimum brá hún sér í langt ferða- lag, alla leið til Kaliforníu að heim- sækja systurson sinn sem þar býr og bauð henni til sín. Sú ferð varð henni til mikillar ánægju og gleði, og lengi minntist hún framandi, ævintýralegra staða sem hún fékk að skoða. Eftir að Jóhanna lét af störfum sem kennari, sat hún ekki auðum höndum. Áhugamálin voru mörg, en mesta ánægju hafði hún af því að skrifa. Fjörugt hugmyndaflugið leit- aði þangað sem birtu brá yfir lönd bernskunnar, og myndir stigu fram, ein af annarri, eins og ósjálfrátt. Hún skrifaði á stuttum tíma nokkrar barna- og unglingasögur sem lesnar voru í útvarp, og ein þeirra, Systurn- ar í Sunnuhlíð, var gefin út hjá Skjaldborg árið 1981. Einnig þýddi hún unglingabók, ágæta sögu, sem gerist í Afríku. Hún kom út hjá sama forlagi 1982. Það var því þungbært fyrir Jóhönnu er sjónin tók að dvína svo að hún átti örðugt með að skrifa og lesa. Hún var með margar sögur í huganum. Þá var gott að áhugaefnin voru fleiri. Hún sótti leikhús og tón- leika eins og hún hafði alltaf gert, og fram til hins síðasta, í fjötrum þung- bærra veikinda, mátti sjá að góð tónlist úr útvarpi náði eyrum hennar. Hinir miklu meistarar klassískrar tónlistar, svo sem Mozart, og þó einkum sjálfur Bach, stóðu huga hennar næst. Sálirnar dragast að þeim hljómaheimi sem þær eru skyldastar. Ef einhverjar leiðir liggja frá þeirri ókunnu strönd sem hana hefur nú borið að, mun hún eflaust einnig þar finna þá réttu. Ragnheiður H. Vigfúsdóttir. „Fölnuð er liljan og fölnuð er rós.“ Þessi ljóðlína kom í hug mér, er ég leit Jóhönnu systur mína, í hinsta sinn. í huga minn koma myndir, frá bernskudögum, myndir af henni í blóma lífsins, af fallegri stúlku, með glóbjart hár, sem tók í mittisstað. Myndir af henni, við orgelið, í kirkj- unni okkar í sveitinni heima, og margar margar fleiri. Jóhanna systir var fædd á Hlöðum á Grenivík 25. febrúar 1902. Foreldr- ar okkar voru Valgerður Jóhannes- dóttir, Jónssonar prests Reykjalíns á Þönglabakka í Fjörðum og Guð- mundur Sæmundsson, frá Gröf í Eyjafirði, sem þá var útvegsbóndi á Hlöðum, býli, sem hann hafði byggt upp frá grunni. 1903 fluttist hún með fjölskyldunni að Lómatjörn í Höfðahverfi og þar ólst hún upp í okkar glaðværa syst- kinahópi, sem varð allfjölmennur, 11 urðum við og komumst öll til fullorð- insára, þótt stundum þætti okkur nokkuð þröngt í baðstofunni heima. Jóhanna var snemma mjög námfús og barnaskólinn, sem staðsettur var á heimili okkar, hluta úr vetri, ár hvert, var kærkominn og nýttist vel. Síðar sótti hún unglingaskóla og lærði á hljóðfæri, svo hún varð org- anisti í kirkjunum í sveitinni. Hún var söngelsk, með afbrigðum, eins og hún átti kyn til, söng í kórum, bæði heima í sveitinni og í Reykjavík og fram á elliár sótti hún tónleika og leikhús, í höfuðborginni, sér til gleði og ánægju. Hún útskrifaðist úr Kennaraskól- anum 1935, var síðan barnakennari við þrjá skóla í Reykjavík, þar til hún lét af störfum 1968, var þá búin að gangast undir stóran uppskurð og heilsunni farið að hraka. Hún þótti góður kennari, lagði sig mjög fram um að veita nemendum sínum hið besta veganesti, í náminu. Á kennaraferli sínum hélt hún tvívegis í Danmerkur, til framhaldsnáms, bæði í Askov og einnig í Kennara- háskólanum í Kaupmannahöfn, svo af því má marka áhuga hennar og skyldurækni við starf sitt. Hún lést á Landakotsspítala ellefta október sl. og var jarðsungin frá Neskirkju í Reykjavík 20. s.m. Áð síðustu þakka ég henni, fyrir það, sem hún var mér, góð og trúföst systir og bið henni blessunar á nýjurn tilverustigum. „Fölnuð er liljan og fölnuð er rós.“ Blessuð sé þín minning, kæra systir. Sigríður Guðmundsdóttir Schiöth. Viö seljum norska ullargarniö frá Poorí|i|iit n HELE LAIMDETS SPORTSGARIM n*ll ll\ tlll Úrval lita og uppskrifta! SlMI (96)21400 AKUREYRARB/ER Fóstrur - Fóstrur! Nú er tækifærið Dagvistardeild Félagsmálastofnunar Akureýr- ar auglýsir eftir hverfisfóstru fyrir Innbæ, Eyri og Brekkuna. Starfiö veitist frá 15. nóvember n.k. Skriflegar umsóknir er greina frá nafni, menntun og starfsreynslu sendist dagvistardeild Eiðsvalla- götu 18, fyrir 10. nóvember. Allar nánari upplýsingar veittar í síma 24600 alla virka daga frá kl. 10-12. Dagvistarfulltrúi. FRAMSÓKN ARMEN N AKUREYRl Framsóknarfélag Akureyrar Fundur í Hafnarstræti 90 mánudaginn 31. október kl. 20.30. Fundarefni: Bæjarmál og væntanlegt kjördæmisþing. Félagar fjölmennið. Stjórnin.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.