Dagur - 11.11.1988, Blaðsíða 3
11. nóvember 1988 - DAGUR - 3
Framkvæmdir á Gunnólfsvíkurgalli:
Radarhúsinu lokið
um miðjan nóvember
Áætlað er að framkvæmdum
við byggingu um 1200 fermetra
húss á Gunnólfsvíkurfjalli á
vegum undirverktakans Gunn-
ólfs hf. Ijúki um miðjan þenn-
an mánuð. Miðað er við að
húsinu verði þá skilað fullfrá-
gengnu til íslenskra aðalverk-
taka, sem er aðalverktaki við
byggingu radarstöðvarinnar.
Segja rná að húsinu sé skipt
upp í fjóra hluta. í þeim fyrsta er
íbúð, bílskúr og rými fyrir ýmiss
konar þjónustuvörur. í öðrum
hluta hússins verður vélasalur,
kynding, vatnstankur, eldvarnar-
kerfi, rafhlöður og spennar. f
þeim þriðja verður tölvubúnaður
fyrir radarinn og fjórði hluti húss-
ins er rými undir sjálfum radarn-
um, þar sem m.a. verða lagnir
ýmiss konar.
Sigurður Jónsson, verkfræð-
ingur hjá Gunnólfi hf., segir að
framkvæmdum hafi miðað vel
áfram og áætlanir standist. Hann
segir að nú vinni um 20 manns á
vegum Gunnólfs hf. við fram-
kvæmdirnar á Gunnólfsvíkur-
fjalli, en þegar flest var síðastlið-
ið sumar hafi um 80 manns lagt
þar hönd á plóg.
Framkvæmdir við byggingu
hússins hófust haustið 1986 þegar
sökklar þess voru steyptir. Sum-
arið 1987 voru veggir hússins síð-
an steyptir upp og þeirri vinnu
lauk í desember fyrir tæpu ári
síðan. Vinna hófst síðan aftur í
apríl sl. við að innrétta húsið auk
þess sem vélum var komið fyrir.
Einnig var unnið sl. sumar að
frágangi hússins að utan svo og
lóðarfrágangi. Pá má nefna upp-
setningu vatns- og olíutanka.
Allri þessari vinnu er sem sagt að
Ijúka þessa dagana og gert er ráð
fyrir að skila verkinu um miðjan
nóvembermánuð.
Næsta sumar verður vinnu
fram haldið á Gunnólfsvíkurfjalli
á vegum íslenskra aðalverktaka
við uppsetningu kúlu fyrir radar-
inn. A vormánuöum 1990 verður
radarnum sjálfum, ásamt með-
fylgjandi tölvukerfi, komið fyrir.
óþh
Sveitakeppni Bridgefélags Akureyrar:
Sveit Kristjáns með forystu
SKAMM
TÍMABRÉF
HAGKVÆM ÁVÖXTUN
SKAMMTÍMAFJÁR
Nú er auðvelt að ávaxta fé sem einungis er til ráðstöfunar
um skamman tima, með skjótum og traustum hætti.
Með tilkomu Skammtimabréfa Kaupþings opnast nýr möguleiki
fyrir alla þá sem hingað til hafa ekki getað nýtt sér hagstæða ávöxtun
vegna langs binditíma.
Skammtimabréfin eru einmitt ætluð þeim sem þurfa að nota fé sitt
innan skamms tima en vilja jafnframt ávaxta það
á sem hagkvæmastan hátt.
Brófin eru gefin út í einingum að nafnvirði
10.000 kr„ 100.000 kr. og 500.000 kr.
Skammtímabréf munu bera 8-9% vexti umfram verðbólgu.
Þeim fylgir enginn aukakostnaður og
innlausn þeirra er einföld og hröð.
Skammtímabréf - skynsamleg f járfesting.
Gengi Einingabréfa 11. nóvember 1988
Einíngabréf 1 kr. 3.357.-
Einingabréf 2 kr. 1.912.-
Einingabréf 3 kr. 2.177,-
Lífeyrisbréf kr. 1.688,-
Skammtímabréf kr. 1,175
Sveit Kristjáns Guðjónssonar
hefur forystu í Akureyrarmóti
Bridgefélags Akureyrar í
sveitakeppni, þegar mótið er
tæplega hálfnað. Kristján og
Fjárlagafrumvarpið:
LA fær 11
miUjónir
í frumvarpi til fjárlaga fyrir
árið 1989 er gert ráð fyrir að
Leikfélag Akureyrar fái 11
milljóna króna framlag frá rík-
inu. Til samanburðar má geta
þess að Leikfélag Reykjavíkur
fær 12 milljónir kr.
Myndlistaskólinn á Akureyri
fær samkvæmt frumvarpinu 3,8
milljónir, sem er sama upphæð
og kemur í hlut Myndlistaskól-
ans í Reykjavík. Framlög til lista
nema alls rúmum 183 milljónum
króna. SS
Sauðárkrókur:
Nýr stöðvar-
stjóri Pósts
og síma
Fyrir skömmu var ráðið ■ stöðu
stöðvarstjóra Pósts og síma á
Sauðárkróki. Alls sóttu 6 um
stöðuna og ráðinn var Reynir
Kárason. Reynir hefur gegnt
starfi stöðvarstjóra frá 1. apríl
1987, er Kári Jónsson varð að
hætta vegna veikinda. Reynir
verður skipaður í stöðuna frá
og með 15. nóvember nk.
Fyrir utan Reyni. sóttu fimm
aðrir um stöðuna. Þeir voru
Ágústa L. Ingólfsdóttir, Árni
Sædal Geirsson, Hulda Tómas-
dóttir og Hörður Ingimarsson.
-bjb
DAGUR
Sauðárkróki
S 95-5960
Norðlenskt dagblað
hans menn tóku forystuna
strax eftir fyrstu umferðirnar
og hafa haldið henni síðan. Sex
umferðum af þrettán er nú
lokið.
Staða efstu sveita er þessi:
Stig
1. Sveit Kristjáns Guðjónss.: 124
2. -3. Sveit Stefáns Vilhjálmss.: 115
2.-3. Sveit Páls H. Jónssonar: 115
4. Sveit Ólafs Ágústssonar: 109
5. Sveit Hellusteypunnar: 103
6. Sveit Arnar Einarssonar: 101
7. -8. Sveit Grettis Frímannss.: 100
7.-8. Sveit Gunnars Berg: 100
Keppnisstjóri er Albert Sig-
urðsson.
Næstu tvær umferðir verða
leiknar þriðjudaginn 15.
nóvember. Spilamennska hefst
kl. 19.30 í Félagsborg.
44l KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorg 5 Akureyri Sími 96-24700
STÆRSTU HÚSGAGNÁ
Á NORÐURLANDI
HALCYON hágœðadýnur