Dagur - 11.11.1988, Blaðsíða 7
W ‘hövémberi 98Ö - 'ÖAGUR - *t
Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra: Fjölga þarf hjúkrunarfræðing-
um um 100 á ári næstu árin til að bæta upp hjúkrunarfræðingaskortinn.
- Frá ráðstefhu
Norðurlandsdeildar
eystri innan
Hjúkrunarfélags
Islands
Texti: mþþ - Myndir: GB
Fyrir skömmu gekkst Norðurlandsdeild eystri innan Hjúkrunar-
félags íslands fyrir ráðstefnu sem bar yfirskriftina Hjúkrun sem
fræðigrein og starfsgrein. Ráðstefnan var haldin í Alþýðuhúsinu
á Akureyri og sóttu hana um 70 manns. Ráðstefnan stóð í tvo
daga og í tengslum við hana var efnt til kynningar á
hjúkrunarvörum og einnig fóru þátttakendur í kynnisferðir á
heilbrigðisstofnananir á Akureyri og í nágrenni. Tilefni þess
að ráðist var í að halda svo viðamikla ráðstefnu var
25 ára afmæli félagsstarfs hjúkrunarfræðinga á svæðinu,
en félagið var stofnað í nóvember árið 1963.
Þóra G. Sigurðardóttir for-
maður Norðurlandsdeildarinnar
setti ráðstefnuna og sagði að við
hæfi hefði þótt að minnast þess-
ara tímamóta á einhvern hátt og
því hefði verið ákveðið að efna til
ráðstefnu um hjúkrun, bæði sem
starfsgrein og sem fræðigrein.
Er Þóra hafði sett ráðstefnuna
tók Guðmundur Bjarnason heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra til máls og lét hann í ljós
ánægju sína með að fá áfram tæki-
færi til að takast á við þann
málaflokk sem heilbrigðismálin
væru. Hann sagði að íslensk heil-
brigðisáætlun yrði lögð fram
fljótlega og ljóst væri að hlutverk
hjúkrunarfræðinga væri mikið í
þeirri áætlun. í hinni nýju heil-
brigðisáætlun yrði mikil áhersla
lögð á forvarnir, fá yrði einstakl-
inginn til að viðurkenna eigin
ábyrgð á heilsu sinni, hann yrði
að velja og hafna og ef nauðsyn
krefði að breyta um lífsstíl.
Yfírgripsmikið starf
Guðmundur talaði um æ yfir-
gripsmeira starf sem hjúkrunar-
fræðingar inntu af hendi, þeir
störfuðu jafnt við hjúkrun og scm
stjórnendur við sérhæfð störf.
„Með aukinni menntun og auk-
inni þörf í þjóðfélaginu hafa
hjúkrunarfærðingar fært út
starfssvið sitt. Þeir sinna heilsu-
gæslu og fræðslustarfsemi ýmiss
konar, stjórnunarstörf hafa farið
vaxandi og æ fleiri hjúkrunar-
fræðingar eru starfandi á því
sviði. Nýjar greinar innan læknis-
fræðinnar krefjast meiri þekking-
ar þeirra hjúkrunarfræðinga sem
starfa á sérdeildum og hjúkrun
aldraðra krefst æ meiri tíma. Allt
hefur þetta breytt mjög áherslum
og störfum þeim sem hjúkrunar-
fræðingar sinna í dag samanborið
við starfið áður fyrr."
Efnishyggjan ríkjandi
Guðmundur vék í erindi stnu að
menntunarmálum hjúkrunar-
fræðinga, en 15 áreru nú liðin frá
því námsbraut í hjúkrunarfræði
var stofnuð við Háskóla íslands.
Hann sagði að þá hefði veriö
mikill skortur á kennurum til að
kenna hjúkrunarfræði og einnig
hefði verið erfitt að fá hjúkrun-
arfræðinga til að taka að sér
stjórnunarstöður. Árangurinn af
aukinni menntun sagði hann
augljósan hvað þetta varðaði, en
því miður væri enn skortur á
hjúkrunarfræðingum til starfa við
almenna hjúkrun og ylli það
áhyggjum. Samkvæmt skýrslu
samstarfsnefndar sjúkrahúsa er
talið að fjölga þurfi hjúkrunar-
fræðingum um 100 á ári næstu
árin til að vinna þar bót á.
„Efnishyggja hvers konar hef-
ur verið mjög ríkjandi í þjóðfé-
laginu á undanförnum árum.
Ungt fólk hefur laðast að störfum
á sviði viöskipta og fjármála
meira heldur en á þeim sviðum er
varða hjúkrun og aðhlynningu,"
sagði Guðmundur, en bætti við
að sér virtist sem breyting væri að
verða á þessu. Samstarfshópur
um hjúkrunarmál hefur lagt mik-
ið af mörkum til að efla áhuga á
hjúkrunarnámi og -störfum og
virðist það hafa borið ávöxt því
nú í haust voru innritaðir um 100
nemendur í hjúkrunarfræði í HÍ.
Heilbrigðisráðherra ræddi
málefni Háskólans á Akureyri og
sagði hann gegna mikilvægu hlut-
verki varðandi menntun hjúkrun-
arfræðinga og væri það öllum til
heilla.
Mikil uppbygging
á Norðurlandi eystra
Uppbygging á sviði heilbrigðis-
mála hefur veriö mikil í kjör-
dæminu, sem og annars staðar frá
því lög um hcilbrigðismál tóku
gildi árið 1974. Guðmundurgerði
lítillega grein fyrir þcirri upp-
byggingu, en byggðar hafa verið
heilsugæslustöðvar í Ólafsfirði og
á Dalvík og brátt verður ný heilsu-
gæslustöð tekin í notkun á
Þórshöfn. Endurbætur hafa fariö
fram á húsnæöi heilsugæslu-
stöðva á Akureyri, Kópaskeri,
Raufarhöfn og á Grenivík og nýtt
húsnæði hefur verið tekið í notk-
un í Mývatnssveit. Þá er hafin
bygging á nýju húsnæði fyrir
heilsugæslustöð á Húsavík. Á
Laugum og Stórutjörnum er
nýleg aðstaða fyrir heilsugæsiu
fyrir hendi. Á FSA hefur líka
verið mikil uppbygging á sviði
sjúkraþjónustu, en ný geðdeild
og bæklunardeild hafa tekið til
starfa. Þá er skurðdeildin með
þeim fullkomnustu á landinu og
þegar nýtt húnæöi röntgendeildar
verður tekið í notkun sagði Guð-
mundur að hún yröi með ein-
hverja bestu starfsaðstöðu sem
þekktist á landinu.
íslensk hjúkrunarstétt
ávallt verið kvennastétt
Að loknu erindi heilbrigðisráð-
herra tók Sigþrúður Ingimundar-
dóttir formaður Hjúkrunarfélags
Sjá næstu opnu.
Hjúkrunarfræðin hefur ávallt verið kvennastétt, sagði Sigþrúður Ingimundardóttir formaður HFÍ í erindi sínu.
Langstærsti hluti ráðstefnugesta voru konur.