Dagur - 03.12.1988, Síða 8
8 tt DAGUR - 3. desember 1988
Norðurnetið:
Björn Sigurðsson Baldursbrekku 7, Húsavík. Sími: 41534 - 41666 - 41950
Húsavík - Akureyri - Húsavík
Daglegar ferðir
til jóla
Einnig aukaferð á föstudögum kl. 20.00 frá Húsavík.
Sérleyfishafi.
Félagsráðgjafi
Staða félagsráðgjafa er laus til umsóknar við Fang-
elsismálastofnun ríkisins.
Umsóknir sendist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu
fyrir 9. desember nk.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
28. nóvember 1988.
1Í?
%
0
Kaupmannafélag
Akureyrar
hefur samið við Dag um auglýsingar á
fimmtudögum 8., 15. og 22. desember.
Félagsmönnum eru kunnir skilmálarnir
og einnig skilafresturinn, sem er fram að
hádegi á þriðjudögum vegna þeirrar
auglýsingar sem birta skal fimmtudag-
inn jaar á eftir.
Sími auglýsingadeildar
Dags er 24222.
Samskiptanet kvenna
á Norðurlandi
Norðurnetið, eða samskiptanet
kvenna í stjórnun og atvinnu-
rekstri á Norðurlandi, var stofn-
að fyrir rúmu ári eða 1. nóvember
1987. Á þann fund mætti Ulla
Magnusson frá samskiptaneti
kvenna í Reykjavík og fræddi
fundarkonur um starfsemina þar
syðra.
Það ár sem liðið er frá stofnun
Norðurnetsins hafa nokkrir fund-
ir verið haldnir, venjulega með
framsöguerindum um ákveðin
málefni. M.a. kynnti Margrét
Jónsdóttir listakona verk Elísa-
betar Geirmundsdóttur og Val-
gerður Magnúsdóttir ræddi um
fordóma gagnvart útivinnandi
konum.
Á síðasta fundi sem haldinn
var í október sl. fjallaði Yrsa
Þórðardóttir prestur á Hálsi í
Fnjóskadal um starf prestsins út
frá sjónarhóli kvennaguðfræð-
innar. Líflegar umræður spunn-
innar. Líflegar umræður spunnust
út frá erindi hennar um mikilvægi
þær konur sem eru að hasla sér
völl á óhefðbundnum og óvenju-
legum sviðum. í framhaldi af jovf
var rætt um tilgang Norðurnets-
ins.
Reynslan hefur sýnt að það eru
ekki eingöngu konur í fyrirtækja-
rekstri og stjórnun sem sækja
fundi Norðurnetsins. Flestar
kvennanna á fundinum voru sam-
mála um nauðsyn samskiptanets
eða eins konar „samfélags" þar
sem konur geta hist, borið saman
reynslu sína og fræðst um málefni
sem varða konur.
í því sambandi var ákveðið að
útvíkka markmið Norðurnetsins,
sem upphaflega var bundið við
konur í stjórnun og fyrirtækja-
rekstri, þannig að allar konur á
Norðurlandi geti framvegis tekið
þátt í starfi Netsins.
Síðasti fundur ársins verður
haldinn í Zontahúsinu, Aðal-
stræti 54, Akureyri, mánudags-
kvöldið 5. desember 1988, kl.
20.30. Gestur fundarins að þessu
sinni verður Guðrún M. Njáls-
dóttir, verslunareigandi á Akur-
eyri. Hún mun fjalla um reynslu
sína af því að vera kona í fyrir-
tækjarekstri.
í tilefni af því að jólin nálgast
verður veitt glögg og piparkökur
á vægu verði á fundinum.
Norðurnetið er gullinn vett-
vangur til að efla samstöðu
kvenna á ópólitískum vettvangi.
Tökum því sem flestar þátt í
þeirri samstöðu.
Þær sem óska eftir nánari upp-
lýsingum um Norðurnetið geta
haft samband við skrifstofu
Brjótum múrana í Kaupangi við
Mýrarveg. Síminn þar er 26845.
Akureyri 22. nóvember 1988,
Valgerður H. Bjarnadóttir.
Blönduós:
Athugasemd við frétt
varðandi atvmnuleysi
Ililmar Kristjánsson, forseti aði aðvinnuástand á Blöndu-
bæjarstjórnar á Blönduósi,
hafði samband við Dag og bað
um leiðréttingu á frétt sem var
í miðvikudagsblaðinu og varð-
„Skrifstofutækninám“ á
Akureyri engin nvjung
Vegna grcinar í Degi þann 24.
nóvember sl. um Tölvufræðsl-
una á Akureyri er rétt að það
komi fram, að á Akureyri hef-
ur verið kennd „skrifstofu-
tækni“ á verslunarbraut hjá
VMA um árabil, auk nám-
skeiða hjá Menntaskólanum á
Akureyri og í Gagnfræðaskóla
Akureyrar svo eitthvað sé
nefnt.
VMA hefur sömuleiðis staðið
fyrir tölvunámskeiðum af ýmsum
toga fyrir nemendur sína og einn-
ig almenning með reglulegu milli-
bili frá stofnun skólans. Baldvin
AUGLYSING ,
1, 'ilUi
rm'. h'irW
rr W
,,í' jjMr'
■ Cú' "■ ;imBh
jBKWJllÚt: ’ jjlk,
Gleðileg jól
Hestamannafélagið Léttir gefur út jólakort
Nýlega gaf Hestamannafélagið
Léttir út jólakort í fyrsta sinn.
Er það í tilefni af 60 ára afmæli
félagsins en ágóðanum er ætlað
að efla og styrkja unglingastarf
innan Léttis. Myndin, er nefn-
ist ,,í svartnætti vetrar“ er eftir
Óla G. Jóhannsson. Kortið,
sem er stórt, tvöfalt, og prent-
að á úrvals pappír, er prentað
í Prentverki Odds Björnssonar
hf. á Akureyri. Pau munu fást
hjá Jóni Ól. Sigfússyni, Grund-
argerði 2b og Guðrúnu Hall-
grímsdóttur, Pingvallastræti
12, en einnig verður gengið
með þau í hús til sölu.
Bjarnason skólameistari sagði í
samtali við Dag, að við skólann
sé rekin fullkomin verslunar-
braut. „Bautskráðir nemendur
hans og framhaldsdeilda Gagn-
fræðaskólans eru sömuleiðis
eftirsóknarverður starfskraftur
og get ég nefnt sem dæmi að fyrir
um tveimur árum var meiri hluti
starfsmanna Iðnaðarbankans á
Akureyri menntaður hjá okkur,
auk þess sem starfsmenn margra
fyrirtækja í verslun í dag, eru
fyrrum nemendur skólans.“ VG
osi.
Hilmar sagði að fréttin væri
villandi þar sem vinnumiðlunin á
Blönduósi annaðist skráningu
atvinnulausra í 8 af 10 sveitar-
félögum A.-Hún.
Hann sagði að nú væru 34
skráðir atvinnulausir hjá vinnu-
miðluninni en þar af væru ekki
nema 17 Blöndósingar, hinir
væru úr sveitunum. Meðal
atvinnulausra Blöndósinga eru 5
vörubílstjórar sem alltaf búa við
árstíðabundið atvinnuleysi yfir
vetrarmánuðina. Af öðrum
atvinnulausum Blöndósingum
eru 2 karlar og 10 konur.
Hins vegar sagði Hilmar að
langt væri frá að atvinnuástand
væri nægilega gott en atvinnu-
rekendum yrði send skrá yfir
atvinnulausa og gert yrði átak í
að útvega fólki atvinnu. Rík
áhersla mun verða lögð á að bæt-
ur verði ekki misnotaðar. fh
Aðventukvöld í
Akureyrarkirkju
Aðventuhátíð verður í Akureyr-
arkirkju n.k. sunnudag, 4. des-
ember, og hefst kl. 20.30. Slíkar
hátíðarstundir hafa nú í nokkur
ár verið í kirkjunni snemma á
aðventunni og jafnan verið fjöl-
sóttar og sóttar jafnt af eldri sem
yngri. Þær hafa þótt kærkomið
tækifæri til að hefja jólaundir-
búninginn fyrir alvöru og kertið
sem kirkjugestir hafa tekið með
sér heim hefur haldið áfram að
minna á hann sem er „ljós heims-
ins“ og er tilefni jólahalds okkar.
Ræðumaður að þessu sinni
verður Dr. Björn Björnsson,
prófessor við guðfræðideild
Háskóla Islands, en hann er
mörgum kunnur fyrir rannsóknir
og skrif um fjölskyldumál og
ýmis siðfræðileg efni. Þá mun
kirkjukór Akureyrarkirkju
syngja nokkur lög undir stjórn
Björns Steinars Sólbergssonar,
organista, en Margrét Bóasdóttir
syngur einsöng. Ennfremur
munu Lilja Hjaltadóttir, Waclaw
Lazarz og Örnólfur Kristjánsson
leika Tríó eftir Hayden.
Aðventukvöldinu lýkur með ljósa-
hátíð í framhaldi af helgileik í
umsjá æskulýðsfélagsins og helgi-
stund, sem Carlos Ferrer, æsku-
lýðsfulltrúi annast.