Dagur - 03.12.1988, Qupperneq 20
Akureyri, laugardagur 3. desember 1988
CHICOGO
~Biodroqa
C O S M E T I C S
Snyrtivörudeild
Stjórnvöld minnast
fullveldisafmælis:
Rfldsstjómin
kostar loka-
viðgerð á
Hólabrík
- taflan úr Hóladóm-
kirkju einn merkasti
dýrgripur menning-
arsögu íslands
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
minnast 1. deseinber og 70 ára
afmælis fullveklis Islands með
því að kosta það sem á vantar
að lokið verði viðgerð á Hóla-
brík, sem er stór útskorin tafla
í Hóladómkirkju og einn
merkasti dýrgripur í menning-
arsögu íslands. Taflan hefur
verið í kirkjunni frá árinu
1624.
Taflan hefur verið í viðgerð á
Þjóðminjasafninu um tveggja ára
skeið og var ætlunin að Ijúka
verkinu næsta sumar. „Þetta er
glæsilegt. Jú, mikil ósköp, við
erum ánægðir með þetta,“ sagði
Jón Bjarnason, einn af nefndar-
mönnum í Hólanefnd, í gær þeg-
ar Dagur færði honum fregnirn-
ar. Jón sagði að viðgerð töflunn-
ar hafi gengið hægar en ella þar
sem ekki var til ákveðin fjárveit-
ing til verksins. Þessi ákvörðun
ríkisstjórnarinnar hreytti því
öllu.
Ríkisstjórnin ákvað einnig að
tryggja, í samstarfi við þjóðkirkj-
una og Hólanefnd, að endurgerð
Hóladómkirkju, elstu steinkirkju
landsins, Ijúki á næsta ári. Verk-
efni næsta sumars verða endur-
bætur utanhúss en sem kunnugt
er verður kirkjan vígð næstkom-
andi sunnudag eftir endurbygg-
ingu innanhúss. JOH
Snvrtivönjr í úrvali - Okkar merki - Snyrtivörur í úrvali
Öxlmum rennt í stefnisrörið
I gær var skrúfuöxull Sléttbaks
EA settur í skipið á ný eftir viö-
gerð í Reykjavík. Eins og áður
hefur komið fram uppgötvaðist
að öxullinn hafði skekkst um 4/m
úr mm og þurfti því að renna
hluta hans að nýju hjá vélsmiðj-
unni Héðni hf.
Sigurður Ringsted, yfirverk-
fræðingur hjá Slippstöðinni hf.,
var spurður álits á því hvernig
öxullinn hefði bognað. Sagði
hann að það yrði sennilega
aldrei fullkomlega upplýst en
allar líkur bentu til að óhappið
hefði gerst í flutningum. Varð-
andi kostnaðarhlið málsins þá
væri það mál sem Slippurinn,
Útgerðarfélag Akureyringa og
framleiðandi öxulsins þyrftu að
skoða nánar. EHB
Við erum Ijós
í myrkrinu
- segir Kristján Ingi-
marsson útvarpsstjóri
Ólundar
„Ólund - hvort sem þú ferð í
sund, eða á fund - Ólund,
hverja stund.“ Þcnnan geð-
þekka frasa geta þeir sem stilla
útvarpstæki sín á FM-100.4
hlustað á frá klukkan 19.00 á
kvöldin og þar til þeir fara að
sofa um miðnættið. Útvarps-
stöðin Ólund, er sum sé að
fara í loftið og fyrsta útsend-
ingin úr Lárusarhúsi, þar sem
stöðin er til húsa, mun hljóma
klukkan 17.00 í dag.
„Þetta verður meiriháttar
útvarpsstöð,“ segir útvarpsstjór-
inn, Kristján Ingimarsson. Það
eru þrír ungir Akureyringar sern
að stöðinni standa og fengu þeir
hugmyndina í sumar, þá orðnir
yfir sig leiðir ásíbyljustöðvunum.
„Hjá okkur verður engin diskó-
friskó tóniist," segir Kristján.
Um tuttugu einstaklingar munui
annast dagskrárgerð við stöðina í
sjálfboðavinnu, þar sem halda á
kostnaði í lámarki. „Við erum
bjartsýnir á að þetta gangi upp.
Við hefjum að vísu útsendingar á
margumtöluðum krepputíma, en
ég bendi á að við erum Ijósið í
myrkrinu," sagði útvarpsstjór-
inn, sem er í viðtali á poppsíðu
blaðsins í dag. mþþ
Mun meiri hallarekstur í sjávarútveginum en gert var ráð fyrir:
„15% gengfefelling nú er út í loftið“
segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, kynnti í gær
Jökull hf./þrotabú Sæbliks hf.:
Rækjuvinnsla
út desember?
- leigusamningur í burðarliðnum
Þegar Dagur fór í prentun í
gær benti allt til að skrifað yrði
undir samninga milli Jökuls
hf., bústjóra Sæbliks hf. og
skiptaráðenda um leigu Jökuls
hf. á Raufarhöfn á eigum
þrotabús Sæbliks hf. Eins og
Dagur hefur áður greint frá er
ætlunin að skipið afli hráefnis
fyrir rækjuvinnslu Sæbliks hf.
á Kópaskeri í desembermán-
uði.
Hólmsteinn Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Jökuls hf., vildi í
gær ekkert láta hafa eftir sér um
þetta mál.
I gær var unnið að frágangi
rækjuskipsins Árna á Bakka ÞH í
Slippstöðinni á Akureyri, en
skipið er í eigu þrotabús Sæbliks
hf. Samkvæmt upplýsingum Dags
var stefnt að því að skipið færi
þaðan í gær ef skrifað yrði undir
samninga. Af um 600 tonna
rækjukvóta Árna á Bakka á
þessu ári munu vera eftir 140-150
tonn. Að því tilskildu að þessi
tonn náist í desemberniánuði ætti
að vera unnt að halda uppi fullri
atvinnu í rækjuvinnslu þrotabús
Sæbliks hf. til loka árs. óþh
Sjö sagt upp í Slippmun
Sjö starfsmönnum Slippstöðv-
arinnar hf. á Akureyri var sagt
upp störfum í vikunni. Gunnar
Skarphéðinsson, starfsmanna-
stjóri, sagði að þetta hefði ver-
ið gert vegna minnkandi verk-
efna hjá fyrirtækinu.
Þremur trésmiðum og þremur
rafvirkjum var sagt upp auk eins
manns á lager Slippstöðvarinnar.
Að sögn starfsmannastjórans
hefur ekki verið ráðið í störf sem
losna hjá Slippnum undanfarið
og er fjöldi starfsmanna nú um
210. Það er mikil fækkun miðað
við þann tíma þegar um þrjú
hundruð manns störfuðu hjá
fyrirtækinu, en nokkur ár eru síð-
an það var. EHB
skýrslu Þjóðhagsstofnunar um
stöðu fyrirtækja í útflutnings-
greinum ásamt skýrslu fjög-
urra endurskoðenda um stöðu
fiskvinnslufyrirtækja. Sam-
kvæmt skýrslu Þjóðhagsstofn-
unar eru botnfiskveiðar og
vinnsla nú rekin með 4,5%
halla en eftir aðgerðir ríkis-
stjórnar í haust var talið að
um þessar mundir yrði hallinn
um 1%.
„Það er óhætt að segja að þessi
höfuðatvinnuvegur þjóð'arinnar
stefni nú hraðbyri í að verða nteð
neikvæða eiginfjárstöðu, verði
með öðrum orðunt gjaldþrota.
Þetta gerist ef rekstrarafkoman
Agætis
helgarveður
„Það er allt útlit fyrir ágætis
helgarveður hjá ykkur,“
sagði Bragi Jónsson veður-
fræðingur, þegar við spurð-
um um veðurspá helgarinn-
ar. „Þið getið þó glatt ykkur
með því að veturinn er að
koma því á mánudag er gert
ráð fyrir vaxandi norðanátt
með jólasnjókomu.“
Að öðru leyti er spáin fyrir
laugardag og sunnudag
þannig, að á Noröurlandi
verður hæg breytileg átt, skýj-
að með köflum og þurrt að
mestu. Hiti verður um og yfir
frostmarki. Ekki er gert ráð
fyrir úrkomu fyrr en á mánu-
dag eins og fyrr segir. VG
verður áfrarn jafn slök og verið
hefur,“ sagði Steingrímur.
Unt aðgerðir stjórnvalda í Ijósi
þessa sagðist hann vísa gengis-
fellingu á bug. „Á þessu stigi vísa
ég henni á bug. Hins vegar búunt
við íslendingar við þannig efna-
hag að ekki er hægt að útiloka
gengisfellingu. Það eru margir
óvissuþættir framundan og að
krefjast nú 15% gengisfellingar
er út í loftið,“ sagði Steingrímur.
Forsætisráðherra sagði að ekk-
ert endanlegt svar liggi fyrir um
aðgerðir stjórnvalda. Strax í
næstu viku liggi fyrir ýtarlegri
upplýsingar um stöðuna og í
framhaldi verði rætt við samtök
launafólks og atvinnuveganna
um aðgerðir. JÓH
Akureyri:
Tillaga um hækkiin
útsvarsprósentu
- en 10% álag á fasteignaskatt
íbúðarhúsnæðis fellur niður
Fulltrúar meirihlutans í
Bæjarráöi Akureyrar lögöu
fram tillögu á fimmtudag um
hvernig haga skuli álagningu
fasteignagjalda og útsvars í
bænum á næsta ári. Lagt er til
að útsvar hækki úr 6,7 prósent-
um í 7,2 prósent. Fasteigna-
gjöld verða óbreytt nema hvað
íbúðarhúsnæði varðar, og fell-
ur 10 prósent álagið niður á
því.
„Það var tillaga okkar fram-
sóknarmanna í fyrra að fella 10
prósenta álagið niður á fasteigna-
skattinn. Nú hefur meirihlutinn
ákveðið að gera það sem við
lögðum til fyrir ári og ég mun því
styðja tillöguna um afnám álags-
ins,“ sagði Sigurður Jóhannes-
son, bæjarfulltrúi.
Sigfús Jónsson, bæjarstjóri á
Akureyri, sagði að samkvæmt
nýjum reglum ættu bæjarstjórnir
að tilkynna fjármálaráðuneytinu
ákvarðanir sem þessar fyrir
15. desember. Niðurfelling 10
prósenta álagsins á fasteignaskatt
þýddi um átta milljóna króna
tekjutap fyrir bæjarsjóð en hækk-
un útsvarsprósentu úr 6,7 í 7,2
gæti þýtt tekjuaukningu fyrir
bæjarfélagið upp á 30 til 40 millj-
ónir á næsta ári. Síðarnefnda tal-
an er þó háð nokkurri óvissu þar
sem útsvar endurspeglar beinlínis
atvinnutekjur í sveitarfélögum á
hverjum tíma með tilkomu stað-
greiðslukerfis skatta. EHB