Dagur - 08.12.1988, Side 6
6 ~ DAGUR Ö. desember 1988
Raftækni — Akureyri
Sérverslun með rafvörur
f Miðbænum.
Úrval raftækja frá þekktum og viðurkenndum
framleiðendum, svo sem:
Braun - Babyliss - Emedi - Eumenia (þvottavélar og
uppþvottavélar) - Famulus - Philips - Graam - Holland
Electro - Moulinex — Nilfisk og fleira og fleira.
Viö seljum aðeins raftæki sem eru viöurkennd at
Rafmagnseftirliti ríkisins og reynum eftir bestu
getu aö veita góöa þjónustu.
P.S. Við minnum á Nilfisk þjónustu okkar.
Meö kveöju
Brekkugötu 7, Akureyri, sími 26383.
Mýjar vörur
- vandaðar vörur
Kaupmannafálag
Akureyrar
Slys gera ekki^
■ r m r m okum eins og me
boo á undan sérliir^
Þijár nýjar
Luílabækur
- eftir Ulf Löfgren
Iðunn hefur gefið út þrjár nýjar
bækur um Lúlla kanínustrák eftir
hinn þekkta sænska barnabóka-
höfund Ulf Löfgren. Þær heita:
Lúlli leitar að bangsa, Lúlli verð-
ur ánægður og Lúlli og gula
kerran.
Segir hér frá ýmsu sem á dag-
ana drífur hjá Lúlla. Eitt sinn er
hann búinn að týna bangsa
prakkara og leitar alls-staðar, en
hvergi er bangsa að sjá . . .
Öðru sinni er Lúlli að smíða og
fær hamarshögg á fingurinn. Það
er reglulega sárt, en Hannes vin-
ur hans fullvissar hann um að
hann hefði getað meitt sig miklu
verr svo hann skuli bara vera
ánægður. Svo þegar Hannes
meiðir sig sjálfur á hamrinum er
Lúlli viss um að nú sé Hannes
líka ánægður!
Dag nokkurn eignast Lúlli fína
kerru. Þegar hann fer út með
hana mætir hann öllum vinum
sínum sem vilja fá ökuferð.
Hvernig skyldi Lúlli leysa þann
vanda?
Áður hafa sex bækur um Lúlla
komið út á íslensku og njóta þær
mjög mikilla vinsælda hjá yngstu
börnunum.
Þórgunnur Skúladóttir þýddi.
SYNDIR
FEÐRANNA
Sagnir af gömlum
myrkraverkum
bOkautgafan hilour
„Syndir
feðranna"
Út er komin hjá bókaútgáfunni
Hildi III. bindið í bókaflokknum
um Syndir feðranna.
Þetta er nýjasta bindið í þessu
vinsæla safni um ýmsar misgerðir
og mannlega breyskleika geng-
inna kynslóða.
Gunnar Þorleifsson hefur séð
um útgáfu þessa bindis eins og
hinna fyrri.
Jolasveinarmr
eru komnir til byggða
Eftir mikinn barning tókst jólasveinum Vöruhúss KEA að
komast til byggða. Þeir lögðu mikið á sig til að geta hitt
ykkur - og munu koma fram á svölum Vöruhússins
sunnudaginn 11. desember kl. þrjú.
Mætið öll og raulið með okkur.
„Dumbrauði
fálkinn“
Út er komin hjá bókaútgáfunni
Hildi bókin Dumbrauði fálkinn,
eftir Söru Hilton.
Sara Hilton er víðlesinn
höfundur í hinum enskumælandi
heimi, auk þess sem bækur henn-
ar hafa verið gefnar út á fjöl-
mörgum öðrum tungumálum.
í þessari bók sækir Sara efnivið
sinn til glæsilífs og skurðgoða-
dýrkunar aðalsins í Mið-Evrópu
á árunum fyrir heimsstyrjöldina
fyrri.
Stmkar tiitit vinir þroski
foreklmr sköli - ogolll htít...
Miriam Stoppard
„Stelpna-
fræðarinn“
- eftir Miriam Stoppard
Iðunn hefur gefið út að nýju bók-
ina Stelpnafræðarann eftir breska
lækninn Miriam Stoppard. Bókin
kom fyrst út hjá forlaginu fyrir
síðustu jól og seldist þá upp á
örskömmum tíma. Höfundurinn,
Miriam Stoppard, hefur skrifað
mikið um heilbrigðismál og hafa
tvær bækur hennar verið þýddar
á íslensku, Foreldrahandbókin
og Stóri kvennafræðarinn, sem
væntanleg er frá Iðunni á næst-
unni.
Stelpnafræðarinn er bók sem
gefur skýr og hreinskilin svör við
ýmsum spurningum sem hljóta
að vakna með ungum stúlkum á
því tímabili þegar líkami þeirra
er að þroskast og breytast og
jafnframt verða miklar tilfinn-
ingalegar og félagslegar breyting-
ar á lífi þeirra.
í bókinni er að. finna leiðbein-
ingar um líkamsrækt, hollt
mataræði og útlit, en einnig eru
hér ráðleggingar um hvernig
hægt er að ná góðu sambandi við
félagana, vinkonurnar og strák-
ana og bæta samskiptin við for-
eldra og fjölskyldu, og hér má
finna góð ráð varðandi nám og
skóla. í bókinni eru lika kaflar
um kynþroska og kynlíf og jafn-
framt fjallað um reykingar,
drykkju og fíkniefni og hvernig
vinna megi gegn þrýstingi félaga
og umhverfis í þeim efnum.
Anna Ólafsdóttir Björnsson
þýddi bókina.