Dagur - 07.03.1989, Blaðsíða 3

Dagur - 07.03.1989, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 7. mars 1989 - DAGUR - 3 Skákþing Norðlendinga: Þór Valtýsson Skák- meistari Norðlendinga - Ólafur Kristjánsson Hraðskákmeistari Fimmtugasta og fjórða Skák- þingi Norðlendinga lauk á Skagaströnd si. sunnudags- kvöld. Þór Valtýsson sigraði í opnum flokki og ber hann því titilinn Skákmeistari Norð- lendinga í fyrsta skipti. Þór fékk 6 vinninga af 7 möguleg- um. í öðru sæti varð Rúnar Sigurpálsson með 5 1/2 v. og Olafur Kristjánsson varð þriðji með 5 vinninga. Þeir eru allir frá Akureyri. Ólafur Kristjánsson varð Hraðskákmeistari Norðlendinga. Hann fékk 16 vinninga af 18 mögulegum. Annar, eins og í opna flokknum, varð Rúnar Sig- urpálsson með 15'/2 v. og þriðji varð Sigurður Daníelsson frá Blönduósi með 15 v. í barnaflokki sigraði Guð- mundur Valur Guðmundsson, Hvammstanga, með 6/2 vinning af 7 mögulegum. Páll Þórsson, Akureyri, varð annar með 6 v. og Magnús Eðvaldsson, Hvamms- tanga, þriðji með 5 v. Akureyringar skipuðu þrjú efstu sætin í unglingaflokki: 1. Þórleifur Karlsson, 5'/2 v. af 7 mögulegum. 2. Örvar Arngríms- son, 5 v. 3. Smári Teitsson, 5 v. Ólafur Kristjánsson Hraðskákmeistari. Þá var einnig teflt í kvenna- flokki, sem telst fátítt en að sjálf- sögðu af hinu góða. Þar sigraði Arnfríður Friðriksdóttir, Dalvík, með 5'/2 v. af 6 mögulegum. í öðru sæti varð Ásrún Árnadóttir, Öxnadal, einnig með 5V2 vinning, en Arnfríður sigraði hana í bráðabana. í þriðja sæti varð Þorbjörg Þórsdóttir, Akureyri, með 4 v. Alls voru 83 keppendur á Skákþingi Norðlendinga að þessu sinni. Teflt var í félagsheimilinu og grunnskólanum á Skaga- strönd. Mótsstjóri var Albert Sig- urðsson, Akureyri, og skákstjór- ar í barna-, unglinga- og kvenna- flokki voru Baldur Daníelsson, Blönduósi, og Steingrímur Stein- þórsson, Hvammstanga. Lárus Ægir Guðmundsson setti mótið og sleit því sem fulltrúi styrktar- aðila mótsins. SS Námskeiðshald á Hólum og Hvanneyri: Norðlenskir bændur vilja ólmir setjast á skólabekk Skipulögð námskeið fyrir bændur eru nú í gangi í bænda- skólunum á Hólum í Hjaltadal og á Hvanneyri. Ohætt er að segja að þessi námskeið hafi fengið góðar viðtökur meðal bænda því aðsóknin hefur far- ið fram úr björtustu vonurn. í Hólaskóla einum hafa um 300 bændur skráð sig á námskeið og grípa hefur þurft til þess ráðs að setja á aukanámskeið af vinsælustu námskeiðunum. Stéttarsamband bænda hefur unnið í samvinnu við Búfræðslu- nefnd og bændaskólana að Akureyri: Yfirbreiðsla yflr sundlaugina íþróttaráði hafa borist þrjú til- boð vegna yfirbreiöslu yfir Sundlaug Akureyrar. Hug- myndin er að spara vatnsnotk- un í lauginni með því að breiða yfir hana á nóttinni. Áður en Hitaveita Akureyrar kom til sögunnar var notað yfir- breiðsluplast yfir sundlaugina til að varðveita hitann í vatninu yfir nóttina. Þetta var nauðsynleg ráðstöfun að vetrinum til að spara kyndingarolíu. Heitt vatn er ekki beinlínis ókeypis á Akur- eyri og því hafa starfsmenn sund- laugarinnar undanfarið kannað vatnsnotkunina. í miklu hvass- viðri og kulda er vatnsnotkun í lauginni u.þ.b. helmingi meiri en í logni vegna kælingar. Yfir- breiðsla gæti því sparað umtals- vert fé. Til greina kemur, að sögn, að setja upp rafmagnsknúna rúllu við annan enda laugarinnar, og væri þá auðvelt að breiða yfir hana. EHB skipulagningu námskeiðanna. Á síðastliðnu hausti ákvað stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins að veita þátttakendum ákveðna fyrirgreiðslu vegna þessara nám- skeiða í formi greiðslu á nám- skeiðsgjaldi, fæði og gistingu á námskeiðsstað auk ferðastyrks. Námskeiðssyrpan á vormisseri hófst í janúar. Meðal þeirra námskeiða sem boðið er upp á má nefna kynbótagildi og þjálfun hrossa, grunnnám í fiskeldi, bleikjueldi, kanínurækt, tölvu- notkun í landbúnaði, fisksjúk- dómar, málmsuða, skattskil, grunnnám í búfræði o.fl. Nám- skeið í bændabókhaldi, þar sem kennd eru grundvallaratriði í bók- haldi, var vinsælast meðal bænda á Norðurlandi en hins vegar sýndu afar fáir áhuga á námskeiði um nýgreinar. JÓH Firmakeppni í knattspyrnu innanhúss Knattspyrnuráð Akureyrar auglýsir eftir þátttöku í firmakeppni innanhúss 1989. Þátttökurétt hafa öll fyrirtæki/starfshópar á Akureyri og í nágrenni. Heimilt er fyrir tvo aðila að sameinast um lið í keppnina, ef þeir vegna fámennis hafa ekki í lið. Með þátttökutilkynningum skal fylgja nafnalisti yfir þá leik- menn er þátt taka og er óheimilt að 'breyta þeim lista eftir að keppni er hafin. Þátttökurétt hafa þeir starfsmenn sem voru á launaskrá fyrirtækis 1. febrúar sl. Þátttökulistum ásamt þátttökugjaldi, kr. 4.000.- fyrir 1. lið, kr. 3.000.- fyrir 2. lið og kr. 2.000.- fyrir hvert lið umfram 2., skal skila til Rúnars í Raflagnadeild KEA sími 24187 eða Eyjólfs á Hársnyrtistofunni Skipagötu 12, sími 23022 fyrir 7. mars 1989. Leikið verður 11. og 18. mars. AÐAL- FUNDUR Aðalfundur Iðnaðarbanka íslands hf. árlð 1989 verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu föstudaginn 17. mars 1989 og hefst kl. 14:00. 1. Aðalfundarstörf skv. ákvæðum 35. gr. samþykkta bankans. 2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. 3. Tillaga um breytingu á samþykktum bankans vegna breytinga á skattlagningu veðdeilda 4. Önnurmál,löglegauppborín. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeina í Iðnaðarbankanum, Lækjargötu 12,2. hæð frá 10. mars nk. Reikningar bankans fyrir árið 1988, ásamt tillögum þeim sem fyrir fundinum liggja, verða hluthöfum til sýnis á sama stað. Tillögur, sem hluthafar vilja leggja fyrir fundinn, þurfa að hafa borist bankaráðinu skriflega ísíðastalagi9.marsnk. Reykjavík 15. febrúar 1989 Bankaráð Iðnaðarbanka íslands hf. 0 Þetta eru tölurnar sem upp komu 4. mars 1989. Heildarvinningsupphæð var kr. 4.761.701.- 1. vinningur var kr. 2.190.607.- Einn þátttakandi var meö fimm tölur réttar. Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 380.909.- Einn þátttakandi var með fjórar tölur réttar + bónustölu. Fjórar tölur réttar, kr. 657.024,- skiptast á 87 vinningshafa, kr. 7.552.- á mann. Þrjár tölur réttar kr. 1.533.161,- skiptast á 3.283 vinningshafa, kr. 467,- á mann. Sölustaðir eru opnir frá mánudegi til laugardags og er lokað 15 mínútum fyrir útdrátt. Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511. I

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.