Dagur - 16.03.1989, Blaðsíða 7

Dagur - 16.03.1989, Blaðsíða 7
eföfam&!daðbnd§6btár8rTtBB& ADíftGUR- ■& 7 Heiðrún Hauksdóttir: Smá hugleiðing um jafiirétti til náms í orðinu jafnrétti felst jafn réttur til einhvers, í þessu tilviki náms. Pað er mikið talað um alls konar jafnrétti og það liggur við að maður sé búinn að fá alveg nóg af þessu umtali, en ég ætla nú samt að bæta þar aðeins við. Við Islendingar búum við býsna mikið jafnrétti samanborið við ýmsa aðra, teljum okkur jafn- vel trú um það að hér séu allir nokkuð jafnir en það er nú vísast að breytast, ef við höfum á annað borð nokkurn tímann verið alveg jöfn. Öll börn hafa jafnan rétt til náms, eru raunar skyldug til náms, því að hér ríkir bæði náms- og fræðsluskylda. En ég ætla mér ekki að fjalla mikið um grunn- skólann heldur um það sem á eft- ir kemur, framhaldsskólana. Par hafa flestir jafnan rétt til náms svo framarlega að þeir hafi lokið tilskildu námi og inntaká miðast líka oft við búsetu og námsgetu. En það er nefnilega þannig með framhaldsskólana að þeir eru ekki jafn dreifðir í heima- byggðirnar og grunnskólarnir og er því erfiðara fyrir suma að sækja þá, þar eð fólk þarf að yfir- gefa sína heimabyggð og kosta sitt uppihald utan heimilisins meðan aðrir geta notið þess að búa heima hjá sér. Petta getur nú verið á sig leggjandi fyrir góða menntun og gott starf, og mjög margir fara í framhaldsnám, svo margir að flestar hámenntastöður fyllast, sérstaklega þær vel laun- uðu og fólk á e.t.v. erfitt með að sjá fram á atvinnumöguleika á sínu sviði og þá vaknar spurning- in um það hvort þetta sé þess virði. Sumir þurfa ekki að leggja annað á sig en að stunda nám sitt og það er mjög gott, ekki vill maður fara að öfundast yfir því, en aðrir og raunar margir lands- byggðarnemendur þurfa að vinna hörðum höndum og fjármagna sitt uppihald, húsaleigu og mat og sjá um heimili, og þegar þann- ig stendur á getur það hæglega dregið fólk frá skólagöngu. Mis- munandi aðstæður heima fyrir eiga nefnilega ekki að hafa áhrif á möguleika fólks til náms, það eiga allir að vera jafnir til náms og hafa sömu möguleika. Börn fá oft aðstoð heima fyrir með heimanám sitt og er það alveg hreint ágætt þegar það er hægt, en þegar ofar dregur í menntakerfinu geta ekki allir for- eldrar veitt sömu aðstöð, sumir eru e.t.v kennarar eða menntaðir á viðkomandi sviði og geta því hæglega aðstoðað börn sín við viðamikil verkefni en aðrir ekki og geta ekki aðstoðað börn sín ef þau eru komin í þrot. Pétta á e.t.v. helst við í efstu bekkjum grunnskólans (í gagnfræðaskóla) og er það töluvert ójafnrétti að senda unglinga heim með svona verkefni, við vitum alveg að hjálparkennsla tíðkast strax í níunda bekk og sýnir það okkur vel hvernig þetta er. Hvað er til lausnar? Jú það á einfaldlega ekki að senda krakkana heim með verkefni sem þau geta ekki leyst heldur að gefa þeim meiri tíma til að vinna sitt með kennar- ann viðstaddan svo að mögulegt sé að fá aðstoð þegar á þarf að halda. Það er nú kannski til fullmikils mælst að sleppa bara við heimalærdóm en það væri kannski hægt að minnka hann mikið með því að lengja skóla- daginn aðeins. Annars hefi ég oft velt því fyrir mér hvort að það sé ekki til neitt viðmið eða takmark á vinnu sem ætlast er til að nemendur inni af hendi, fyrir utan oft 40 tíma vinnuviku getur heimavinna margra margra tíma virði, (ef fólk gerir allt sem gott væri að gera). Og við nemendur þurfum nú, rétt eins og aðrir, á okkar frítíma að halda og það er kannski ekki alveg nauðsynlegt að eyða honum öllum í lærdóm- inn. Kennarastarfið er, eins og allir vita lágt launað og lítils metið hér, af einhverjum furðulegum ástæðum og þar af leiðandi er mjög erfitt að manna margar kennarastöður, sérstaklega út um land, skólar eru líka misjafnlega útbúnir og þetta veldur þó nokkru ójafnrétti. Nú vaknar sú spurning sem býsna margir kljást við í þessu þjóðfélagi okkar hvers vegna sum störf eru betur launuð en önnur þrátt fyrir jafnlanga menntun og svipað starfsálag? Er eitthvað jafnrétti í því, að eftir svipað háskólanám fái sumir mjög góðar tekjur en aðrir bara „skítalaun" sem eru bara rétt til þess að lifa af? Eru einhver óskrifuð lög til þar sem stendur að sum störf séu miklu mikilvægari en önnur? Fólk bendir oft á mikilvægi og ábyrgð til réttlætingar á hærri launum en við ættum nú kannski að fara að endurskoða þetta og átta okkur á að þetta er næstum síðasti áratugur tuttugustu aldar- innar sem við lifum nú á og sam- félagið er orðið allt öðruvísi en það var áður, uppeldið er t.d. farið að færast mikið út af heimil- unum, inn í skólana og ef við ætl- um að halda svona áfram og eiga hæft fólk í framtíðinni, eigum við það nú inni hjá okkur að leggja nú eitthvað í uppeldisstarfið og fara að meta það að verðleikum. Sum okkar búa jafnvel við það að þrátt fyrir framhaldsskóla heima treystum við okkur ekki til að fara í þá þar eð maður getur e.t.v ekki lokið námi úr þeim. Það er erfiðara að koma inn í aðra skóla að því námi loknu en að fara bara beint inn í þá skóla sem útskrifa til stúdentsprófs. Einnig getur aðstaðan verið verri heima fyrir, svo það er alls ekki nóg að hafa skóla þar. Það eru ekki nema sjálfsögð réttindi að fá jafngóða menntun eins og hver annar og slæmt að þurfa að flytja til þess. En það er ekki mikið betra að allir fái nákvæmlega eins kennslu án nokkurs tillits til þarfa og hæfi- leika hvers einstaklings. Það er alveg lit í hött að ætla að steypa alla í sama mót og reyndar mjög slæmt, því sumir eiga erfitt að fylgjast með en aðrir fara í gegn- um allan grunnskólann án þess að þurfa nokkurn tímann að taka á: Allt er miðað við meðalmann- inn. Það væri mikill munur ef leitast væri við að þjálfa hæfileika hvers og eins alveg frá upphafi. Annað leiðindaviðhorf er líka ríkjandi og það er að bóknám sé eitthvað betra en verknám og svo að stærðfræðibrautir séu betri en samfélagsbrautir. Því þurfi fólk, hafi það getu til þess, allra heist að fara á raungreina braut en að öðrum kosti taki það samfélags- greinarnar fyrir. Ég læt þessu nú lokið og vona að þetta hafi vakið einhverja til umhugsunar. H.H. Höfundur er nemandi í 2. bekk Mennta- skólans á Akureyri. lesendahornið Umræður um „Lífsbjörg í Norðurhöfum“: Hneyksli í stjóm- lausum umræðuþætti! Sigfús hringdi og sagðist ekki geta orða bund- ist vegna umræðnanna í sjón- varpssal að lokinni sýningu myndarinnar „Lífsbjörg í Norðurhöfum“ í gærkvöld (fyrrakvöld). „Ég hef oft orðið vitni af skrautlegum umræðum í Sjón- varpinu en þessi þáttur sló öll met. Fyrir það fyrsta var stjórn- andi þáttarins, Helgi H. Jónsson fréttamaður, engan veginn starfi sínu vaxinn að mínum dómi. Mér fannst hann draga taum Græn- friðunga óþarflega mikið og gaf höfundi myndarinnar, Magnúsi Guðmundssyni, sjaldnast tæki- færi á að svara þeim spurningum og jafnvel ásökunum sem að hon- um var beint. Þá leyfði Helgi Heilræði Foreldrar! Geymió öll hættuleg efni þar sem börnin ná ekki til. Guðrúnu Helgadóttur alþingis- manni hvað eftir annað að taka stjórn þáttarins í sínar hendur. Þá fékk jarðfræðingurinn, Þor- leifur Einarsson, að gjamma fram í fyrir hinum í tíma og ótíma og svo mikið er víst að hann var ekki góð auglýsing fyrir þau annars ágætu samtök Land- vernd, sem hann er í forsvari fyrir. Það urðu fjörugar umræður um myndina og umræðuþáttinn á mínum vinnustað í morgun (í gær) og voru allir nema einn - af rúmlega 20 - sammála um að frammistaða stjórnandans var afleit. Ég er viss um að meira að segja Helgi Helgason hefði staðið sig betur! Ég ætla mér ekki að ræða ein- staka þætti þessarar myndar hér en vil þó segja að mér þótti hún góð. Ég held að Hjörleifur Gutt- ormsson, alþingismaður, hafi hitt naglann á höfuðið þegar hann sagði í umræðuþættinum, að meginboðskapur myndarinnar „Lífsbjörg í Norðurhöfum“ væri að almenningur ætti að taka öll- um áróðri með fyrirvara, jafnvel þótt hann væri studdur myndum. Þær geta nefnilega verið falsaðar ellegar teknar úr eðlilegu sam- hengi þannig að þær segi ekki nema hálfan sannleikann. Hálfur sannleikurinn er oft verri en versta lygi. Að lokum vil ég nefna eitt at- riði úr umræðunum, sem mér fannst fyrir neðan allar hellur. Það var þegar Guðrún Helga- dóttir svaraði aðspurð eitthvað á þá leið að ef svo færi að Græn- friðungar skiptu sér af fiskveið- um okkar íslendinga, hefði hún lítið við það að athuga, því það væri þá vegna þess að við gætum ekki haft stjórn á þeim sjálf.(!!) Mér finnst það gersamlega óaf- sakanlegt af forseta sameinaðs Alþingis að segja annað eins og þetta opinberlega. Ef hún hefði gegnt slíkri trúnaðarstöðu í ein- hverju öðru landi en hér hefði hún örugglega þurft að segja af sér í kjölfarið. Þetta er hneyksli og ekkert annað og Guðrúnu til ævarandi skammar. Ég held ég þurfi ekkert að útskýra það nánar.“ íþróttahöllin: Skór hverfa Faðir hringdi: „Ég vil vekja athygli á þjófnaði í íþróttahöllinni á Akureyri og ðir snjósleðar a að vera í lagi Kona á Akureyri hafði samband við lesendahornið vegna fréttar um hrakfarir þriggja snjósleðamanna í ná- grenni Þingvallavatns á dögun- um. Þar kom fram að fljótlega eftir að félagarnir lögðu af stað hafi einn sleðinn bilað og að mennirnir hafi ekki verið búnir til að láta vita af sér. „Það ætti að sekta fólk sem leigir ófullkomna snjósleða til fólks,“ sagði konan. Hún sagði það fráleitt að ef fólk væri að taka sleða á leigu, yrðu þeir að vera í lagi. Þá sagði hún einnig að leigja ætti farsíma með snjósleðunum. fara fram á að eitthvað verði gert í þessum málum. í anddyrinu hverfa skór hvað eftir annað og skiptir þá ekki máli hvort þeir eru merktir eða ekki. Þeir koma ekki í leitirnar fyrr en löngu seinna ef þeir gera það á annað borð. Son- ur minn lenti í því að stígvélun- um hans var stolið og hér getur verið um tilfinnanlegt tjón að ræða. Ég vil líka benda foreldr- um á að athuga skófatnað barna sinna því eins og dæmin hafa sýnt þá hafa merktir skór fundist í skóhafinu löngu eftir að þeir hurfu og bendir það til þess að krakkar hafi notað skó af öðrum kannski mánuðum saman án þess að foreldrarnir verði varir við eitthvað óeðlilegt.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.