Dagur - 14.04.1989, Síða 6
Y ^W,e^^§íJR(>í':tpö8tw4a3iír4^ftriU^89
Ileldiir tónlerka
í Sjallannm í Itvöld
Slíyttumar lcika
fyrir dansi laugardagskvöld
Miða- og borðapantanir
í síxna 22970.
Frábær írsk þjóðlaga-
hljónisveit í Sjallanxun
i r í i ! i i í
Læknir á Akureyri gefur út
rit gegn vottum Jehóva
Reynir Yaldimarsson, læknir á
Akureyri, hefur sent frá sér
þriðja smáritið undir heitinu
„Þeirra eigin orð,“ en hann
hefur tvisvar áður gefið út rit
um Votta Jehóva og gagnrýnt
kenningar þeirra. Ritið er
prentað í fjögur þúsund ein-
tökum og dreift í hús á Akur-
eyri.
I nýjasta riti Reynis segir svo í
inngangi: „Rit þessi eru fyrst og
fremst hugsuð sem framlag til
gagnrýni á ranghugmyndir Votta
Jehóva, trúarhóps, sem kennir
sig við kristindóm, en afneitar
Kristi. Afncitar þeim Jesú Kristi
sem Hann sagðist og reyndist
vera: Guð, Skapari og Frelsari.“
Meginefni ritsins fjallar um
blóð og blóðgjafir og afstöðu
Votta Jehóva til þessa. Vitnar
Reynir til margra ritningarstaða í
Gamla testamentinu sem sýni að
ekkert í Heilagri ritningu banni
fólki að gefa blóð. Hins vegar sé
réttilega bent á þá staðreynd, að
ýmsir staðir í Gamla testament-
inu hafi varað við neyslu dýra-
blóðs.
í samtali við blaðamann um
efni ritsins sagði Reynir að hann
legði ríka áherslu á það að í
Nýja testamentinu væri hvergi að
finna neinn ritningarstað sem
banni blóðgjafir. Vottar Jehóva
haldi því fram „að Jesús Kristur
hafi úthellt blóði sínu sem fórnar-
gjaldi en ekki sem spítalagjöf."
Varðturnsfélagið hafi löngum
haldið því fram að lög hins
Gamla testamentis gegn neyslu
blóðs og blóðafurða hafi haldið
gildi sínu allt inn í tíma Nýja testa-
mentisins. Vísi þeir gjarnan til
Postulasögunnar 15:20: „. . . að
við ritum þeim, að þeir skuli
halda sig frá allri flekkun af
skurðgoðum og frá saurlifnaði,
frá köfnúðu og frá blóði.“
Reynir Valdimarsson, læknir.
Þó beri á það að líta, að í upp-
hafi 15. kaflans hafi kennendur
frá Júdeu bersýnilega laumað inn
viðbót í fagnaðarerindið, en þeir
voru valdir að ringulreið og
glundroða hjá hinum nýkristnu
meðal heiðingjanna hvað snerti
umskurnarfyrirmæli til frelsunar.
Páil og Barnabas mæltu gegn
slíkum falsstaðhæfingum, en
málið var síðar tekið upp á fundi
með postulum og öldungum í
Jerúsalem. Nokkrir af Faríseun-
um, sem trú höfðu tekið, tóku
undir þessi sjónarmið gyðing-
dómsins. Pétur mótmælti því þá
að verið væri að freista Guðs með
Teknar hafa verið saman, í 28
síðna rit, upplýsingar um þá
þjónustu sem Iðntæknistofnun
íslands býður fyrirtækjum og
öðrum sem tengjast iðnaði. Efni
ritsins er raðað upp þannig að
aðgengilegt er fyrir lesandann að
átta sig á hvernig þjónusta stofn-
því að leggja ok á herðar læri-
sveinanna sem hvorki þeir né
feður þeirra höfðu megnað að
bera.
Jakob kvað sér hljóðs á fundin-
um, en hann var talsmaður post-
ulanna við þetta tækifæri, eins og
oftar. Hann sagði: „Fyrir því er
það minn úrskurður, að ekki
skuli íþyngja þeim, er af heið-
ingjunum snúa sér til Guðs, held-
ur að við ritum þeim, að þeir
skuli halda sig frá allri flekkun af
skurðgoðum og frá saurlifnaði,
köfnuðu og blóði.“
- En hvers vegna talaði Jakob
aðeins um að menn ættu að halda
sig frá neyslu kjöts af dýrum sem
fórnað hafði verið skurðgoðum,
frá saurlifnaði, frá neyslu kjöts af
köfnuðum dýrum og frá notkun
blóðs? Skýringin er sú að Jakob
var að beina orðum sínum til
frelsaðra, fyrrverandi heiðingja,
og gefa þeim yfirlit yfir hvað þeir
skyldu forðast að gera vegna
Gyðinganna, þannig að gott sam-
band héldist við þá, og sýnd yrði
full tillitssemi við trúsystkini.
Neysla blóðsins var alls ekki hið
ámælisverða, heldur hugsunar-
leysið gagnvart ný-kristnum Gyð-
ingum sem enn voru vissulega að
nokkru bundnir sínum fyrri gyð-
inglegu trúarhefðum.“ EHB
unarinnar getur komið honum til
góða.
Ritið er sent til fjölmargra fyr-
irtækja og opinberra aðila. Þeir
sem ekki hafa fengið ritið en óska
eftir að fá það sent geta snúið sér
til Iðntæknistofnunar íslands í
síma 687000.
Upplýsingarit
Iðntæknistofnunar
Verðkörmun
N.A.N.
Neytendafélag Akureyrar og nágrennis kannaði verð í matvöruverslunum á Akureyri, Dalvík og Grenivík dagana 6. og 7.
apríl sl. Könnunin var á vegum Alþýðusambands íslands og fleiri aðila.
Hðfuöborcarsvæöiö w Hagkaup Akureyri KEA Byggðav.98 Svarfdæla- búö Dalvík ÚKE Grenivík
Hzsta verð Lzpsta vcrð
Juvel hveiti 2 kg 89.00 62.00 66.60 67.80 76.00
Svkur 2 kg 136.00 69.00 92.00 94.30 98.70 111.00
Sirkku molasykur 1 kg 112.00 69.00 94.00 60.10 98.00 69.00
Ota haframjöl 950 g 139.00 105.00 115.00 119.80 121.90 137.00
River rice hrísgrjón 454 g 68.00 50.00 58.00 53.00 . 57.90 60.00
Honig spaghetti 250 g 57.80 38.00 45.00 44.90 45.60 52.00
Frón kremkr* b'’st 250 g 104.00 73.00 74.00 76.90 86.00
Maryland cookies kex 200 g 64.00 53.00 56.00 60.60 61.60 69.00
Kellogs com flakes 500 g 187.00 139.00 154.00 163.00 165.80 192.00
Cheerios 10 oz 127.00 99.00 111.00 108.60 110.50 121.00
Svali Vá 1 25.00 18.00 19.00 . 21.0 0 20.00 21.70
Smjörvi 300 g 149.00 129.00 140.00 134.40 134.00 146.60
Ora fiskbollur 830 g 243.00 191.00 210.00 197.80 209.90 228.00
Ora grænar baunir 450 g 69.00 49.50 56.00 62.70 63.80 74.00
Libbvs tómatsósa 340 g 69.00 52.00 61.00 64.60 65.70 77.00
SS sinnep 200 g 71.00 54.(K) 70.00 70.00 70.00
Ðraea kaffi 250 g 108.(K) 94.00 97.00 98.00 98.00 97.60
Melroses te 25 grisjur 100.00 86.00 89.00 90.90 91.10 104.00
Nesquik kakómalt 400 g 262.(K) 164.00 183.00 182.00 185.10 211.00
Roval karamellubúðincur 90 c 62.10 48.70 54.00 54.70 56.40 62.00