Dagur


Dagur - 14.04.1989, Qupperneq 11

Dagur - 14.04.1989, Qupperneq 11
-i hér & þor Nýjasta nýtt í Dallas: Hættir Linda Gray vegna eigin áfengisvandamáls? Linda Gray, öðru nafni Sue Ellen Dallaskvinna er á góðri leið með að fara í hundana eins og vinkona hennar Sue Ellen í Dallas. Þær eiga nefnilega við sama vandamál að stríða, áfengisfíkn. Afleiðingarnar eru þær, að eftir mikið rifrildi við Larry Hagman eða J.R. eins og flestir þekkja hann, gekk hún út og orðrómur segir að hún sé nú hætt að leika í þáttunum. Læknar Lindu hafa ráðlagt henni að drífa sig í meðferð og það strax. Allt þetta ku vera „verst geymda leyndarmálið í Hollywood" þessa dagana, en það var franskur glaumgosi, Didier Phitoussi sem ljóstraði leyndarmálinu upp. Phitoussi sagði hverjum sem heyra vildi að Linda hefði hætt í Dallas eftir rifrildi við Hagman vegna drykkju Lindu. Áður en hann kynntist henni var Linda í slag- togi með vini hans þrátt fyrir að hún eigi traustan vin í Bandaríkj- unum, Patrick Markey sem vill allt fyrir hana gera. Phitoussi kynntist Lindu á diskóteki í París og stærir sig af því að aðeins hafi liðið tvær klukkustundir og 26 mínútur frá því hann hitti Lindu fyrst, þar til hann hafi sængað hjá henni. „Hún var dauðadrukkin, en ég þurfti samt ekki að kvarta. Við hittumst reglulega í fjóra mánuði og ég hef aldrei áður kynnst eins „viljugri" konu. Hver dagur leið við drykkju, dans og í rúntinu." Phitoussi segir að Linda hafi nteira að segja stungið upp á ýmsum afbrigðilegunt kynferðis- legum athöfnum. „Af 47 ára gamalli konu er heilmikið púður í henni, en ég myndi ekki sofa hjá henni í dag þó hún borgaði mér fyrir það.“ Larry Hagman er ekki par hrif- inn af Lindu þessa dagana. Ástæðan mun vera sú, að Linda var að skvetta í sig baksviðs og þegar verið var að taka upp atriði á South Fork gat hún ekki einu sinni staðið á fótunum og Hagman sýndi henni enga miskunn. Par sem hún hafði þyngst nokkuö þurftu fjórir menn, Hagman, Patric Duffy og tveir sviðsmenn að bera hana í hjólhýsið sitt og þegar þangað kom blöstu við tómar brenni- vínsflöskur á víð og dreif. Larry Hagntann varð æfur og öskraði á hana þannig að hver sem er heyrði: „Gamla skarnið þitt, þú átt ekki skilið að fá útborgað hér." Linda gckk út tveimur dögum síðar, sagði Larry að hann gæti hirt launaávísunina sína. Hvorki Linda eða blaðafulltrúi þáttanna vilja staðfesta þessa sögu, en ís- lendingar þurfa í það minnsta ekki að hafa áhyggjur því það eru enn einhverjir mánuðir eða ár þar til þeir komast aö hinu sanna í málinu. Ríkisstjórnin samþykkir: Aðgerðir til að bæta stöðu lagmetisiðnaðarins í ljósi erfiðleika sem upp hafa komið í lagmetisiðnaði skipaði iðnaðarráðherra sérstakan starfs- hóp til að kanna stöðu iðngrein- arinnar og benda á leiðir til að bæta markaðsstöðu hennar. Á grundvelli tillagna starfshópsins fjallaði ríkisstjórnin um málið á fundi 7. þ.m. og samþykkti síðan á fundi 14. þ.m. eftirfarandi: 1. Ríkið standi straum af vaxta- kostnaði vegna birgða og um- búða sem selja átti ALDI & Tengelman í 6 mánuði, en kostnaðurinn gæti numið um 7 milljónum króna. 2. Ríkið veiti 7 milljónum króna í samstarfsverkefni Sölusam- taka lagmetis og Útflutnings- ráðs um 6 mánaða söluátak á lagmeti. 3. Veitt verði aukafjárveiting til utanríkisráðuneytis að fjár- hæð kr. 2-3 milljónir til að skipuleggja og kosta sérstakt átak til að selja óseldar birgðir á markaði þar sem aðstöð utanríkisráðuneytis getur cinkum kontið að gagni (Austur-Evrópu. Japan). 4. Að 6 mánuðum liðnum verði lagt mat á það tjón sem iðn- greinin hefur orðið fyrir. Jafn- framt verði sérstaklega kann- að um frekari aðstoð við fyrir- tækið HIK á Húsavík. Jafnframt þessu hafa. iðnaðar- og sjávarútvegsráðuneyti átt fundi með forsvarsmönnum Rík- ismats sjávarafurða og Rann- sóknastofnunar fiskiðnaðarins um gæðamál lagmetis. Hafa ráðuneytin beint því til Sölusam- taka lagmetis og fyrrgreindra stofnana að formlegt samstarfs- verkefni verði hafið um átak í gæðantálum lagmetis. Sölusam- tökin hafa þegar stigið mikilvægt skref í þessum málum með stofn- un sérstakrar tæknideildar. Enn- frentur er í gangi vinnuáætlun til að samræina íslenskt gæðaeftirlit á sviði lagmetis þeim sameiginleg- um kröfum og stöðlum sent unn- ið hefur verið að í Evrópu vegna þróunar innri markaðar Evrópu- bandalagsins. Ofangreindar aðgcrðir hafa m.a. verið unnar með styrk úr Þróunarsjóði lagmetisiðnaðarins en sjóðurinn hefur á árununt 1987, 1988 og það sem af er árinu 1989 veitt lán og styrki til vöru- þróunar og gæðamála í lagmetis- iðnaði að fjárhæð kr. 5,3 milljón- ir, til þróunar og gerð untbúða kr. 4,3 milljónir og til tæknideild- ar Sölusamtakanna kr. 5,1 millj- ón. Gert er ráð fyrir að Þróunar- sjóður lagmetis styrki ofangreint gæðaátak. Iðnaðarráðherra hefur lagt áherslu á að gott samstarf takist um úrlausn málsins en telur deil- ur í fjölmiðlum um orsakir þeirra vandamála sent uppi eru ekki til þess fallnar. ÖH' mbtf89™ 11 Aðalfundur Sjómannafélags Eyjafjarðar verður haldinn í Alþýðuhúsinu mánudaginn 17. apríl 1989 kl. 20.00. Fundarefni: Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til afgreiðslu. Önnur mál. Akureyri, 13. apríl 1989. Stjórnin. Frá menntamálaráðuneytinu Lausar stöður við framhaldsskóla Við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum eru lausar kennarastöður í eftirtöldum greinum: Stærðfræði, félags- fræði, dönsku, þýsku, raungreinum, viðskiptagreinum og faggreinum málmiðnaðarmanna. Við Verkmenntaskóla Austurlands eru lausar til umsóknar kennarastöður í rafiðngreinum og íslensku. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 2. maí n.k. Menntamálaráðuneytið. -------------------. Nissan Patrol ’89 Sýndlu.r í fyrsta skipti utan Reykjavíkur rsa3 IMI5SAN Bílasýning verður laugardaginn 15. og sunnudaginn 16. apríl frá kl. 2-5 e.h. báða dagana að Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar í sýningarsal að Óseyri 5 (norðurhluta). Sýndir verða meðal annars: Subaru J12 4x4, auk fleiri gerða af Subaru bílum, Nissan Sedan og Nissan Sunny. Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar Óseyri 5 — Sími 22520 — Akureyri. Ingvar Helgason hf. Rauðagerði.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.