Dagur - 28.04.1989, Page 5

Dagur - 28.04.1989, Page 5
Föstudagur 28. apn'l 1989 - DAGUR - 5 f/ lesendahornið /j Ekki hægt að synda í Mði fyrir fíflagangi í bömum Sund er ein mest stundaða almenningsíþrótt hér á landi. Hér í bæ er það þó orðið svo að þeir sem mæta síðdegis í sund til að synda gefast oftar en ekki upp við þá heilsusamlegu iðkun. Ástæðan er sú að þessi löngu allt- of litla sundlaug er yfirfull af krökkum sem eru að hoppa, stökkva og fíflast en athuga ekk- ert hvar þau Ienda. Á dýpinu er strengd lína til að afmarka eina braut ætluð þeim sem vilja synda! Iðulega er þessi lína notuð af krökkum til að hanga á og verða fingur og tær syndara oft þar á milli, en það er heldur óþægilegt. Annarsstaðar á dýpinu þar sem nokkrir bjartsýnir reyna að synda er allt fullt af krökkum þannig að maður gæti ímyndað sér að menn væru rallhálfir og ættu í erfiðleik- um með að synda beint. Ekki virðist vera neinn skiln- ingur hjá forráðamönnum bæjar- ins í þessum málum. í Glerár- þorpi er verið að byggja pínulít- inn buslupoll svo að ekki verður mikið sem sundáhugamenn norð- an ár geta stundað sund þar. Ekki er áformað að svo stöddu, þótt mikill áhugi sé hjá sumum. að hefja byggingu barnasund- laugar við núverandi laug bæjar- ins. Það myndi leysa mikinn vanda, svo ekki sé minnst á ef rennibraut væri við laugina, þá gæti fullorðna fólkið synt í ró og næði í dýpri hluta laugarinnar. Mjög slæmt er það þó að sjá fullorðna fólkið berjast við að synda með krakka hangandi á línunni og sundlaugarverðina sitja inni og gera ekkert til að gera fóiki kleift að synda aðeins áhugaleysi þeirra er oft á tíðum ótakmarkað. Syndari í Sundlaug Akureyrar. Hvor bræðranna á nú öflugri arfleifð á Norðurlandi - Einar Þveræingur eða Guðmundur ríki? „Dalurinn. Aðaldalur allra dala.“ (Bjartmar Guðmundsson.) í fréttatíma útvarps nýverið heyrði ég sagt frá því, að í Þing- eyjarsýslu væri nú komin af stað söfnun undirskrifta til þess að leggja áherslu á að heimiluð verði svonefnd forkönnun á „hagkvæmni" varaflugvallar' í Aðaldal á vegum varnarliðs og Nató. í ljósi umræðna sem heyrst hafa um slíka framkvæmd, er í huga þriggja km braut og „nauð- synlegt" athafnasvæði og kostn- aður 10-11 þúsund milljónir! Nú setti mig hljóðan. Ég vil mælast til þess að efst á „haus“ undirskriftalistanna verði með áberandi letri birt í heild ljóð Huldu, Unnar Benedikts- dóttur frá Auðnum, er hún orti við lýðveldishátíð á Þingvöllum 17. júní 1944. Verðlaunaljóð þingeysku skáldkonunnar: Hver á sér fegra fööurland, öll erindin. Á sumardaginn fyrsta 1989. Jónas Pétursson. Ágætar mvndir Gísla - fróðlegar og skemmtilegar Nú nýlega sýndi sjónvarpið kynningarmynd um Siglufjörð og fyrr í vetur kom á skjáinn mjög skemmtileg og frískleg mynd um Menntaskólann hér í bæ. Báðar voru þessar myndir fróðlegar og skemmtilegar og höfundi þeirra Gísla Sigurgeirs- syni til mikils sóma. Væri æski- legt að Gísli væri studdur fjár- hagslega til frekari athafna á þessu sviði. Ekki efa ég aö Gísli gæti gert verðmætar myndir um ýmsa smærri staði á Norðurlandi og bjargaö frá glötun og gleymsku ýmsum fróðleik sem kann að vera til á smáfilmum og eins með viðtölum við eldra fólk. Gaman væri að endursýna síð- ar á árinu bæði MA-myndina og Siglufjarðarmyndina. Vel gert. Þakkir Gísli! Har. Vegna greinar um skíðaferð barna til Sigluíjarðar: Lítil saga um ferð með togara Aðalfundur Aðalfundur Leikfélags Öngulsstaðahrepps verður haldinn í Freyvangi sunnud. 30. apríl kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lagabreytingar. 3. Önnur mál. Stjórnin. Verkefnisstjóri Félagsmálaráðuneytið óskar eftir að ráða verk- efnisstjóra vegna aðgerða stjórnvalda til að fjölga atvinnutækifærum fyrir konur í dreifbýli. Um erað ræða þriggja til fjögurra mánaða verkefni. Nánari upplýsingar eru veittar í félagsmálaráðuneytinu sími 91-609100. Háskólapróf eða góð reynsla úr atvinnulífinu áskilin. Skriflegar umsóknir, þar sem m.a. er gerð grein fyrir menntun og fyrri störfum, sendist ráðuneytinu í síðasta lagi 8. maí 1989. Félagsmálaráðuneytið, 24. apríl 1989 LA GEAR, skórnir sem eru að slá í gegn í Bandaríkjunum Stærðir 18-46. ■ Sporthú^id Hafnarstræti 94 Sími 24350 Nei nú get ég ekki orða bundist lengur. I Degi þann 19.04. las ég greinina um heimför og aðbúnað krakkanna, sem voru á Siglufirði helgina 15.-16. apríl í skíðaferð á vegum S.R.A. Fyrirsögnin var: „Hefðu börnin verið látin hýrast á millidekki togara.“ Ég get auðvitað ekki fullyrt neitt um það hvernig aðbúnaður- inn hefði verið um borð í þeirn togara sem börnin áttu að fara með. En til gamans ætla ég að segja litla ferðasögu í von um að sem flestir foreldrar skíðabarna lesi hana. Veturinn 1983 fór hópur á veg- um S.R.A. til ísafjarðar til að keppa á skíðum, undirritaður var með í förinni og einn af yngstu þátttakendum eða á 13. ári. Á sunnudagskvöldi komumst við ekki til Akureyrar sökum veðurs. En á miðvikudag var loksins grip- ið til þess ráðs að fara heirn með togara. Ég ntan ekki hvað togar- inn hét en það var einhver . . . bakur. Tekið skal fram að krakkarnir voru töluvert eldri en „Siglufjarðarhópurinn“ eða á aldrinum 13-16 ára. Einnig var hann mun minni. Ég get fullyrt það að við vorum ekki látin „hýrast“ á einum né neinum stað um borð í togaranum. Á allan hátt voru aðstæður góðar, þó svo að sumir hefðu þjáðst af sjóveiki. Við fengum fínan mat um borð, og lögðum undir okkur hvert einasta bæli sem hægt var að finna í togaranum. Ef ekki fyrir framan vídeóið þá kojur skipverja sem voru allir hinir almennilegustu við okkur. Ég man ekki hvað siglingin sjálf stóð lengi en ferðin hófst um kl. 14 á miðvikudegi og um kl. 7 á fimmtudagsmorgni stigum við á land á Akureyri. Flestir þreyttir eftir mjög svo ævintýralega heim- ferð úr skíðaferðalaginu til ísa- fjarðar, en jafnframt ánægðir að vera loksins komin heim eftir 3ja daga töf. Að ntínu mati missti „Siglu- fjarðarhópurinn“ þarna af mikilli ævintýraferð, þó svo mitt álit skipti ekki neinu máli í þessu til- viki. Að lokum vil ég taka undir orð Tómasar: „ . . . að foreldrar yngri barna ættu frekar að konta með í ferðir sent þessar til að sjá um sín börn fremur en að sitja heima og setja útá.“ „Skíöavinur.“ AUGLÝSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKlRTEINA RlKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00 1983-2. fl. 01.05.89-01.11.89 kr. 370,85 1984-3. fl. 12.05.89-12.11.89 kr. 366,74 ‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, apríl 1989 SEÐLAB ANKIÍSLANDS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.