Dagur - 28.04.1989, Side 9

Dagur - 28.04.1989, Side 9
Föstudagur 28. apríl 1989 - DAGUR - 9 Norðurhéruðin halda saman Fólk gerir sér ef til vill ekki grein fyrir því hvílíkar gríðarlegar vega- lengdir eru frá syðstu byggðum Noregs til þeirra nyrstu. Það skal upplýst að frá Osló til Alta eru heilir 2000 kílómetrar. Þarna á milli er þriggja tíma flug og öku- ferðin tekur um tvo sólarhringa. Þá er keyrt eins ög leið liggur nið- ur Svíþjóð og aftur yfir norsku landamærin. Þessar miklu vegalengdir gera það að verkum að norðursvæði Noregs eiga í mörgu litla samleið með suðursvæðunum. Menningin er önnur, landslagið annað og loftslagið sömuleiðis. f>ví hefur það verið svo til fjölda ára að norðursvæði Noregs, Finnlands og Svíþjóðar, og jafnvel angi af Sovétríkjunum, hafa myndað eina menningarlega og landfræði- lega heild sem í daglegu tali er kölluð Nord-Kalotten. Suður- mörk þessa svæðis er norður- Eitt af mikilvægustu hlutverk- um nýrnanna er að losa líkamann við úrgangsefni - eiturefni - sem fara síðan út með þvagi. Þegar vatnsskortur er í líkamanum ger- ist það sjálfvirkt að líkaminn heldur í það vatn sem hann hefur. Pegar haldið er í sama vatnið langtímum saman veldur það því að það mengast smám saman af úrgangsefnum og nýrun hreinlega eru ekki fær um að heimskautsbaugur. Samvinna norðurþjóðanna hefur vaxið á undanförnum árum og ísland hefur í ríkara mæli tengst þessum þjóðum, t.d. á sviði íþrótta. Er í því sambandi vert að minnast Kalott-keppninnar í sundi og frjálsum íþróttum. Spennandi en krefjandi Að sögn Nöste Kendzior hefur svokölluð norðurnorska menn- inganefndin stuðlað ötullega að öflugu menningarlífi norður- svæðanna. Þessi nefnd eða kannski öllu heldur stofnun held- ur upp á 25 ára afmæli sitt á þessu ári. „Það er ekki síst fyrir hennar atbeina sem það ntikilvæga skref var stigið að koma á fót Norrænu upplýsingaskrifstofunni í Alta,“ sagði Nöste. Hún sagði að starfsemi skrif- stofanna sex væri mjög mismun- andi. Til dæmis er hún í fullri vinnu við skrifstofuna í Alta en I starfsmaður upplýsingaskrifstof- losa líkamann við eiturefni lík- amsvökvans. Þannig ofkeyrast nýrun. Það er hins vegar eitt líffæri sem aðstoðar nýrun þegar mikið liggur við og það er lifrin sem reynir að fást við þetta ofurmagn af eiturefnum. Það er hins vegar vandamál nteð lifrina að þegar lítið er um vökva í líkamanum getur hún ekki starfað eins hratt og eðlilega. Henni gerist því unnar á Akureyri hins vegar aðeins hálfan daginn. „Þetta starf er mjög krefjandi og mikilvægt er að vera ekki of lengi í því. Þú verður alltaf að vera með nýjar og ferskar hugmyndir á taktein- um um starf skrifstofanna og það getur vissulega oft á tíðum verið erfitt. En þetta er spennandi,“ sagði Nöste. Hef áhuga á auknum samskiptum við Island „Þetta er í fyrsta skipti sem ég kem til íslands og ég verð að segja að það kom mér skemmti- lega á óvart hvað Akureyri er lík mínum heimabæ, Alta. Reyndar er miklu nteiri snjór hér nú en úti, en á það ber að líta að í vetur hefur verið óvenjulega lítill snjór í norðurhéruðunt Noregs," sagði Nöste. „Og þessi fyrstu kynni mín af íslandi hafa ýtt undir þá skoðun mína að auka beri til I muna samskipti íslendinga við sífellt örðugra að fást við eitt af sínum aðal hlutverkum og það er að nýta geymda fitu sem orku. Afleiðingarnar af þessu eru þær að líkamsfita eykst. Ástæðurnar fyrir því eru aðallega tvær. í fyrsta lagi eru þær hitaeiningar sem.geymdar voru í formi fitu í líkamanum ekki nýttar sem brennsluefni þannig að það verð- ur ekki um neina fitulosun að ræða þar. í öðru lagi vantar lík- amann vatn og þess vegna heldur hann í heilmikið ntagn af vatni sem getur verið 3-5 kg af auka- kílóum. Að sjálfsögðu er með þetta eins og annað að lausnin er ekki margslungin. Hún er einfaldlega sú að drekka þessi 8 glös af vatni á hverjum degi, en þá er miðað við meðal mann að öllu leyti bæði hvað varðar hreyfingu og líkams- þyngd. Ef þú stundar æfingar eða ert þyngri heldur en kjörþyngdin segir til um þá þarft þú meira. Það er mikið um að fólk þori ekki að drekka mikið af vatni þar sem það heldur að það valdi því að það belgist út af vatnssöfnun. í rauninni er það andstæða sem gerist. Þegar nægilega mikið er af vatni í líkamanum skynjar líkam- inn að „þurrkurinn“ er búinn og þá geta nýrun starfað eðlilega og þar með losað líkamann við óæskileg úrgangsefni. Þess vegna minnkar heildar vatnsmagn lík- amans, og þegar lifrin getur hafið eðlilega starfsemi að nýju getur hún auðveldlega hafist handa við að breyta fitu í orku. Sé síðan hitaeiningum haldið í hæfilegu norðurhéruð Noregs, Finnlands og Svíþjóðar. Ég hygg að við séum að fást við svipuð vanda- mál, t.d. byggðavandamál. Nord- Kalotten-svæðinu helst t.d. illa á sérfræðimenntuðu fólki. Það er ekki óalgengt að það vinni um hríð hjá fyrirtækjum í norður- héruðununt að afloknu námi en hverfi síðan á braut að tveimur til þremur árum liðnum. Þetta er auðvitað stórt vandamál og mér hefur skilist að þetta sé vel þekkt hér á landi einnig," sagði Nöste. Hún benti einnig á að það væri mjög áhugavert að auka sérstak- lega samvinnu Akureyrar og Alta á sviði menningar, ferðamála og ótal fleiri sviða. „Þetta eru bæir sem eru allt að því jafnstórir, með 14 þúsund íbúa. Þá eru höfuðatvinnuvegir þessara bæja þeir sömu, þ.e. fiskveiðar og iðn- aður. í Ijósi þessa sýnist mér vert að ígrunda þann möguleika að koma á auknum tengslum rnilli þessara tveggja bæja.“ Vil fá fleiri íslendinga í heimsókn Nöste sagðist aðspurð vissulega vilja fá íslendinga í ríkara rnæli í heimsókn til Alta. Hafi fólk áhuga á slíkri ferð er cinfaldast að setja sig í samband við Norrænu upplýsingaskrifstofuna á Akur- eyri og fá allar tiltækar upplýsing- ar. Nöste segist hafa unnið í þrjú ár á skrifstofunni í Alta en á þeim tíma hafi ntjög fáir íslendingar komið þangað norður eftir. Nöste er hreinræktaður Norð- ur-Noregsbúi. Hún er fædd og uppalin í nágrenni Alta og þekkir því vel til Nord-Kalotten svæðis- ins. Ekki hefur hún þó dvalið þar alla sína tíð. í sjö ár bjó hún í Danmörku og náði sér þar í eig- inmann. Síðan lá leiðin til Finn- lands áður en aftur var snúið norður fyrir heimskautsbaug til Alta. „Ég verð að viðurkcnna að ég óttaðist að eiginmaður minn gæti aldrei sætt sig við að búa norður í Alta. Þar er loftslag og umhverfi allt ntjög svo frábrugð- ið því sem hann á að venjast í Danmörku. Ótti minn var þó ástæðulaus og okkur líkar vel þarna nyrðra. Þarna er svo gott að búa,“ sagði Nöste Kendzior að lokum. óþh magni er ekkert sem stöðvar lík- amann í að losa sig viö aukakíló- in. Það eru hins vegar nokkur atr- iði sem þú ættir að hafa í huga sé ætlunin að auka vatnsneysluna að einhverju ráði. I fyrsta lagi ættir þú að hafa heimilislækninn með í ráðunt og í öðru lagi að gefa þér aðlögunartíma ef þú hefur lengi verið í vatnsskorti. Þótt ótrúlegt rnegi virðast þá er ekki ótrúlegt að þegar þú byrjar að drekka meira af vatni en venjulega að þú verðir oftar var við þorstatilfinn- ingu. Það er vegna þess að þegar iíkaminn er búinn að vera lengi í vatnsskorti dregur hann úr þorstatilfinningu. Síðan átt þú sjálfsagt eftir að taka eftir auknum þvaglátum. Nýrun sem sjá unt þá fram- leiðslu, draga úr þvagláti þegar vatnsskortur er í líkamanum og því er eðlilegt að þvaglát aukist þegar allt fer í eðlilegt horf. Skemmtilegustu áhrifin sem eðlileg vatnsneysla hefur verða augljós á baðvoginni. Léttingin getur verið veruleg - ekki ein- ungis vegna vatnstaps heldur er öruggt að einhver fitulosun á sér stað þar sem hæfileiki líkamans til þess að breyta fitu í orku hefur aukist. Auk þess minnkar matar- listin þegar nóg er af vatni. Það skyldi þó haft í huga að það er ekki nóg að drekka nóg af vatni til þess að losna við aukakílóin - gott mataræði og æfingar eru einnig nauðsynlegar. Þegar þetta þrennt er sameinað getur það gert gæfumuninn. EG Heildverslun Gunnars Hjaltasonar Reyðarfirði Sími 97-41224 GOTTKAFFI Lifaiidi ord „Komid til mín, allir þér, sem erfiðið og þunga eru hlaðnir, og ég mun veita yður hvíld. “ Matt. 11,28. Þessi orð Frelsarans hafa verið nefnd „tilboöiö mikla“. Þetta tilboð hans er til allra manna á öllum tímum. Hann býður okkur breyskum mönn- um andleg verömæti frá Guði. Hann beinir sínum kærleiks- ríku orðum til þeirra, sem finna að þeir þurfi á Guði að halda. Þegar Jesús gekk um hér á jörðu, komu margir til hans með sínar byrðar og vandamál. Hann líknaði og hjálpaði öllum þeim sem til hans leituðu. Hann sagöi eitt sinn: „Þann sem kemur til mín, mun ég alls eigi brott reka.“ Jóh. 6,3. Hann býður okkur útrétta sáttarhönd Guðs. Hann býður okkur samfélag við Guð og sanna hamingju. Hann býður okkur náð Guðs og fyrirgefn- ingu. Hann býður okkur endurlausn og eilíft líf. Við þurfum að koma til hans í trú og veita honum viðtöku, það er lykilatriðiö. En það er margt sem hindrar okkur í því að leita hans í einlægni og alvöru. Þeir sem koma til hans eru þeir sem skynja þörf sína. Því sá sem lifir í andvaraleysi og jafnvel í kæruleysi, finnur ekki fyrir þessari andlegu þörf. „Og ég mun veita yöur hvíld.“ Drottinn sem þekkir mannshjartað, hann veit, að margir erfiða í andlegum efn- um og bera þungar byrðar. Þær byrðar geta verið af ýms- um toga. Byrði syndarinnar getur reynst þung. An Krists er mikil andleg fátækt: Óvissa, öryggisleysi, tómleiki, von- brigði, kvíði, skilnaður, niður- læging o.fl. En Jesús getur veitt þá hvíld sem hann talar hér um. Hvíldin er sætust þeim, sem þyngstu byrðarnar hafa borið og sönn hamingja dýrmætari en falskar vonir. Það er hið rétta, þegar við leit- um hans og lærum að hvíla í Guði og treysta honum. Jesús sagði við þá sem höfðu tekið við honum: „Frið læt ég eftir há yður, minn frið gef ég yður. Ekki gef ég yður eins og heim- urinn gefur. Hjarta yðar skelf- ist ekki né hræðist." Jóh. 14,27.__________________________

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.