Dagur - 17.05.1989, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 17. maí 1989 - DAGUR - 9
>: A vv ->*»*< ,v r»». •:< V v
Arsenal tapaði fyrir Derby
- og nú á Liverpool alla möguleika á titlinum - „Boro“ niður
Dean Saunders var Arsenal erfiður á laugardaginn.
Um helgina fór fram síðasta
umferðin í ensku deilda-
keppninni. Enn er þó óljóst
hvort það verður Liverpool
eða Arsenal sem hampar Eng-
landsmeistara bikarnum í
lokin. Arsenal hefur tveggja
stiga forskot í efsta sæti, en
Liverpool á leik inni og þykir
nú líklegra til að fara með sigur
í keppninni. Enn er 8 leikjum
ólokið í 1. deild, en öllum
leikjum 2. deildar er nú lokið.
Leikirnir sem eftir eru í 1.
deild eru:
Arsenal-Wimbledon
Liverpool-West Ham
Liverpool-Arsenal
Liverpool-Q.P.R.
Everton-Derby
Nottingham For.-West Ham
Sheffield Wed.-Norwich
Coventry-Nottingham For.
Liverpool átti ekki möguleika
gegn Wimbledon í fyrri hálfleik,
Alex Watson kom inn í liðið sem
þriðji miðvörður, en Peter
Beardsley var varamaður. Sú
leikaðferð gekk ekki og vörnin
réð ekkert við John Fashanu hinn
stæðilega miðherja Wimbledon.
Wimbledon komst yfir á 19. mín.
er Fashanu lék á Steve Staunton
og sendi fyrir markið. Alan
Hansen ætlaði að skalla frá, en af
honum fór þó boltinn í markið.
Wimbledon hefði getað bætti við
mörkum og Liverpool var heppið
að sleppa inn í hálfleik aðeins
einu marki undir. Þá gerði Kenny
Dalglish breytingu á liði sínu sem
gafst vel, Ian Rush kom inn á í
Staðan
1. deild
Arsenal 36 21- 9- 6 69:34 72
Liverpool 35 20-10- 5 58:25 70
Nott. Forest. 37 17-13- 7 61:39 64
Norwich 37 17-10-10 46:42 61
Derby 38 17- 7-14 40:37 58
Tottenhain 38 16-11-1160:46 57
Everton 38 13-11-12 49:45 54
Coventry 38 14-13-11 46:40 55
Q.P.R. 37 14-11-12 43:35 53
Milhvall 38 14-11-13 47:49 53
Man. Utd. 38 13-12-13 45:35 51
Wimbledon 37 14- 8-15 48:44 50
Southampton 38 10-17-12 52:66 45
Charlton 38 10-12-16 44:58 42
Luton 38 10-11-17 43:49 41
Sheff. Wed. 37 10-11-16 32:49 41
Aston Villa 38 9-13-15 45:56 40
Middlesbro 38 9-12-17 44:6139
West Ham 36 9- 8-19 34:56 35
Newcastle 38 7-10-21 33:59 31
2 . deild
Chelsea 46 29-12- 5 96:50 99
Man. City 46 23-13-10 77:53 82
C. Palace 46 23-12-1171:49 81
Watford 46 22-12-13 74:49 78
Blackburn 46 22-11-13 74:59 77
Swindon 46 20-16-10 68:53 76
Barnsley 46 20-14-12 66:57 74
Ipswich 46 22- 7-16 69:58 73
W.B.A. 46 18-18-10 65:41 72
Leeds Utd. 46 17-16-13 59:50 67
Sunderland 46 16-15-15 60:60 63
Bournemouth 46 18- 8-20 53:62 62
Stoke 4615-14-17 57:7159
Bradford 46 13-17-16 52:59 56
Leicestcr 45 13-16-16 55:61 55
Oldham 46 11-21-14 75:72 54
Oxford 46 14-12-20 62:69 54
Plymouth 46 14-12-20 55:66 54
Portsmouth 46 13-12-21 53:62 51
Brighton 46 14- 9-23 57:66 51
Hull 4611-14-21 52:68 47
Shrewsbury 46 8-17-20 40:67 42
Birmingham 46 8-11-27 31:76 35
Walsall 46 5-16-25 41:80 31
stað Watson og Liverpool vélin
fór f gang. A 57. mín. varð mis-
skilningur tveggja varnarmanna
Wimbledon til þess að Rush náði
af þeim boltanum, sendi til John
Aldridge sem skoraði auðveld-
lega af stuttu færi. 13 mín. síðar
gerði John Barnes út um leikinn
eftir mjög góðan einleik sem
hann lauk með góðu skoti í netið
hjá Wimbledon. Meistararnir
áttu ekki í erfiðleikum með að
innbyrða sigurinn eftir þetta og
titillinn blasir nú við liðinu.
41.000 áhorfendur komu til að
sjá Arsenal sigra Derby, en þeir
fóru óánægðir heim í leikslok.
Arsenal hafði þó nokkra yfir-
burði í leiknum og fékk 17 góð
marktækifæri, en tókst aðeins að
nýta eitt þeirra 3 mín. fyrir leiks-
lok er Alan Smith tókst að skora.
Derby fékk aðeins 5 tækifæri þar
af vítaspyrnu, en nýtti tvö þeirra
og sigraði því í leiknum. Dean
Saunders skoraði bæði mörk
Derby það fyrra með glæsilegu
skoti í fyrri hálfleik og síðan úr
vítaspyrnu 14 mín. fyrir leikslok
eftir að brotið var á honum
sjálfum. Þetta tap mun örugglega
reynast Arsenal dýrt og leikmenn
geta kennt sjálfum sér um. Derby
varðist þó vel og Peter Shilton
átti stórleik í markinu, en Kenny
Dalglish ætti að senda Saunders
kampavínsflösku fyrir mörkin.
Sheffield Wed. sendi Middles-
brough niður í 2. deild, en bjarg-
aði eigin skinni um leið. Steve
Whitton skoraði eina mark leiks-
ins fyrir Sheffield á 66. mín. með
skalla eftir fimmtu hornspyrnu
Wed. í röð. Middlesbrough hefur
leikið góða knattspynru í vetur
og er óheppið að falla, en liðið
hefur þurft að treysta um of á
Bernie Slaven til að skora mörk.
Aston Villa er enn ekki öruggt
um sæti í 1. deild á næsta ári og
það var baulað á framkvæmda-
stjórann Graham Taylor, sem
fyrir stuttu var talinn mikill kappi
á Villa Park. Villa lék mjög vel í
fyrri hálfleik og hefði átt að vera
Keppni er nú lokið í 2. deild og
eftir leikina á laugardag er
Ijóst að Manchester City fylgir
Chelsea upp í 1. deild. Crystal
Palace, Watford, Blackburn
og Swindon munu síðan keppa
um þriðja sætið sem gefur rétt
til þátttöku í 1. deild. Walsall,
Birmingham og Shrewsbury
féllu í 3. deild.
Það gekk ekki átakalaust fyrir
City að tryggja sér sætið í 1.
deildinni á laugardag. Mark Ellis
skoraði fyrir Bradford á 25. mín.
og þrátt fyrir stöðuga sókn City
virtist liðinu ekki ætla að takast
að jafna. David White skaut í
stöng og brenndi síðan af fyrir
opnu marki, Paul Molden fékk
dauðafæri og Trevor Morley hitti
ekki boltann fyrir opnu marki.
Það var ekki fyrr en 4 mín. fyrir
leikslok að City tókst að jafna og
tryggja sér sætið í 1. deild. White
óð upp kantinn, gaf fyrir á Mor-
ley sem tókst að koma boltanum
rétta leið í markið hjá Bradford.
Ólæti urðu á leik Crystal Pal-
ace og Birmingham þar sem
stuðningsmenn Birmingham
ruddust inn á leikvöllinn er Pal-
ace skoraði fyrsta mark sitt.
Leikurinn tafðist í um 30. mín.
5:0 yfir í stað 1:0. David Platt
skoraði með glæsilegu skoti. En
Coventry náði betri tökum á
leiknum eftir hlé, Brian Kilcline
og Trevor Peake voru mjög
traustir í vörn Coventry og sóknir
og 12 manns voru fluttir á sjúkra-
hús. Ian Wright skoraði þrjú af
mörkum Palace í 4:1 sigri liðsins
gegn Birmingham.
Kevin McAllister gerði tvö
mörk fyrir Chelsea sem sigraði
Portsmouth 3:2 og fékk 99 stig í
2. deild.
John Wark gerði bæði mörk
Ipswich úr vítaspyrnum gegn
Blackburn, en Paul Wilkinson
skoraði tvö af mörkum Watford
gegn Oxford. Shrewsbury er fall-
ið og Bernard McNally leikmað-
ur liðsins hljóp inn á leikvanginn
fyrir leik liðsins gegn Leeds Utd.
með skilti á sér þar sem á stóð
„Til sölu“, 3. deildin er víst ekki
fyrir hann.
Wolves og Sheffield Utd. eru
komin upp í 2. deild, en um
þriðja sætið leika Port Vale,
Fulham, Bristol Rovers og
Preston. Niður í 4. deild falla
Chesterfield, Gillingham, Alder-
shot og Southend. Upp í 3. deild
koma Rotherham, Tranmere og
Crewe, en um fjórða sætið berj-
ast Scunthorpe, Scarborough,
Leyton Orient og Wrexham. Úr
4. deild fellur lið Darlington, en
Maidstone Utd. kemur í 4. deild
í þess stað. Þ.L.A.
Villa urðu daufari. Um miðjan
síðari hálfleik náði Gary Bannist-
er að jafna fyrir Coventry með
skalla eftir sendingu David
Speedie. Aðeins mín. síðar
bjargaði Chris Price á línu hjá
Villa, en liðið hélt jafnteflinu.
Villa hefur nú lokið sínum leikj-
um og verður að bíða þess að
West Ham tapi stigum til þess að
vera öruggt uppi næsta vetur.
West Ham hefur örugglega
vonast til að Everton væri með
hugann við bikarúrslitaleikinn
um næstu helgi, en annað kom á
daginn. Stuart Slater náði þó for-
ystu fyrir West Ham eftir 15 mín.
leik, en 12 mín. síðar var dæmd
hendi á Phil Parkes markvörð
West Ham rétt utan teigs. Kevin
Sheddy skoraði beint úr auka-
spyrnunni með miklu þrumu-
skoti. Dave Watson kom Ever-
ton yfir í síðari hálfleik með
skalla eftir góðan undirbúning
Pat Nevin og Paul Bracewell
skoraði þriðja markið 6 mín. fyr-
ir leikslok. Neville Southall
markvörður Everton varði víta-
spyrnu frá Kevin Keen, en þetta
var ekki dagur West Ham sem nú
verður að sigra bæði Nottingham
For. og Liverpool á útivelli til að
halda sér í 1. deild.
Luton bjargaði sér frá falli er
liðinu tókst að sigra Norwich á
gervigrasinu. Leikmenn Luton
óðu í tækifærum í leiknum, en
gekk illa að skora. Roy Wegerle
og Mick Harford áttu báðir skot í
stöng gegn Norwich sem átti ekk-
ert svar gegn Luton. Danny Wil-
son varð að lokum hetja Luton
liðsins er hann skoraði úr víta-
spyrnu fyrir liðið á 15. mín. síðari
hálfleiks. Hann hafði misnotað
vítaspyrnu í fyrri hálfleik, en
taugar hans héldu og mark hans
tryggði áframhaldandi veru
Luton í 1. deild.
Manchester Utd. sýndi loks að
liðið getur sigrað leik er liðið
lagði Newcastle á heimavelli 2:0.
Brian McClair og Bryan Robson
skoruðu mörk liðsins í stðari
hálfleik.
Millwall og Southampton
gerðu jafntefli í sínum leik, Glen
Cockerill skoraði fyrir South-
ampton í fyrri hálfleik, en Teddy
Sheringham jafnaði fyrir Millwall
í þeim síðari.
Nottingham For. burstaði
Charlton sem bjargaði sér frá
falli fyrr í vikunni 4:0. Franz
Carr, Terry Wilson og Neil Webb
skoruðu fyrir liðið í fyrri hálfleik.
Steve Chettle bætti fjórða mark-
inu við í síðari hálfleik.
Tottenham tapaði síðasta leik
sínum á keppnistímabilinu, gegn
nágrönnum sínum Q.P.R. 0:1 á
útivelli. Það var Mark Falco sem
skoraði sigurmark Q.P.R. á 89.
mín. leiksins. Þ.L.A.
Úrslit í vikunni
1. deild
Charlton-Dcrby 3:0
Liverpool-Nottingham For. 1:0
Manchester Utd.-Everton 1:2
Q.P.R.-Manchesler Utd. 3:2
Sheffield Wed.-Wcst Ham 0:2
2. deild
Crystal Palace-Stoke City 1:0
Um helgina
1. deild
Arsenal-Derby 1:2
Aston Villa-Covcntry 1:1
Everton-West Ham 3:1
Luton-Norwich 1:0
Manchcstcr Utd.-Newcastle 2:0
Millwall-Southampton 1:1
Notlingham For.-Charlton 4:0
Q.P.R.-Tottenham 1:0
Shcfficld Wed.-Middleshrough 1:0
Wimbledon-Liverpool 1:2
2. deild
Bournemouth-Plymouth 0:0
Bradford-Manchcster City 1:1
Crystal Palace-Birmingham 4:1
llull City-W.B.A. 0:1
Ipswich-Blackburn 2:0
Oldham-Swindon 2:2
Oxford-Watford 0:4
Portsmouth-Chelsea 2:3
Shrewsbury-Leeds Utd. 3:3
Stoke City-Brighton 2:2
Sunderland-Leicester 2:2
Walsall-Barnsley 1:3
3. deild
Aldershot-Mansficld 0:0
Brentford-Cardiff City • 1:1
Bristol City-Sheffield Utd. 2:0
Bury-Bristol Rovers 0:0
Chesterfield-Reading 2:4
Fulham-Port Vale 1:2
Gillingham-Notts County 2:1
Huddersfield-Wigan 1:1
Northampton-Bolton 2:3
Preston-Wolves 3:3
Soulhend-Chester 1:0
Swansea-Blackpool 1:2
4. deild
Burnley-Scarborough 0:1
Darlington-Carlisle 2:3
Exeler-Lincoln 0:1
Grimsby-Hartlepool 3:0
Halifax-Hereford 2:2
Leyton Orient-Scunthorpe 4:1
Petcrborough-Doncaster 2:0
Rotherham-Cambridge 0:0
Torquay-Colchcster 1:3
Tranmere-Crewe 1:1
Wrexham-Rochdale 2:1
York City-Stockport 2:0
Chelsea og Man. City
komin í 1. deild
- flögur lið berjast um eitt sæti