Dagur - 13.07.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 13. júlí 1989
Happdrætti
heymarlausra
FÉLAG
HEYRHARLAUSRA
Dregið var í happdrætti
heyrnarlausra þann 5. júlí s.l.
Vinningsnúmar eru þessi:
1. 3619 7. 2996 13. 4798 ★ 19. 33
2. 14901 8. 6762 14. 872 20. 4676 ★
3. 4544 ★ 9. 6681 15. 4267 ★ 21. 6395
4. 5414 10. 499 16. 6457 22. 3347
5. 13571 11. 11692 17. 4318 ★
6. 3617 12. 5102 18. 6904
5 númer komu upp í Akureyrarumboði og eru kross-
ar við þau númer.
Vinninga má vitja á skrifstofu Félags heyrnarlausra,
Klapparstíg 28, alla virka daga, sími 91-13560.
Félagið þakkar veittan stuðning.
Félag heyrnarlausra.
SOS - Akureyri
Dagvistin Krógaból er foreldrarekið barnaheimili.
Framtíðaraðsetur verður í nýinnréttuðu húsnæði í
Glerárkirkju, sem tekið verður í notkun í byrjun
ágúst.
Vegna flutnings í Glerárkirkju og uppsagnar
starfsmanna auglýsum við eftirfarandi til um-
sóknar:
Forstöðufóstru-staða • Deildarfóstru-staða
Almenn fóstru-staða • Almennt starfsfólk
I boði er:
Laun skv. samkomulagi.
Aðstoð við útvegun húsnæðis og flutningsstyrkur.
Spennandi starf þar sem starfsfólk hefur möguleika
á að skipuleggja innra starf heimilisins frá grunni.
Ráðning miðast við 1. ágúst.
Einnig eru laus dagvistarpláss.
Æskilegur aldur er 2 til 5 ára.
Börnum sem byrja 5 ára eða yngri er heimilt að vera
til 7 ára aldurs.
Krógaból lokar ekki vegna sumarleyfa.
Umsóknir sendist til:
Velunnarar Krógabóls
Brekkugötu 8 ■ 600 Akureyri
fyrir 20. júlí.
Upplýsingar gefa:
Kristján Kristjánsson símar 96-24222 og 26367.
Aðalheiður Steingrímsdóttir sími 96-25251 eftir kl.
18.00
Auglýsing frá Landssam-
bandi vörubifreiðastjóra
Á Alþingi hafa verið samþykkt ný lög um leigubifreið-
ar, sem taka gildi frá og með 1. júlí 1989. Með þeim
falla úr gildi eldri lög um leigubifreiðar nr. 36/1970
ásamt síðari breytingum.
í hinum nýju lögum segir meðal annars:
Leiguakstur.
1. gr.
Lög þess taka til fólksbifreiða, vörubifreiða og sendi-
bifreiða, sem notaðar eru til leiguaksturs . ..
Leiguakstur vörubifreiða og sendibifreiða telst það,
þegar slík bifreið er seld á leigu ásamt ökumanni til
flutnings á vörum fyrir tiltekið gjald þar sem ökumað-
ur eða eigandi bifreiðarinnar er hvorki eigandi, selj-
andi né kaupandi vörunnar sem flutt er...
Bifreiðastöðvar.
2. gr.
Á félagssvæðum, þar sem viðurkenndar bifreiða-
stöðvar eru starfandi, er öllum, sem aka utan þess-
ara stöðva, bannað að taka að sér eða stunda leigu-
akstur á viðkomandi sviði. ..
tt/ LANDSSAMBAND
BLvörubifreiðastjóra
SUOURLANDSBRAl/T '.10 .10P RFyKjAVIK SIMI 9.1-689170
íþróttahús í HaJlormsstað
Dalvík:
Unglingar keppast
við að girða
í BöggvisstaðapaUi
Nú er unnið að því að girða af
Böggvisstaðafjall ofan Dalvík-
ur. Kristján Þór Júlíusson,
bæjarstjóri, áætlar að hér sé
um að ræða 4-5 kílómetra
langa girðingu. Lengi hefur
staðið til að girða Böggvis-
staðafjall af og hindra þannig
að búfé gengi þar.
Við girðingavinnuna starfa
unglingar á Dalvík undir stjórn
Jóns Halldórssonar. Til verksins
eru nýttir fjármunir, um 1,5
milljón króna, sem félagsmála-
ráðuneytið úthlutaði til að
tryggja skólafólki atvinnu í
sumar. Pá var sótt um „plast-
pokapeninga“ frá Landvernd til
verksins og fengust 400 þúsund
krónur úr þeim sjóði.
Girðingin, sem er 5 strengja
rafmagnsgirðing, liggur upp und-
ir egg Böggvisstaðafjalls ofan við
bæinn Hrafnsstaði og niður í
Brimnesá. óþh
Þeir sem koma að Hótel Eddu í
Hallormsstað reka væntanlega
augun í allstóran grunn og menn
í byggingarvinnu. Hér er hvorki
verið að stækka hótelið né byggja
hljómsveitarpall heldur er hér
verið að byggja íþróttahús fyrir
Hallormsstaðarskóla, sem rekinn
er sem Edduhótel á sumrin.
Hótelið hefur reynst mörgum
ferðamanninum vel, ekki bara
vegna veitinga- og gistiaðstöðu,
heldur einnig hreinlætisaðstöðu.
Til dæmis hefur ávallt verið löng
biðröð við sturtur hótelsins um
verslunarmannahelgar enda
hreinlætisaðstaða bágborin í
Atlavík. SS
Bæjarstjórn Akureyrar:
Rætt um lóð fyrir slysavamahús
Sigurður J. Sigurðsson, forseti
Bæjarstjórnar Akureyrar,
svaraði fyrirspurnum Sigurðar
Jóhannessonar og Heimis Ingi-
marssonar varðandi bókun
hafnarstjórnar frá 21. júní á
fundi bæjarstjórnar sl. þriðju-
dag. Bókunin fjallar um um-
sókn slysavarnadeildanna í
bænum fyrir hús á hafnarsvæð-
inu.
Sigurður J. sagði að í samræmi
við deiliskipulag hafnarsvæðisins
á Akureyri frá 1982 hefði verið
gerð tillaga um athafnasvæði
tengt hafnarsvæðinu við miðbæ-
inn, þar sem gert væri ráð fyrir
smábátalægi og aðstöðu fyrir
smábátaeigendur við norðanvert
Torfunefssvæðið.
Menn væru að velta þeim
möguleika fyrir sér að koma
ofangreindri aðstöðu fyrir á svip-
uðum slóðum og sjósleðasportið
er staðsett nú.
Svanur Eiríksson, arkitekt,
hefði gert tillögur í þessa veru á
Vísitala framfærslukostnaðar:
18,5% hækkun
á 12 mánuðum
Kauplagsnefnd hefur reiknað
vísitölu framfærslukostnaðar
miðað við verðlag í júlíbyrjun
1989. Vísitala í júlí reyndist
vera 126,8 stig, eða 0,7% hærri
en í júní. Samsvarandi vísitala
samkvæmt eldra grunni er
310,8 stig.
Verðhækkun ýmissa vöru- og
þjónustuliða olli alls um 1,0%
hækkun á vísitölu framfærslu-
kostnaðar. Því til frádráttar kem-
ur lækkun á verði 92 oktana bens-
ínlítra um 3,9% 20. júní síðast-
liðinn sem olli um 0,1% lækkun,
1,7% lækkun á fjármagnskostn-
aði sem olli 0,1% lækkun og 6%
lækkun á verði mjólkurlítra sem
hafði í för með sér rúmlega 0,1%
lækkun vísitölunnar.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala framfærslukostnaðar
hækkað um 18,5%. Undanfarna
þrjá mánuði hefur vísitalan
hækkað um 5,8% og jafngildir sú
hækkun um 25,1% verðbólgu á
heilu ári.
sínum tíma. Hafnarstjórn benti á
umrætt svæði og hefði falið hafn-
arstjóra að vinna að framgangi
málsins.
„Þetta er ekki til ályktunar á
þessu stigi málsins hér í bæjar-
Það styttist í hátíðahöld á
Skagaströnd vegna 50 ára
afmælis Höfðahrepps, Skaga-
hrepps og Vindhælishrepps
hins nýja, en 1. maí 1939 var
Vindhælishreppi, hinum
gamla, skipt upp í þessa þrjá
hreppa. Síðustu helgi þessa
mánaðar verður hápunktur
hátíðahaldanna, nánar tiltekið
28.-30. júlí nk. Að sögn Hall-
dórs Hermannssonar, umsjón-
armanns hátíðahaldanna, mið-
ar undirbúningi vel áfram og
sagði Halldór að búið væri að
panta gott veður þessa helgi,
því megnið af hátíðinni mun
fara fram utan dyra.
Á meðan afmælishátíðin
stendur yfir verður rekið staðar-
útvarp en nánari tilhögun þess
hefur ekki verið ákveðin. Áðal
hátíðarhöldin eiga að fara fram á
Hólatúni seinni part laugardags-
ins 29. júlí með skemmtiatriðum,
leikjum o.fl. Endað verður á alls-
herjar grillveislu fyrir viðstadda.
Sem fyrr segir er þetta miðað við
Gabriele og Herwig Maurer
frá Lambrecht í Vestur-
Þýskalandi koma fram á tón-
leikum í Akureyrarkirkju í
kvöld, fimmtudagskvöld, og
hefjast tónleikarnir kl. 20.30.
Gabriele leikur á fiðlu en
Herwig á orgel og munu þau
flytja verk eftir Bach og fleiri.
Aðgangur að tónleikunum er
stjórn en væntanlega kemur þetta
fyrir hafnarstjórn og skipulags-
nefnd þegar slysavarnadeildirnar
á Akureyri hafa mótað afstöðu
sína nánar,“ sagði Sigurður J.
Sigurðsson. EHB
gott veður! Þá verður margt
fleira gert, t.d. fer fram afmælis-
mót í sundi og kannski skákmót.
Einnig verður opnuð sýning frá
Listasafni ASÍ.
Sunnudaginn 30. júlí verða lið-
in 100 ár frá fæðingu Magnúsar
Björnssonar, rithöfundar frá
Syðra-Hóli, og af því tilefni verð-
ur afhjúpaður minnisvarði sem
hrepparnir þrír hafa látið gera.
Nánar verður greint frá hátíðar-
höldunum, er nær þeim dregur.
-bjb
Leiðrétting
í grein í Degi í gær um vígslu séra
Kristjáns Björnssonar í Hóla-
dómkirkju s.l. sunnudag var
ranglega hermt að hann hefði
verið vígður til Bólstaðarhlíðar-
prestakalls. Hið rétta er að sér
Kristján var vígður til þjónustu í
Breiðabólstaðarprestakalli í
Vestur-Hópi.
Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
ókeypis.
Herwig er orgelleikari við
Klausturkirkjuna í Lambrecht,
en þar er mjög fjölbreytt tónlist-
arlíf og haldnir eru að staðaldri
orgeltónleikar yfir sumarmánuð-
ina.
Rétt er að vekja athygli á því
að vegna viðgerða við Akureyr-
arkirkju verður gengið inn kap-
ellumegin.
50 ára afmæli Höfðahrepps:
Styttist í hátíðarhöldin
- undirbúningi miðar vel áfram
Tónleikar í Akureyrarkirkju í kvöld:
V-þýsk feðgin koma fram