Dagur - 13.07.1989, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 13. júlí 1989 - DAGUR - 9
-Zzj - :=
Messur ^ i Takið eftir
Akurcj rarprestakail.
Fyrirbœnaguðsþjónusta verður í dag
í kapellunni fimmtudag kl. 17.15.
Allir velkomnir.
Sóknarprestur.
Glerárkirkja.
N.k. sunnudag 16. júií kl. 14.00
verður innsetngarguðsþjónusta í
kirkjunni.
Þá setur prófastur, nýkjörinn sókn-
arprest séra Pétur Þórarinsson í
embaetti.
Kirkjukaffi eftir messu.
Sóknarnefnd.
Minningarspjöld Krabbameinsfélags
Akureyrar og nágrcnnis fást á cftir-
töldum stöðum: Akureyn: Bókabúð
Jónasar, Bókvali, Möppudýrinu í
Sunnuhlíð og á skrifstofunni Hafn-
arstræti 95, 4. hæð; Dalvík: Heilsu-
gæslustöðinni, Elínu Sigurðardóttur
Stórholtsvegi 7 og Ásu Marinósdótt-
ur Kálfsskinni; Ólafsfirði: Apótek-
inu; Grenivík: Margréti S. Jóhanns-
dóttur Hagamel.
Minningarspjöld Náttúrulækninga-
félags Akureyrar fást á eftirtöldum
stöðum: Amaró, Bómabúðinni Akri
Kaupangi og Bókvali.
Minningarkort Glerárkirkju fást á
eftirtöldum stöðum: Hjá Ásrúnu
Pálsdóttur Skarðshlíð 16 a, Guð-
rúnu Sigurðardóttur Langholti 13
(Rammagerðinni), Judithi Sveins-
dóttur Langholti 14, í Skóbúð M.H.
Lyngdal Sunnuhlíð og versluninni
Bókval.
Al-Anon fjölskyldudeildirnar
félagsskapur ættinga og vu...
alkoholista, sem samhæfa reynslu
sína, styrk og vonir svo að þau megi
leysa sameiginleg vandamál sín.
Við trúum að alkoholismi sé fjöl-
skyldusjúkdómur og að breytt við-
horf geti stuðlað að heilbrigði.
Við hittumst í Strandgötu 21:
Mánud. kl. 21.00, uppi.
Miðvikud. kl. 21.00. niðri.
Miðvikud. kl. 20.00, Alateen (ungl-
ingar).
Laugard., kl. 14.00, uppi.
Vertu velkomin!
Borgarbíó
UNBt’ARABLE LIGffj SS
OFBBNO
Fimmtudagur 14. júlí
Kl. 9.00
Óbærilegur léttleiki
tilverunnar.
F orsætisráðuneytið:
Ilverjum er boðið í
veislur ráðuneytisins
- í tengslum við opinberar heimsóknir?
Að gefnu tilefni vill forsætis-
ráðuneytið upplýsa eftir hverj-
um meginreglum boðið er í
veislur ráðuneytisins í sam-
bandi við opinberar heim
sóknir.
Eftirtöldum aðilum er að jafn-
aði boðið í slíkar veislur:
Erlendum heiðursgestum, fylgd-
arliði, þ.á.m. fréttamönnum frá
viðkomandi ríki, ríkisstjórn
íslands, handhöfum forsetavalds,
biskupi íslands, fv. sendiherrum
íslenskum, sem verið hafa í við-
komandi ríki, ráðuneytisstjórum
og nokkrum öðrum embættis-
mönnum í Stjórnarráði og opin-
berum stofnunum, fulltrúum
aðila vinnumarkaðarins, fulltrú-
um fjölmiðla, stjórnarformönn-
um stærstu fyrirtækja, er við-
skipti eiga við viðkomandi ríki,
fulltrúum stjórnmálaflokka, er
setu eiga á Alþingi og mökunt
framangreindra aðilja.
„Við ofangreindar reglur hefur
verið stuðst um árabií og var svo
í þeirri veislu, sem gerð hefur
verið að umræðuefni. Það skal
jafnframt tekið fram að í þeirri
veislu voru gestir ekki 180 eins og
fullyrt hefur verið heldur 114.
Jafnframt skal tekið fram að
gefnu tilefni að í hádegisverði
þeim, sem haldinn var á Þingvöll-
um til heiðurs spönsku konungs-
hjónunum voru ekki 200 gestir,
eins og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu, heldur 102, þar af 36 úr
fylgdarliði konungshjónanna."
ísland aðili að
Ferðamálaári Evrópu
Samgönguráðherra hefur
ákveðið að ísland verði aðili
að Ferðamálaári Evrópu árið
1990, sem Evrópubandalagið
og EFTA-ríkin ætla að standa
að í sameiningu. Markmiðið
með Ferðamálaárinu er að
vekja athygli á sívaxandi mikil-
vægi ferðaþjónustunnar sem
atvinnugreinar í öllum löndum
Evrópu og þýðingu hennar í
efnahags- og félagslegu tilliti í
framtíðinni, en jafnframt að
móta nýjar leiðir og áherslur í
ferðaþjónustunni.
Skipuð hefur verið þriggja
manna landsnefnd átaksins hér á
landi og eiga sæti í henni Birgir
Þorgilsson ferðamálastjóri, sem
jafnframt er formaður nefndar-
innar, Árni Þór Sigurðsson hag-
fræðingur í samgönguráðuneyti
og Haukur Ólafsson sendiráðu-
nautur í utanríkisráðuneyti.
Verkefni landsnefndarinnar er
m.a. að sjá um undirbúning og
framkvæmd ferðamálaárs, kynna
þetta átak meðal aðila í ferða-
þjónustu og koma á framfæri
hugmyndum um nýjungar. Þá
mun landsnefndin einnig hafa
með höndum samskipti og sam-
starf við stjórnarnefnd átaksins,
sem er samstarfsnefnd EB og
EFTA og hefur aðsetur í Brússel,
en stjórnarnefndin tekur stefnu-
markandi ákvarðanir um fram-
kvæmd ferðamálaársins. íslenska
landsnefndin hefur hafið störf og
mun kynna hugmyndir sínar um
skipulagningu ársins hér á landi á
haustmánuðum.
Minning:
Jónas Sigurbjömsson
Fæddur 24. ágúst 1950 - Dáinn 7. júlí 1989
í dag, fimmtudaginn 13. júlí,
verður Jónas Sigurbjörnsson jarð-
settur frá Glerárkirkju á Akureyri.
Jónas barðist undanfarna mán-
uði hetjulegri baráttu við hinn ill-
víga sjúkdóm, krabbamein. Dauði
ættingja og vina veldur alltaf sorg
og trega, en þegar sársaukinn vík-
ur fyrir Ijúfum endurminningum
liðins tíma, þá getið þið huggað
ykkur við það - elsku Gulló, Eva,
Grettir. Elva og ástvinir allir - að
Jónas hefði aldrei sætt sig við
heilsuleysi, því lífsstíll hans var að
lifa iífinu lifandi.
Ósjálfrátt leitar hugurinn yfir
farinn veg og koma þá margar Ijúf-
ar minningar í hugann, flestar
tengdar Hlíðarfjalli. Þar eyddi
Jónas öllum sínum frítíma við
æfingar og keppni, enda um árabil
einn besti skíðamaður landsins.
Þar eignaðist hann sína bestu vini
og þar kynntist hann konunni
sinni, Guórúnu Frímannsdóttur.
Þar naut sín best hið andlega bg
líkamlega atgervi, ljúfmennska
hans og dugnaður. Jónas naut sín
ekki innan uin ókunnuga, hafði
lítið að segja og lét sig gjarnan
hverfa úr slíkum samkomum. Aft-
ur á móti var hann hrókur alls
fagnaðar í góðra vina hópi.
Jónas fæddist 24. ágúst 1950.
Foreldrar hans voru Margrét Sig-
urðardóttir og Sigurbjörn Þor-
steinsson byggingameistari, en
hann lést fyrir tæpu ári. Magga
mín, það er skammt stórra högga
á milli. Við Baldi biðjum Guð að
styrkja þig og börnin þín.
Jónas var húsasmiður að mennt,
en eftir að Guðrún, kona hans,
lauk stúdentsprófi árið 1978 héldu
þau ásamt Evu dóttur sinni til
Þrándheims í Noregi í frekara
nám og útskrifaðist Jónas þaðan
sem byggingatæknifræðingur. Þeg-
ar heim kom fengu þau bæði vinnu
við sitt hæfi og aftur lá leiðin í
Hlíðarfjall. Nú til að leggja þeim
yngri lið. Eva var tekin vié af for-
eldrum sínum, stundaði æfingar
og keppni, stoltum föður til mikill-
ar ánægju.
Sl. haust urðu þáttaskil. Mikil
gleði yfir væntanlegu barni, en
jafnframt áhyggjur út af heilsu
Jónasar. í sorg og gleði hafa Gulló
og Eva sýnt ótakmarkað þrek, ást
og umhyggju. Megi ykkur áfram
auðnast sá mikli styrkur. Elsku
Gulló, ég veit að fjölskylda þín
hefur veitt ykkur ómetanlega hjálp
og mun gera það áfram. Umfram
allt hef ég dáðst að Margréti, mág-
konu þinni, og Gretti, bróður
þínum.
Við Baldi, Þorsteinn Már, Mar-
grét og Finnbogi Alfreð sendum
ykkur öllum okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Bella.
Andlátsfregn vinar veldur alltaf
sorg og trega, jafnvel þó að við
henni hafi verið búist. Jónas Sig-
urbjörnsson kvaddi föstudaginn
7. júlí eftir stutta en harða bar-
áttu við illvígan sjúkdóm,
krabbamein. Hann tók sjúk-
dómnum með æðruleysi, kvart-
aði ekki og hélt reisn sinni þar til
yfir lauk.
Jónasi kynntumst við í Hlíðar-
fjalli fyrst sem keppanda í alpa-
greinum skíðaíþróttarinnar, síð-
ar sem einum af liðsmönnum
Skíðaráðs Akureyrar. Á keppn-
isárum sfnum vann hann til
margra verðlauna og titla. Hóp-
urinn sem æfði og keppti á sama
tíma og Jónas var mjög samheld-
inn og minningarnar frá þessum
árum eru fallegar og ljúfar.
í nokkur ár bjó Jónas ásamt
fjölskyldu sinni í Noregi. Árið
1985 fluttu þau aftur til Akureyr-
ar og var það mikill fengur fyrir
skíðaíþróttina. Guðrún kona
Jónasar tók að sér þjálfun, Eva
dóttir þeirra er mjög góð skíða-
kona og kcppandi og Jónas t'ór að
starfa fyrir Skíðaráð Akureyrar.
Við sem störfuðum með honum,
dáðumst alltaf að dugnaði og
krafti hans. Það sem hann tók sér
fyrir hendur var gert og ekkert
gat stöðvað hann. Hann náði sér-
staklega góðu santbandi við
keppendur í unglingaflokkum og
fór með þeim sem fararstjóri í
margar keppnisferðir nú síðast í
mars. Þaö lýsir dugnaði og hörku
Jónasar að í apríl var haldið
alþjóðlegt skíöainót hér á Akur-
eyri og þar var hann starfandi í
tvo daga, þá fársjúkur, en ekki
kvartaði hann. Skömmu seinna
lagðist hann inn á sjúkrahús og
átti þaðan ekki afturkvæmt.
Jónasi viljum við þakka fyrir
að hafa fengið tækifæri til að
starfa með honum og kynnast
honum, þau kynni voru ljúf og
gefandi.
Guðrún, Eva, Grettir, Elfa,
Magga og systkini: Það var mikil
gæfa að hafa átt jafn góðan dreng
og Jónas.
F.h. Skíðaráös Akureyrar
Margrét Baldvinsdóttir
Hljómar, ómar, klukkur allar
klingja,
komin er stundin, nú ert þú á
förum.
Við grátum og munum saknaðar
Ijóð syngja
og sendum þér koss af okkar
mjúku vörum
Þeir deyja ungir sem guöirnir
elska. Það hlýtur að vera satt
hugsaði ég þegar ég frétti að Jón-
as væri dáinn. Það er erfitt að
skilja tilgang lífsins, þegar svona
ungur maður er kallaður burt frá
okkur.
Jónas var í mfnum huga góður
maður sem ég leit upp til. Ég hefi
mikið dvalið á heimili þeirra Jón-
asar og Guðrúnar, enda kallaður
einn af heimilisvinunum, eins og
fleiri krakkar, sem finnst gott að
koma í Sunnuhlíð 4. Þar var oft
skrafað og gantast, okkur kennt
að virða og þykja vænt um skíða-
íþróttina og svo margt fleira.
Margar eru ferðirnar á skíði sem
ég fór með þeim. Ég vil þakka
Jónasi fyrir allar hans góðu
stundir er ég fékk að njóta.
Elsku Guðrún, Elva, Grettir,
og aðrir ástvinir, ég bið guð að
styrkja ykkur, svo að minningin
um góðan dreng gleðji hug ykkar
í sorginni.
Axel.
í dag er til moldar borinn vinur
okkar Jónas Sigurbjörnsson. Við
sem hann þekktum syrgjum sárt
góðan dreng og spyrjum sjálf
okkur spurninga, sem endanleg
svör fást ekki við.
Okkur tekst seint að sætta okk-
ur við að hraustmenni í blóma
lífsins skuli svo óvænt lagt að
velli af ósýnilegum andstæðingi,
sem við þekkjum þó af því að
höggva án vægðar þar sem eng-
inn á von á.
Dauðinn er og verður okkur
lifendum óskiljanleg gáta, þrátt
fyrir að hann sé það eimjsta sem
við getum vænst með fullri vissu.
Vitur maður sagði að dauöinn
væri stærsta ævintýri lífsins. Við,
sem horfum á bak góðum vini og
félaga inn í annað líf, fáum að
sönnu litla hlutdeild í þessu
ævintýri. En okkar ævintýri felst í
minningunni um góðan vin,
minningunni um góðar stundir,
hlátur og spaug, minningunni um
spjall fram á rauða nótt um allt
milli himins og jarðar og
minningunni um heimsins besta
skíðafæri á lífsins fallegasta sól-
skinsdegi. Slíkar minningar og
fleiri góðar eigum við um Jónas
og þær munum við geyma vel.
Við kynntumst Jónasi, Guð-
rúnu og Evu í Þrándheimi í Nor-
egi og eftir að heim til íslands
kom héldum við vináttu okkar
við með gagnkvæmum gistiheim-
sóknum. Heimili þeirra á Akur-
eyri varö okkar, þangað var alltaf
jafn gott að koma og fá að njóta
þeirrar gestrisni sem húsráðend-
um var í blóð borin.
Jónas var maður rólegur í fasi
og gott að vera nálægt honum.
Undir yfirborðinu var stutt í
hláturinn og þegar verk þurfti að
vinna var ekkert sleifarlag á
hlutunum. Hann vargæddur ríkri
ábyrgðartilfinningu og ef hann
tók eitthvað að sér stóð allt eins
og stafur á bók. Félagar hans í
Hlíðarfjalli rnunu sakna dugnað-
arforksins, sem taldi enga fyrir-
höfn of mikla og á vinnustað Jón-
asar, Vör hf., er skarð fyrir
skildi.
Mcstur er þó missir ástvin-
anna, sem nú ylja sér við eld
minninganna um hann, á svölu
kvöldi sorgar og eftirsjár. Við
biðjum Guðrúnu, Evu, Gretti
litla og Elfu allrar blessunar og
megi trúin á hið bjarta og
jákvæða veita þeim styrk.
Ásta og Valgeir.
Birting afinælis- og
minningargreina
Dagur tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjalds-
laust. Tekið er við greinunum á ritstjórn blaðsins að Strandgötu 31,
Akureyri svo og á skrifstofum blaðsins á Blönduósi, Húsavík,
Reykjavík og Sauðárkróki.
Áthygli skal vakin á því að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sent birtast á í fimmtudagsblaði, að
berast síðdegis á þriðjudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
Þá eru minningargreinar ekki birtar í laugardagsblaði.
Meginreglan er sú að minningargreinar birtist undir fullu nafni
höfundar.