Dagur - 13.09.1989, Blaðsíða 4

Dagur - 13.09.1989, Blaðsíða 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÚLF 58, AKUREYRI, Sl'MI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDI'S FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 ískyggileg spá sem má ekki rætast Nýjasta spá Byggðastofnunar um íbúaþróun næstu tvo áratugi er vægast sagt ískyggileg. Miðað við þær forsend- ur sem þar eru gefnar, mun öll fjölgun landsmanna verða á höfuðborgarsvæðinu. Á sama tíma mun íbúatala ann- arra staða á landinu lækka, vegna flutninga fólks til höf- uðborgarsvæðisins, eða í besta falli standa í stað. Bjarni Einarsson, aðstoðarforstjóri Byggðastofnunar, gerði glögga grein fyrir íbúaþróuninni næstu tvo áratugina í erindi sem hann flutti á Fjórðungsþingi Norðlendinga í byrjun þessa mánaðar. í máli Bjarna kom fram að ef fram heldur sem horfir mun íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölga um hvorki meira né minna en 51.800 næstu 20 árin, þar af mun rúmlega helmingur fjölgunarinnar stafa af búferlaflutningum fólks frá öðrum landshlutum. Ef þetta gengur eftir verða íbúar höfuðborgarsvæðisins orðnir 191.770 talsins árið 2010, en voru 142 þúsund í fyrra. Bjarni Einarsson vill ekki kalla þessar tölur spá, heldur framreikning. Það segir sína sögu um alvöru málsins. í ritstjórnargrein nýjasta tölublaðs Sveitarstjórnarmála fjallar Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, um þessa hrikalegu spá Byggðastofnunar. Sigurgeir seg- ir m.a.: „Margir hafa talið að besta vörnin gegn byggðaröskun væri uppbygging byggðakjarna í öllum landshlutum, þar sem hægt væri að koma upp og veita lágmarksþjónustu, er landsmenn sætta sig við í menningu, menntun og í þjónustu ýmiss konar. Þessi þróun er því miður allt of seinvirk og tekur áratugi að framkvæma. Ég hef varpað fram þeirri hugmynd, að fyrst í stað yrði samkomulag um að efla einn byggðarkjarna norðanlands; þar á ég að sjálf- sögðu við Akureyri, og stefnt yrði að því að tvöfalda byggð þar á næsta aldarfjórðungi með markvissum aðgerðum stjórnvalda og heimamanna. Um slíka aðgerð þarf að nást samstaða, þannig að aðrir landshlutar viður- kenni þann forgang, sem þarna yrði um að ræða. Með því að koma á fót þéttbýh norðanlands, sem hefði um eða yfir 30 þúsund íbúa, er hægt að bjóða landsmönn- um val á búsetu, sem gæfi möguleika á svipaðri þjónustu og framboði í menntun, menningu og atvinnutækifærum og þéttbýlið við Faxaflóa nú býður. Stóraukin byggð á Akureyri hefði áhrif langt út frá sér, bæði til austurs og vesturs, þannig að með stórbættum samgöngum gæti Akureyrarsvæðið orðið sem kjölfesta allra byggða norðanlands." Þessi hugmynd er allrar athygli verð. Það er staðreynd að Akureyri hefur lengi verið helsta mótvægið við höfuð- borgarsvæðið í byggðalegu tilliti. Það er líka staðreynd að undanfarin ár hefur Akureyri dregist aftur úr í íbúaþróun- inni og ekki náð að halda í við höfuðborgarsvæðið sem skyldi. íbúaspá Byggðastofnunar segir allt sem segja þarf um þá byggðastefnu sem nú er fylgt. Hún er gengin sér til húðar. Fara þarf aðrar leiðir eigi árangur að nást. í lok ritstjórnargreinarinnar í Sveitarstjórnarmálum segir Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri: „Fyllilega er tímabært að sveitarstjórnarmenn hefji umræður um þetta stórmál og láti ekki reka á reiðanum um framtíð byggðar í landinu." Undir þau orð getur Dagur tekið heils hugar. Koma þarf í veg fyrir það með öllum tiltækum ráðum að hin ískyggilega íbúaspá Byggðastofnunar rætist. Það er alls ekki vilji þeirra sem landið byggja, né hagur, að ísland verði borgríki við Faxaflóa. BB. Jón Sigurðsson skólastjóri: Þróun ævintýri líkust - Kaflar úr ræðu við 72. skólasetningu Samvinnuskólans 2. september sl. Tvöfaldri umbyltingu Samvinnu- skólans, sem staðið hefur frá 1985, er nú lokið og starfar skól- inn nú að öllu leyti sem óskiptur sérskóli á háskólastigi á Bifröst, en deildum framhaldsskólastigs- ins, Framhaldsdeild í Reykjavík og Rekstrarmenntadeild á Bifröst, hefur verið lokað. Þessi umbylting Samvinnuskól- ans er vissulega ævintýri líkust. Mjög mikilvæg reynsla hefur nú þegar fengist af starfinu á há- skólastigi á síðastliðnum vetri og hefur áhersla verið lögð á að draga skynsamlegar ályktanir af henni. Enn hefur nemendum mjög fjölgað og eru nú alls 93 á Bifröst. Mjög margir nemendur hafa maka og börn sín hjá sér og dreifast því á bústaði í nágrenni skólans og um héraðið. Rétt er að taka fram, þrátt fyrir þessa miklu fjölgun nemenda, að óhjákvæmilegt reyndist að hafna rúmlega þriðju hverri umsókn um skólavist að þessu sinni. Enda þótt umsóknarfrestur væri styttur mjög sl. vor urðu umsóknir miklu fleiri en unnt var að veita inn- göngu, og sýnir þetta með öðru að þessi nýi sérskóli á háskóla- stigi mætir mikilli þörf í samfé- laginu og á greinilega fyllsta rétt á sér. Ég vil vekja athygli á þeirri sér- stöðu Samvinnuskólans að hér er vandlega valið um umsækjendur, að þessu sinni rúmlega þriðju hverri umsókn hafnað, ekki ætl- ast til að nemandi vinni með náminu, fylgst með vinnubrögð- um hvers einasta nemanda dag frá degi og fallprósenta tiltölu- lega lág fyrir bragðið eftir að nám er hafið á annað borð. Við ýmsa aðra háskóla er öllum umsækj- endum veitt innganga, ekki fylgst daglega með nemendum og ekki gerðar athugasemdir þótt þeir vinni með námi og fallprósenta vitaskuld næsta há. Hvort tveggja kerfið á rétt á sér, en hér er um ólík viðhorf og ólíkar afleiðingar að ræða. Ýmsir áfangar í sumar í annan stað hefur mjög mikil breyting orðið á kennaraliði skól- ans og sjáum við á bak góðum vinum og þróttmiklum samstarfs- mönnum og þökkum mikil og góð störf þeirra. Nú eru meðal kennara þrír sem hafa meistara- gráðu og tveir þeirra komnir áleiðis að doktorsprófi; fjórir hafa kandídatspróf, þrír bachel- orspróf, en einn hefur diploma- háskólapróf. Meðal annarra breytinga frá því í vor má nefna að skólabóka- safnið hefur verið endurskipulagt frá grunni og aðstaða þess mjög bætt. Hörður Haraldsson kennari hefur bætt enn einu listaverki við fyrir skólann, ntálverki af frú Guðlaugu Einarsdóttur fyrrum skólahúsmóður á Bifröst. Svo sem um var talað sl. vor hefur rekstrarformi og stjórnun mötu- neytisins verið gerbreytt og starf- ar það nú sem sjálfstætt sam- vinnufyrirtæki nemenda og ann- arra þeirra sem í það ganga. Það telst vitaskuld til mikilla tíðinda að Norðurárdalshreppur hefur með stuðningi Samvinnu- skólans stofnað dagvist smábarna í nágrenni skólans, og ákveðið er að tryggja óskerta grunnskóla- göngu með skólaseli frá Varma- landsskóla hér í nágrenninu. Það fer alls ekki á milli mála að óskertur grunnskóli annars vegar og dagvist smábarna hins vegar eru skilyrði þess að Samvinnu- skólinn geti starfað hér áfram; án þessarar aðstöðu verður hér eng- inn slíkur skóli. Hins vegar er það áhyggjuefni að við höfum ekki mætt skilningi í héraðinu á því að þetta er skilyrði þess að skólinn geti starfað hér áfram. Nýjar reglur um skólaráð, með mjög auknu hlutverki og valdi, taka nú gildi og aukast þar með verulega afskipti nemendafull- trúa af stjórn skólans. Hafinn er undirbúningur að nýrri skipulags- skrá og reglugerð um Samvinnu- skólann. Þjónusta við atvinnulífið Samvinnuskólinn hefur marg- háttaða sérstöðu sem skóli á háskólastigi. Skólinn er skipu- lagður með sérstakri eigin kennslufræði og fræðsluaðferð- um sem birtast í öllunt daglegum störfum. Þrátt fyrir byrjunarerf- iðleika koin það í ljós á sl. vetri að þessi fræðsluskipan stendur fyrir sínu enda er fyrir henni alþjóðleg reynsla. Starfshættir okkar eru um margt mjög frábrugðnir hefð- bundnum störfum háskóla þar sem fyrirlestrar og minnislær- dómur setja mestan svip á störfin. Samvinnuskólinn stefnir að því í allri fræðslu sinni að veita nemendunt sem mesta hagnýta þjálfun og leikni og þar með að auka sem mest og best hæfni þeirra til að ganga að námi loknu beint til ábyrgðarstarfa í atvinnu- lífinu. Að þessu marki er stefnt m.a. með daglegri verkefna- vinnslu, með samþættum hagnýt- um verkefnum og viðamiklum lokaverkefnum. Skólinn reynir að veita nemendum næga sérhæf- ingu en þó ekki óeðlilega eða óþarflega mikla, miðað við aðstæður í íslenskum fyrirtækj- um og atvinnulífi yfirleitt. I samræmi við samvinnu-eðli sitt leggur skólinn talsverða áherslu á hópvinnu nemenda að verkefnum líkt og reyndin er um flesta vinnu í atvinnulífinu sjálfu, og félagslíf á skólaheimilinu er vitanlega þáttur þeirrar þjálfunar og þroskunar sem við stefnum að. Félagslíf nemendanna er mjög mikilvægur þáttur skóla- starfsins og vonandi mun það efl- ast mjög á næstunni, nú þegar fyrstu framkvæmdaerfiðleikarnir við umbreytingu skólans hafa verið yfirstignir. Um leið og fræðsluskipan skól- ans stefnir til atvinnulífsins hefur það jafnframt verið haft í huga að nemendur geti einnig haldið áfram til frekara háskólanáms, og verður það m.a. til athugunar nú á næstunni. Það er metnaður Samvinnu- skólans að búa nemendur sína sem best til ábyrgðar- og forystu- starfa í atvinnulífi og þjóðlífi, eins og verið hefur undanfarna sjö áratugi. Mjög ntikilvægur þáttur í fræðsluskipan Samvinnu- skólans er sú þunga áhersla sem hér hvílir á eigin vinnuframlagi nemandans, eigin frumkvæði nemandans við vinnuna og á jákvæðri og hiklausri afstöðu til þess að vinna, ná afköstum og skila verkefnum með árangri á tilsettum tíma. Vísvitandi fórn- um við miklu í svonefndu „aka- demísku frelsi“ til þess að ná þessum markmiðum. Það er vit- anlega undir einstaklingnum komið hvort og hvernig það veg- arnesti sem skólinn veitir nýtist, en það er sannarlega metnaður skólans að öll störf hans nýtist þjóðinni og byggðinni í landinu sem best. Skólinn er þjónustu- ■ stofnun við íslensku þjóðina og atvinnulíf hennar og í þeim anda ber okkur að starfa. Háskólastigið á dagskrá Svo sem eðlilegt er beinast sjónir margra áhugamanna um mennta- mál nú mjög að háskólastiginu. Frainhaldsskólastigið á íslandi hefur gengið í gengum algera byltingu og margföldun á síðustu tveimur áratugum og nú er röðin komin að háskólastiginu. Nú þegar veita einar 12 skólastofn- anir hérlendis fræðslu á háskóla- stigi, og má nefna, auk Háskóla íslands, Kennaraháskólann og Tækniskólann, Háskólann á Akureyri, Búvísindadeild Bænda- skólans á Hvanneyri, Samvinnu- skólann, Tölvuháskóla Verslun- arskólans, þrjá listaskóla, Fóstur- skólann og Þroskaþjálfaskólann. Nám á háskólastigi er alþjóð- lega skilgreint sem beint efnislegt framhald fyrri formlegrar skóla- göngu sem áður hefur tekið 12-13 ár. Háskólanám er þá mjög sér- hæft miðað við lægri skólastig, og það er stundað fyrst og fremst á ábyrgð og að frumkvæði nem- andans sjálfs. Því er gert ráð fyrir miklum tíma til sjálfstæðrar vinnu nemandans umfram þær stundir sem hann er í beinum samskiptum við kennara. í há- skólanámi er einnig gert ráð fyrir eigin þekkingaröflun og sjálf- stæðri sannleiksleit langt umfram það sem kennslubókanotkun o.þ.h. á lægri skólastigum getur gert ráð fyrir. Skólar á háskólastigi sinna allir bæði rannsóknum í vísindum og fræðslu nemenda en leggja mis- mikla áherslu á hvorn þáttinn um sig. Annars vegar eru stofnanir sem leggja megináherslu á rann- sóknir og hins vegar skólar sem eru fyrst og fremst kennslustofn- anir. Vegna þessa mismunar eru víða um lönd notuð sérstök heiti fyrir hvora gerðina um sig og talað um „universitet, university" o.fl. þar sem áhersla er lögð á vísinda- rannsóknir en „högskola, college, polytechnic“ o.fl. þar sem áhersla hvílir á kennsluþættinum, og er þó margt ónákvæmt í þess- ari orðanotkun. í annan stað er víða gerður munur á því hvort skóli á há- skólastigi er framhald fyrra bók- legs náms eða verkmenntunar, og tala t.d. Bretar í fyrra atvikinu um „higher education" og í síð- ara atvikinu um „further educat- ion“. Ég hef nýlegar upplýsingar frá Englandi og Skotlandi, Noregi og Vestur-Þýskalandi, Bandaríkjun- um og Svíþjóð. í öllum þessum löndum er þróunin nú á þann veg að draga sem mest úr skipulegum og formlegum mismun rannsókna- skóla og kennslustofnana annars vegar og hins vegar úr sambæri- iegum mismun á háskólastigi „bóklegra“ fræða, ef slíkt heiti mætti nota, og verkmennta. í skrifum Breta um þessi efni hafa þeir m.a. leikið sér að því að sameina orðin „university“ og „polytechnic“ til að ítreka þessa þróun - og nefnt fyrirbærið þá „polyversity“. Vísindamálaráð- herra Vestur-Þýskalands hefur nýlega rætt um hugsanlegar aðgerðir til að auka fjölda þeirra sem stefna að doktorsnámi úr iðn- og verkmenntaskólum. Svíar hafa eiginlega nú þegar lokið heildarsamræmingu alls háskóla- stigsins og sama er nú að gerast t.d. í Wisconsin í Bandaríkjun- um en Bandaríkjamenn hafa reyndar lengi gert miklu minna

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.