Dagur - 29.09.1989, Blaðsíða 1
auglýsing
Brotið blað...
íslandsmeistarai í knattspyrnu 1989. fremri röð frá vinstri. Árni Þór Freysteinsson, Gauti
Laxdal, Jónas Þór Guðmundsson, Erlingur Kristjánsson, Haukur Bragason, Ægir Dagsson,
Stefán S. Ólafsson og Þorvaldur Örlygsson besti leikmaður 1. deildar 1989. Aftari röð frá
vinstri. Guðjón Þórðarson þjálfari, Árni Hermannsson, Halldór Halldórsson, Bjarni
Jónsson, Steingrímur Birgisson, Halldór Kristinsson, Jón Kristjánsson, Örn Viðar Arnar-
son, Antony Carl Gregory, Jón Grétar Jónsson, Ómar Torfason sjúkraþjálfari og Stefán
Gunnlaugsson formaður knattspyrnudeildar. Á myndina vantar þá Ormarr Örlygsson og
Arnar Bjarnason. Mynd: ap
fslandsmótið Hörpudeild 1989:
Enginn lukkustimpill framan af mótinu
„íslandsmeistarar! íslandsmeistarar!" Já,
þeir voru margir sem hrópuðu þetta þegar
ljóst var hverjir voru orðnir íslandsmeistarar
1989 síðdegis þann 16. september sl. Hver
hefði trúað því fyrir aðeins þremur árum þeg-
ar meistaraflokkur KA kom uppúr 2. deild að
liðið yrði orðið það besta á íslandi nú. Það er
ekki tilviljun sem ræður því að lið verður ís-
landsmeistari í sinni íþróttagrein. Þar spilar
margt inní. Gott lið sem lengi hefur spilað
saman, góður þjálfari, dugleg stjórn og dygg-
ir stuðningsmenn eru stærstu póstarnir.
Dulítil heppni hefur löngum fylgt topp-liðun-
um þó því hafi ekki verið að skipta hjá KA í
sumar nema e.t.v. í síðustu umferðinni og má
segja að tími hafi verið tii kominn. Sæmundur
Óskarsson formaður KA-klúbbsins í Reykja-
vík sagði í viðtali í leikskrá KA sem gefin var
út í sumar að hann óskaði þess að eitthvað af
heppni sinni í lífinu færðist yfir á KA. Hann
var þegar um miðja deild farinn að spá KA ís-
landsmeistaratitli og virðist þar hafa verið
sannspár. En lítum aðeins um öxl og rifjum
upp gang mála í sumar.
Strax s.l. haust var ljóst að Guðjón Þórðar-
son yrði áfram þjálfari liðsins og það sem
meira var, að hann yrði búsettur á Akureyri
og gæti því sinnt þeim liðsmönnum sem þar
búa allt árið. Tveir leikmenn frá fyrra tímabili
léku ekki með í sumar, þeir Friðfinnur Her-
mannsson og Valgeir Barðarson en aðrir leik-
menn komu í þeirra stað, Ormarr Örlygsson
frá Fram og Jón Grétar Jónsson frá Val.
Hvar var heppnin?
Mánudagurinn 22. maí rann upp og fyrsti
leikur tímabilsins var gegn FH í Hafnarfirði.
„Jafntefli í slökum leik" var fyrirsögn Dags
eftir leikinn en hvern hefði grunað að þarna
ættust við liðin sem áttu eftir að berjast um
titilinn að hausti.
Fram íslandsmeistarar 1988, sóttu KA
heim í næsta leik og gerði KA sér lítið fyrir og
sigraði þá eftirminnilega 3:1 á malarvelli
félagsins. Liðið lék mjög vel í leiknum áhorf-
endum til mikillar ánægju, en næsti leikur fór
líka fram á malarvelli, að þessu sinni heima-
velli Þórs. Akureyrarslagurinn endaði með
markalausu jafntefli þó KA ætti miklu fleiri
færi í leiknum. Þeir sóttu stíft, meira að segja
Erlingur sem þrisvar var dæmdur rangstæð-
ur. Þarna hefði heppnin mátt vera með þeim.
„Öruggur og fyllilega verðskuldaður
sigur," var sagt eftir leik KA og KR á KA-vell-
inum 9. júní. Leikurinn fór 4:1 KA í vil og
skoruðu þeir Jón Grétar, Bjarni, Þorvaldur og
Gauti mörk KA. Fjórar umferðir búnar, KA
enn taplaust lið og komið með 8 stig í deild-
inni. En þá kom að tapi á útivelli gegn Skaga-
mönnum, 0:2 fyrir heimamenn. Náði liðið sér
aldrei á strik í leiknum og segja þeir sem á
horfðu að þakka hafi mátti Hauki fyrir að ekki
fór ver.
Leiðin liggur uppó við
Eftir 6. umferð höfðu KA menn færst enn
neðar í deildinni. Þeir sátu þá í 6. sæti á eftir
Val, ÍA, KR, FH og Fram eftir jafntefli gegn
Víkingi á Akureyrarvelli. Þarna var þó á ferð-
inni mikill markaleikur sem endaði 3:3. Fylk-
ismenn tóku á móti KA í næstu umferð og
eins og allir muna vafalaust fór þetta annars
ágæta lið með sigur af hólmi í leiknum. En
það erfir það örugglega enginn lengur við þá
þar sem þeir bættu KA mönnum það svo
sannarlega upp síðar.
8. leikur deildarinnar færði KA mönnum
sjálfstraustið á ný þegar þeir sigruðu Val á
Hlíðarenda í fyrsta skipti eftir að liðið komst
í 1. deild 1986. Það var sætt fyrir Antony Carl
að skora eina mark leiksins gegn sínum fyrri
félögum. KA var betra liðið í leiknum, sótti
meira og uppskar eftir því. Eftir þennan leik
tapaði KA ekki leik í deildinni í tvo og hálfan
mánuð.
Og enn færðust KA menn ofar í deildinni
þegar þeir sigruðu Keflvikinga á Akureyrar-
veili 2:1 í 9. umferð og gerðu síðan jafntefli
við FH-inga í fyrsta leik síðari umferðar. Eftir
marktækifærum að dæma hefðu KA menn átt
að gera út um leikinn strax í fyrri hálfleik en
þeir nýttu ekki færin og því fór sem fór. Eftir
umferðina var liðið samt í 3. sæti deildarinnar
með jafn mörg stig og FH og ÍA.
Tvœr sögul.egar vítaspyrnur
„Það gekk bara allt upp hjá okkur," sagði
Bjarni Jónsson í fyrirsögn í Degi eftir glæsi-
legan 1:3 sigur gegn Fram í Reykjavík í 11.
umferð, en næsti leikur var ákaflega afdrifa-
ríkur fyrir liðið þegar það gerði jafntefli við
Þór á Akureyrarvelli. Þessi leikur verður
sennilega eftirminnilegur vegna vítis sem
Þórsarar fengu í lok leiksins og nokkur styr
varð um. Óttuðust menn að þarna hefðu þeir
fengið á sig þýðingarmikið mark þar sem lið-
ið var nú í alvöru komið í toppbaráttuna. í
næsta leik sem var gegn KR á þeirra heima-
velli var á ný deilt um vítaspyrnu, sem að
þessu sinni var dæmd af KA. Leiknum lyktaði
með markalausu jafntefli; enn voru heilladís-
irnar víðs fjarri.
Sigur á Skagamönnum í næstu umferð
færði KA þrjú dýrmæt stig í toppbaráttunni
og rósin í hnappagatið var svo 1:5 sigur gegn
Víkingum á útivelli. Hvor tveggja mjög sann-
gjarnir sigrar og þurfti enga lukku til. Og þó
engir meistarataktar hafi sést hjá liðinu gegn
Fylki á Akureyrarvelli í þriðju síðustu umferð
íslandsmótsins, sigruðu þeir 2:1 og voru eftir
það einir í efsta sæti deilarinnar.
Andlegu jafnvœgi náð
Þegar hér var komið sögu fóru taugarnar
sannarlega að titra jafnt hjá liðsmönnum,
stjórnarmönnum og stuðningsmönnum. Á
meðan Stebbi Gull var á útopnnu við að fá
samið stuðningslag og láta útbúa flögg og
trefla hafði Guðjón þjálfari nóg að gera við að
róa hðsmenn og halda þeim utan við hama-
ganginn. Næsti leikur var ákaflega þýðing-
armikill því hann gat í raun fært KA íslands-
meistaratitilinn en Valsmenn voru ekki á því
að gefa eftir og náðu að halda í jafntefli. Von-
brigði hinna 1700 áhorfenda á Ákureyrarvelh
voru augljós en eftir á að hyggja voru þessi
úrslit e.t.v. ágæt því þau komu flestum niður
á jörðina á ný. Stefnan var sett á Evrópusæti
og pressan á liðinu minnkaði mikið. Þeir
mættu því grimmir, en í andlegu jafnvægi til
leiks í Keflavík í síðasta leik íslandsmótsins.
Það þarf ekki að tíunda nánar það sem síð-
ar gerðist. Heilladísirnar sáu sér loksins fært
að styðja þessa spræku knattspyrnumenn
frá Akureyri enda hefur þeim eins og öðrum
vafalaust þótt tími til kominn. Sætur og verð-
skuldaður íslandsmeistaratitill var í höfn.
Punkturinn yfir i-ið á þessum frábæra
árangri var síðan útnefning efnilegustu og
bestu leikmanna sumarsins á lokahófi KSÍ á
Hótel íslandi um síðustu helgi. Þar hlaut Þor-
valdur Örlygsson titilinn Besti leikmaður
íslandsmótsins Hörpudeildar og Arndis
Ólafsdóttir KA var útnefnd efnilegasti
leikmaður meistaraflokks kvenna. VG