Dagur - 25.10.1989, Qupperneq 11
Miðvikudagur 25. október 1989 - DAGUR - 11
fþróttir
Neistinn er að koma
- segir Haukur Valtýsson fyrirliði KA
Blak:
hjá okkur á að geta stöðvað hann
upp við netið.
Pað sem við erum að gera nú
er að skipuleggja leikaðferð sem
við vonum að komi þeirn í opna
skjöldu. Þeir sækja ekki eins
mikið upp miðjuna eins og við og
það gæti komið þeint á óvart ef
við spilum á allt annan hátt en
þeir eru vanir. Aðalatriðið hjá
okkur er hins vegar að ná sem
hagstæðustum úrslitum á útivelli
þannig að fyrir seinni leikinn á
Akureyri ættum við möguleika á
því að komast í aðra umferð.“
Ekki öruggt að Fei
leiki með
Enn eru mál Hou Xiao Fei þjálf-
ara KA ekki komin á hreint og
ekki víst að hann geti leikið með
KA í þessum tveimur Evrópu-
leikjum. Félagaskipti Feis eru til
meðferðar hjá Alþjóða blaksam-
bandinu og þurfti KA að greiða
75 þúsund fyrir skiptin. En þessir
háu herrar virðast taka sinn tíma
og ekki bólar á því að þeir gefi
grænt ljós á að Fei spili í gulu
KA-treyjunni.
Haukur sagði að KA-menn
væru staðráðnir í því að standa
sig vel í Evrópuleikjunum, með
eða án Fei sem þjálfara. Hann
sagði að áhorfendur gætu haft
úrslitaáhrif í seinni leiknum.
„Það var t.d. áberandi í fyrra hve
strákarnir mögnuðust upp í þeim
leikjum sem eitthvað var af
áhorfendum á. Við vonumst því
eftir góðum stuðningi Akureyr-
inga og annarra Norðlendinga
11. nóvember næstkomandi,"
sagði fyrirliðinn.
Karfa:
Jón Öm
meiddur
- missir af tveimur
leikjum
Jón Örn Guðmundsson körfu-
knattleiksmaður úr Þór meidd-
ist í leiknum gegn ÍR og verður
því fjarri góðu gamni er liðið
mætir Grindvíkingum í Iþrótta-
höllinni á Akureyri á fiinmtu-
dagskvöldið. Á móti kemur að
Jóhann Sigurðsson hefur náð
sér af meiðslum og verður því
að öllum líkindum með gegn
UMFG.
Jón Örn snéri sig illa í byrjun
síðari hálfleiks en harkaði af sér
og spilaði leikinn til enda. Eftir á
kom í ljós að blætt hafði inn á
vöðva og mun því Jón Örn að öll-
urn líkindum einnig missa af
leiknum gegn Reyni í Sandgerði
á sunnudaginn.
Jón Örn Guðmundsson.
Haukur Valtýsson fyrirliði KA-liðsins í blaki.
„Það er eins og okkur hafi
vantað þennan sigurvilja sem
nauðsynlegur er til þess að ná
árangri í íþróttum,“ sagði
Haukur Valtýsson fyrirliðið
Islandsmeistara KA í blaki er
hann var inntur eftir því hvers
vegna KA-liðinu gangi ekki
eins vel í ár eins og á síðast-
liðnu keppnistímabili.
„Það er eins og titilhungrið sé
ekki lengur til staðar og það þarf
að laga áður en lengra er haldið.
Hins vegar má ekki gleyma því
að við erum meistarar og hin lið-
in leggja metnað sinn í það að
leggja okkur að velli. Síðan hefur
Fei ekki spilað með okkur í ár og
það veikir liðið óneitanlega.“
Haukur lagði áherslu á að mót-
ið væri nýbyrjað og það væri ekki
hægt að dæma liðið eingöngu út
frá þessum tveimur leikjum:
„Við vorum með unninn leik
gegn ÍS og töpuðum honum á
kæruleysi. Við lentum í basli á
Norðfirði en ég vil benda á að
Sund:
Ómar fjölhæfastur
Sundkrakkar úr Óöni voru á
ferð og flugi um síðustu helgi.
Nokkur voru að keppa í
Reykjavík en annar hópur var
á Isafirði og tók þar þátt í
Kíwanismóti Bása þar í bæ.
Þar hlaut Ómar Árnason verð-
laun fyrir besta samanlagða
árangur í fjórum drengjagrein-
um og var þar að auki valinn
fjölhæfasti sundmaðurinn í
drengjaflokki.
Auk Ómars tóku þau Svava H.
Magnúsdóttir, Hlynur Túliníus
og Gísli Pálsson þátt í þessu móti
Staðan
3. deild
A-riðiII
Víkingur-b 4 4-0-0 120:100 8
UMFA 2 2-0-0 40: 34 4
ÍR-b 3 1-1-1 64: 64 3
UFHÖ 3 1-0-2 59: 59 2
Haukar-b 2 1-0-1 45: 45 2
KR-b 21-0-1 51:52 2
is 2 0-1-1 44: 45 1
Stjarnan-b 2 0-0-2 41: 44 0
ÍBÍ 2 0-0-2 41: 62 0
B-riðill
UBK-b 2 2-0-0 50:45 4
Ármann-b 2 1-1-0 53:45 3
Fram-b 1 1-0-0 36:16 2
ÍH 1 1-0-0 28:17 2
Fylkir 1 1-0-0 27:26 2
Völsungur 2 0-1-1 48:50 1
Grótta-b 1 0-0-1 20:23 0
Ögri 2 0-0-2 48:57 0
Reynir 2 0-0-2 33:64 0
- á ísafirði
á ísafirði. Þau hlutu fimm gull-
verðlaun, fern silfurverðlaun og
þrenn bronsverðlaun að þessu
sinni.
Elsa M. Guðmundsdóttir,
Svavar Þ. Guðmundsson, Pétur
Pétursson og Ottó K. Túliníus
kepptu á sama tíma á opna Gold-
en-Cup sundmótinu í Reykjavík
og á Grand-Prix mótinu þar sem
12 bestu sundmenn landsins í
hverri grein fá að keppa. Á
Grand-prix mótinu var keppt í
undanriðlum og komust þau
Elsa, Svava og Pétur fimm sinn-
um í úrslit. Það þýðir að þau voru
meðal fjögurra bestu í viðkom-
andi grein. En lftum þá á úrslitin
hjá krökkunum í Óðni:
Grand Prix: Elsa M.G. 25 skrið. 4. sæti
100 fjór. 4. sæti
SvavarÞ.G. 25 skrið. 5. sæti
100 fjór. 3. sæti
Ottó K.T. 25 skrið. 9. sæti
100 fjór. 10. sæti
Goldcn-Cup: ElsaM.G. 100 flug. 4. sæti 1:11.95
SvavarÞ.G. 100 bak. 4. sæti 1:05.31
Ottó K.T. 100 skrið. 5. sæti 57.88
Pétur P. 100 bak. 5. sæti 1:09.79
Kíwanis-mót Gísli P. 100 flug. 2. sæti 1:10.85
100 bak. 3. sæti 1:19.72
100 skrið. 1. sæti 1:00.56
HlynurT. 100 flug. 4. sæti 1:18.67
100 bring. 2. sæti 1:21.63
100 skrið. 3. sæti 1:02.68
ÓmarÞ.Á. 100 flug. 1. sæti 1:08.80
100 bak. 2. sæti 1:17.57
100 bring. 1. sæti 1:21.24
100 skrið. 4. sæti 1:04.29
Svava H.M. 50 flug. 2. sæti 38.50
66 fjór. 1. sæti 50.44
50 skrið. 1. sæti 32.30
okkur hefur alltaf gengið illa þar
gegn Þrótti á undanförnum
árum.
í sambandi við ÍS-leikinn þá
var viss pressa á okkur fyrir þetta
mót af því að við töpuðum eng-
um leik á íslandsmótinu í fyrra.
Þótt menn hafi e.t.v. ekki viljað
viðurkenna það þá held ég að
þetta hafi setið í mannskapnum.
Það má því segja að tapið hafi
losað okkur við vissa pressu og
núna getum við farið að spila
með hjartanu aftur.
Spenna fyrir
Evrópuleikinn
Haukur sagði að spennan væri
farin að magnast hjá liðinu fyrir
Evrópuleikinn gegn Strassen í
Luxemborg um aðra helgi og að
með henni væri gamli góði bar-
áttuneistinn að koma aftur. „Það
var deyfð yfir þessu hjá okkur í
byrjun en nú er þetta allt að
koma,“ bætti hann við.
Blak í Lúxemborg stendur á
gömlum merg og eru lið þar í
landi talin ívið sterkari en íslensk
lið. Landslið íslands og Luxern-
borgar hafa keppt tvisvar sinnum
og í bæði skiptin fóru Lúxem-
borgarar með sigur af hólmi 3:0.
Haukur Valtýsson var í íslenska
landsliðinu í báðum leikjunum
og hann var beðinn að gefa álit
sitt á lúxemborgísku blaki og
þessu liði, Strassen, sem KA
mætir í Evrópukeppninni.
„Við KA-menn rennum nokk-
uð blint í sjóinn í sambandi við
þetta lið. Þegar ég keppti með
íslenska landsliðinu gegn Lúxem-
borg fyrir tveimur árum þá voru
þrír leikmenn frá Strassen í lið-
inu. Þrátt fyrir að við töpuðum
3:0 þá voru leikurinn mjög jafn
og munaði ekki nema 2-3 stigunt
í öllum hrinunum.
Nú skilst mér að Strassen eigi 5
leikmenn í landsliðinu og þar á
meðal besta sóknarmanninn í lið-
inu. Hann lék reyndar með
landsliðinu fyrir tveimur árum
þannig að við könnumst nokkuð
vel við hann. Þessi leikmaður er
mjög sterkur og smassar alls stað-
ar af vellinum. Hann er hins veg-
ar enginn töframaður og vörnin
Knattspyrna:
Laugamótíð í
mnanhússbolta
Ómar Árnason.
Hið vinsæla Laugamót í innan-
hússknattspyrnu í meistara-
flokki karla verður haldið dag-
ana 11.-13. nóvember næst-
komandi. Öllum félögum er
heimil þátttaka og má hvert
félag senda meira en eitt lið.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast til framhaldsskólans að
Yfirlýsing frá UMFT
Yfirlýsing frá Ungmenna-
félaginu Tindastóli Sauðár-
króki.
Stjórn Körfuknattleiksdeildar
Ungmennafélagsins Tindastóls á
Sauðárkróki harmar þann eftir-
mála er uppsögn Kára Marísson-
ar sem þjálfara úrvalsdeildarliðs
félagsins hefur hlotið. Umfjöllun
um þetta mál í blöðum hefur ver-
ið villandi.
Stjórnin harmar einnig það
ónæði sem Kári hefur orðið fyrir
vegna þessa rnáls og hvernig stað-
ið var að uppsögn hans, m.t.t.
þeirra starfa sem hann hefur unn-
ið fyrir körfuknattleikinn á Sauð-
árkróki.
Stjórn Körfuknattleiksdeildar-
innar væntir þess að nú, þegar
málin hafa verið til lykta leidd,
geti liðið einbeitt sér að þeim erf-
iðu leikjunt sem framundan erú
og trúir því að stuðningsmenn
muni hér eftir sem áður styðja
dyggilega við bakið á sínum
mönnum.
Laugum fyrir 1. nóvember.
Búist er við um 20 liðum á
mótið og er spilað eftir görnlu
reglunum, þ.e. með böttuin.
Leiktími verður 2x8 mínútur og
fara tvö efstu liðin í hverjum riðli
áfram í úrslitakeppnina. Boðið er
upp á svefnpokagistingu fyrir þá
sem vilja.
KA sigraði á móti.iu i' íyrra eft-
ir mikla baráttu við HSÞ-b. Það
má því búast við jafnri og spenn-
andi keppni á Laugum þessa
helgi.
Reyndar er önnur keppni í
gangi um sömu helgi í hinu nýja
Iþróttahúsi að Hrafnagili. Þar
stendur UMSE-b fyrir innanhús-
knattspyrnumóti til að fagna opn-
un íþróttahússins sem á að vera
þá helgi. Mótið er nefnt „Vínar-
mótið“ og fer fram laugardaginn
11. nóvember. Þar verður einnig
spilað eftir gömlu innanhússregl-
unum en án batta.