Dagur - 01.11.1989, Page 9
Miðvikudagur 1. nóvember 1989 - DAGUR - 9
frá Felli
Fædd 13. febrúar 1906 - Dáin 22. október 1989
Við kvöddum á mánudag, hinstu
kveðju tengdamóður mína, Ingi-
björgu Björnsdóttur húsmóður á
Felli í Glerárhverfi. Hún fæddist
á Básum í Grímsey, þar sem
heimskautsbaugurinn lá um bað-
stofuna þvera. Foreldrar hennar
voru hjónin Björn Guðmundsson
hreppstjóri og kona hans, Frey-
gerður Þorkelsdóttir. Ingibjörg
giftist ung Valdemar Júlíussyni
ættuðum úr Eyjafirði, og settust
þau að í Glerárþorpj (nú Glerár-
hverfi) og byggðu sér húsið Fell,
ásamt bróður Valdemars og mág-
konu, þeim Garðari og Sigur-
veigu, sem nú eru bæði látin.
Ingibjörg missti mann sinn árið
1963. Bar það að mjög skyndi-
lega og varð henni mikið áfall,
þar sem hjónaband þeirra var
ávallt mjög innilegt, og þau sam-
hent í lífsbaráttunni á erfiðum
tímum.
Pau komu upp þremur börnurn
sínum, Láru, Friðgeiri og Söru,
sem áttu hamingjusama æsku í
foreldrahúsum, þar til þau stofn-
uðu eigið heimili.
Ingibjörg var húsmóðir í þess
orðs fyllstu merkingu, reglusemi
og hagsýni voru hennar aðals-
merki, hæglát og örugg gekk hún
að sínu húsmóðurstarfi.
Síðustu ár ævi sinnar dvaldi
Ingibjörg á Dvalarheimilinu Hlíð
á Akureyri. Naut hún þar frá-
bærrar umönnunar starfsfólksins
þar til yfir lauk, og. eru því góða
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 2.677 kr. fyrir Fæðingardeild FSA fyrir skömmu með tombólu sem þær hcldu. Þær
heita, f.v.: Anna Jakobsdóttir, Eydís Stefanía Austfjörð Jóhannesdóttir, Sigrún Kristbjörg Tryggvadóttir og Eva S.
Þórðardóttir.
Þessir hressu krakkar héldu fyrir skömmu hlutaveltu til styrktar sundlaugar-
byggingu við Sólborg á Akureyri. Þeir söfnuðu alls 1.870 krónum og hefur
peningunum verið komið til skila. Krakkarnir heita: Rakel Kristjánsdóttir,
Hermann Steinarsson og Sigrún María Steinarsdóttir. Eru þeim færðar bestu
þakkir fyrir. Mynd: kl
Húsavík:
Myndir, lög og ljóð
- Jón Laxdal og Kristján Pétur
sýna í Safnahúsinu
Á morgun, föstudaginn 3.
nóvember kl. 21.00, opna Jón
Laxdal Halldórsson og Kristján
Pétur Sigurðsson myndlistasýn-
ingu í Safnahúsinu Húsavík.
Við opnunina munu þeir félag-
ar flytja kvæða- og söngdagskrá
sína Lög og ljóð, sem þeir hafa
flutt víðar og felst í flutningi Jóns
á eigin kvæðum og söng og gít-
arslætti Kristjáns Péturs.
Jón Laxdal hefur fengist við
skáldskap og myndlist jöfnum
höndum og sýnir í þetta sinn
smámyndir mitt á milli málverks
og klippimynda.
Kristján Pétur hefur lengstum
lagt stund á rokk og ról m.a. með
hljómsveitunum Kamarorghestar
og Lost, undanfarið hefur hann
og fengist við myndlist og sýnir
nú akrylmálverk.
Sem fyrr segir verður sýningin
opnuð föstudagskvöldið 3. nóv.
kl. 21 og er athygli vakin á því að
sýningin verður aðeins opin það
kvöld og laugardaginn 4. nóv. frá
kl. 14 til 22 vegna anna þeirra
félaga.
Engin boðskort verða send út
en allir eru hjartanlega velkomn-
ir.
Heiðajarlar
eftir Jónas Kristjánsson.
Þetta er nýstárleg
bók, sem er engri
annarri hestabók lík.
Hún sýnir á myndrænan og
auðskilinn hátt, hvernig
ættir þeirra tengjast og
hver er hlutur hinna frægu
hestaætta, svo sem
Hornfirðinganna og
Svaðastaðakynsins.
Þetta er óskabók
alvöru hestamanns-
ins í ár.
Hún er öðruvísi en
hinar bækurnar,
sem hann hefur
áður fengið.
Hestasport
Helgamagrastræti 30
Sími 21872.
Opið alla virka daga frá kl. 14-19
og á laugardögum.
ínnilegar þakkir frá
ættingjum hennar.
Megi hún hvíla í friði, blessuð
sé minning hennar.
Olafur Haukur Flygenring.
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Fimmtudaginn 2. nóvember
1989 kl. 20-22 veröa bæjarfull-
trúarnir Sigurður J. Sigurðsson
og Úlfhildur Rögnvaldsdóttir til
viðtals á skrifstofu bæjarstjóra,
Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara
símaviðtölum eftir því sem
aðstæður leyfa. Síminn er
21000.
Karlakórsmenn
Akureyri og nágrenni
Komið og tökum lagið saman (gömlu karla-
kórslögin) í Lóni við Hrísalund í kvöld mið-
vikud. kl. 20.30.
Allir áhugamenn um karlakórssöng velkomnir.
Mætið stundvíslega og ræðum málin eftir æfingu.
Karlakórinn Geysir.
Karlakór Akureyrar.
Hestamenn
Eyjafírði og Þingeyjarsýslum
Hrossaræktarsamband Eyfirðinga og Þingeyinga hef-
ur komist að samkomulagi við Jóhannes Haraldsson,
Rauðuskriðu, að hann taki í hagagöngu og fóðrun,
óvanaða ungfola.
Peir sem vilja nota sér þessa þjónustu hafi samband
við Jóhannes í síma 43504.
Stjórnin.
Félag aldraðra
Akureyri
ási aldraðra laugardaginn 4. nóv-
ember nk. kl. 14.00 stundvíslega.
Dagskrá:
1. Fréttir frá sumarstarfinu.
2. Kynning á starfi Landssambands eldri borgara.
3. Önnur mál.
4. Skemmtiatriði í tali og tónum.
Kaffiveitingar ★ Dans.
Birgir Marinósson sér um fjörið.
Stjórnin.
Akureyringar
Ferskar
fréttir með
morgunkaffinu
Askriftar^sST 96-24222